Morgunblaðið - 11.05.2001, Blaðsíða 34
LISTIR
34 FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÚTSKRIFTARSÝNING listnema
Listaháskóla Íslands verður opnuð
á morgun, laugardag, kl. 14. Eins
og undanfarin ár verður sýningin
haldin í húsnæði skólans að Laug-
arnesvegi 91 í Reykjavík. Þetta er
annað árið sem nemar með BA-
gráðu eru útskrifaðir frá skólanum
og munu gestir sjá verk 64 nem-
enda, bæði af hönnunar- og mynd-
listarsviði.
Alla daga sýningarinnar verða
nemendur á staðnum og munu
veita leiðsögn um svæðið. Upp-
ákomur verða í boði og einnig verð-
ur hægt að sjá innsetningar, sýn-
ingar á myndböndum, málverk,
skúlptúr og grafík frá myndlist-
arsviði sem og leirlist, textíl og
grafíska hönnun frá hönnunarsviði.
Í sambandi við sýninguna hefur
Listaháskóli Íslands látið prenta
sýningarskrá með textum frá nem-
endum og myndum af verkum
þeirra. Sýningarskráin verður til
sölu á opnuninni sem og alla sýn-
ingardaga.
Gjörningar og aðrar uppákomur
hefjast kl.13 en kl.13.30 mun Krist-
ján Steingrímur Jónsson deild-
arforseti formlega opna sýninguna.
Hún stendur til 20. maí og verður
opin daglega kl. 14–18.
Útskriftarnemar Listaháskóla Íslands á þessu vori.
Útskriftarsýning listnema LHÍ
EINS og áður er þar boðið til
bestu rétta af borði kirkjulista bæði í
orði, tónum og myndmáli á Kirkju-
listavikunni sem nú stendur yfir.
Tónlistarfélag Akureyrar lagði á
þetta nægtaborð listanna, svo líking-
unni sé haldið, þá Óskar Pétursson
og Björn Steinar Sólbergsson, sem
fetuðu þekkta braut í lagavali. Tón-
leikarnir hófust með sálmforleik
Páls Ísólfssonar við sálminn Víst
ertu, Jesú, kóngur klár, sem Óskar
botnaði með því að syngja laggerð
Páls við sálminn og við orgelundir-
leik Björns Steinars. Það var
ánægjulegt að heyra hvernig Óskar
byggir söng sinn á ómblíðum og
mjúkum tónum, en á alltaf nægan
styrk eftir án þess að yfirdrífa á
kostnað fegurðarinnar. Samleikur
þeirra Björns Steinars var með
ágætum og öll blæbrigði vel útfærð.
Í raun finnst manni ótrúlegt að svo
mikið tónlistarnæmi og tær söngur
komi frá manni sem alla daga brasar
í bílaryki og olíustybbu, því Óskar
starfar sem bifvélavirki.
Manni varð vel ljóst á tónleikunum
að ákvörðun menningarmálanefndar
Akureyrarbæjar nýverið að veita
Óskari sex mánaða starfslaun til að
sinna list sinni er löngu tímabær.
Þeir eru ekki fáir mannfagnaðir og
reyndar líka tregastundir á Akur-
eyri og víðar um land, þar sem Óskar
hefur með söng sínum látið fólki líða
betur og mér liggur við að segja að
gera það að betri manneskjum.
Þannig leið mér á tónleikum Óskars
og Björns Steinars, einhvers konar
sálarbað voru þessir tónleikar og
ekki dró úr stemmingunni að ganga
út í vorfegurðina að tónleikum lokn-
um. Ég hefði þó gjarnan kosið ný-
meti á efnisskránni. Á eftir Páli Ís-
ólfssyni kom Friður á jörðu eftir
Árna Thorsteinsson,
og síðan tveir sálmar
eftir Þórarin Guð-
mundsson og þá Mar-
íuvers Matthíasar
Jochumssonar við lag
Áskels Jónssonar. Ave
María Kaldalóns og
einnig sú víðþekkta
sem Gounod samdi og
notaði sem undirleik
prelúdíuna í C dúr eft-
ir Bach voru á efnis-
skránni. Áður en Ósk-
ar söng Panis
Angelicus eftir Cesar
Franck lék Björn
Steinar með tilþrifum
á orgelið Kóralinn nr.
