Morgunblaðið - 19.04.2001, Page 79
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2001 79
DAGBÓK
Bútasaumarar -
Bútasaumarar
Við erum á handverkssýningunni í
Laugardalshöll, Við - Bót ehf.
Vélstingum bútasaumsteppi í
Gammill stunguvél.
Setjum á bryddingar og fleira.
Móttaka Síðumúla 35, Reykjavík,
sími 553 3770.
Ofurminni-Minnistækni
Lær›u minnistækni sem hjálpar flér a› muna allt sem flig
langar til a› muna og skerpa um lei› athyglisgáfuna.
Námskei›i› ver›ur laugardaginn 28. apríl
næstkomandi frá kl. 10:00 - 16:00.
Ver› a›eins 6.500,-
Hringdu og skrá›u flig núna!
Skráningarsími:
891 8100
Laugavegi 101 við Hlemm.
Opið mán.-fös. frá kl. 11-18, lau. frá 11-16
ANTIK-
ÚTSALA
Skápar, skenkar, borð
og stólar, málverk.
Mikið af fáséðum smáhlutum,
matar- og kaffistell
10—30% afsláttur
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
HRÚTUR
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert fljótur að skipta skapi
en stendur þétt með vinum
þínum og vandamönnum.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú þarft að sýna sveigjan-
leika til þess að festast ekki í
einhverju óheillafari sem
skemmir allt fyrir þér. Láttu
ekki mótbyrinn fara í taug-
arnar á þér.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú átt þér marga skoðana-
bræður og ættir að leita þá
uppi og taka saman höndum
við þá um að hrinda áhuga-
málum ykkar í framkvæmd.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Allar breytingar eiga sér
nokkurn aðdraganda og þú
þyrftir að vita af honum til
þess að vera betur undirbú-
inn þegar höggið ríður.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Láttu ekki aðra stela hug-
myndum þínum því þær eiga
eftir að reynast þér gott
veganesti til frekari starfs-
frama. Sinntu vandamönnum
þínum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Hafðu allar staðreyndir á
hreinu ef þú vilt vinna ein-
hverja til fylgis við málstað
þinn. Ekkert er eins frá-
hrindandi og talsmaður sem
veit ekki hvað hann er að tala
um.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Ef þú vilt að aðrir taki upp
merkið verður þú að sjá til
þess að þeim sé ljóst hvað á
bak við það stendur og til
hvers það er borið fram.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Öll mál eiga sér fleiri en eina
hlið en samt getur endirinn
aðeins orðið á einn veg.
Kynntu þér vandlega alla
málavöxtu áður en þú mynd-
ar þér skoðun.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Oft eru það einkennilegir
hlutir sem að ráða úrslitum
og því skaltu vera við öllu bú-
inn því þeir liggja ekki alltaf í
augum uppi.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú leggur upp í tilfinninga-
ríkt ferðalag í dag og þótt þér
finnist þú fara um kunnugleg-
ar slóðir skaltu gefa þér tíma
til þess að taka eftir umhverf-
inu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það er fögur hugsjón að deila
hæfileikum sínum með öðrum
en farðu varlega því að mis-
jafn sauður er í mörgu fé og
ekki alltaf allt sem sýnist.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Láttu það ekki fara í taugarn-
ar á þér þótt samstarfsmenn-
irnir reyni á þolinmæði þína í
dag. Leyfðu þeim að láta sem
þá lystir og láttu það ekki
koma par við þig.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú hefur náð heill í höfn þrátt
fyrir misjöfn veður og stend-
ur nú á bryggjunni í sólskini
og nýtur árangurs erfiðis
þíns.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
LÓAN
Lóan er komin að kveða burt snjóinn,
að kveða burt leiðindin, það getur hún.
Hún hefir sagt mér, að senn komi spóinn,
sólskin í dali og blómstur í tún.
Hún hefir sagt mér til syndanna minna,
ég sofi of mikið og vinni ekki hót.
Hún hefir sagt mér að vakna og vinna
og vonglaður taka nú sumrinu mót.
Páll Ólafsson
STAÐAN kom upp í áskor-
endaflokki, Skákþingi Ís-
lands, er lauk nú um
páskana. Svart hafði Sigur-
jón Haraldsson (1.845) gegn
Ingvari Jóhannessyni
(2.010). 21. –Hxg3+! 22.
fxg3 Re3+ 23. Kf2 Hxh1 24.
Kxe3 Hvítur gat
fremur spriklað eft-
ir 24. Hxh1 Rxc2 25.
Hh8+ Rd8 26. Bxc2
þó að vissulega sé
staða hans töpuð.
Framhaldið varð:
24. –De8+! 25. Kf2
Hxa1 26. Rb1 Dh5
27. Kg1 Hxa2 28.
De2 a6 29. Ra3
Ha1+ 30. Bb1 Kb8
31. De6 Dg5 32.
De8+ Ka7 33. De1
Df5 34. Dd1 De6
35. Dd3 Re7 36.
Kg2 De1 37. Dc2
De3 38. Kh2 f5 39. Dg2
Dh6+ 40. Kg1 Dc1+ 41. Kh2
Hxb1 42. Rxb1 Dxb1 43.
