Morgunblaðið - 19.04.2001, Blaðsíða 84
Í TILEFNI af
Viku bókarinnar
stendur Fil-
mundur fyrir kvikmyndahátíðinni
Sögur á tjaldi í samvinnu við Kvik-
myndasjóð Íslands. Hátíðin verður
haldin í Háskólabíói og hefst í dag og
stendur til mánudagsins 30. apríl. 14
íslenskar kvikmyndir verða sýndar
sem allar eru byggðar á íslenskum
bókmenntum.
Frásagnarhefðin birtist nú jafnt í
máli sem myndum og því er tímabært
að beina augum að flóknum tengslum
bókmennta og kvikmynda og þeim
breytingum sem verða þegar verk
eru færð úr einum miðli yfir í annan.
Ekki er vanþörf á, því raunverulegt
kvikmyndalæsi þjóðarinnar er ómet-
anleg undirstaða fyrir kvikmynda-
iðnað á Íslandi, rétt eins og almennt
læsi skapaði hér bókaþjóð í eina tíð.
Margar forvitnilegar myndir verða
sýndar á hátíðinni, bæði eldri myndir
sem sjaldan sjást á hvíta tjaldinu í
seinni tíð og nýrri myndir sem hafa
átt góðu gengi að fagna undanfarin
ár.
Halldórs þáttur Laxness
Það kemur sjálfsagt engum á óvart
að skáldsögur Halldórs Laxness hafi
reynst nægtabrunnur fyrir íslenska
kvikmyndagerðarmenn og muni
sjálfsagt verða það áfram um ókomna
tíð en sýndar verða fjórar myndir
sem byggðar eru á verkum hans á há-
tíðinni. Það eru myndirnar Kristni-
hald undir jökli (1989) og Úngfrúin
góða og húsið (1999) eftir Guðnýju
Halldórsdóttur, Atómstöðin (1984)
eftir Þorstein Jónsson og Salka Valka
(1954) eftir hinn sænska Arne Matt-
son, en það er ekki á hverjum degi
sem gestum kvikmyndahúsa á Íslandi
gefst tækifæri til að sjá hana.
Úr bæ í borg
Einnig verða sýndar tvær myndir
sem byggðar eru á skáldsögum Indr-
iða G. Þorsteinssonar, og er ekki úr
vegi að heiðra minningu hans við
þetta tilefni, en eins og kunnugt er
lést Indriði fyrir stuttu. Myndirnar
Land og synir (1980) eftir Ágúst Guð-
mundsson og 79 af stöðinni (1962) eft-
ir Eric Balling eru auðvitað báðar
löngu orðnar sígildar.79 af stöðinni
varð feikilega vinsæl þegar hún var
frumsýnd og sáu 63 þúsund manns
hana sem var þá um þriðjungur þjóð-
arinnar.
Mörgum af vinsælustu skáldsögum
síðustu áratuga hafa verið gerð góð
skil á hvíta tjaldinu undanfarin ár.
Má þar nefna myndir á borð við
Punktur, punktur, komma, strik
(1981) eftir Þorstein Jónsson sem er
byggð á samnefndri metsölubók eftir
Pétur Gunnarsson sem fjallar öðrum
þræði, eins og Land og synir, um þær
miklu breytingar sem urðu á íslensku
þjóðlífi í kjölfar ört vaxandi borg-
armenningar og tilheyrandi fólks-
flutninga. Það sama má segja um
Djöflaeyjuna (1996) sem tekur einnig
á þeim stórfelldu breytingum sem
urðu á borgarmannlífinu á eftirstríðs-
árunum. Djöflaeyjan er eins og kunn-
ugt er byggð á hinum geysivinsælu
bókum Þar sem djöflaeyjan rís og
Gulleyjunni eftir Einar Kárason.
Djöflaeyjan er ekki eina kvikmynd-
in sem sýnd verður eftir Friðrik Þór
Friðriksson. Englar alheimsins
(2000) er gerð eftir samnefndri verð-
launabók Einars Más Guðmunds-
sonar og hefur borið hróður íslenskr-
ar kvikmyndagerðar um víðan völl á
undanförnum mánuðum. Það sama
má segja um 101 Reykjavík (2000)
eftir Baltasar Kormák sem byggð er
á samnefndri bók Hallgríms Helga-
sonar.
