Morgunblaðið - 11.05.2001, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 11.05.2001, Blaðsíða 18
EKKI er hægt að fullyrða að fleiri greinist með krabbamein á Suður- nesjunum en í öðrum landshlutum, en þó er tilhneiging hjá konum í þá veru og á það sérstaklega við um lungnakrabbamein. Er þetta niður- staða skriflegs svars heilbrigðisráð- herra við fyrirspurn Sigríðar Jó- hannesdóttur alþingismanns. Sigríður spurði hvert hefði verið nýgengi krabbameins á Suðurnesj- um undanfarna áratugi samanborið við aðra landshluta. Hún segist hafa verið í hópi kvenna á Suðurnesjum þar sem fullyrt var að krabbamein væri algengara þar en annars staðar og því lagt fram þessa fyrirspurn. Í svari ráðherra kemur fram að samanburður var gerður á nýgengi, miðað við alþjóðlegan staðal, á ár- unum 1991 til 1999. Ekki var hægt að greina mun á nýgengi krabba- meins í körlum á Suðurnesjum og á landinu öllu. Gilti það bæði um ný- gengi allra meina, krabbameins í blöðruhálskirtli og lungnakrabba- mein. Sama niðurstaða fékkst fyrir nýgengi brjóstakrabbameins í kon- um. Nýgengi allra krabbameina hjá konum var heldur hærra á Suður- nesjum, miðað við landið allt, þegar skoðað var þriggja ára tímabil. Ef skoðuð eru einstök ár eru Suðurnes- in með hærra nýgengi í tveimur þriðju hlutum tilfella. Hærra ný- gengi Suðurnesjakvenna miðað við landið allt var þó langt frá því að vera marktækt, segir í svari ráðu- neytisins. Nýgengi lungnakrabbameins í konum á Suðurnesjum var nokkru hærra öll árin, miðað við nýgengi lungnakrabbameins á öllu landinu, þó ekki reyndist um marktækan mun að ræða, nema þegar öll níu ár- in voru skoðuð. Á Suðurnesjunum hefur tilfellum fækkað meira síðustu árin heldur en á öllu landinu. Niðurstaða svars ráðherra var þessi: Ekki er hægt að fullyrða að fleiri greinist með krabbamein á Suðurnesjum en í öðrum landshlut- um, en þó er tilhneiging hjá konum í þá veru og á það sérstaklega við um lungnakrabbamein. Finna þarf ástæðuna Fyrirspyrjandinn, Sigríður Jó- hannesdóttir, telur fulla ástæðu til að vinna út frá þessum niðurstöðum. Hún segir í samtali við Morgunblað- ið að kanna þurfi ástæður fyrir því að meira sé um lungnakrabbamein hjá konum á Suðurnesjum en öðr- um, eins og vísbendingar séu um, og athuga hvort eitthvað sé hægt að gera til að fyrirbyggja það. Veltir hún því til dæmis fyrir sér hvort ástæðan geti verið sú að konur á Suðurnesjum reyki meira en aðrar konur eða byrji yngri. Sigríður hefur sent heilbrigðis- stofnun á svæðinu svarið við fyr- irspurn sinni og hyggst ræða málið frekar á næstunni. Samanburður á tíðni lungnakrabba- meins á Suðurnesjum og landinu öllu Meiri tilhneig- ing hjá konum Suðurnes SUÐURNES 18 FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Fjöl- skyldu- dagar í Garði Garður EFNT verður til fjölskyldu- daga í Garði næstkomandi sunnudag og þriðjudag, í tilefni af alþjóðlegum degi fjölskyld- unnar 15. maí 2001. Gerða- hreppur mun vekja athygli á starfsemi stofnana sinna af þessu tilefni. Í Íþróttamiðstöð Gerða- hrepps verður opið hús sunnu- daginn 13. maí frá kl. 10 til 17. Á þessum tíma verður frítt í sund. Þreksalurinn verður op- inn og verða leiðbeinendur á staðnum. Ný tæki verða kynnt, svo sem nýr ljósabekkur. Leik- ir verða fyrir fjölskylduna í íþróttasalnum. Boðið verður upp á kaffi og kleinur. Einnig ætlar Lionsklúbburinn að bjóða góðgæti og grilla ef veður leyfir. Félagsmiðstöðin verður með opið hús þennan sama sunnu- dag, frá kl.15 til 19, þar sem ýmsar uppákomur verða. Tónlistarskólinn verður með opið hús þriðjudaginn 15. maí, frá kl. 14 til 18 og kynnir þar starfsemi sína. Bókasafnið verður einnig opið á þriðjudag- inn, frá kl. 19.30 til 21. Byggðasafnið er opið alla daga frá 13 til 17. Þar er merki- legt safn, sem öll fjölskyldan hefur örugglega gaman að skoða, segir í fréttatilkynningu frá sveitarstjóranum í Garði. Þá býður áhaldahúsið og skrifstofa Gerðahrepps íbúum að kynna sér starfsemina á fjöl- skyldudaginn 15. maí. HÓPUR nemenda Fjölbrautaskóla Suðurnesja vakti í gær athygli á bíla- stæðavandamálum við skólann. Ekið var á fund lögregluyfirvalda og bæj- arstjóra og þeim afhent mótmæli. Atli Már Gylfason, verðandi vara- formaður Nemendafélags FS, sagði að við skólann væru aðeins 80 bíla- stæði en samkvæmt lögum og reglum ættu þau að vera 220. Full þörf væri á að minnsta kosti 200 stæðum fyrir nemendur og starfs- fólk sem eru alls um 700. Hann sagði að lögreglan hefði gengið hart