Morgunblaðið - 19.04.2001, Page 92
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK.
MJÖG mikil sjósókn var á miðunum
við landið í gær en samkvæmt upp-
lýsingum Tilkynningaskyldunnar
voru alls 558 bátar á sjó um miðjan
dag í gær. Nánast eingöngu var um
að ræða smábáta enda sjómenn á
bátum yfir 12 tonnum í verkfalli.
Þetta er óvenju mikil sjósókn hjá
smábátum miðað við árstíma en
mjög gott veður var á öllum miðum
í gær og víðast góð aflabrögð. Auk
þess hefur verið lítið framboð á
fiski að undanförnu vegna verk-
fallsins og verð á fiskmörkuðum því
hátt. Þannig fengust að meðaltali
um 197 krónur fyrir kílóið af slægð-
um þorski á Íslandsmarkaði í gær-
morgun. Í Grindavík var mikið líf
og mikið fjör í kringum smábátana
en verðið fyrir kg af slægðum
þorski hjá Fiskmarkaði Suðurnesja
í Grindavík var 232 krónur.
Morgunblaðið/RAX
Gabríel Guðmundsson og Haraldur Þorgeirsson á Hafsvölunni HF eru ánægðir með aflabrögðin en þeir lönduðu um þremur tonnum í Grindavík í gær.
558 bátar voru á sjó í gær
Hæstánægðir/46
ÓÁNÆGJA er meðal margra sjúklinga og að-
standenda þeirra með ákvæði nýrrar reglugerðar
sem tók gildi 1. apríl sl. um gerð lyfseðla og ávísun
lyfja. Ákveðnum lyfjum, einkum ávana- og fíkni-
lyfjum og algengu svefnlyfi, er ekki lengur hægt
að fá ávísað í síma og hefur kvörtunum og fyr-
irspurnum rignt yfir heilsugæslustöðvar og lyfja-
búðir vegna þessa. Stjórn Læknafélags Íslands
hefur fjallað um reglugerðina á tveimur fundum
og segist formaður félagsins í samtali við Morgun-
blaðið hafa orðið var við óánægju sjúklinga með
reglugerðina í starfi sínu sem heilsugæslulæknir.
Nýjungin í reglugerðinni er sú að ávana- og
fíknilyf bætast í þann hóp lyfja sem læknar geta
ekki ávísað í síma en endurritunarskyld lyf hafa til
þessa ekki fengist í gegnum síma. Hins vegar hef-
ur eitt algengt svefnlyf, rohypnol, bæst í hóp eft-
irritunarskyldra lyfja og er það einna helst að
valda óánægju sjúklinga sem notað hafa lyfið. Með
ávana- og fíknilyfjum er átt við lyf sem valda fíkn,
þ.e. svefnlyf, verkjalyf og róandi lyf sem innihalda
kodein.
Notað í glæpsamlegum
tilgangi
Samkvæmt upplýsingum úr heilbrigðisráðu-
neytinu var farið að bera á mikilli misnotkun á
lyfjum eins og rohypnol. Það var m.a. notað í
glæpsamlegum tilgangi á skemmtistöðum og sett
út í drykki hjá konum til að misnota þær kynferð-
islega. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins
hefur hver tafla af þessu lyfi verið seld á 1.000–
2.000 krónur á svörtum markaði. Þess má geta að
notkun þess er bönnuð í Bandaríkjunum og dæmi
um að Íslendingar á leið þangað og með lyfið í fór-
um sínum hafi verið stöðvaðir af þarlendum toll-
vörðum.
Ingolf J. Petersen, lyfjamálastjóri í heilbrigðis-
ráðuneytinu, segir lyfið rohypnol vera komið í
annan lyfjaflokk í Evrópu og ný reglugerð m.a.
komin til vegna tilskipunar frá Evrópusamband-
inu. Einnig hafi borið á tíðum fölsunum á lyfseðl-
um í gegnum síma og því ástæða til að herða eft-
irlitið. Að sögn Ingolfs hafa komið upp á þriðja
hundrað tilvik falsana með lyfseðla á síðustu
tveimur árum og eru símsendir seðlar þar á meðal.