3 í a-moll eftir sama höfund. Mér
fannst Sanctus-þátturinn úr Messe
Solenelle eftir Gounod lenda utan við
þá einlægu stemmningu sem Óskar
og Björn Steinar byggðu upp. Ég
hygg að sá óperuháttur og kraftastíll
sem Gounod finnur söngnum hafi
ráðið mestu um þessa tilfinningu
mína. Tenórinn Óskar glansaði svo í
lokin í fluningi á Agnus Dei eftir Bi-
zet, sem reyndar er orðið allt að því
ofnotuð af tenórum heimsins. Óskar
söng þó lagið af nægri smekkvísi og
næmi til að gera flutninginn per-
sónulegan og hrífandi. Að loknu
miklu klappi og aukalagi hélt ég út í
glóandi kvöldsólina með tenór-
glampa í sálinni.
Glóandi kvöldsól og
glampandi tenór
TÓNLIST
A k u r e y r a r k i r k j a
Sjöunda Kirkjulistavika Akureyr-
ar. Óskar Pétursson tenór og Björn
Steinar Sólbergsson organisti.
Þriðjudagskvöldið 9. maí.
TRÚARLEGIR
SÖNGVAR
Björn Steinar
Sólbergsson
Óskar
Pétursson
Jón Hlöðver Áskelsson
VORTÓNLEIKAR Reykjalundar-
kórsins verða haldnir í hátíðarsal
Varmárskóla í Mosfellsbæ á
sunnudag kl. 16. Á efnisskrá eru
m.a. íslensk þjóðlög, lög úr ís-
lenskum leikritum og lög úr er-
lendum söngleikjum. Stjórnandinn
Íris Erlingsdóttir syngur einsöng.
Undirleikarinn er Judith Þor-
bergsson og leikur hún á píanó og
fagott.
Miðaverð 1.000 kr., frítt fyrir
börn.
Vortónleikar
Reykjalund-
arkórsins
SÖNGSKEMMTUN verður haldin í
Hveragerðiskirkju á sunnudag kl.
17. Þar koma fram Kór Orkuveitu
Reykjavíkur, Sönghópurinn Veir-
urnar og Signý Sæmundsdóttir
sópran. Flutt verða íslensk og erlend
lög sem mörg hver eru tengd vor-
komunni. Stjórnandi kóranna er
Þóra Fríða Sæmundsdóttir og píanó-
leikari er Kristinn Örn Kristinsson.
Miðaverð á söngskemmtunina er
500 kr.
Söngskemmtun
á sunnudegi
KVENNAKÓRINN Kyrjurnar
heldur tónleika í Laugarneskirkju á
sunnudag kl. 17.
Á söngskrá eru söngvar frá Afr-
íku, S-Ameríku, þekkt íslensk vor-
ljóð o.fl.
Í Kvennakórnum Kyrjunum eru
söngelskar konur á öllum aldri, sem
sungið hafa saman frá stofnun kórs-
ins árið 1995. Stjórnandi kórsins er
Sigurbjörg Hvanndal Magnúsdótir
og undirleikari er Halldóra Aradótt-
ir.
Miðaverð er 1.000 kr., 500 kr. fyrir
ellilífeyrisþega og öryrkja en frítt
fyrir börn yngri en 12 ára.
Kyrjur í
Laugarnes-
kirkju
Gula húsið –
Fílapensillinn
Síðasta sýningarhelgi á verkum
málara af yngri kynslóðinni í
gula húsinu á horni Frakkastígs
og Lindargötu er nú um helgina.