fram í því að sekta nemendur, klippa númer af bílum þeirra og draga í burtu. Dæmi væru um nemanda sem fengið hefði tíu sektir á jafn mörgum dög- um. Nemendurnir kröfðust þess að þeir fengju grið fyrir sektum, þegar svona stæði á, eins og áhorfendur á körfuboltaleikjum Njarðvíkinga og Keflvíkinga og að bætt yrði úr bíla- stæðaskortinum. Atli Már kvaðst ánægður með þátttöku nemenda í mótmælunum, þeir hefðu komið á um 60 bílum. Hins vegar hefði lítið verið um svör hjá yf- irvöldum, hver hefði vísað á annan, lögreglan, sýslumaðurinn og bæjar- stjórinn. Ekki margar kærur Karl Hermannsson aðstoðaryfir- lögregluþjónn sagði að þarna væri um ákveðið vandamál að ræða. Þröngt væri um skólann og margir á bílum. Skólayfirvöld og nemendum hefði stundum verið send aðvörun vegna þess hvernig lagt er og lög- reglan fengi oft kvartanir. Lögreglan gæti ekki litið fram hjá lögbrotum. Hann lét þess hins vegar getið að ekki hefðu margir fátækir nemendur verið kærðir. Á þessu skólaári hefðu aðeins sautján verið kærðir fyrir að leggja ólöglega við skólann, flestir vegna þess að þeir hefðu lagt upp á gangstétt, á grasi eða í sérstök stæði fyrir strætisvagna. Ef lögreglan hefði ekki skilning á vandamálinu væru kærur margfalt fleiri. Vandamál velmegunarinnar Ellert Eiríksson bæjarstjóri sagð- ist taka eftir því eins og aðrir vegfar- endur að vaxandi vandamál væru með bílastæði við fjölbrautaskólann. Þetta væri enn eitt vandamál vel- megunarinnar. Hann sagði hins veg- ar að það væri fyrst og fremst mál skólayfirvalda sem störfuðu á ábyrgð ríkisvaldsins að leysa þetta mál. Bærinn hefði ekki mikið af lóðum til að leggja undir bílastæði en þó væri hægt að benda á bílastæði við Reykjaneshöllina og víðar en það teldu nemendur of langt frá skólan- um. Lét hann þess getið að gerðar yrðu kröfur um bílastæði, samkvæmt nú- gildandi reglum, þegar veitt yrði leyfi fyrir stækkun skólans eins og nú er í umræðunni og yrði það vafa- laust til að leysa málið. Morgunblaðið/Golli Nemendur úr Fjölbrautaskólanum óku um götur Keflavíkur til að mótmæla skorti á bílastæðum við skólann. Nemendur Fjölbrautaskóla Suðurnesja mótmæla bílastæðaskorti Vantar yfir hundrað bílastæði Morgunblaðið/Golli Guðni Þór Frímannsson og Hallbjörn Valgeir Rúnarsson afhentu Karli Hermannssyni yfirlögregluþjóni mótmæli nemenda. Reykjanesbær ÞAÐ var kátt á hjalla hjá starfs- mönnum Vísis hf. í Grindavík dag einn í vikunni þrátt fyrir að þeir væru atvinnulausir vegna verk- falls sjómanna. Starfsmannafélag þeirra stóð fyrir grilli fyrir þá og fjölskyldur þeirra og var mæting góð. Boðið var upp á pylsur og kjöt eins og hver gat í sig látið og ým- islegt meðlæti. Veðrið var ekkert sérstakt en þurrt og ekki bar á öðru en að menn skemmtu sér vel þrátt fyrir að vera nýkomnir á at- vinnuleysisskrá vegna sjó- mannaverkfalls. Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson Mikið var að gera hjá yfirgrillaranum í veislu starfsmannafélags Vísis. Grillað í verkfalli sjómanna Grindavík Reykjanesbær selur meirihluta sinn í SBK hf. Þrír yfirmenn kaupa Reykjanesbær BÆJARRÁÐ Reykjanesbæjar ákvað á fundi sínum í gær að selja þremur yfirmönnum SBK hf. hluta- bréf bæjarins í fyrirtækinu. Bærinn á meirihluta hlutafjár og selur hlut sinn á liðlega 33 milljónir kr. Sérleyfisbifreiðar Keflavíkur, SBK hf., er fólksflutningafyrirtæki sem annast sérleyfisakstur milli Keflavíkur og Reykjavíkur og til ná- grannabæjanna, einnig almennings- samgöngur í Reykjanesbæ og er með almennan rekstur hópferðabíla. Síðustu ár hefur fyrirtækið verið að færa út kvíarnar, meðal annars með skipulagningu ferða, rekstri bíla- leigu og þátttöku í hvalaskoðunar- fyrirtæki. Ellert Eiríksson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segir að það sé stefna bæjaryfirvalda að eiga ekki hlutafé í fyrirtækjum sem eru í sam- keppnisrekstri á almennum mark- aði. Því hafi verið ákveðið að selja hlutabréfin í SBK. Bæjarsjóður á 24 milljónir af 40 milljóna kr. hlutafé í fyrirtækinu eða 60% hlut. Þrír starfsmenn buðu í bréfin þegar ljóst varð að þau ætti að auglýsa til sölu og nú hafa náðst samningar um sölu hlutarins til þeirra á genginu 1,39, og er kaup- verðið því liðlega 33 milljónir. Ellert telur kaupverðið viðunandi yrir báða aðila. Kaupendur hlutafjárins eru Einar Steinþórsson, framkvæmdastjóri SBK, Sigurður Steindórsson þjón- ustustjóri og Ólafur Guðbergsson skrifstofustjóri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.