Morgunblaðið - 11.05.2001, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Áhri far íkt grennandi l íkamskrem
Vinnur á vökva- og fi tusöfnun
D R A I N E
M I N C E U R
Útsölustaðir:
Andorra Hafnarfirði, Bjarg Akranesi, Bylgjan Kópavogi, Fína Mosfellsbæ, Hjá Maríu-
Amaró Akureyri, Hygea Kringlan, Hygea Laugavegi, Snyrtivöruverslunin Glæsibæ.
JÓN Kristjánsson, heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra, greindi frá því á ársfundi Land-
spítala-háskólasjúkrahúss (LSH) í gær að
starfshópur yrði skipaður á næstunni undir for-
ystu ráðuneytisins sem hefði það hlutverk að
gera tillögu til ráðherra um frekari uppbygg-
ingu Landspítala-háskólasjúkrahúss.
Sagðist hann ætla að ræða þetta mál á næstu
dögum við forstjóra LSH og rektor Háskóla Ís-
lands og kvaðst hann leggja áherslu á að fá fljótt
í hendur tillögur, því ekki mætti dragast úr
hömlu að ákveða næstu skref.
Fé til innréttingar á nýrri hæð
á Landspítala í Fossvogi
Þá greindi ráðherra frá því að fé hefði fengist
til að innrétta og stórbæta alla aðstöðu á E7 –
nýrri en ónýttri hæð á Landspítalanum í Foss-
vogi og sagði að bundnar væru vonir við að þetta
nýja húsnæði mundi bæta verulega aðstæður
sjúklinga og starfsfólks í Fossvoginum.
Vakti Jón athygli á því að Landspítalinn væri
stærsti vinnustaður landsins og að rekstrar-
kostnaðurinn losaði 20 milljarða króna á ári.
Sagði hann að framlög til spítalans hefðu aukist
mjög í tíð þessarar ríkisstjórnar og lýsti von
sinni um að áfram mætti ríkja sátt starfsmanna
og stjórnenda um kaup og kjör.
Ársfundur LSH í gær var fjölmennur. Guðný
Sverrisdóttir, formaður stjórnarnefndarinnar,
flutti skýrslu stjórnarnefndar og starfsmenn
voru heiðraðir fyrir vel unnin störf.
Í gær hófst einnig dagskráin Vordagar Land-
spítala-háskólasjúkrahúss, með fyrirlestri dr.
Miles F. Shore, prófessors við Harvard háskóla.
Þá var opnuð sýningin Vísindi á vordögum, þar
sem kynnt eru rannsóknarverkefni starfsfólks
með fyrirlestrum og á veggspjöldum sem komið
hefur verið upp í K-byggingu Landspítalans við
Hringbraut.
Vísindasjóður allra háskóla-
menntaðra starfsmanna LSH
Á ársfundinum var einnig kynnt skipulags-
skrá nýs vísindasjóðs LSH sem stofnaður er
með sameiningu vísindasjóða og vísindaráða
sem starfrækt voru á Landspítala og Sjúkrahúsi
Reykjavíkur fyrir sameiningu spítalanna. Er til-
gangurinn með starfsemi sjóðsins að styrkja og
efla vísindarannsóknir, athuganir og tilraunir í
vísindalegum tilgangi á LSH. Eiga allir háskóla-
menntaðir starfsmenn LSH aðild að sjóðnum
Stofnfé hans er 35,7 milljónir kr.
Jafnframt hefur verið skipað Vísindaráð
Landspítala-háskólasjúkrahúss sem hefur m.a.
það hlutverk að kynna vísindastarf á stofnun-
inni.
Heilbrigðisráðherra á ársfundi Landspítala – háskólasjúkrahúss
Starfshópi falið að semja til-
lögur um uppbyggingu LSH
SIV Friðleifsdóttir, umhverfisráð-
herra og samtarfsráðherra Norður-
landa á Íslandi, kynnti í gær nor-
rænan þjónustusíma sem ætlaður er
þeim einstaklingum og fjölskyldum
sem flytja búferlum innan Norður-
landanna. Fólk sem flytur á milli
landanna getur lent í erfiðleikum í
kerfinu vegna mismunar sem oft er
á milli laga og reglna á Norðurlönd-
um og er þessum nýja þjónustusíma
ætlað að greiða úr vanda þessa fólks
og benda því á réttar leiðir. Jafn-
framt því verður öllum fyrirspurn-
um og erindum safnað í sameigin-
legan gagnabanka og upplýsingar
úr honum nýttar til að aðgreina
hvar skóinn kreppir í viðkomandi
löndum og afmarka þannig vanda-
mál sem fólk lendir í.
