Morgunblaðið - 11.05.2001, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 11.05.2001, Blaðsíða 46
MINNINGAR 46 FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ T raust í samskiptum manna er fyrirbrigði, sem trauðla verður lagður mælikvarði á. Og þó; stundum er haft á orði að tiltekinn maður sé svo traustur og vandaður að mæl- andinn myndi treysta viðkomandi fyrir síðustu krónunni í eigu sinni. Varla verður um það deilt að fjár- mál og traust fara oftar en ekki saman. Sumu fólki er treyst til að sýsla með annarra manna fé. Þannig ákveða stjórnmálamenn fjárútlát í umboði almennings og skatt- greiðenda. Meðferð þessa fjár á því stóran þátt í að móta afstöðu almennings til stjórnmálamanna. Tæpast er að undra að Íslend- ingar hafi ríka tilhneigingu til að vantreysta stjórnmálamönnum. Þar nægir að horfa til þess hvern- ig farið er með skattfé almenn- ings á Íslandi. Ekki þarf að leita langt aftur í því skyni að rök- styðja þá full- yrðingu. Nú hefur verið upplýst að kostnaður vegna framkvæmda við skrifstofuhúsnæði Alþingis við Austurstræti 8–10 og 10A fór heilar 116 milljónir króna fram úr áætlun. Hér ræðir um risavaxið hlutfall því kostnaður vegna nefndra framkvæmda hafði verið áætlaður 133 milljónir króna. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um þetta verk segir beinlínis að í veigamiklum atriðum hafi verið vikið frá ákvæðum laga um skipan opinberra framkvæmda. Svo virðist sem ekkert eftirlit hafi verið haft með framkvæmd- um þessum á húsnæði, sem Al- þingi hefur tekið á leigu. Aðhald var ekkert enda ræddi þar um annarra manna fé, peninga skatt- borgaranna. Ef til vill er ástæða til að hug- leiða hver yrðu örlög fjármála- stjóra einkafyrirtækis, er staðinn væri að lögbroti og færi svo frjáls- lega með fjármuni, sem honum er trúað fyrir. Það segir sitt um það algjöra eftirlits- og aðhaldsleysi, sem ein- kennir opinberar framkvæmdir á Íslandi, að niðurstaða Ríkisend- urskoðunar kemur engum á óvart og vekur takmörkuð viðbrögð. Þótt fyrir liggi að lög voru brotin við framkvæmdir vegna löggjaf- arþings þjóðarinnar og stórkost- lega ámælisverð vinnubrögð við- höfð við fjármögnun þessa verk- efnis líta Íslendingar svo á að slík framganga teljist tæpast til tíð- inda. Það gerir hún enda ekki. Á sínum tíma var Safnahúsið við Hverfisgötu endurgert og því breytt í svonefnt „Þjóðmenning- arhús“. Sú stofnun var tekin í notkun í apríl í fyrra og skömmu síðar barst reikningurinn almenn- ingi í landinu. Þær framkvæmdir reyndust nokkur hundruð millj- ónum dýrari en áætlanir höfðu gert ráð fyrir. Enn hefur ekki tek- ist að finna þá, sem ábyrgð báru, og hefur leit nú verið hætt. Á hinn bóginn er lítilsvirðingin í garð skattgreiðenda engan veg- inn bundin við framkvæmdavald og þingheim. Á liðnu ári fór kostnaður við byggingarfram- kvæmdir vegna menningarmála hjá Reykjavíkurborg samtals 286 milljónum króna fram úr áætlun. Menningin á Íslandi er að sönnu einstök í flestum skilningi þess orðs. Íslensk menning þekkir enda engin takmörk. Nú sýnist við hæfi að íslenskir skattgreiðendur taki að búa sig undir að reikningur berist