Ljóslifandi fornhetjur
Ekki eru allar myndirnar byggðar
á nútímaskáldsskap, en á hátíðinni
verður að finna Útlagann eftir Ágúst
Guðmundsson sem er eins og kunn-
ugt er byggð á Gísla sögu Súrssonar
og einnig verður Myrkrahöfðinginn
(1999) eftir Hrafn Gunnlaugsson
sýnd en hún er byggð á Píslarsögu
Jóns Magnússonar sem kemur ein-
mitt út hjá Máli og menningu um
þessar mundir. Skilaboð til Söndru
(1983) tekur á óbeinan hátt á bók-
menntaarfinum en hún er byggð á
samnefndri skáldsögu Jökuls Jak-
obssonar og fjallar um rithöfundinn
Jónas sem fær það einstaka tækifæri
að skrifa kvikmyndahandrit sem
byggt er á ævi Snorra Sturlusonar.
Tvær barnamyndir
Börnin verða ekki skilin útundan á
þessari kvikmyndahátíð, en sýndar
verða tvær frábærar barnamyndir,
Benjamín dúfa (1995) eftir Gísla Snæ
Erlingsson sem byggð er á sam-
nefndri verðlaunabók Friðriks
Erlingssonar og Skýjahöllin (1994)
eftir Þorstein Jónsson sem byggð er
á barnabókinni Emil og Skundi eftir
Guðmund Ólafsson.
Ásamt Filmundi koma Kvik-
myndasjóður og Íslenska kvik-
myndasamsteypan að þessari hátíð
en þess má að lokum geta að laug-
ardaginn 28. apríl verður haldið mál-
þing um kvikmyndanir íslenska
sagnaarfsins í Háskólabíói kl. 13–
17.45 í tengslum við hátíðina. Þar
mun Einar Már Guðmundsson flytja
opnunarerindi þingsins en fyrirlestur
hans, „Sagnagerð augans“, fjallar um
handritagerð. Jafnframt verða flutt
sjö erindi um átta kvikmyndir sem
allar eru sóttar í íslenska bókmennta-
hefð. Ástráður Eysteinsson fjallar
um Kristnihald undir jökli, Dagný
Kristjánsdóttir um Úngfrúna góðu og
húsið, Eggert Þór Bernharðsson um
Djöflaeyjuna, Geir Svansson um 101
Reykjavík, Guðni Elísson um Engla
alheimsins, Kristján B. Jónasson um
79 af stöðinni og Land og syni og
Matthías Viðar Sæmundsson um
Myrkrahöfðingjann.
Málþingið er haldið á vegum Kvik-
myndasjóðs, Félags íslenskra bóka-
útgefenda og Rithöfundasambands
Íslands. Nánari upplýsingar um
tímasetningar verður að finna í kvik-
myndadálkum dagblaðanna.
Filmundur tekur þátt í Viku bókarinnar
Bessi Bjarnason og Ásdís Thoroddsen í Skila-
boðum til Söndru.
Friðrik Þór lagði sig allan fram við að endur-
skapa braggalíf „eyjabóka“ Einars Kárasonar.
Árni Tryggvason og Tinna Gunnlaugsdóttir
í Atómstöðinni.
Hilmir Snær Guðnason í
Myrkrahöfðingjanum.
Útlagann gerði Ágúst Guðmundsson í ár-
daga kvikmyndavorsins.
Sögur á tjaldi
FÓLK Í FRÉTTUM
84 FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
LANDSMENN höfðu greinilega
margt annað að gera en að skella sér í
bíó yfir páskahátíðina – kannski
vegna þess að þeir eru svo vanir því
að allt sé kirfilega lokað og læst á
allra helgustu dögunum. En sú tíð er
nú liðin og bíóin voru galopin alla
páskana.
Þeir sem á annað borð áttuðu sig á
því að þeir gátu brugðið sér í bíó voru
í rómantísku skapi. The Wedding
Planner, nýja myndin með Jennifer
Lopez og Matthew McConaughey,
laðaði nefnilega fleiri gesti að en aðr-
ar myndir. Að sögn Halldórs Hall-
dórssonar hjá Myndformi virðist hér
vera á ferð sannkölluð stefnumóta-
mynd því pör voru í augljósum meiri-
hluta áhorfenda. Halldór segir að um
tvö þúsund manns hafi sótt myndina
yfir hina eiginlegu helgi sem listinn
tekur mið af, þ.e. frá föstudegi til
sunnudags, en í heildina hafi nú rúm-
lega 4.500 manns séð hana. Hann við-
urkennir að það sé nokkuð meira en
búist var við, því menn hafi verið við-
búnir dræmri aðsókn yfir páskana.
Í annað sætið komst svo nýjasta
myndin með Robert de Niro, Men of
Honor, réttardrama þar sem mót-
leikari hans er Cuba Gooding Jr.
