Morgunblaðið - 19.04.2001, Page 67

Morgunblaðið - 19.04.2001, Page 67
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2001 67 ✝ GuðmundurBjörnsson fædd- ist í Urriðakoti í Garðahreppi 9. febrúar 1917. Hann lést á Landspítalan- um í Fossvogi 10. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans voru Björn Jóhann- esson, f. 28. mars 1895, d. 22. nóvem- ber 1964, og kona hans Jónína Guð- mundsdóttir, f. 2. nóvember 1892, d. 15. júlí 1981. Bróðir Guðmundar er Hafsteinn Björns- son, f. 22. desember 1918. Hinn 21. apríl 1943 kvæntist Guðmundur eftirlifandi eigin- konu sinni, Kristínu Benjamíns- dóttur úr Hafnarfirði, f. 30. nóv- ember 1921. Börn þeirra eru: 1) Hildur, húsmóðir, f. 28. júlí 1943. Maki hennar var Ólafur Baldur Ólafsson, f. 10. júlí 1945, d. 19. desember 1999. Dóttir þeirra er Kristín Lára, f. 10. ágúst 1973, í sambúð með Magnúsi Eyjólfs- syni, sonur þeirra er Tómas Óli, f. 2. janúar 1999. 2) Dagný, kennari, f. 16. júlí 1949, maki Sævar Hjálmarsson, f. 24. apríl 1946, synir þeirra eru Guðmund- ur, f. 5. febrúar 1973, maki Hrönn Hilmarsdóttir, og er dótt- ir þeirra Sif, f. 17. desember 2000, Birgir Björn, f. 19. febrúar 1978, og Davið Þór, f. 7. janúar 1987. 3) Björn, læknir, sérfræð- ingur í heimilislækningum, f. 3. hann var yfirlæknir frá janúar 1972 til desember 1987. Auk þess rak hann stofu í Lækjar- götu og Domus Medica og loks á Öldugötu. Þá fór Guðmundur reglulega í augnlækningaferðir um Vesturland árin 1974 til 1977 og í Borgarnes til 1984. Hann átti stóran þátt í að koma á fót göngudeild fyrir glákusjúklinga á Öldugötu, skipuleggja vakt- þjónustu augnlækna og einnig var hann einn aðalhvatamaður að stofnun Sjónstöðvar Íslands. Guðmundur hóf kennslu í augn- sjúkdómafræði við Læknadeild Háskóla Íslands fyrst sem dósent frá nóvember 1973 og prófessor frá febrúar 1979 til desember 1987. Guðmundur tók þátt í margvíslegum félags- og trún- aðarstörfum og má þar nefna að hann sat í samninganefndum og stjórn Læknafélags Reykjavíkur, Nesstofu hf., Domus Medica og Augnlæknafélag Íslands. Einnig tók hann þátt í starfsemi Odd- fellow-reglunnar. Guðmundur var mikilvirkur í rannsóknum og skrifum. Eftir hann liggur fjöldi vísindagreina sem birst hafa í innlendum og erlendum læknaritum. Hann var meðritstjóri norræna augnlækn- ingatímaritsins 1974 til 1987. Síðasta verkefni Guðmundar á þessu sviði var að skrá sögu augnlækninga á Íslandi og kem- ur það rit væntanlega út innan skamms. Hann var kjörinn félagi í Vísindafélagi Íslendinga 1983, heiðursfélagi Augnlæknafélags Íslands 1990. Fálkaorðuna fékk hann 1982. Útför Guðmundar fer fram frá Fossvogskirkju á morgun, föstu- daginn 20. apríl, og hefst athöfn- in klukkan 13.30. júlí 1951, maki Helga Lára Guðmundsdótt- ir, f. 30. október 1951, synir þeirra eru Guðmundur, f. 31. október 1977, og Hallgrímur, f. 2. des- ember 1980. 4) Edda, kennari, f. 18. sept- ember 1958, maki Guðmundur Víðir Helgason, f. 1. apríl 1956, synir þeirra eru Helgi Hrafn, f. 16. ágúst 1984, Kjartan, f. 20. ágúst 1988, og Hrafnkell, f. 23. mars 1991. 