Ávísun á lyf í gegnum síma breytt umtalsvert um síðustu mánaðamót
Óánægja meðal sjúklinga
með nýja reglugerð
Sumum lyfjum/10
Morgunblaðið kemur næst út
laugardaginn 21. apríl.
FRÉTTAÞJÓNUSTA verður
veitt á mbl.is á Netinu í dag,
sumardaginn fyrsta, og verður
föst fréttavakt frá klukkan 7 til
20:30. Hægt er að ná sambandi
við fréttadeild mbl.is í síma
861-7970 eða með því að senda
tölvupóst á netfangið netfrett-
@mbl.is.
Fréttaþjón-
usta á mbl.is
SÚ breyting verður á innflutnings-
tollum á græna papriku næstkom-
andi mánudag að verðtollur lækkar
úr 30% í 15% en að auki leggst 199
kr. magntollur á hvert innflutt kg.
sem ekki var lagður á græna papriku
áður.
Ekki er ljóst hvort þessi breyting
leiði til hækkunar á papriku. Það
ræðst af innkaupsverðinu. 30% verð-
tollur er nú lagður á litaða papriku.
Þá hækkar tollur á tómata einnig
nk. mánudag. Verðtollurinn var 7,5%
og magntollurinn 50 kr./kg. Hann
breyttist í 15% og 99 kr. 2. apríl sl.,
16. apríl í 22,5% og 148 kr. og verður
frá næsta mánudegi 30% og 198 kr.
hvert kg.
Magntollur
lagður á papriku
SÁ sérstæði atburður varð í
gærkvöld, að þrír refsifangar á
Litla-Hrauni voru í Héraðs-
dómi Reykjavíkur úrskurðaðir í
tveggja vikna gæsluvarðhald
vegna gruns um aðild að fíkni-
efnainnflutningi til landsins
þótt þeir væru innan fangelsis-
veggja. Mennirnir eru um þrí-
tugt og voru að afplána dóma
fyrir fíkniefnabrot. Þeir hafa
setið í fangelsi í nokkra mánuði.
Einn maður til viðbótar, sem
gekk frjáls ferða sinna þar til í
gær er lögreglan handtók hann,
var ennfremur úrskurðaður í
tveggja vikna gæsluvarðhald
vegna aðildar að málinu. Hann
var handtekinn í hádeginu er
hann vitjaði póstsendingar á
pósthúsi í Reykjavík. Í sending-
unni voru fíkniefni, en lögregl-
an gat í gærkvöld hvorki upp-
lýst um magn né tegund
fíkniefnanna. Staðfest er hins
vegar að um talsvert magn er
að ræða.
Mjög sjaldgæfur
atburður
Meintir vitorðsmenn manns-
ins, sem handtekinn var á póst-
húsinu, eru sem fyrr segir fang-
ar á Litla-Hrauni og gerði
lögreglan kröfu um gæsluvarð-
hald yfir þeim. Að sögn Harðar
Jóhannessonar, yfirlögreglu-
þjóns í Reykjavík, giltu sömu
sjónarmið við ákvörðun um
gæsluvarðhaldskröfu yfir þeim
og gilda í málum frjálsra
manna, enda geta refsifangar
jafnauðveldlega og aðrir stefnt
rannsókn sakamála í voða ef
þeir samræma framburði sína
og ráðfæra sig við aðra. Því
þótti nauðsynlegt að krefjast
þess að þeir yrðu látnir sæta
einangrunarvist.
Að sögn Harðar er engu að
síður um mjög sjaldgæfan at-
burð að ræða og aðspurður seg-
ist hann ekki minnast þess að
menn sem þegar séu í fangelsi
hafi verið úrskurðaðir í gæslu-
varðhald.
Fíkniefnadeild lögreglunnar
í Reykjavík rannsakar málið og
er rannsóknin á frumstigi.
Þrír
refsi-
fangar
í gæslu-
varðhald