Morgunblaðið - 19.04.2001, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2001 61
Bridsfélag Suðurnesja
Hið árlega Kaskó-mót félagsins
var haldið sl. laugardag og spiluðu 7
sveitir. Sveit Heiðars Sigurjónsson-
ar, Þrastar Þorlákssonar, Kjartans
Ólasonar og Óla Þórs Kjartanssonar
hafði nokkra yfirburði í mótinu og
sigraði með glæsibrag.
Það var helzt að nokkrir góðborg-
arar á besta aldri úr Sandgerði og
Keflavík reyndu að klóra í hæla
þeirra en þeir voru lagðir með snið-
glímu á lofti af sigurvegurum móts-
ins í næstsíðustu umferðinni.
Bridsfélagið þakkar Kaskó vel-
vildina í gegnum árin en Kaskó gaf
páskaegg til þriggja efstu sveitanna.
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
Sigursveitin í Kaskó-móti Bridsfélags Suðurnesja sem fram fór sl.
laugardag. Talið frá vinstri: Feðgarnir Kjartan Ólason og Óli Þór
Kjartansson, Þröstur Þorláksson og Heiðar Sigurjónssson.
BRIDS
U m s j ó n A r n ó r G .
R a g n a r s s o n
Bridsfélagið Muninn,
Sandgerði
Síðastliðið miðvikudagskvöld var
lokakvöld í þriggja kvölda sveita-
keppni, sem lauk með sigri sveitar
Jóhanns Benediktssonar en hún
fékk 102 stig. Með Jóhanni spiluðu
Sigurður Albertsson, Óli Þór Kjart-
ansson, Garðar Garðarsson og
Kjartan Ólason.
Í öðru sæti var sveit Karls G.
Karlssonar með 94 stig.
Í þriðja sæti lenti sveit Karls Ein-
arssonar með 81 stig.
Sl. miðvikudagskvöld hófst
þriggja kvölda butler-tvímenningur.
Spilamennska hefst stundvíslega
klukkan 19.30 öll miðvikudagskvöld.
Munið að það er alltaf heitt kaffi á
könnunni.
Bridsfélag Kópavogs
Fimmtudaginn 19. apríl (sumar-
dagurinn fyrsti) verður spilað síð-
asta kvöldið í þriggja kvölda Butler
tvímenningi í boði 11-11 verslan-
anna. Staðan fyrir síðasta kvöldið er
þessi:
Ragnar Björnss. – Sigurður Sigurjónss. 60
Magnús Aspelund – Steingrímur Jónass. 53
Heimir Tryggvason – Leifur Kristjánss. 53
Baldur Bjartmarss. – Guðm. Sigurjónss. 52
Spilamennska hefst kl.19.45 og er
spilað í Þinghól í Hamraborginni.
Geisladiskahulstur
aðeins 500 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is