vegna kostnaðar við svo- nefnt „menningarhús“, sem verið er að innrétta í Kaupmannahöfn. Þar ræðir um gamalt pakkhús, sem dönsk yfirvöld hafa fengið Ís- lendingum, Færeyingum og Grænlendingum til afnota. Hús þetta mun hýsa sendiráð Íslands en jafnframt verður þar að finna „rannsóknar- og menningarmið- stöð þjóðanna“. Samkvæmt fyr- irliggjandi áætlunum þurfa skatt- borgarar á Íslandi að reiða fram 170 milljónir króna vegna þessa verkefnis. Reikningurinn á að liggja fyrir á fyrri hluta árs 2003. Einhverjum kann að virðast ástæða til að spyrja hvernig eftir- liti er háttað með þessum fram- kvæmdum í Kaupmannahöfn. Það verður ekki gert hér. Á hinn bóg- inn kennir reynslan að ástæða er til að spyrja hvort þeir, sem að verki þessu koma, beri ámóta virðingu fyrir peningum annars fólks og þeir, sem stýrðu endur- gerð Safnahússins og endurbót- unum á leiguhúsnæði Alþingis. Þau dæmi, sem hér hafa verið rakin um hamslaust bruðl og full- komið virðingarleysi fyrir flestum þeim kvörðum, sem leggja ber á siðlega framgöngu þeirra, er sýsla með opinbera fjármuni, lýsa glögglega afstöðu íslenskra ráða- manna til skattgreiðenda. Lög eru sveigð og brotin, aðhald þekk- ist ekki og eftirlit með fjárútlátum er öldungis í molum. Almenn- ingur fær reikninginn og málið gleymist eins og jafnan áður. Það menningarleysi óhófsins, sem einkennir opinberar fram- kvæmdir á Íslandi, sýnir að ekki verður lengur undan því vikist að komið verði á fót embætti um- boðsmanns skattgreiðenda. Hon- um ber að fela það hlutverk að fylgjast með því að ríkið misfari ekki með opinbert fé, afhjúpa sóun og leggja fram tillögur til úr- bóta. Þetta embætti á einnig að standa fyrir rannsóknum á opin- berri fjárstjórn, stuðla að um- ræðum um það efni og leggja fram rækilegar skýrslur m.a. um frammistöðu ríkisstjórnar á því sviði, sem undir umboðsmanninn heyrir. Víðast hvar erlendis fara fram miklar og stöðugar umræður um réttindi og hagsmuni skattgreið- enda og í flestum siðmenntuðum löndum er gjörla fylgst með því hvernig stjórnvöld fara með þá fjármuni, sem þau soga til sín. Skýrar reglur gilda þar aukin- heldur um ábyrgð og aðhald enda er litið svo á að ekki sé sjálfgefið að ráðamenn hafi óskoraðan rétt til að fara með fjármuni umbjóð- enda sinna að vild. Þannig er því ekki farið hér á landi; „ábyrgð“ er því sem næst óþekkt hugtak enda mótast framganga þeirra, sem með peningana fara, af algjöru virðingarleysi fyrir eigendum þeirra. Regluverk er sjaldnast til bóta en þegar menn bregðast ítrekað því trausti, sem þeim er sýnt, verður að koma á þá böndum. Eða er þessi „íslenska sér- staða“ eftirsóknarverð? Peningar allra hinna Koma verður böndum á þá, sem ekki er treystandi til að sýsla með fjármuni skattgreiðenda. VIÐHORF Eftir Ásgeir Sverrisson asv@mbl.is ✝ Magnús Steph-ensen Daníels- son fæddist 8. apríl 1919 á Bókhlöðustíg 9 í Reykjavík. Hann lést á hjartadeild Landspítalans í Fossvogi þriðjudag- inn 1. maí síðastlið- inn. Faðir hans var Daníel, f. 22.4. 1888, d. 27.5. 