Morgunblaðið - 11.05.2001, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 11.05.2001, Blaðsíða 39
LISTIR/KVIKMYNDIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2001 39 Skipholti 35  sími 588 1955 King Koil Ein mesta selda heilsudýnan í heiminum Alþjóðasamtök Chiropractora mæla með King Koil heilsudýnunum. Amerískar lúxus heilsudýnur Tilboð! Verðdæmi: King áður kr. 173.800 nú kr. 121.700 Queen áður kr. 127.200 nú kr. 89.000 GEORGE Jung (Johnny Depp) kynnist manni að nafni Diego Delg- ado (Jordi Molla) í fangelsi á áttunda áratugnum. Diego segist vera innsti koppur í búri hjá kólumbískum eit- urlyfjabarónum og þegar þeir losna úr fangelsi kynnir hann George fyrir Pablo Escobar (Cliff Curtis), einum helsta kókaínsala heimsins. Sá hefur uppi miklar áætlanir um að smygla gríðarlegu magni af kókaíni til Bandaríkjanna og Jung gengur í lið með honum. Diego kynnir hann einnig fyrir konu að nafni Mirtha (Penelope Cruz) sem hann seinna kvænist. Þau eignast dótturina Kristina Sunshine Jung. Það líður ekki á löngu áður en Jung veit ekki aura sinna tal. Pen- ingarnir flæða inn í slíku magni að hann verður að kaupa sér stórt ein- býlishús bara til þess að koma öllu seðlamoðinu fyrir. Dópið streymir inn til Bandaríkjanna frá Kólumbíu og hann er milliliðurinn. Þegar frá líður tekur hann að fyllast efasemd- um. Hann vill vera eitthvað annað og meira en ótýndur glæpamaður í aug- um dóttur sinnar. Þannig er söguþráðurinn í banda- rísku bíómyndinni Blow sem frum- sýnd er í þremur kvikmyndahúsum í dag. Með aðalhlutverkin fara Johnny Depp, Rachel Griffiths, Penelope Cruz, Franka Potente, Ray Liotta og Paul Reubens. Leikstjóri er Ted Demme en handritið gera þeir Nick Cassavetes og David McKenna. Það er byggt á bókinni Blow: How a Small-Town Boy Made $100 Million With the Medellin Cocaine Cartel and Lost it All. Johnny Depp er einn fremsti leik- ari sinnar kynslóðar í Bandaríkjun- um og maður sem virðist fær um að leika hvað sem fyrir hann er lagt. Hann hefur starfað með nokkrum fremstu leikstjórum draumaverk- smiðjunnar en mest með Tim Burton (Ed Wood, Eddi klippikrumla, Sleepy Hollow). Depp er fæddur árið 1963 og vakti fyrst athygli í sjónvarpsþáttum sem hétu 21 Jump Street. Fyrsta bíó- myndin hans var unglingahrollurinn A Nightmare on Elm Street, sem gerð var árið 1984, og tveimur árum síðar brá honum fyrir í Platoon eftir Oliver Stone. Vegur hans fór mjög vaxandi eftir að hann lék í háðsádeilu John Wat- ers, Cry-Baby eða Grenjuskjóðunni, og Tim Burton fékk hann til liðs við sig þegar hann gerði Edda klippi- krumlu, fallegt ævintýri um vél- menni með fallega sál og skæri í handa stað; síðar lék Depp versta en að líkindum einnig bjartsýnasta leik- stjóra kvikmyndasögunnar fyrir Burton þegar hann gerði Ed Wood. Depp var á góðri leið með að verða einn af fremstu leikurum drauma- borgarinnar og valdi sér hlutverk sem undirstikuðu sjálfstæði hans og vilja til þess að standa utan við form- úlumyndir. Þekktustu myndir hans eru án efa What’s Eating Gilbert Grape?, Don Juan DeMarco og Sleepy Hollow. Leikarar: Johnny Depp, Rachel Griffiths, Penelope Cruz, Franka Potente og Paul Reubens og Ray Liotta. Leikstjóri: Ted Demme (Monument Ave., Life, Beautiful Girls). Johnny Depp í vondum málum sem George Jung, eiturlyfjasmyglari í myndinni Blow, sem leikstýrt er af Ted Demme og frumsýnd í dag. Árin með Escobar Laugarásbíó, Háskólabíó og Borgarbíó Akureyri frumsýna myndina Blow með Johnny Depp í leikstjórn Ted Demmes. ÆVINTÝRAMYNDIN Dungeons & Dragons er byggð á samnefnd- um leik sem varð til árið 1974 og notið hefur vinsælda um allan heim. Meira en 400 vasabrotsbæk- ur hafa verið gefnar út sem byggja á leiknum. Löngum hefur verið um það rætt að gera kvikmynd byggða á honum og völdu rétthafar hans loks ungan kvikmyndagerðarmann, Courtney Solomon, til þess að gera þá kvikmynd. Hann er frá Kanada og hefur ekki lært fræðin í kvik- myndaskólum. „Í stað þess að ljúka háskóla- námi eða flytja til Hollywood í leit að vinnu,“ er haft eftir Solomon, „ákvað ég að gera mikla ævintýra- mynd eins og þær sem George Lucas og Steven Spielberg voru að gera á þeim tíma. Ég hafði alltaf gaman að Dungeons & Dragons þegar ég var barn og ég og vinir mínir töluðum oft um að það væri örugglega hægt að gera úr leiknum skemmtilega kvikmynd.“ Solomon var aðeins tvítugur þegar hann byrjaði að biðla til rétt- hafa leiksins um að fá að gera kvik- mynd eftir honum og níu árum síð- ar var hann tilbúinn að fara í tökur. Hann fékk fjármagn m.a. frá Hong Kong og hann vissi að hasarframleiðandinn Joel Silver (The Matrix) hafði mikinn áhuga á leiknum og setti sig í samband við hann. Silver sýndi áhuga en til þess að vinna hann á sitt band bjó Sol- omon til stuttmynd sem sýndi spennandi eltingaleik og var part- ur af myndinni og Silver gleypti agnið. Það var talsverður ábyrgðarhluti að setja 36 milljónir dollara í hend- urnar á ungum manni sem aldrei hafði leikstýrt áður. „Ég hélt ekki að neinn myndi leyfa mér að leik- stýra myndinni,“ segir Solomon. „En ég hafði unnið svo lengi að því að koma henni á koppinn og af svo miklum áhuga að framleiðendurnir gátu ekki hugsað sér neinn annan í hlutverki leikstjórans. Ég vissi að ég var að taka við vandasömu verk- efni en þetta er mynd sem mig hef- ur alltaf langað til þess að gera.“ Justin Whalin fer með eitt aðal- hlutverkanna og leikur þjófóttu hetjuna Ridley. „Ég hreppti hlut- verkið áður en ákveðið var að setja myndina í framleiðslu,“ segir hann, „og ég tók mikinn þátt í öllum und- irbúningi.“ Hann eyddi þremur ár- um í gerð myndarinnar. „Þetta er mynd um fólk sem finnur hvað í því býr,“ segir Sol- omon. „Og þetta er mynd um fólk sem þarf að taka réttar ákvarðanir til þess að eiga sigur vísan.