Morgunblaðið - 11.05.2001, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 11.05.2001, Blaðsíða 56
UMRÆÐAN 56 FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Heildsala: Bergís ehf. Í Morgunblaðinu sl. miðvikudag birtist grein eftir Pétur Björnsson, íbúa á Arn- arnesi, þar sem hann gagnrýnir bæjarstjórn Garðabæjar fyrir vinnubrögð í tengslum við hugsanlegt bryggju- hverfi. Rangfærslur Péturs eru svo miklar og alvarlegar að ástæða er til að reifa nokkrar staðreyndir málsins. Fyrsta rangfærsla Péturs er sú að meiri- hluti sjálfstæðismanna í bæjarstjórn Garða- bæjar standi fyrir upp- byggingu bryggjuhverfisins. Hið rétta er að meirihluti og minnihluti í bæjarstjórn Garðabæjar hafa fram til þessa unnið samstiga að því að skoða hugmyndir Bygg ehf. og Björgunar ehf. um bryggjuhverfi. Bæjarstjórn Garðabæjar sam- þykkti einróma, í lok október á síð- asta ári, að standa að viljayfirlýs- ingu um samstarf við byggingar- aðilana um uppbyggingu íbúða- byggðar á Stálvíkursvæðinu og vestan megin við það. Um er að ræða almenna viljayfirlýsingu sem felst m.a. í því að Bygg og Björgun fá úhlutað ákveðnu landsvæði og að hugsanlega fái þessi fyrirtæki heimild til landfyllingar. Önnur rangfærsla Péturs er sú að stjórnvöld í Garðabæ fylgi nátt- úruspjallastefnu. Hið rétta er að landfylling í Arnarnesvogi er m.a. algjörlega háð því að umhverfismat hafi farið fram. Staða matsins er sú að Skipulagsstofnun ríkisins hefur óskað eftir athugasemdum við skýrslu um mat á umhverfis- áhrifum sem unnin hefur verið af verkfræðistofunni Hönnun. Bæjar- stjórn Garðabæjar mun senda inn athugasemdir sínar á næstunni, en um málið er m.a. fjallað í skipulags- nefnd og umhverfisnefnd Garða- bæjar. Upplýst umræða Þriðja rangfærsla Péturs er sú að bæjarstjórnin sýni ,,undirlægju- hátt“ með því að láta verktakana ekki greiða gatnagerðar- gjöld af íbúðunum. Hið rétta er að sveit- arfélög leggja ein- ungis á gatnagerðar- gjöld þegar þau standa straum af gatnargerðarfram- kvæmdum sjálf. Í þessu tilviki mun sveitarfélagið ekki gera það þar sem verktakafyrirtækin munu sjálf annast all- ar framkvæmdir við gatnagerð og opin svæði innan hverfis- ins. Í slíkum tilvikum er sveitar- félögum ekki heimilt að innheimta gatnagerðargjöld af byggingaraðil- unum. Rétt er að taka fram að verktakarnir munu greiða gatna- gerðargjöld sem nema kostnaði vegna framkvæmda bæjarins við tengibrautir að hverfinu. Fjórða rangfærsla Péturs er sú að Garðabær styrki Bygg og Björg- un um 100–120 m.kr. til að rífa nið- ur byggingar sem stóðu á landinu sem fyrirtækin keyptu. Hið rétta er að Garðabær ber engan kostnað vegna niðurrifs eldri bygginga enda greiða verktakarnir þann kostnað algjörlega sjálfir. Allt tal um styrki er því algjörlega úr lausu lofti grip- ið. Í athugasemd sinni er Pétur hugsanlega að vísa til þess að sam- kvæmt gjaldskrá um gatnagerðar- gjöld í Garðabæ getur í þeim til- vikum þegar nýtt hús er byggt á lóð í stað eldra húss sem rifið er, mynd- ast inneign til frádráttar álögðu gatnagerðargjaldi hins nýja húss á lóðinni þ.e. ekki verður greitt að nýju gatnagerðagjald vegna þeirra fermetra er áður var greitt af, við byggingu eldra húsnæðis. Við nið- urrif núverandi húsnæðis Norma er gert ráð fyrir inneign geti numið um 7,0 mkr. sem kemur þá til frá- dráttar nýjum álögðum gatnagerð- argjöldum á húsnæði á sama stað. Fimmta rangfærsla Péturs er sú að landfylling þjóni einungis hags- munum verktakanna. Hið rétta er að á hugsanlegri landfyllingu geta allmargir íbúar búið og það hljóta að vera hagsmunir framtíðaríbúa að hverfið rísi. Nú þegar hafa eldri borgarar í Garðabæ til dæmis ályktað um mikilvægi þess að bryggjuhverfið rísi. Það er vanvirð- ing við væntanlega íbúa hverfisins að líta algjörlega framhjá hagsmun- um þeirra og mikilvægi þess að auka fjölbreytileika íbúða í Garða- bæ. Sjötta rangfærsla Péturs er sú að nú séu að koma fram nýjar upplýs- ingar um ,,landfyllingarmálið“ en með því er hann að vísa í umrædda viljayfirlýsingu sem undirrituð var í október sl. Hið rétta er að vilja- yfirlýsingin hefur verið öllum að- gengileg og meðal annars var henni komið til fjölmiðla á sínum tíma til að þeir gætu kynnt sér málið. Mikil áhersla hefur verið lögð á að áhuga- samir séu vel upplýstir og að bæj- arbúar geti kynnt sér staðreyndir málsins, en viljayfirlýsinguna má meðal annars finna á vef Garða- bæjar, www.gardabaer.is. Unnið af heilindum Fleiri rangfærslur koma fram í grein Péturs en ekki er ástæða til að tíunda þær hér. Ég vil hins veg- ar árétta mikilvægi þess að þegar tekist er á um ólík sjónarmið skilar málefnalegur málflutningur mest- um árangri. Vilji menn ná sátt eru rangfærslur ekki besta leiðin til þess. Staða mála varðandi Bryggju- hverfið er sú að bæjarstjórn Garða- bæjar hefur ekki tekið neinar end- anlegar ákvarðanir varðandi uppbyggingu á svæðinu. Sam- kvæmt aðalskipulagi Garðabæjar er gert ráð fyrir að íbúðarbyggð rísi við Arnarnesvog en hvorki liggur fyrir hvort landfylling verði sam- þykkt né hversu stór hún þá yrði. Bæjarstjórn Garðabæjar mun áfram vinna að málinu af heilindum og í góðri samvinnu við bæjarbúa sem leggja fram málefnalegan rök- stuðning. Staðreyndir um bryggju- hverfi Ásdís Halla Bragadóttir Höfundur er bæjarstjóri Garðabæjar. Skipulagsmál Rangfærslur Péturs eru svo miklar og alvar- legar, segir Ásdís Halla Bragadóttir, að ástæða er til að reifa nokkrar staðreyndir málsins. ÞVÍ í ósköpunum er ekki búið að semja nú rúmlega hálfu ári eftir að samningar aðildar- félaga Bandalags há- skólamanna (BHM) runnu út? Svo það sé skýrt þá hafa samningaviðræð- ur staðið í rúmlega hálft ár og í hálft ár þar áður höfðu samn- inganefndir félaganna mótað línurnar, samið kröfur í samvinnu við félagsmenn og sam- ræmt sig við önnur félög bandalagsins. En viðræðunum sjálfum er best lýst með því að segja að þær séu nokkurs konar ekki-viðræður. Samninganefnd ríkisins (SNR) fæst í fyrsta lagi seint og sjaldan að fundarborðinu og þegar til funda kemur þá er þeirra fólk illa, en oft- ast ekki undirbúið og hefur þess fyrir utan lítið umboð til að semja. Eina sem má semja um eru áfanga- hækkanir sem Flóabandalagið lagði upp með fyrir rúmu ári. Sjálfstæð- ur samningsréttur sem er varinn í stjórnarskrá er hafður að engu. Meira að segja nú þegar verðbólg- an er komin á fullt skrið og gengi íslensku krónunnar hríðfallið má ekki semja um annað en samið var um í gjörólíku efnahagsumhverfi. Það er af og frá að samningafólk stéttarfélaganna upplifi sig sem annan tveggja jafnrétthárra aðila við sameiginlegt samningaborð. Hýrudráttur ríkisins Kannski er skýringin á þessum seinagangi sú að ríkið stórgræðir um hver mánaðamót sem líða án þess að samið sé. Nú hafa þeir grætt 7 – sjö sinnum. Viðræðuáætl- anir gerðu ráð fyrir að búið væri að semja áð- ur en samningar rynnu út, þannig að nýr kjarasamningur tæki við af þeim gamla. Þetta tókst ekki, í skjóli þess að í lögum eru engin viður- lög við því að tefja við- ræður (eins og leiktöf í handbolta) þótt annar aðilinn hafi þar einn hagsmuna að gæta. Krafan um afturvirkni er eðlileg og sjálfsögð þegar svona er háttað. Hún hefur nú fengið byr undir báða vængi með úrskurði kjaradóms sem felld- ur var 7. maí en gildir frá 1. apríl. Rök ríkisins um að ekki séu til for- dæmi fyrir afturvirkni eru fallin og þar með úrelt og gamaldags hýru- dráttaraðferð þeirra. Afleiðingar af kjarastefnu ríkisins Afleiðingar af kjarastefnu ríkis- ins eru tvíþættar; verkföll og at- gervisflótti. Það virðist vera að SNR hvetji stéttarfélög til verk- falla. Leynt, og þó aðallega ljóst, fá samninganefndirnar þau skilaboð að ekkert fáist í yfirstandandi kjaraviðræðum án átaka. Félögin eru hvött til aðgerða, sem oftast eru í formi verkfalla, sem skaðar stór- lega þá lögbundnu þjónustu sem við erum að sinna á mismunandi stofn- unum samfélagsins. Ríkið, með samninganefnd sína í broddi fylkingar, virðist ætla að sofa værum blundi að feigðarósi. Það er staðreynd að heimurinn er að verða eitt atvinnusvæði, sérstak- lega fyrir háskólamenntað fólk. Ríkið er ekki lengur bara í sam- keppni við almenna markaðinn um vinnuaflið, hann er líka í samkeppni við almenna og opinbera markaðinn í öðrum löndum. Við Íslendingar getum farið víða með okkar góðu menntun en það er ekki víst að aðr- ir fáist í okkar störf. Kjaranefnd og kjaradómur ruglast í ríminu Kjaranefnd og kjaradómur virð- ast heldur betur hafa ruglast í hlut- verki sínu. Kjaranefnd felldi þann úrskurð nýlega að þeir sem heyrðu undir hana fengju 6,9% launahækk- un, þar á meðal prófessorar. Kjara- dómur gerði það sama fyrir dómara og æðstu embættismenn þjóðarinn- ar. Þessir aðilar eiga að fylgja þeirri kjarastefnu sem mótuð er við samningaborðið, hjá okkur viðmið- unarhópunum, en ekki að móta stefnuna. Það hafa þeir gert nú með grófri og ótímabærri íhlutun í okk- ar kjaraviðræður. Þessu mótmælir Bandalag háskólamanna harðlega. Samninganefndir aðildarfélaga BHM hafa verið að störfum í rúm- lega heilt ár. Nú á síðustu sjö mán- uðum hafa þær staðið í lýjandi ekki- viðræðum. Við erum fyrir löngu bú- in að fá nóg – en ætlum ekki að gefa eftir, hvorki samningsréttinn né nauðsynlegar hækkanir. Endalausar ekki-viðræður Björk Vilhelmsdóttir Höfundur er félagsráðgjafi og formaður Bandalags háskólamanna. Kjaramál Við erum fyrir löngu búin að fá nóg, segir Björk Vilhelmsdóttir, en ætlum ekki að gefa eftir, hvorki samnings- réttinn né nauðsyn- legar hækkanir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.