Að sögn Sivjar býr 5% íslensku
þjóðarinnar á öðrum Norðurlöndum
og árið 1999 voru um 14.000 Íslend-
ingar búsettir á Norðulöndum utan
Íslands. Um 40.000 íbúar Norður-
landa fluttu það ár á milli landa og
alls voru 250.000 Norðurlandabúar
búsettir utan síns heimalands. Siv
sagði því að þörfin væri talsverð á
að aðstoða og leiðbeina þessum
fjölda, sem síst færi minnkandi með
árunum. Tilkoman þjónustusímans
„Halló Norðurlönd“ ætti að geta
greitt úr mörgum vanda þessa fólks
og þjónustan við þá yrði víðtækari
og heildstæðari en áður. Þá sagði
Siv að gagnabankinn muni nýtast
Norrænn þjónustusími
tekinn í notkun
Morgunblaðið/Þorkell
Siv Friðleifsdóttir, samstarfsráðherra Norðurlanda á Íslandi, kynnti
norræna þjónustusímann í Norræna húsinu. Við hlið hennar er Rebecka
Wallin frá skrifstofu norrænu ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn,
en hún hefur umsjón með gagnabankanum sem unninn verður upp úr
fyrirspurnum sem berast þjónustusímanum.
stjórnmálamönnum við að finna
hvar vandamál þeirra sem eru að
flytjast búferlum milli Norðuland-
anna liggja og auðvelda þeim að
gera Norðurlönd að einsleitara bú-
setusvæði þar sem réttindi allra séu
svipuð á milli landa.
Dæmi um þjónustu sem „Halló
Norðurlönd“ veitir er upplýsingar
um eyðublöð og nauðsynleg gögn
vegna búferlaflutninga, tolla, inn-
flutning og skráningu bifreiða,
námsstyrki og námsmat, heilsu-
vernd, sjúkratryggingar, fjöl-
skyldubætur og meðlög, réttinn til
að nota eigið tungumál í samskipt-
um við opinberar stofnanir o.s.frv.
Síminn er opinn virka daga milli kl.
9 og 12.30 og á Íslandi er hægt að
ná sambandi í síma 511-1808 eða
senda fyrirspurn á netfangið hallo-
@norden.is.
MIKIL veðurblíða hefur verið á
Fljótsdalshéraði undanfarna
daga. Þeir félagar Guttormur og
Unnar voru að hamast við það í
góðviðrinu að múra nýja vall-
arhúsið við íþróttaleikvanginn á
Egilsstöðum, en þar fer senn
fram Landsmót UMFÍ 2001.
Hitinn komst í 18 stig á Hall-
ormsstað í gær, í 17 stig á Egils-
stöðum og Ásbyrgi og var reynd-
ar yfirleitt hlýtt á
norðausturhorni landsins í gær.
Áfram verður hlýtt í dag, allt upp
í 17 stig á Austurlandi en 8-10
stiga hiti syðra.
Veðurblíða
fyrir austan
Morgunblaðið/Steinunn
ÍSLENSK matvæli hafa hafið starf-
semi í húsnæði Fiskvinnsluskólans
að Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði. Um
er að ræða bráðabirgðaráðstöfun, en
sem kunnugt er brann húsnæði fyr-
irtækisins fyrir tveimur vikum.
Snorri Finnlaugsson, framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins, segir að enn sé
ekki ljóst hvar fyrirtækið komi til
með að byggja upp starfsemi sína til
framtíðar, en það sé ljóst að fyrir-
tækið haldi áfram starfsemi.
Allt sem var í húsi Íslenskra mat-
væla, svo sem tæki, búnaður, birgðir
o.fl. og stór hluti húseignarinnar,
eyðilagðist í brunanum. Snorri sagði
að þó að einhver hluti húsnæðisins
stæði enn uppi væri ljóst að mat-
vælafyrirtæki færi ekki þangað inn
aftur.
Snorri sagði að á meðan verið væri
að skoða framtíðarstaðsetningu fyr-
irtækisins hefði það fengið inni til
bráðabirgða með framleiðslu sína í
Fiskvinnsluskólanum í Hafnarfirði.
Framleiðsla væri þar þegar hafin og
væru fyrstu vörurnar sem þar hefðu
verið framleiddar komnar í matvöru-
verslanir. Hann sagði að framleiðsl-
an myndi til að byrja með eingöngu
miðast við innlendan markað.
Birgðastaða fyrir útflutning hefði
verið góð og því kæmi ekki að sök þó
að hlé yrði á framleiðslu til útflutn-
ings.
Um 30 manns starfa hjá Íslensk-
um matvælum og hefur engum verið
sagt upp þrátt fyrir brunann. Ís-
lensk matvæli framleiða m.a. lax,
síld, sósur o.fl.
Hefja starfsemi í
Fiskvinnsluskólanum
Íslensk matvæli byggja upp á ný
AÐALMEÐFERÐ í máli rík-
issaksóknara gegn 18 ára
karlmanni sem ákærður er
fyrir líkamsárás í maí í fyrra
lauk fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær. Fórnar-
lambið krefst 7,3 milljóna í
skaðabætur.
Maðurinn er ákærður fyrir
að hafa veitt þolandanum, sem
er karlmaður á fimmtugsaldri,
„högg í andlitið með höfðinu“
svo maðurinn féll í götuna. Af-
leiðingarnar urðu þær að
hann hlaut brot í höfuðkúpu-
botn, blæðingu í vinstra heila-
hveli og hliðrun varð á heila til
hægri. Áverkarnir leiddu til
stýritruflana í heila. Auk þess
bólgnaði maðurinn á hnakka
og hlaut skurð í neðri vör.
Krefst 7,3
milljóna
í skaða-
bætur