5) Gunnar, lækn- ir, sérfræðingur í lyflækningum, lungna- og gjörgæslulækningum, f. 9. júní 1962, maki Rakel María Óskarsdóttir, f .17. ágúst 1958, dætur þeirra eru Kristrún, f. 27. janúar 1989, Brynja, f. 17. nóv- ember 1990, og Auður, f. 28. des- ember 1995. Guðmundur ólst upp í Urriða- koti og síðar Hafnarfirði og lauk stúdentsprófi frá MR 1937 og læknaprófi frá HÍ 1944. Þá lá leiðin í sérnám í augnlækningum í Bandaríkjunum og dvaldi hann þar í Madison, Chicago og loks Memphis. Hann varði doktors- ritgerð við Háskóla Íslands 1967 og fjallaði hún um gláku á Ís- landi. Hann var starfandi augn- læknir í Reykjavík frá júní 1948 til maí 1989 þegar hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Hann starfaði í fyrstu á Hvítabandinu en frá 1969 á Landakoti þar sem Frændi minn, Guðmundur Björnsson augnlæknir, fæddist í Urriðakoti í Garðahreppi. Hann ólst þar upp hjá afa sínum og ömmu, Guðmundi Jónssyni og Sig- urbjörgu Jónsdóttur, til 10–11 ára aldurs. Eins og nærri má geta voru aðstæður þar æði frumstæðar mið- að við það, sem nú tíðkast. Þó að hann kynntist nær engum bóka- kosti á uppvaxtarárunum varð hann snemma staðráðinn í að fara í langskólanám, jafnvel þó að hann heyrði oft sagt, að bókvitið yrði ekki í askana látið. Það var heilla- rík ákvörðun, bæði fyrir hann sjálf- an og þá fjölmörgu, sem notið hafa verka hans sem augnlæknis og sem vísindamanns á því sviði, en um það mun ég ekki fjalla. Það munu aðrir mér færari vafalaust gera. Móðir mín, Guðbjörg Guðmunds- dóttir, yngsta móðursystir Guð- mundar, átti heima hjá foreldrum sínum í Urriðakoti, þegar Guð- mundur var að alast þar upp. Þau voru mjög góðir vinir, nánast eins og systkin, og naut ég góðs af þeim tengslum, enda nær vinskapur okkar Guðmundar svo langt aftur sem ég man eða rúmlega sextíu ár. Þegar litið er yfir farinn veg er margs að minnast. Upp í hugann kemur hjálpsemi hans, þegar til hans var leitað sem augnlæknis, notaleg nærvera og samræður um ýmis sameiginleg áhugamál. Guð- mundur og kona hans fóru í marg- ar langferðir. Greinilegt var, þegar Guðmundur ræddi um ferðirnar, að hann leit gjarnan á þær sem fræðsluferðir, svo vel tók hann eft- ir því, sem fyrir augu bar, og naut ég oft góðs af, þegar ég hlýddi á frásagnir hans af ferðum um fjar- læg lönd. Guðmundur hafði mikinn áhuga á ættfræði og tók saman rit um móðurætt sína, en það hefur ekki verið gefið út. Einnig hafði hann mikinn áhuga á náttúrunni og nátt- úruvernd. Líklegt þykir mér, að sá áhugi hafi byrjað þegar á barns- aldri, þegar hann var að alast upp í Urriðakoti, en hann hafði mjög sterkar taugar til bernskustöðv- anna þar. Þegar ég hitti Guðmund síðast, rúmri viku áður en hann lést, sagði hann mér, að hann væri þakklátur fyrir að hafa alist upp í Urriðakoti, þar sem hann kynntist lífsháttum, sem nú eru löngu af- lagðir. Sérstaklega nefndi hann, hversu ánægjulegt og ógleyman- legt hefði verið að fylgjast með því, þegar náttúran var að lifna við