De2 De4. Lokastaða opna
flokksins varð þessi: 1. Birg-
ir Berndsen 7½ vinning af 9
mögulegum 2. Hilmar Þor-
steinsson 7 v. 3.-4. Hjalti
Freyr Halldórsson og Páll
Gunnarsson 6½ v. 5.-6. Örn
Stefánsson og Valdimar
Leifsson 5½ v. 7.-8. Pétur
Jóhannesson og Helgi
Brynjarsson 4½ v.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
BRÆÐURNIR Anton og
Sigurbjörn Haraldssynir
voru heitir í slemmunum í
úrslitum Íslandsmótsins.
Við sáum fallega tígul-
slemmu með þeim í þætti
gærdagsins og hér er önn-
ur úr sama leik, en nú er
trompið lauf:
Vestur gefur; allir á
hættu. Áttum breytt.
Norður
♠ KG10
♥ G3
♦ Á65
♣ ÁD1062
Vestur Austur
♠ 975432 ♠ 86
♥ KD86 ♥ 102
♦ G10 ♦ D9743
♣ G ♣ 8543
Suður
♠ ÁD
♥ Á9754
♦ K82
♣ K97
Vestur Norður Austur Suður
Pass 1 grand Pass 2 lauf
Pass 2 tíglar Pass 2 spaðar
Pass 3 lauf Pass 3 tíglar
Pass 3 spaðar Pass 4 lauf
Pass 4 spaðar Pass 6 lauf
Pass Pass Pass
Sigurbjörn vekur á 14-
16 punkta grandi í norður
og eftir venjulega Staym-
an-hálitaspurningu taka
við frekari spurnarsagnir
hjá Antoni, þar sem hann
leitar eftir skiptingu og
háspilum. Eftir tveggja
tígla afneitun norðurs á
hálit, eru tveir spaðar Ant-
ons spurning. Sigurbjörn
sýnir fimmlit í laufi og
skiptingu handarinnar ná-
kvæmlega við þremur tígl-
um – 3235. Anton spyr
næst um kontról (ása og
kónga) með fjórum laufum
og fær upp fimm (tvo ása
og einn kóng). Hann lætur
þá vaða í slemmu.
Sex lauf var nokkuð al-
gengur samningur, en Ant-
on var sá eini sem fékk tólf
slagi. Munaði þar miklu að
hann var sagnhafi í suður
og fékk út hjartakóng. Tí-
an önnur í austur gerir
það að verkum að nían frí-
ast og verður á endanum
tólfti slagurinn.
Þar sem norður var
sagnhafi var útspilið
gjarnan hjartatía. Eðlilegt
er að taka slaginn með ás
og spila þrisvar spaða með
því hugarfari að henda
tígli og trompa svo tígul.
En austur á aðeins tvo
spaða og stingur í þann
þriðja, svo sagnhafi neyð-
ist til að yfirtrompa.
Samningurinn er nú á
brauðfótum, en þó er til
vinningur ef sagnhafi spil-
ar strax hjarta. Hann get-
ur svo spilað laufi á kóng,
og þar eð gosinn fellur
stakur, verður nían inn-
koma, sem dugir til að fría
fimmta hjartað og tólfta
slaginn. Enginn fann þó
þessa leið.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
Árnað heilla
GULLBRÚÐKAUP. Í dag, fimmtudaginn 19. apríl, eiga
50 ára hjúskaparafmæli hjónin Magnea Aðalgeirsdóttir
og Haukur Þórðarson, Vatnsnesvegi 34, Keflavík.
Magnea og Haukur dvelja þessa dagana í Portúgal.
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu til styrktar
Rauða krossi Íslands og söfnuðu 3.051 kr. Þær heita
Elísa Lind Finnbogadóttir og Bríet Magnúsdóttir.
Með morgunkaffinu
Nú, er bara búið að
loka börunum.
Vita skaltu, Jóna, að
kjarkurinn Skallanna
nær ekki lengra en hárið.
Hlutavelta
FRÉTTIR
SJÖ 12 ára gamlar stelpur úr
Reykjavík verða með sérstæðar
sýningar í Sundhöll Reykjavíkur
í dag, sumardaginn fyrsta,sem
nefnist sunddans. Sýningarnar
verða þrjár talsins og varir hver
sýning í um hálftíma.
Fyrsta sýningin hefst kl. 11
fyrir hádegi, önnur sýningin kl.
12 og sú þriðja kl. 13.
Stelpurnar hafa æft í Sund-
höll Reykjavíkur í vetur undir
stjórn Rosemary. Þær eru flest-
ar liðtækir dansarar og í hópn-
um eru m.a. Íslandsmeistarar í
frjálsum dansi á árunum 1999,
2000 og 2001.
Aðgangseyrir er 500 krónur
fyrir fullorðna og 250 krónur
fyrir börn, fimm ára og eldri.
Sunddans
í Sundhöllinni