Morgunblaðið - 11.05.2001, Blaðsíða 41
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2001 41
ekkert annað en innrás í líf fórn-
arlamba glæpsins.
Annað umkvörtunarefni áhorf-
enda var að sjónvarpsfréttatímar
eyddu of miklu púðri í litið frétta-
efni. Það væri móðgun við áhorf-
endur að senda fréttamann og
kvikmyndatökulið á vettvang til að
fjalla um efni sem var lítt merki-
legt fyrir og yrði ekki par merki-
legra þrátt fyrir atgang sjónvarps-
ins. Oft vildi líka teygjast svo úr
beinum útsendingum að áhorf-
endur hefðu á tilfinningunni að
fréttamennirnir væru að spinna
fréttina upp jafn óðum til að fylla
upp í fréttatímann.
Tuggle hefur eftir einum sjón-
varpsáhorfanda að stöðvarnar
ættu fremur að eyða fé í að auka
gæði fréttatímanna, í stað þess að
einblína á tæknina. Hann segir að
margir gætu tekið undir þessi orð.
Beinar útsendingar sé sjálfsagt að
nota þegar fréttaefnið kalli á það.
Hins vegar sé raunin sú, að mati
bæði fréttamanna og áhorfenda,
að tæknin bæti litlu við fréttatím-
ana og komi í versta falli í veg fyr-
ir að frétt sé unnin á faglegan hátt.
SAMFYLKINGIN ákvað á
stofnfundi sínum vorið 2000 að
sett yrði saman skýrsla um
Evrópusambandið og hugsan-
leg samningsmarkmið ef til um-
sóknar um aðild að ESB kæmi
af hálfu Íslendinga. Fimmtán
sérfróðir einstaklingar hafa
tekið að sér að fjalla um álita-
mál sem snerta hin ýmsu svið
Evrópusamvinnunnar og verða
niðurstöður þeirra kynntar á
sértakri fundaröð Samfylking-
arinnar um Evrópumál.
Fyrsti fundurinn verður
haldinn næstkomandi laugar-
dag, 12. maí, í Norræna húsinu
kl. 11.00–14.00. Skýrslurnar
verða gefnar út í sérstöku riti í
haust.
Evrópuskýrslu Samfylking-
arinnar er ætlað að auka þekk-
ingu og umræðu á álitamálum
sem snerta hugsanlega aðild að
Evrópusambandinu, bæði á op-
inberum vettvangi og innan
flokksins. Þá er gert ráð fyrir að
hún geti orðið mikilvægt inn-
legg í stefnumótun Samfylking-
arinnar í Evrópumálum.
Fundirnir og efni þeirra
verða sem hér segir:
Fundur 1: Stjórnsýslan og
menntamál (12. maí). Ávarp for-
manns – Össur Skarphéðinsson.
Menntamál, vísindi og rann-
sóknir – Eiríkur Bergmann og
Ásta Sif Erlingsdóttir. Stjórn-
sýslumál – Baldur Þórhallsson.
Fundur 2: Sjávarútvegur,
félags- og efnahagsmál (8.
sept.). Sjávarútvegsmál – Ágúst
Ágústsson og/eða Katrín Júlí-
usdóttir. Félags- og jafnréttis-
mál – Bryndís Hlöðversdóttir.
Efnahagsmál – Már Guð-
mundsson.
Fundur 3: Landbúnaðar-,
neytenda- og utanríkismál (22.
sept.). Landbúnaðarmál – Run-
ólfur Ágústsson og/eða Magnús
Árni Magnússon. Neytendamál
– Þórunn Sveinbjarnardóttir.
Utanríkismál – Árni Páll Árna-
son.
Fundur 4: Umhverfið, menn-
ingin, byggða- og fullveldismál
(6. október). Umhverfismál –
Jón Gunnar Ottósson. Menning
og samkennd – Gestur Guð-
mundsson. Byggðamál – Ingi-
leif Ástvaldsdóttir og/eða Hall-
dór S. Guðmundsson.
Fullveldismál – Valgerður
Bjarnadóttir.
Eiríkur Bergmann stjórn-
málfræðingur hefur verið feng-
inn til að ritstýra skýrslunni og
hafa umsjón með fundaröðinni.
Evrópu-
skýrsla
Samfylk-
ingarinnar „NETIÐ-INFORMATION for tour-ists“ (Netid-info), sem rekið er af
Netinu, markaðs- og rekstrarráðgjöf,
prentar og dreifir um miðjan júní
sumarútgáfu af bæklingi sínum. Þetta
er annað árið sem bæklingurinn kem-
ur út og hefur hann vaxið og dafnað
með hverri prentun.
Bæklingurinn, sem er rúmar 50
bls., er gefinn út í vasastærð og er fyr-
ir erlenda ferðamenn sem dvelja í
Reykjavík til lengri eða skemmri
tíma. Honum er dreift án endurgjalds
á öll hótel, gistiheimili og upplýsinga-
þjónustur á höfuðborgarsvæðinu.
Bæklingurinn inniheldur upplýsingar
um veitingastaði, verslanir, ferðir,
upplýsingar um alla sundstaði í
Reykjavík, þ.e. aðstöðu í boði í hverri
laug, verð, afgreiðslutíma og stað-
setningu á korti. Í bæklingnum eru
einnig upplýsingar um afþreyingu,
menningarviðburði, tölfræði, svo sem
meðalhitastig, fjölda erlendra ferða-
manna og verðupplýsingar á ýmsum
vörum og þjónustu. Einnig matar-
uppskriftir, upplýsingar um kaffihús,
bari og næturlíf í Reykjavík og margt
fleira. Í bæklingnum eru tvö kort af
Reykjavík, annað er miðbæjarkort en
hitt er af Reykjavík í heild þar sem
merktir eru inn á ýmsir staðir, s.s.
sundlaugar, auk upplýsinga.
Meðal nýjunga í sumarútgáfunni
eru: ávarp borgarstjóra, Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur, upplýsingar um
söfn, skemmtanalíf og fleiri tölulegar
upplýsingar. Einnig verður að finna
upplýsingar um Reykjavíkurkortið,
þýðingar á algengum íslenskum orð-
um fyrir ferðamenn og annað gagn-
legt.
Samhliða bæklingnum er Netid-
Info einnig með upplýsingamöppur á
öllum hótelum og gistiheimilum í
Reykjavík og nágrenni.
Netið gefur út bækling
fyrir ferðamenn