Morgunblaðið - 11.05.2001, Blaðsíða 26
ÚR VERINU
26 FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FISKMARKAÐURINN í Bremer-
haven í Þýskalandi hefur ekki feng-
ið neinn karfa í vikunni og fær ekki.
Fyrir vikið er ekkert uppboð en í
liðinni viku hafði markaðurinn að-
eins um 10 tonn upp á að bjóða og
voru þau seld sl. fimmtudag. Vegna
lítils framboðs hefur verðið fyrir
neytendur rokið upp í 50 mörk fyrir
kg af karfaflökum, um 2.200 krón-
ur, en venjulega er það í kringum
30 mörk, og hefur Viktoríukarfi
komið í stað íslenska karfans á veit-
ingastöðum og í verslunum.
„Vegna lítils framboðs er karfi
lúxusvara þessa dagana,“ segir
Samúel Hreinsson, framkvæmda-
stjóri fiskmarkaðarins í Bremerha-
ven. Hann segir að seljendur Vikt-
oríukarfa njóti verkfalls sjómanna á
Íslandi og margir telji að um sömu
vöru sé að ræða. Seljendur kaupi
kílóið af Viktoríukarfanum á sex til
sjö mörk en allt að 50 mörk fyrir
sama magn. „Við höfum ekki verið
með neinn karfa að ráði í tvær vik-
ur, framboðið hefur verið lítið og
verðið hefur rokið upp í 50 mörk,“
segir hann.
Annað í staðinn
Í máli Samúels kemur fram að
veitingastaðir og verslanir hafi
þurft að vísa viðskiptamönnum sín-
um á aðrar vörur en íslenska karf-
ann að undanförnu. „Spurningin er
hvað stórar veitingahúsakeðjur eru
tilbúnar lengi að hafa á matseðl-
inum vöru sem ekki er til og
áhyggjuefni okkar er hvernig við
eigum að koma karfanum aftur inn,
verði hann tekinn út af lista. Eftir
að sjómannaverkfallið á Íslandi
hófst hafa Færeyingar tryggt að
varan hefur verið til hjá okkur en
nú hafa þeir líka brugðist auk þess
sem hátt verð hefur fælt suma
kaupendur frá. Viktoríukarfi, sem
hét áður nílarkarfi og seldist ekki
undir því nafni, hefur selst vel í
sneiðum sem líkjast flökunum okk-
ar, en í raun er um miklu ódýrari
vöru að ræða. En hann er í öllum
búðarborðum, í plássinu okkar,
enda gott framboð af honum meðan
ekkert framboð hefur verið af ís-
lenska karfanum.“
Spenna
Samúel bíður spenntur eftir
næstu viku en þá á hann von á um
150 tonnum af karfa frá þremur
færeyskum togurum. Einn landar í
Bremerhaven á sunnudag fyrir
markaðinn á mánudag en afli hinna
kemur í gámum. „Næsta vika verð-
ur nálægt því að vera eðlileg vika
og við bíðum spennt eftir því að sjá
hvað gerist,“ segir Samúel. „Í raun
erum við með í maganum því Vikt-
oríukarfinn og aðrar fisktegundir
hafa komið í staðinn fyrir íslenska
karfann. Venjulega erum við með
um 250 til 300 tonn af karfa á viku
og þó nokkuð af flökum, bæði frá
Íslandi og Færeyjum, en í næstu
viku verða engin flök. Miðað við
eðlilegar aðstæður værum við mjög
ánægð með það sem í vændum er,
en verkfallið hefur haft sín áhrif.
Víða er búið að taka hilluplássið,
sem við höfðum, og nú þurfum við
að ná því aftur. Það er hægara sagt
en gert.“
Að sögn Samúels þarf helst að
vinna markaðinn á ný án þess að
lækka verðið niður í nánast ekki
neitt, eins og hann orðar það. „Ef
ýsan dytti út af markaðnum í tvær
til þrjár vikur á Íslandi hefði það
ekki áhrif, því hún seldist um leið
og hún kæmi aftur á markað, miðað
við sama verð. Ef verðið væri óeðli-
lega hátt keyptu neytendur eitt-
hvað annað og sú hætta blasir líka
við hjá okkur varðandi karfann.
Hér er mjög hættulegt að láta vöru
vanta og svo er þetta líka spurning
um sölumennina. Hjá 45 kaupend-
um okkar í Bremerhaven eru um
100 sölumenn og meðan við höfum
ekki geta boðið upp á karfa hafa
þeir snúið sér að öðru. Þeir ráða
miklu um það hvernig okkur geng-
ur.“
Ekkert uppboð á fiskmarkaðnum í Bremerhaven í vikunni
Viktoríukarfi í staðinn
fyrir íslenskan karfa
Íslenskur karfi hefur verið uppistaðan á fiskmarkaðnum í Bremerhaven en nú er engan fisk að fá og engin uppboð. Myndin er hins vegar frá uppboði á
karfa frá Breka VE og það er Magnús Arinbjarnarson, stýrimaður á Breka, sem er við hluta aflans.
