Morgunblaðið - 19.04.2001, Qupperneq 76
76 FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100 Símbréf 569 1329
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ÁHRIF hernáms Ísraelshers á til-
veru Palestínumanna sem búa á
Vesturbakkanum og Gasa-svæðinu
verða æ geigvænlegri. Flótta-
mannabúðirnar hafa löngum verið
líkastar fangabúðum en nú hefur
öllum herteknu svæðunum verið
breytt í allsherjar fangabúðir. Og
síðan dynja sprengjurnar úr lofti og
af láði. Sharon forsætisráðherra
Ísraels hefur ásamt með öðrum
herforingja, Mofaz hermálaráð-
herra, mótað áætlun um innilokun
Palestínumanna. Þessi Sharon-Mof-
az áætlun tók gildi 12. mars, en
með henni er herteknu svæðunum
skipt í 60 minni svæði sem eru af-
lokuð og undir strangri gæslu hers-
ins.
Fólk fær ekki að ferðast á milli
þessara svæða, nema með leyfi
hersins og það er ekki auðfengið
um þessar mundir.
Stefna Sharons og félaga hans er
að brjóta Palestínumenn á bak aft-
ur og alla andstöðu þeirra við her-
námið. Þetta heitir á máli Sharons,
og stundum Ríkisútvarpsins, að
krefjast þess að Palestínumenn láti
af ofbeldinu, eða að Arafat stöðvi
ofbeldið á herteknu svæðunum. Þar
er með öðrum orðum verið að krefj-
ast þess að Palestínumenn láti af
öllu andófi gegn hernámi. Krafa
Sharons er að palestínsku yfirvöld-
in banni öll mótmæli. Þetta er sá
friður sem Sharon krefst.
Þetta þýðir með öðrum orðum að
því aðeins verði sest að samninga-
borðinu ef tryggt er að enginn Pal-
estínumaður beri hönd fyrir höfuð
sér. Segjum sem svo að Arafat geti
tryggt að enginn Palestínumaður
kasti grjóti. Ekki heldur þeir sem
telja sig eiga harma að hefna. Segj-
um sem svo að Arafat geti gert hið
ómögulega og stöðvað öll mótmæli
og sest verði að samningaborðinu –
og samið, – en um hvað? Hvað hef-
ur Sharon boðið? Oslóarsamkomu-
lagið? Nei. Sharon hefur alltaf verið
á móti Oslóarsamkomulaginu. Hann
er stjórnmálamaður af þeirri gerð
að telja sig ekki bundinn af gerðu
samkomulagi fyrri ríkisstjórna.
Slíkt virðingarleysi fyrir samning-
um hefur jafnan einkennt þá sem
bera litla virðingu fyrir lýðræði.
Menn sem þannig hugsuðu stjórn-
uðu ríkjum á meginlandi Evrópu
fyrri hluta 20. aldar, þar á meðal
Þýskalandi.
Hugir Bush og Sharons liggja
saman. Það vekur óhug meðal fólks.
Bush telur sig ekki bundinn af
Kyoto-samkomulaginu, enda þótt
stjórn Clintons hafi undirritað það.
Sjá menn skyldleikann? Og Bush
virðist ekki telja sig bundinn af
þeirri ábyrgð sem Bandaríkjastjórn
ber á friðarferlinu eins og það hefur
verið kallað. Þá ábyrgð viðurkenndi
þó Clinton. Árangurinn varð þó rýr
og kannski verri en enginn, enda
réðu svokallaðir öryggishagsmunir
Ísraels ferðinni og Ísrael er í raun
með neitunarvald hjá Sameinuðu
þjóðunum fyrir tilstilli Bandaríkja-
stjórnar.
Sharon krefst þess að byrjað
verði á upphafsreit í samningavið-
ræðunum.
Hve stórt tilefni ætli hann þurfi
til að slíta viðræðum, ef hann sest
yfirleitt að samningaborði? Oslóar-
samkomulagið, eða Yfirlýsing um
grundvallaratriði, einsog það hét,
fól í sér friðarferli sem grundvall-
aðist á samþykktum Sameinuðu
þjóðanna, ekki síst ályktun Örygg-
isráðsins nr. 242 frá árinu 1967 um
að skila svæðunum sem þá voru
hertekin. Ísraelsstjórn hefur aldrei
sýnt vilja til þess. Þvert á móti er
stöðugt verið að efla aðstöðu land-
ræningja og innlima æ stærri svæði
í Ísrael, einkum kringum Jerúsal-
em. Sharon má eiga að hann dregur
lítt dul á þessar áætlanir. Skilaboð
hans til Palestínumanna, mitt í
skothríðinni og loftárásum Ísraels-
hers, eru skýr: Steinhaldið þið
kjafti, engin mótmæli, annars verð-
ið þið drepnir, allir ef með þarf!
SVEINN RÚNAR HAUKSSON
og ÞORSTEINN ÓSKARSSON.
Sprengjum varp-
að á fangabúðir
Frá Sveini Rúnari Haukssyni og
Þorsteini Óskarssyni:
NÝVERIÐ fann fyrirtækið Norður-
ljós upp á því að útvarpa djass-
tónlist á rás, sem fyrir skemmstu
var einungis fyrir unglinga, FM
97,7. Einnig er BBC aðgengileg á
90,9 – þetta er verulega gott fram-
tak. BBC er sérlega vandað út-
varpsefni fyrir upplýsta útvarps-
hlustendur, sem fylgjast með
heimsmálum og menningu, frekar
en staðlaðri vinsældatónlist, krydd-
aðri mislélegu froðusnakki, eins og
heyrist svo oft á ljósvakanum. Mér
finnst samt djassrásin ennþá betri
fyrir þá sök, að sú tónlist hefur allt-
af verið hornreka í útvarpi. Á 97,7
er gamalt swing í bland við nýtt
efni, ásamt blús og bræðingi.
Til þess að festa þessa rás í sessi,
væri óvitlaust að gera heimasíðu,
þar sem hægt væri að nálgast upp-
lýsingar um hvaða diskar eða flytj-
endur eru í spilun hverju sinni. Ég
efast ekki um að það yki t.d. sölu
Skífunnar á djassplötum, ef rétt
yrði að staðið. Einnig verður að
huga að endurnýjun efnisins, 90,9
var alveg hroðaleg áður fyrr, því
þar var sífellt úvarpað sömu lög-
unum, mánuð eftir mánuð. Tónlist-
arunnendur vilja tilbreytingu.
Stærsti gallinn á 97,7 er útsend-
ingin. Eina rásin sem stundum suð-
ar og sargar í bílnum mínum er
97,7 – en ég efast ekki um að Norð-
urljós hafi fljótlega tök á að koma
sér upp nothæfum búnaði til þess
að senda út þetta annars ágæta
efni.
Kærar þakkir, norðlýsingar.
SIGURÐUR HRAFN
GUÐMUNDSSON,
Njálsgötu 110, 105 Reykjavík.
Fjársjóður er fundinn!
Frá Sigurði Hrafni Guðmundssyni: