Morgunblaðið - 11.05.2001, Blaðsíða 22
LANDIÐ
22 FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
mála áður en þeir fengu sér há-
degisverð í Hyrnunni. Þar næst
var farin skoðunarferð um Borg-
arnes en um miðjan dag komið í
Daníelslund sem er skógrækt
Borgfirðinga og er um 3 hekt-
arar í landi Svignaskarðs. Lund-
urinn er kenndur við Daníel
Kristjánsson frá Hreðavatni sem
um langt árabil var fram-
kvæmdastjóri skógaræktarfélags-
ins.
Þegar fréttaritari hitti hópinn
voru þeir að enda gönguför um
skóginn og var ferðinni heitið að
Hvanneyri áður en farið yrði til
baka til Reykjavíkur. Leið-
sögumennirnir voru afar ánægðir
með daginn og leist vel á Borg-
arfjörðinn.
Margir höfðu að sjálfsögðu far-
ið um héraðið áður með hópa en
það dró alls ekki úr ánægju
þeirra með ferðina.
VORFERÐ Félags leiðsögumanna
var að þessu sinni farin á Akra-
nes og í Borgarfjörð, laugardag-
inn 5. maí.
Leiðsögumennirnir skoðuðu
Steinaríki Íslands og Byggðasafn-
ið Görðum á Akranesi um morg-
uninn og komu í Borgarnes um
hádegi. Þeir byrjuðu á að heim-
sækja Upplýsingamiðstöð ferða-
Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir
Hópurinn samankominn ásamt bílstjóra í Daníelslundi.
Vorferð leiðsögumanna
Borgarfjörður
RANGÆINGAR héldu sína árlegu
Héraðsvöku í Fossbúð í Skógum
sunnudaginn 6. maí sl. og var hátíðin
að þessu sinni helguð rangæsku lista-
mönnunum og skáldunum Ólafi Túb-
als og Þorsteini Erlingssyni.
Svala Arnardóttir, formaður hér-
aðsvökunefndar, setti hátíðina en áð-
ur spilaði lúðrasveit Tónlistarskóla
Rangæinga. Í upphafi minntist sr.
Sváfnir Sveinbjarnarson listmálarans
Ólafs Túbals, en Jón Kristinsson í
Lambey hafði séð um uppsetningu á
mörgum mynda hans sem voru til
sýnis í félagsheimilinu.
Þá flutti sr. Halldór Gunnarsson í
Holti ávarp og síðan fjallaði Þórður
Tómasson í Skógum um Þorstein Er-
lingsson skáld, en hann hafði komið
upp lítilli sýningu í anddyri félags-
heimilisins um verk hans með sýnis-
horni af handskrifuðum bréfum hans.
Því næst var flutt megindagskrá
héraðsvökunnar um „skáld æsku-
stöðvanna“, Þorstein Erlingsson, í
tali og tónum. Katrín Birna Viðars-
dóttur söng ýms ljóð skáldsins við
undirleik móður sinnar, Þorgerðar
Jónu Guðmundsdóttur, og Gústav
Þór Stolzenwald, Þorbjörg Atladóttir,
Arthúr Björgvin Bollason og Arna
Þöll Hjartardóttir lásu úr ljóðum
skáldsins og fluttu skýringar við ljóð-
in.
Að loknum kaffiveitingum í boði
héraðsnefndar sýslunnar spilaði
lúðrasveitin á ný og síðan lauk hér-
aðsvökunni með tónleikum KK þar
sem hann lék á als oddi og skemmti
héraðsvökugestum.
Héraðsvaka Rang-
æinga í Fossbúð
Skógar
Morgunblaðið/Halldór Gunnarsson
Börnin sungu undir stjórn Þorgerðar Jónu Guðmundsdóttur.
SKÓGARÞRÖSTUR hefur búið um
sig í fjárhúsinu á Götum í Mýrdal.
Hann er búinn að útbúa sér hreiður
uppi á bita í fjárhúsinu og notfærir
sér gamla vatnsslöngu sem hefur
hangið þarna á stoð nokkuð lengi.
Hann er búinn að verpa nokkr-
um eggjum og lætur ekki trufla sig
þótt mikill erill sé í kringum hann,
enda stendur sauðburður sem hæst
og því mikið verið í fjárhúsinu.
Ungarnir koma þó vonandi ekki
fyrr en í lok sauðburðar því þröst-
urinn getur verið mjög illvígur og
ráðist á fólk þegar hann gætir ung-
anna.
Þrastarhreiður
í fjárhúsi
Mýrdalur
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Þrösturinn við hreiðrið í fjárhúsunum.
ÞEGAR Haukur Júlíusson fram-
kvæmdastjóri Jörva hf. kom í verk-
stæðishús fyrirtækisins laugar-
dagsmorguninn 5. maí, kom
sótsvartur reykur út á móti honum
þegar hann opnaði dyrnar. Lokaði
hann dyrunum strax en kallaði á
Slökkvilið Borgarfjarðardala sem
kom með búnað sinn, vatnstankbíla
og reykköfunartæki.
Þegar inn í húsið kom sá ekki
handa skil fyrir sótsvörtum reyk,
en eldurinn hafði slokknað þegar
eldsmaturinn í húsi beltavélarinnar
var búinn. Sem betur fer brunnu
glussaslöngur vélarinnar ekki í
sundur, því ekki hefði þurft að
spyrja að leikslokum ef bæði gluss-
inn og hráolían hefðu runnið út.
Á verkstæðinu voru, auk belta-
gröfunnar, stór jarðýta, jeppabif-
reið og nokkur tæki frá Búvélasafn-
inu á Hvanneyri, sem gerð voru upp
í vetur; meðal annars Caterpillar-
jarðýta frá árinu 1931, dráttarvél
frá árinu 1948, auk fleiri tækja.
Beltagrafan var sett inn í húsið á
föstudagskvöld, því til stóð að yf-
irfara hana örlítið áður en hún yrði
flutt upp á Langjökul, en sá flutn-
ingur var áætlaður mánudaginn 7.
maí. Farið var úr húsinu kl. 23 á
föstudagskvöld en komið aftur í það
kl. 8 á laugardagsmorgun, eins og
fyrr sagði. Mikill hiti hefur mynd-
ast í húsinu, því hurðin sem næst
var gröfunni sprakk út um miðjuna.
Verkstæðishús Jörva hf. er árs-
gömul bygg-
ing. Veggirnir
eru steyptir
en þakið er
klætt ylein-
ingum frá
Flúðum.
Sperrur eru
úr límtrésbit-
um. Tjón á
húsinu fyrir
utan sót-
skemmdir
virðast vera
þær, að
klæðningin á
yleiningum er
öll krumpuð,
önnur stóra
hurðin fyrir
innkeyrsludyrum er ónýt og
hlaupaköttur í lofti hússins virkar
ekki.
Tjón Jörva hf. er verulegt, því
beltagrafan var ekki tryggð, né
neinar vélar eða varahlutir sem í
húsinu voru. Hús og verkfæri eru
tryggð hjá Sjóvá-Almennum hf. en
verðmæti húsins er yfir kr.
20.000.000.
Sjálfsíkveikja í beltagröfu
veldur milljóna tjóni
Hvanneyri
Morgunblaðið/Pétur Davíðsson
Hinn árlegi Raulari, sem er sönglagakeppni, var haldin á
hótel Höfðabrekku í Mýrdal. Ríkir ávallt töluverður
spenningur í Mýrdalnum fyrir þessari keppni.
Keppendur ráða sér umboðsmenn sem sjá um að aug-
lýsa fyrir þá og reyna að finna sem frumlegastan hátt til
þess, að öðru leyti hvílir mikil leynd yfir því hverjir eru að
keppa og það er ekki endilega sá sem syngur best sem
vinnur heldur sá sem er frumlegastur á einhvern hátt.
Sigurvegarar kvöldsins voru þær Katrín Valdís Hjart-
ardóttir og Ásrún Karlsdóttir og sungu þær lagið „Tell
me“. Besti umboðsmaður var kosin Anna Björnsdóttir og
var hún umboðsmaður fyrir Leit.is, einnig fékk Guðrún
Ólafsdóttir viðurkenningu fyrir besta frumsamda text-
ann. Hljómsveitin Granít hélt uppi fjöri fram undir morg-
un.
Í tilefni af Raularanum bauð starfsfólk Búnaðarbank-
ans Mýrdælingum í kaffihlaðborð í bankanum, einnig
bauð Framrás öllum í raularakaffi á keppnisdaginn en
þeir voru einnig styrktaraðilar keppninnar í ár.
„Tell me“ sigraði á
Raularanum
Mýrdalur
Katrín Valdís Hjartardóttir og Ásrún Karlsdóttir
syngja sigurlagið Tell me.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson