Morgunblaðið - 11.05.2001, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 11.05.2001, Blaðsíða 53
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2001 53 HINN árlegi kirkjudagur Kálfa- tjarnarkirkju verður haldinn sunnu- daginn 20. maí og hefst með guðs- þjónustu í Kálfatjarnarkirkju kl. 14.00. Prestar séra Hans Markús Hafsteinsson og séra Friðrik J. Hjartar. Kirkjukórinn syngur undir stjórn Frank Herlufsen. Að henni lokinni verður Kven- félagið Fjóla með kaffisölu í Glað- heimum til styrktar kirkjusjóði félagsins. Ræðumaður dagsins verður Hjálmar Árnason alþingismaður. Sérstakir boðsgestir eru þeir sem eiga 50 ára fermingarafmæli frá Kirkjunni á þessu ári. Brottfluttir hreppsbúar eru sérstaklega hvattir til að koma og endurnýja kynninn við sitt gamla sveitarfélag. Við hvetjum sem flesta til að koma og eiga með okkur ánægjulega dags- stund á fallegum stað. Sóknarnefnd. Guðsþjónusta í Reyniskirkju í Mýrdal GUÐSÞJÓNUSTA verður í Reynis- kirkju í Mýrdal, á 4. sunnudegi eftir páska, 13. maí nk. kl. 20:30 (athugið breyttan tíma). Organisti verður Kristín Björnsdóttir. Sálmarnir sem sungnir verða í guðsþjónustunni verða allir úr nýj- ustu sálmabók kirkjunnar og þar af leiðandi allir með nótum svo hinn al- menni kirkjugestur geti tekið sem virkastan þátt. Nú er tækifæri til að koma í Reyn- iskirkju og hlusta á fagnaðarerindið og lofa Guð með miklum og almenn- um safnaðarsöng. Gefið ykkur tíma til að líta upp úr önnum sauðburðar og vorverka og fjölmennið til kirkju. Sóknarprestur og organisti. Sumarferð Safn- aðarfélags Digra- nessprestakalls FERÐIN verður farin hinn 20. maí nk. Lagt verður af stað kl. 9.00 frá Digraneskirkju og haldið til Víkur í Mýrdal þar sem messað verður. Prestar Digraneskirkju annast alt- arisþjónustu og sr. Magnús B. Björnsson prédikar. Kór Digranes- kirkju mun flytja Deutsche Messe eftir Shubert, undir stjórn orgelleik- ara Digraneskirkju Kjartans Sigur- jónssonar. Á eftir guðþjónustu munu söfnuðir Digraness- og Víkurpresta- kalla njóta sameiginlegra veitinga. Fyrirhugað er að á leið til Víkur verði komið við hjá Skógum þar sem þátttakendur geta snætt nesti sitt eða fengið keyptar veitingar. Á heimleið er ráðgert að farið verði í Reynishverfi og um Fljótshlíð. Áætlaður komutími til Kópavogs er á milli kl 8.00 og 9.00 um kvöldið. Akstur er í boði sóknarnefndar en veitingar á kostnað þátttakenda. Þátttakendur eru vinsamlega beðnir um að tilkynna þátttöku til kirkjuvarða Digraneskirkju fyrir föstudaginn 18. maí í síma 554 1620. Aðalfundur Grafarvogssóknar AÐALSAFNAÐARFUNDUR Grafarvogssóknar verður haldinn eftir guðsþjónustu sunnudaginn 13.maí kl.11:00. Léttur hádegisverð- ur. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. Safnaðarstarf Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45-7.05. Mömmumorgunn kl. 10-12 í umsjá Hrundar Þórarinsdóttur djákna. Kaffispjall fyrir mæður, góð upplifun fyrir börn. Langholtskirkja. Kirkjan er opin til hljóðrar bænagjörðar í hádeginu. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús í Strandbergi laugardagsmorgna. Trú og mannlíf, biblíulestur og kyrrðarstund. Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Samkomur alla laugardaga kl. 11- 12.30. Lofgjörð, barnasaga, prédik- un og biblíufræðsla þar sem ákveðið efni er tekið fyrir, spurt og svarað. Barna- og unglingadeildir á laugar- dögum. Létt hressing eftir samkom- una. Allir velkomnir. Frelsið, kristileg miðstöð. Föstu- dagskvöld kl. 21 Styrkur unga fólks- ins. Dans, drama, rapp, prédikun og mikið fjör. Sjöundadagsaðventistar á Íslandi: Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Bibl- íufræðsla kl. 10.Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Björgvin Snorrason. Safnaðarheimili aðventista, Blika- braut 2, Keflavík: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Gavin Anthony. Safnaðarheimili aðventista, Gagn- heiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Maxwell Ditta. Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest- mannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Halldór Ólafsson. Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnar- firði: Guðsþjónusta kl. 11. Biblíu- fræðsla kl. 12. Ræðumaður Steinunn Theodórsdóttir. Kirkjudagur Kálfatjarnar- kirkju Kálfatjarnarkirkja. KIRKJUSTARF Elsku afi! Við fráfall þitt koma margar minningar upp í huga okkar. Allar eru þær góðar um ástríkan og góðan afa. Þar ber hæst þær stundir þegar við fengum að vera hjá þér og ömmu, þegar mamma og pabbi skruppu til útlanda. Þá var gott fyrir litla stráka að eiga vísan samastað hjá afa og ömmu. Fyrst í Arnarhrauninu og seinna á Eyrarbakka þar sem þið höfðuð eignast lítið hús og þar dvöld- uð þið alltaf þegar tími gafst til yfir sumartímann. Þá fengum við að hjálpa til við störfin í garðinum ykk- ar, sem þið voruð svo samhent um að gera fallegan. En nú er komið að leið- arlokum og við vitum að nú líður þér vel og að ástvinir sem á undan eru farnir hafa tekið á móti þér. Elsku afi, hafðu þökk fyrir að gæta okkar og fyrir allt sem þú varst okkur. Við kveðjum þig í hinsta sinn með litlum bænaversum, sem við vitum að þér þótti svo vænt um og eru eftir pabba þinn, Guðmund Finnboga Helgason. Ég vil sofna sætt og rótt, sofna í Jesú nafni, dagur líður, dimmir ótt, Drottinn lát mig sofa rótt, augum loka í Jesú náðar nafni. Bak við húmsins rökkurró, roða af nýjum degi, augun þreyttu eygja þó, er það dýrust hjartans fró, ljós þitt Jesú lýsi mína vegi. Elsku amma, missir þinn er mikill og við biðjum góðan guð að vaka yfir þér á þessum erfiðu tímum. Afastrákarnir Matthías, Friðrik og Garðar. Elsku afi. Nú hefur þú kvatt okkur í hinsta sinn og við þig með söknuði. Margs er að minnast er ég lít yfir far- inn veg og mínar fyrstu minningar frá ykkur ömmu eru úr Arnarhrauninu þar sem ég dvaldi ófáar stundirnar og hef ég heyrt margar sögurnar um mínar frægu búðarferðir og fleira sem ég ætla ekki að fara nánar út í, en MATTHÍAS ÍSFJÖRÐ GUÐMUNDSSON ✝ Matthías ÍsfjörðGuðmundsson fæddist í Bolungar- vík 17. apríl 1923. Hann lést á hjarta- deild Landspítalans við Hringbraut í Reykjavík 26. apríl síðastliðinn og fór útför hans fram frá Fossvogskapellu 4. maí. mér skilst að þær hafi verið ansi skrautlegar oft á tíðum. En þær minningar sem eru mér skýrastar og minnis- stæðastar eru þær er þið bjugguð í Hafnar- stræti og síðast en ekki síst í litla hreiðrinu ykk- ar sem þið voruð búin að gera svo fallegt á Eyrarbakka. Það var ósjaldan sem ég kom til ykkar austur fyrir fjall, hvort sem var í kaffi eða til lengri dval- ar og þá vissi ég hvar ég gekk að ykkur vísum, amma einhvers staðar á hnjánum á milli trjánna í þessum líka yndislega garði sem var margrómaður fyrir glæsileika enda er hún með eindæmum græna fingur, og þú einhvers staðar að lagfæra eða betrumbæta húsið, að innan eða utan. Það var alveg sama hvað það var sem laga þurfti, þetta lá þér allt svo vel í hendi og þú varst svo sannarlega þús- undþjalasmiður afi minn. En þótt þig vantaði kannski stundum örlitla hjálp, baðstu aldrei um hana en varst þó þakklátur ef þér var veitt hún. Mér er minnisstæð sú heimsókn er við komum til ykkar austur, ég og unnusti minn síðasta sumar í kaffi- sopa og þið að hittast í fyrsta sinn, hve vel fór á með ykkur. Þið rædduð saman um heima og geima en þó að- allega um ættfræði og bernskuslóðir sem þér þótti nú held ég ekki leið- inlegt að tala um. Nú höfum við eign- ast lítinn sólargeisla sem kom í heim- inn aðeins þremur dögum fyrir þinn afmælisdag og ég gleðst yfir því að þú hafir náð að líta hana augum áður en þú kvaddir þennan heim elsku afi. Hún fer á mis við að kynnast þínum yndislega manni en minningar um þig geymum við í hjörtum okkar og þeirra mun hún fá að njóta. Guð geymi þig, elsku afi minn. Ég vil enda þetta á bænaversi sem pabbi þinn samdi: Nú til hvíldar leggst ég lúinn, lát mig, Drottinn, sofa rótt; hvílan, faðminn, breiðir búin, blessuð kom þú draumanótt. Vef mig þínum ástar armi, englar guðs mér vaki hjá; friðardagsins blíði bjarmi, bráðum ljómar himni á. (G.F.H.) Elsku amma, megi guð gefa þér styrk. Ég veit að afi vakir yfir þér og okkur öllum. Svanfríður og fjölsk. MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minn- ing@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/send- anda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöð- ugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstak- ling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir grein- unum. Frágangur afmælis- og minning- argreina ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sími 581 3300 Allan sólarhringinn — www.utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Bryndís Valbjarnardóttir útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla. < - -   5     )         - "    " -   -    /E F&% 0% 2+ 79 3,! ),-  +   G   G   G  ( 12    1   - 4, <     *9:=0+9>+?.@.=+.=79=A.++B=9>            ! $;!''   - $$! !  )<  ) 3 $ 7HI88  1 1 - 6           - -    5   1  )    1 - )   "   ,       ' > /6/ 6: 00% % "7J$ 3,! ),- <    ,-  )         C  :     )1   !    %,    3' !2     3      %,    ' !2         1 +      -
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.