Myndin gekk alveg ágætlega yfir
páskana, að sögn Guðmundar Breið-
fjörð hjá Skífunni, en hún dró að
rúmlega 3.500 manns frá því hún var
frumsýnd á miðvikudeginum fyrir
páska og fram á sunnudag. Guð-
mundur segir þá Skífumenn mjög
ánægða með þetta „í ljósi þess hversu
róleg aðsóknin var í flest kvikmynda-
hús alla páskahelgina“. Guðmundur
bendir jafnframt á að þetta sé ein-
ungis í þriðja sinn sem bíóin hafa opið
alla páskana: „Það er ekki ennþá
komin hefð fyrir því hjá neytendum
auk þess sem gott veður á föstudag-
inn langa og páskadag ásamt ferm-
ingum hafði sitt að segja.“
Þriðja nýja myndin á listanum
þessa vikuna er Pay it Forward, sem
lendir í sjöunda sæti. Þar fer mynd
með klassaleikurum, þeim Kevin
Spacey, Helen Hunt og Haley Joel
Osment, og má segja að henni hefði
gengið töluvert betur ef Óskar
frændi hefði tekið betur á móti henni.
!
"#$
%
&'
! '(
$
"
)
)
)
" *
% +
!
"
#
$
%&'(
$ $
)
! *
(
)
%
%
,
-
.
/
%
0
-,
--
-1
2
3
4
-0
%
-2
,.
-5
-4
+(
%
%
.
.
0
,
%
.
3
-1
-/
,
.
0
0
%
5
-.
4
,
'6!789 :;!789 !78
<
! 9!789 !78=(
78$; 9> !789 :;!789%:!78>
+7(9=(
78$; 9> !789?:;
9%:!78>
+7(9=(
78$; 978! 9@6(8 !78
@6(8 !789> !789%:!78=(
78$; 978! 9> !789%:!78=(
9>
+7(
@6(8 !78
:;!78
78! 9> !789%:!78=(9( ;9
<
! 9%:!78>
+7(
'6!78
:;!789!78
@6(8 !789%:!78>
+7(
<
! @6(8 !78
78$; 9> !78
78$; 9@6(8 !789:;
@6(8 !78
@6(8 !78
Stefnu-
móta-
páskar
Rólegt í bíóhúsum yfir páskana
Prúðbúin í brúðkaupshugleið-
ingum.
Best
D r a m a
Leikstjórn Mary McCuckian. Hand-
rit John Lynch og Mary McCuckian.
Aðalhlutverk John Lynch, Ian
Bannen. (102 mín.) Bretland 2000.
Skífan. Öllum leyfð.
ÞAÐ er engum blöðum um það að
fletta að George Best er einhver
allra besti knattspyrnumaður sem
uppi hefur verið. Í
þokkabót er hann
einnig einn sá allra
umræddasti, ef
ekki sá umrædd-
asti, ekki bara sök-
um óumdeilan-
legra hæfileika og
sigra á leikvellin-
um heldur einnig
skrautlegs lífernis
utan hans. Óhóf-
semi af hvers kyns tagi, hvort sem
um var að ræða áfengisdrykkju,
kvensemi eða fjárhættuspil, varð
nefnilega til þess að ferillinn varð
ekki nándar nærri eins glæstur og
hann hefði getað orðið. Best fjallar
um brokkgengan feril þessa norður-
írska snillings, frá því útsendarar
Manchester United uppgötvuðu
hann 17 ára gamlan uns hann yfirgaf
liðið með skömm, eftir að hafa ein-
angrað sig frá öllum gömlu félögun-
um sem unnu með honum Evrópu-
meistaratitilinn 1968 vegna
drykkjuvandræða og sinnuleysis
gagnvart liðinu. Rík áhersla er lögð á
náið samband hans við stjórann, Sir
Matt Busby, er virðist hafa verið
honum sem faðir en minna er gert úr
óreglunni.
Þessi annars dramatíska sanna
saga af einhverjum merkasta syni
fótboltans er alls ekki eins áhrifarík
og hún hefði getað orðið og má þar
um kenna slitróttu handriti, sem
reynir að fanga meira en rúmið leyf-
ir, og óagaðri leikstjórn. Útlit mynd-
arinnar og sögulegar staðfæringar
er hinsvegar öllu betur heppnað,
sem og frammistaða Lynch í hlut-
verki Best.
Skarphéðinn Guðmundsson
MYNDBÖND
Einn sá
allra besti