Ljósmynd/Sigurmundur G. Einarsson
JAPANIR stefna á að veiða 160
hvali í vísindaskyni í norðvestur-
hluta Kyrrahafsins á næstu tveim-
ur mánuðum, en japönsk rann-
sóknahvalveiðiskip héldu til
veiðanna frá fjórum stöðum í Japan
í gær.
Alþjóða hvalveiðiráðið bannaði
hvalveiðar í atvinnuskyni 1987, en
síðan hafa Japanir mátt stunda þær
í vísindaskyni. Þeir hafa einbeitt
sér að hrefnum en í fyrra ákváðu
þeir að bæta við skorureyðum og
búrhvölum. Markmiðið að þessu
sinni er að veiða 100 hrefnur, 50
skorureyðar og 10 búrhvali. Bæði
búrhvalur og skorureyður eru frið-
uð í Bandaríkjunum og búrhvalur
er þar að auki á lista yfir tegundir
sem taldar eru í útrýmingarhættu.
Alþjóða hvalveiðiráðið mótmælti
umræddri ákvörðun Japana í fyrra
og bandarísk yfirvöld reyndu ítrek-
að að telja Japönum hughvarf, en
talsmaður Fiskveiðistofnunarinnar
í Japan segir að engin hætta sé á að
gengið verði að stofnunum, því
22.000 skorureyðar og 102.000 búr-
hvalir séu í norðvesturhluta Kyrra-
hafsins.
Um 600 hvalir í ár
Japanir hafa veitt um 400 hvali á
ári undanfarin ár í þeim tilgangi að
fylgjast með stofnstærðum, matar-
venjum og fleiru, en útlit er fyrir að
þeir verði um 600 í ár. Þrjú japönsk
hvalveiðiskip komu með 440 hrefn-
ur til Japans í apríl eftir fimm mán-
aða úthald við suðurheimskautið.
Japanir
hyggjast
veiða
160 hvali
ÁHRIFA sjómannaverkfallsins er nú
farið að gæta verulega á fiskmörk-
uðum landsins og hefur framboðið
verið mjög lítið undanfarna daga.
Verðið er að sama skapi nokkuð hátt.
Alls voru seld tæp 60 tonn af þorski
á fiskmörkuðum landsins í gær og
var meðalverð á slægðum þorski
rúmar 216 krónur kílóið. Aðeins voru
boðin upp rúm 8 tonn af ýsu á mörk-
uðunum í gær og var meðalverðið um
241 króna fyrir slægðan fisk. Það
voru seld um 12 tonn af steinbít og
var meðalverðið rúm 121 króna.
Tryggvi L. Óttarsson, fram-
kvæmdastjóri Fiskmarkaðs Breiða-
fjarðar, segir framboðið hafa verið
mjög lítið undanfarna daga, enda ver-
ið bræla lengst af vikunnar og smá-
bátarnir ekki róið. Hann segir fisk-
verðið því nokkuð hátt, þó menn hafi
áður séð það hærra. „Við höfum áður
séð svo hátt verð og reyndar nokkuð
hærra á ýsunni. Það hefur hinsvegar
ekki verið mikið framboð af stórri ýsu
að undanförnu, en hún hefur einkum
verið flutt út fersk með flugi og fyrir
hana er greitt hæsta verðið. Hinsveg-
ar er því ekki að neita að að verðið er
hátt en það hefur reyndar hækkað
jafnt og þétt allt síðasta ár. Þetta
virðist vera það verð sem okkar
kaupendur eru tilbúnir til að greiða
og ég held að þeir fari ekki hærra.
Menn spenna bogann eins hátt og
þeir geta.
Við erum mjög farnir að finna fyrir
áhrifum verkfallsins og það er þungt
hljóðið í markaðsmönnum þessa dag-
ana. Framboðið var reyndar ágætt á
mörkuðunum í apríl, sérstaklega fyr-
ir vestan, en þá var tíðarfar gott og
smábátarnir gátu róið. Auk þess var
ekkert hrygningarstopp. Reyndar er
framboðið mjög misjafnt. Þannig hef-
ur verið mjög lítið framboð á mörk-
uðum þar sem smábátaútgerð er lít-
il,“ segir Tryggvi.
Mjög lítið framboð
á fiskmörkuðum