Morgunblaðið - 11.05.2001, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 11.05.2001, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Svona ekkert væl, þið verðið að læra að umgangast auðlindina. Níutíu ára afmæli Vals Höldum merk- inu hátt á lofti KnattspyrnufélagiðValur á 90 ára af-mæli í dag. Af því tilefni er mikið um hátíða- höld á svæði félagsins. Reynir Vignir er formaður Vals, hann var spurður hvað ætti helst að gera til að minnast þessara tíma- móta í starfi Vals. „Við hefjum hátíðahöld afmælisársins í dag með því að vígja nýja skrif- stofuaðstöðu á Hlíðarenda og síðar í dag verður at- höfn í Friðrikskapellu þar sem vígður verður síðasti steindi glugginn. Síðan er afmæliskaffi í félagsheim- ilinu þar sem Valsmönn- um verða veittar viður- kenningar fyrir störf með silfur- og gullmerkjum félagsins. Auk þess ætla sérsam- böndin KSÍ, HSÍ og KKÍ að heiðra nokkra Valsmenn fyrir störf þeirra í þágu íþróttahreyf- ingarinnar. Í kvöld verður síðan efnt til sérstakrar kvöldsamkomu á Hótel Sögu þar sem bæði verða skemmtiatriði og heiðursmerki veitt. Síðar á árinu verður síðan efnt til frekari hátíðahalda og kappleikja í tengslum við afmæl- ið. Ég vil geta þess að það er opið hús á Hlíðarenda í dag og Vals- menn og aðrir borgarbúar eru velkomnir að heimsækja félagið á þessum tímamótum.“ – Hvað er þér efst í huga á þessu 90 ára afmæli? „Mér er efst í hug að stjórn- endum félagsins takist áfram að tryggja tilveru þess og treysta undirstöður þess með því að skapa iðkendum, keppendum og starfsmönnum þá aðstöðu sem nauðsynleg er til þess að halda uppi blómlegu starfi. Í því tilefni lítum við með stolti og þakklæti til þeirra sem tryggðu félaginu athafnasvæði á Hlíðarenda árið 1939 undir forystu Ólafs Sigurðs- sonar. En þau kaup eru horn- steinninn að stöðu félagsins og skapa því mikla möguleika áfram varðandi góða aðstöðu til íþrótta- iðkunar og keppni.“ – Hvað eru margir í Val núna? „Félagsmenn og iðkendur eru um 3.000 á öllum aldri. Gaman er að geta þess að tveir af fjórum heiðursfélögum Vals verða níræð- ir á næstu mánuðum. Þeir heita Úlfar Þórðarson og Jóhannes Bergsteinsson og fylgjast vel með starfi félagsins enn. Auk þeirra eru Sigurður Ólafsson og Þórður Þorkelsson heiðursfélagar í Val.“ – Hvert var tilefni stofnunar Vals fyrir 90 árum? „Stofnendur félagsins voru fjórtán ungir drengir sem höfðu mikinn áhuga á knattspyrnu og tengdust jafnframt starfi KFUM. Félagið hét fyrstu vikurnar Fót- boltafélag KFUM, en nafni þess var breytt í júlí 1911 í Knatt- spyrnufélagið Valur.“ – Eru Valsmenn enn á ein- hvern hátt tengdir KFUM? „Samkvæmt lögum Vals er Val- ur deild í KFUM, en tengsl í starfi eru samt sem áður mjög lítil. Valsmenn, KFUM og fleiri félög sem séra Friðrik Friðriksson tengdist standa þó sameiginlega að kap- ellu sem ber nafn hans og er á svæði Vals á Hlíðarenda.“ – Hvaðan koma liðsmenn Vals? „Valur er eitt af hverfisfélögum borgarinnar og flestir iðkendur koma úr næsta nágrenni, þ.e. úr Hlíðunum og Þingholtunum. Engu að síður hefur ávallt verið mikil ásókn í Val af iðkendum úr öðrum hverfum, einkum úr Breið- holtshverfi og Grafarvogi. Starf félagsins hefur sveiflast nokkuð með barnafjölda á því svæði sem það starfar. Nú er mjög mikill fjöldi iðkenda á svæði félagsins og er það ánægjuefni.“ – Hvar stendur Valur nú í íþróttalegu tilliti? „Í íþróttalegu tilliti stendur Valur vel. Þar fer fram grósku- mikið starf í handbolta, fótbolta og körfubolta og margir ungir og efnilegir leikmenn eru að koma fram á sjónarsviðið í gegnum starf félagsins. Valur er eitt sig- ursælasta félag landsins í þeim greinum sem keppir í meistara- flokkum. Valsmenn setja markið hátt og hyggjast nota afmælisárið til að hvetja menn til frekari dáða.“ – Nú hafa heyrst gagnrýnis- raddir þar sem rætt er um tengsl áfengis og íþrótta, hver er stefna Vals í þeim efnum? „Félagið hefur mótað vímu- varnastefnu sem kynnt er félags- mönnum og einnig er lögð áhersla á að þjálfarar kynni hana fyrir þeim sem þeir þjálfa hverju sinni.“ – Er tekið hart á brotum á þessum vettvangi eða öðrum? „Vímuvarnastefnan er sett fram í fullri alvöru og fylgst með að henni sé framfylgt. Sem betur fer hefur ekki komið til alvarlegra agabrota í mörg undanfarin ár.“ – Hver er framtíðar- sýnin? „Valur er sigurfélag og framtíðarsýnin er að halda merki félags- ins hátt á lofti í keppni en ekki síður í að skapa börnum og unglingum traustan og góðan vettvang til æf- inga og sinna því þjónustuhlut- verki vel sem félagið hefur tekið að sér. Áframhald uppbyggingar á svæðinu á Hlíðarenda er stór þáttur í því og félagið á í viðræð- um við Reykjavíkurborg í því sambandi. Í þeim viðræðum er mjög góður tónn þessa dagana.“ Reynir Vignir  Reynir Vignir fæddist í Reykjavík árið 1953. Hann lauk stúdentsprófi 1974 frá Versl- unarskóla Íslands og tók við- skiptafræðipróf frá Háskóla Ís- lands 1978. Hann fékk réttindi sem löggiltur endurskoðandi 1980. Hann hefur starfað við endurskoðun frá árinu 1974 og sem löggiltur endurskoðandi frá 1980. Hann hefur einnig tekið mikinn þátt í félagsstörfum hjá Knattspyrnufélaginu Val og ver- ið formaður þar frá 1994. Reynir er kvæntur Þóru Sjöfn Guð- mundsdóttur kennara og eiga þau tvö börn. Valur er eitt sigursælasta félag landsins í bolta- greinum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.