Hópurinn nefnir sig Fílapensilinn.
Sýningin er opin á föstudag frá
16–18.30 og laugardag og sunnu-
dag 12–16.
Gallerí Stöðlakot
Sýningu Kristjáns Jónssonar í
Galleríi Stöðlakoti á Bókhlöðustíg
lýkur á sunnudag. Á sýningunni
eru ný málverk unnin með bland-
aðri tækni á striga.
Stöðlakot er opið daglega frá kl.
14–18.
Sýningum lýkur
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
KAMMERKÓRINN Vox academica
heldur árlega vortónleika sína í Sel-
tjarnarneskirkju á morgun, sunnu-
dag, kl. 17. Kórinn flytur m.a. madri-
gala frá Englandi og Ítalíu, þjóðlög í
útsetningum Gustav Holst og Vaug-
han Williams, og trúarleg kórverk
eftir 20. aldar tónskáldin Randall
Thompson, Javier Busto og Samuel
Barber.
Einnig verður frumflutt nýtt verk
sem Atli Heimir Sveinsson hefur
samið fyrir kórinn við ljóð Bjarna
Thorarensen, „Rannveig Filippus-
dóttir“. Þá mun kórinn flytja nokkra
þætti úr spænska kórverkinu Misa
flamenca eftir Paco Peña. Í „Fla-
mencomessunni“ mætast tveir meg-
inþættir spænskrar menningar –
hugmyndakerfi kaþólsku kirkjunnar
og hugarheimur flamencodansins – á
dulúðugan og magnaðan hátt. Verkið
var fyrst flutt árið 1988. Eins og
venja er í flamencotónlist eru ekki til
að því hefðbundnar nótur, en Símon
Ívarsson gítarleikari hefur útsett
hluta verksins fyrir blandaðan kór,
gítar og klarínettu. Símon mun sjálf-
ur leika á gítar á tónleikunum en
Guðni Franzson á klarínettu.
Stjórnandi kórsins er Hákon
Leifsson.
Miðar verða seldir við innganginn
og kosta 1.500 kr.
Kammerkórinn Vox Academica.
Vox Academica
á vortónleikum
Ítrekunartíðni afbrota á Íslandi
hefur að geyma greinargerð
rannsókna á afturhvarfi brota-
manna til afbrotahegðunar eftir út-
tekt refsingar sem gerð var af Eric
Baumer, prófessor í afbrotafræði
við Missouri-háskóla, St. Louis í
USA, Helga Gunnlaugssyni, dós-
ent í félagsfræði við Háskóla Ís-
lands, Kristrúnu Krisinsdóttur,
lögfræðingi í dómsmálaráðuneyt-
inu, og Richard Wright deild-
arforseta afbrotafræðideildar Mis-
souri-háskólans í St. Louis.
Í fréttatilkynningu segir m.a.: „Í
bókinni er leitað svara við mörgum
brýnum spurningum er lúta að því
hvaða þættir auka eða draga úr lík-
um á ítrekun afbrota. Þar kemur
fram að svarað sé m.a. spurningum
um það hver sé ítrekunartíðni
brotamanna sem ljúka afplánun í
fangelsi á Íslandi og hver sé ítrek-
unartíðni þeirra sem ljúka fulln-
ustu dóma án fangelsunar, hvort
hlutfallið hafi breyst yfir lengri
tímabil, hver sé meðaltímalengd
frá lokum afplánunar í fangelsi eða
annarra viðurlaga til afturhvarfs til
afbrota og loks um það hvernig
ítrekunarmynstur á Íslandi eru í
samanburði við mynstrin í öðrum
löndum, hvernig Íslendingar
standa sig í baráttunni við glæpi í
samanburði við aðrar þjóðir.“
Háskólafjölritun ehf gefur út
bókina og er þar til sölu. Bókin er
97 síður í B4 broti. Verð: 1.600 kr.
Nýjar bækur