á vorin, en það er miklu meira áber- andi í dreifbýli en þéttbýli. Eftir sitja verðmætar minningar um góðan dreng, sem lifa munu með okkur, sem nutum þeirrar gæfu að eiga með honum samfylgd. Ég kveð Guðmund Björnsson augnlækni með virðingu og þakk- læti í huga. Kona mín og ég sendum fjöl- skyldu hans innilegar samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning hans. Svanur Pálsson. Lokið hefur ævigöngu sinni einn merkasti augnlæknir sem Ísland hefur alið, prófessor Guðmundur Björnsson, 84 ára að aldri, eftir stutta en stranga baráttu við ill- kynja sjúkdóm. Guðmundur fæddist í Urriðakoti í nágrenni Hafnarfjarðar 9. febr- úar 1917 og ólst þar upp við kröpp kjör. Ég trúi að það hafi mótað lífsviðhorf hans þótt aldrei hafi hann beinlínis haft á því orð, en víst er að jafnaðarmaður var hann, ekki síst í heilbrigðismálum. Hon- um sveið að horfa upp á fólk missa sjón vegna fátæktar og fáfræði. Langa starfsævi sína helgaði hann augnlækningum og sjónvernd. Hann aflaði sér bestu menntunar sem völ var á og eftir heimkomu frá Ameríku lagði hann ríka áherslu á að hemja þann sjúkdóm, sem örugglega hefur blindað flesta Íslendinga frá upphafi Íslands- byggðar eða hina illvígu gláku. Guðmundur var gæddur skipu- lagshæfileikum umfram aðra menn, sem hann nýtti mjög í þágu skjól- stæðinga sinna, enda alla tíð vinnu- samur og heilsugóður. Þessir eiginleikar öfluðu honum álits og virðingar meðal starfs- félaga sinna. Hann stofnaði fyrstu augndeild landsins, Augndeild Landakotsspítala, og var þar í for- svari um langt árabil. Þar stundaði hann augnskurðlækningar við góð- an orðstír. Hann kom þar á fót göngudeild til að sinna forvörnum á sviði augnsjúkdóma, ekki síst gláku, með góðri aðstoð Lions- manna. Segja má að árangur þess starfs hafi svo sannarlega borið ríkulegan ávöxt, þar sem fátítt er nú á tímum að menn verði blindir af völdum gláku. Guðmundur lét sér og annt um menntun lækna- stúdenta, varð fyrsti dósent í augn- lækningum við læknadeild Háskóla Íslands og síðar prófessor. Þá var honum ekki síður hugleikin mennt- un lækna í sérnámi í augnlækn- ingum, enda mikill augnlækna- skortur hérlendis á þeim tíma. Segja má að hann hafi bókstaflega alið upp heila kynslóð augnlækna. Var hann þar brautryðjandi eins og á svo mörgum öðrum sviðum. Þá hvatti hann til sérhæfingar innan greinarinnar, sem reynst hefur góður grunnur að þeim framförum sem orðið hafa í augnlækningum hér á landi á síðari tímum og skip- að hefur okkur fremst í flokk vest- rænna þjóða að því leyti. Þrátt fyrir mikið vinnuálag gaf Guðmundur sér ávallt tíma til að sinna vísindastörfum. Hann var óhemju afkastamikill á því sviði, skrifaði fjölda greina í innlend og erlend vísindarit, ekki síst um gláku. Þá ritaði hann margar grein- ar í dagblöð og alþýðleg rit, þar sem hann kynnti og uppfræddi al- menning um blinduvaldandi sjúk- dóma og ráð við þeim. Hann hafði alla tíð hugann við að hjálpa blind- um og sjónskertum og hvatti meðal annars til stofnunar endurhæf- ingarstöðvar fyrir sjónskerta, sem tók til starfa árið 1987 undir nafninu Sjónstöð Íslands. Þar eiga sjónskertir kost á margháttaðri að- stoð, meðal annars með úthlutun hjálpartækja og þjálfun í athöfnum hins daglega lífs og umferli. Sat hann í stjórn stöðvarinnar um langt árabil. Ekki verður annað sagt en að menn hafi metið að verðleikum störf Guðmundar. Hann varði doktorsritgerð við læknadeild Háskóla Íslands um glákurannsóknir sínar (1967), tók þátt í stjórn Augnlæknafélags Ís- lands, meðal annars sem formaður og heiðursfélagi (1990), og var sæmdur riddarakrossi hinnar ís- lensku fálkaorðu (1982) svo eitthvað sé nefnt. Eftir að Guðmundur lét af störf- um fyrir aldurs sakir varði hann miklum hluta tíma síns í ritun bók- ar um sögu augnlækninga á Íslandi. Það er mikið ritverk, sem hann góðu heilli náði að ljúka áður en heilsan brást og koma mun út síðar á árinu á vegum Háskólaútgáfunn- ar. Samhliða ærnu starfi gaf Guð- mundur sér ætíð tíma til að sinna áhugamálum svo sem fuglaskoðun, ættfræði, vatnslitamálun og ekki síst ferðalögum um framandi slóðir, sem hann mat mikils. Guðmundur var hávaxinn maður og fríður sýnum. Hann var snyrti- menni og prúðmannlegur í fram- göngu. Hann var maður sem borin var virðing fyrir. Guðmundur var farsæll læknir og náði öllum þeim frama sem nokkrum getur hlotnast, ekki síður var hann gæfumaður í sínu einka- lífi. Hann eignaðist ungur mikla öðlingskonu, Kristínu Benjamíns- dóttur, ættaða úr Hafnarfirði, sem bjó þeim hjónum og fimm börnum þeirra fallegt menningarheimili, lengst af í Brekkugerði hér í Borg. Þau voru óvenju samhent hjón, sem lifðu og störfuðu saman alla tíð sem ein heild. Síðustu árin bjuggu þau á Grandavegi 47 í góðri sátt við lífið og tilveruna. Gott var þau heim að sækja og alltaf fór maður betri maður af þeirra fundi. Það var langt frá eðli Guðmundar að mikl- ast af velgengni sinni. Ég held hann hafi verið sáttur við lífshlaup sitt, að minnsta kosti óttaðist hann ekki dauðann. Guðmundur bar ætíð hag minn sér fyrir brjósti og var mér sem besti fóstri, velgjörðar- maður og fyrirmynd. Ég mun ætíð minnast hans er ég heyri góðs manns getið. Stjórn og starfsfólk Sjónstöðvar Íslands sendir aðstand- endum hans sínar innilegustu sam- úðarkveðjur. Hans verður lengi minnst. Guðmundur Viggósson, augnlæknir, yfirlæknir Sjónstöðvar Íslands. GUÐMUNDUR BJÖRNSSON "  #   *  $  %     %  '   '     ;06 0 044 -#&'7&!(  #+7 3 0+  #      '&% &  4 &'  '(  '$&(  6 3; 2  ## !  '$&(## % &#  /& (' '$&(## 83; &      22, 222,3 3       '   .-= 6 .43 044> %& (&D "  +       5     4'     2  -      4'       !! 6 (    7'          #      #       & ) 4 ))   +      .& ' ,  '($''%3.&   & .&  ##3 .  '    '     HA= 0%666/= 044> .>- +  &% &   3          8  - &   $ '.&  6'('.&  .&  ;;  #   '(@.&  , 7  !(.&  % &. ## * !(';.&  '.3" 22, 222,3  '     '     6<485 46 0 044> 7&!(IC 6'  +     #  !   ' % &% 9* -      9*     !  !! %   2 ## J- #  K#J## J## $''   0&,   2!.'## 8 !$'     &,$$'2,3

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.