1950, bókari hjá Eimskip í Reykjavík, sonur Kristins prófasts í Keflavík, Daníels- sonar prófasts í Hólmum, Halldórssonar, pr. á Melstað. Móðir Daníels var Ída Halldóra Júlía Halldórsdóttir, yf- irkennara og alþm. í Reykjavík. Móðir Magnúsar var Áslaug, f. 17.8. 1890 d. 2.1. 1969, dóttir Guð- mundar Böðvarssonar í Hafnar- firði, Böðvarssonar prests á Mel. Móðir Áslaugar var Kristín Jón Sigurður, f. 20.11. 1946, maki Kolbrún M. B. Viggósdóttir og eiga þau fjögur börn auk þess sem Jón Sigurður á dóttur fyrir hjónaband. 4) Arnhildur Sesselja, f. 5.1. 1953, maki Jón Guðbjörns- son og eiga þau þrjú börn. 5) Ingi- björg Lovísa, f. 26.8. 1954, maki Sveinn B. Isebarn og eiga þau þrjár dætur. 6) Sigríður, f. 18.6. 1956, maki Magnús Karlsson og eiga þau tvö börn. Langafabörn Magnúsar eru 16 talsins. Magnús ólst upp á Bókhlöðu- stíg í Reykjavík auk þess sem hann dvaldi mikið í Eyjarhólum við Pétursey undir Eyjafjöllum. Magnús starfaði hjá Reykjavíkur- borg í mörg ár þar til hann stofn- aði Brunasteypuna sem var við Útskála við Elliðaár, einnig var hann vörubílstjóri hjá Þrótti og verktaki um árabil. Magnús var áhugamaður um starfsemi skóg- armanna í KFUM í Vatnaskógi og lagði þeim lið. Magnús var félagi í Lionsklúbbnum Muninn, einnig var hann félagi í Frímerkjafélagi Reykjavíkur. Útför Magnúsar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin kl. 13.30. Magnúsdóttir Steph- ensen Ólafssonar, Magnússonar konfer- ensráðs í Viðey Ólafs- sonar Stephensen stiftamtmanns. Magn- ús var næstelstur fimm systkina. Systk- ini hans eru: Ída Sig- ríður, f. 17.12. 1917, Kristín, f. 23.3. 1920, Kristinn, f. 22.1. 1926 og Hjördís Ingunn, f. 10.6.1940. Magnús kvæntist hinn 1. ágúst 1941 Ingi- björgu Lovísu Guð- mundsdóttur, f. 1.8.1923, d. 16.11991. Hún var dóttir Guð- mundar Andréssonar og konu hans Jórunnar Loftsdóttur. Börn þeirra eru: 1) Áslaug Kristín, f. 3.10. 1941, d. 10.10. 1998, á einn fósturson. 2) Jórunn Ingibjörg, f. 6.9. 1944, maki Stefán H. Stef- ánsson og eiga þau fjögur börn. 3) Í dag kveðjum við elsku pabba okkar. Myndirnar sem renna í gegn- um hugann á þessari stundu eru margar en upp úr standa minningar um væntumþykju, örlæti og góð- mennsku. Fjölskyldan var ávallt í fyrirrúmi hjá föður okkar, ávallt var hann boð- inn og búinn hvernig sem á stóð að aðstoða okkur og rétta hjálparhönd. Þegar pabbi og mamma stofnuðu heimili var þröngt setið og fljótlega varð fjölskyldan stór, börnin urðu sex og Amma Jórunn var hluti af heimilinu og nutum við þess að hafa stórfjölskyldu í kringum okkur. Við munum ferðirnar í sumarbú- staðinn, ferðalög á „boddíbílnum“ ferðir að sækja sand eða vikur á vörubílunum austur í flóa eða suður í Sandgerði. Líklega var ekki alltaf mikil hjálp í okkur þá en ekki var kvartað yfir að hafa einn, tvo eða þrjá króa sofandi í bílnum. Og seinna ferðalögin með pabba og mömmu, í útilegu eða í sumarbú- staðinn þar sem allt varð að lífi í höndum pabba og þar sem þeim leið vel síðustu ár mömmu. Þegar við börnin byrjuðum okkar búskap var auðsótt mál fyrir ungt par og einn eða tvo króa að fá að vera inni á heimili foreldra okkar. Aldrei taldi neinn eftir sér þó þröngt væri setið, þá frekar en fyrr. Lífið var ekki alltaf auðvelt. Oft þurfti mikið að hafa fyrir stórri fjöl- skyldu. Það var stórt skarð sem myndaðist þegar mamma féll frá og við vissum að hann átti alltaf erfitt með að sætta sig við að hún væri farin og nokkrum árum seinna lést elsta systir okkar, Áslaug, úr erf- iðum sjúkdómi sem hafði fylgt henni frá barnæsku. En barnabörnin áttu öll pláss í hjarta hans og á hverjum degi var hann í sambandi við okkur og fram á síðustu stund fylgdist hann með hvernig þeim gekk í leik eða starfi og ítrekað lét hann okkur vita að hann væri stoltur af öllum börnun- um sínum. Eftir erfiða legu síðasta mánuð lést pabbi hægu andláti, sáttur og trúði því að nú færi hann að hitta mömmu og Áslaugu systur. Við börnin kveðjum hann og biðj- um góðan guð að varðveita hann og leyfa honum að hitta þá sem honum voru kærir. Frá öllum heimsins hörmum svo hægt í friðar örmum þú hvílist hels við lín. – Nú ertu af þeim borinn hin allra síðstu sporin, sem með þér unnu og minnast þín. Með tryggð til máls og manna á mátt hins góða og sanna þú trúðir traust og fast. Hér er nú starfsins endi. Í æðri stjórnar hendi er það, sem heitt í hug þú barst. Guð blessi lífs þíns brautir, þitt banastríð og þrautir og starfs þíns mark og mið. Við hugsum til þín hljóðir. – Að hjarta sér vor móðir þig vefur fast og veitir frið. (Einar Ben.) Þín ástkæru börn. Ég man að ég vaknaði við það þegar ég heyrði mömmu loka úti- dyrahurðinni. Ég leit á klukkuna og hún var bara hálfsjö og það var 1. maí. Allir ennþá sofandi enda allir í fríi. Ég þorði ekki fram úr því ég vissi hvað beið mín frammi fyrst að hún var komin heim. Herbergis- hurðin opnaðist og mamma gekk inn og sagði mér að þú, elsku besti afi minn, værir núna farinn frá okkur. Ég reyndi að harka af mér en tárin runnu ósjálfrátt. Ég sagði við mömmu að núna værir þú kominn á góðan stað, til hennar ömmu Lóu og Áslaugar frænku. Ég er ekki enn búin að átta mig á því að þú sért far- inn frá okkur. Þess vegna langar mig til að segja nokkur orð um þig sem kæta mig alltaf þegar ég hugsa um þig, afi minn. Þegar ég hringdi í þig og ömmu Lóu þegar ég var lítil og sagði ykkur að ég væri lasin þá komuð þið alltaf strax til mín með ískex handa mér. Og meira að segja eitt kvöld hringdi ég seint og þið voruð háttuð en þið létuð það ekki stoppa ykkur, þið komuð. Einu sinni þegar það var 1. apríl hringdir þú í mig og sagðir við mig að þú værir með smápakka handa mér en ég vildi ekki trúa þér því það væri gabbdagur en þú varst búinn að gleyma því. Nokkrum mín- útum seinna varstu mættur og þú hafðir ekki verið að plata mig því þú gafst mér strumpaópal og fullt af límmiðum sem þú varst búinn að geyma handa mér. Ég man hvað þú brostir breitt þegar þú réttir mér pakkann. Viku seinna hringdi ég í þig til þess að óska þér til hamingju með afmælið og þú sagðir takk, síð- an kom smá þögn og svo loksins sagðir þú með hlæjandi röddu til hamingju með afmælið líka, afmæl- isbarnið mitt. Þetta fannst mér allt- af svo rosalega spennandi af því að við áttum sama afmælisdag. Svona var þetta á hverju ári. Einu sinni þegar mamma og pabbi fóru til út- landa vildir þú fá að passa mig og Sævar Örn. Þú gerðir handa okkur afabláberjasúpu og þú kenndir mér að gera afabuff og fannst okkur þetta miklu betra hjá þér heldur en þegar mamma eða pabbi gerðu þetta þó svo að þau gerðu þetta al- veg eftir sömu uppskrift og þú. Kannski var það bara þetta sérstaka afabragð sem kom þegar þú eldaðir. Súkkulaði var þitt uppáhald og svo mikið uppáhald að þú bjóst það til sjálfur. Ég fékk að hjálpa þér við súkkulaðigerðina. Til að geta gert súkkulaðið þurftum við stundum að fara nokkrar bæjarferðir til að kaupa alls konar efni í súkkulaði- gerðina. Við fórum í Hafnarfjörðinn til hennar Jórunnar Lovísu þar sem hún var með lakkrísverksmiðjuna og hún gaf okkur lakkrís svo við gætum fyllt súkkulaðið af lakkrís. Á leiðinni heim til þín fengum við okk- ur að borða og mér fannst þú alltaf svo fyndinn þegar þú varst að tala við afgreiðslufólkið því þú varst allt- af að stríða því. Alltaf þegar alman- ökin frá Þroskahjálp komu á ári hverju fórstu að selja og þú bauðst mér oft með þér. En það er svo stutt síðan við vorum að því síðast, það var bara rétt áður en þú varðst svona veikur. Ég og Ásgeir fórum líka stundum fyrir þig að ná í frí- merki þegar þú varst orðinn slappur því þú treystir þér ekki í að ganga upp og niður stiga til að ná í þau. Einn daginn fóru þú og Ásgeir bara tveir að sendast og hann sagði mér að það hefði verið svo gaman og að hann fílaði þig alveg þvílíkt. Daginn eftir hringdi hann í þig til að athuga hvernig þú hefðir það og þú sagðist vera svo slæmur. Þennan sama dag fórst þú á spítalann og læknarnir héldu að þú værir með lungnabólgu. Þú varðst veikari og veikari. Ég kom til þín upp á spítala í heimsókn. Við vissum ekki hvað við myndum fá að hafa þig lengi hjá okkur. Það var eitthvað sem hélt þér hérna svona lengi. Þú varst líka búinn að lofa mér að vera hjá okkur þegar Sævar ætti að fermast því þú varst nú eini afinn okkar á lífi og það skemmti- lega við það var að hann átti að fermast á afmælisdeginum okkar al- veg eins og ég og Jórunn Lovísa gerðum. Þannig að ég er alveg viss um að þú varst bara að bíða eftir þessum degi. Þú varst búinn að vera mjög slappur rétt fyrir 8. apríl en þegar sá dagur rann upp þá varstu svo hress að þú gast komið í ferm- inguna og ég mun ávallt minnast þess. Allar þessar minningar og mun fleiri mun ég alltaf koma til með að geyma í minni mínu. Ég mun alltaf muna eftir þér sem hressum og skemmtilegum og svona líka rosalega myndarlegum. Mamma sagði alltaf að við værum svo lík í skapi og hegðun að stundum væri hún nálægt því að ruglast á okkur og það er sko ekki leitt að vera líkt við þig, elsku afi minn, við skildum líka hvort annað svo vel. Jæja, afi minn, núna geturðu farið og fengið þér að borða kótiletturnar hennar ömmu Lóu. Ég kveð þig með sökn- uði og ég veit að þú verður alltaf hjá mér. Guð geymi þig, elsku afi minn. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Þín dótturdóttir og afmælisbarn, Guðlaug Magnúsdóttir. Elsku afi okkar. Nú þegar komið er að leiðarlokum, rifjum við systur MAGNÚS STEPHEN- SEN DANÍELSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.