“ Dungeons & Dragons er frum- sýnd í Regnboganum í dag. Með helstu hlutverk fara Justin Whalin, Marlon Wayans, Thora Birch, Bruce Payne og Jeremy Irons. Leikarar: Justin Whalin, Marlon Way- ans, Thora Birch, Bruce Payne og Jeremy Irons. Leikstjóri: Courtney Solomon. Jeremy Irons í hlutverki sínu í ævintýramyndinni Dungeons & Dragons. Leikur og ævintýri Regnboginn frumsýnir ævintýramyndina Dungeons & Dragons með Jeremy Irons og Thora Birch. NELSON Moss (Keanu Reeves) og Sara Deever (Charlize Theron) eiga ekkert sameiginlegt. Hún er elskulegheitin uppmáluð og nær fram því besta í fólkinu sem hún kynnist. Hann er vinnualki sem á í ástarsambandi við starfið sitt ein- göngu. Þau hittast fyrir tilviljun, hafa gaman hvort af öðru en eru ekki tilbúin til þess að bindast. Þau fara einskonar milliveg og ákveða að vera saman í einn mánuð en hætta svo. Engar kröfur. Engar vænt- ingar. Enginn þrýstingur. Það sem hvorugt þeirra reiknar með er að þau verði ástfangin. Þannig er söguþráðurinn í ást- armyndinni Sweet November sem frumsýnd er í þremur kvikmynda- húsum í dag. Hún er með Keanu Reeves, Charlize Theron, Jason Isaacs, Greg Germann, Liam Aik- en og Elliot Kastner í aðalhlut- verkum en leikstjóri er Pat O’Connor. „Hann ólst upp í fátækt, einka- barn foreldra sinna sem eru látn- ir,“ segir Keanu Reeves um hlut- verk sitt. „Ég upplifi hann þannig að faðir hans hafi verið sölumaður og ekki sérlega góður. Undir niðri er Nelson Moss að reyna að ná meiri árangri en faðir hans nokkru sinni gerði. Í þeim tilgangi hefur hann bælt tilfinningar sínar og orðið lokaður og einrænn.“ „Hún fylgist vel með því sem er að gerast í kringum hana,“ segir Charlize Theron um ungu konuna sem hún leikur í myndinni. „Sara veit vel hvað það er sem hún vill fá út úr lífinu og hvernig á að njóta lífsins til fullnustu og hún hefur gert það að forgangsatriði í sínu lífi að deila þeirri kunnáttu með öðrum. Hún hræðist það ekki vit- undarögn að verða náin ókunnug- um.“ „Það eru ennþá ákveðnir eigin- leikar í Nelson sem vitna um að það bærist líf undir hrjúfu yfir- borðinu,“ segir Reeves, „og Sara finnur það. Hún segir honum að honum líði illa og Nelson segir: Nei, mér líður ekki illa, ég nýt þvert á móti velgengni í starfi. En þegar um hægist kemst hann að því að hún hefur rétt fyrir sér.“ Myndin er endurgerð sam- nefndrar ástarmyndar frá árinu 1969 sem framleiðandinn Deborah Aal sá á sínum tíma og gleymdi aldrei. „Löngu áður en ég vissi að ég færi að vinna við kvikmynda- gerð,“ er haft eftir henni, „var þetta ein af þeim myndum sem ég hefði helst viljað sjá endurgerðar.“ Hún sýndi manni sínum, fram- leiðandanum Erwin Stoff, myndina og hann var sammála henni. Þau ákváðu að gera Sweet November í sameiningu og er afraksturinn nú frumsýndur hér á landi. Leikarar: Keanu Reeves, Charlize Theron, Jason Isaacs, Greg Germann, Liam Aiken og Elliot Kastner. Leik- stjóri: Pat O’Connor (Circle of Friends, Dancing at Lughnasa, fools of Fortune, Stars and Bars, A Month in the Country). Ólík en ástfangin Keanu Reeves og Charlize Theron í hlutverkum sínum í mynd Pats O’Connors, Sweet November, sem frumsýnd verður í dag. Bíóhöllin, Kringlubíó og Nýja bíó Akur- eyri frumsýna Sweet November með Keanu Reeves og Charlize Theron. Eru vandamál á toppnum? Ofnæmi, flasa, exem, psoriasis, feitur eða þurr hársvörður? ÚTSÖLUSTAÐIR: HEILSUVÖRUVERSLANIR OG APÓTEK UM ALLT LAND. HÁRVÖRUR LEYSA VANDANN OG ÞÚ BLÓMSTRAR.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.