Morgunblaðið - 11.05.2001, Blaðsíða 67
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2001 67
NÝLEGA var undirritaður í húsa-
kynnum Karls K. Karlssonar hf.
samstarfssamningur á milli Auðar
Björnsdóttur og Purina-umboðs-
ins á Íslandi.
Auður Björnsdóttir er hunda-
þjálfari og hefur m.a. þjálfað
blindrahunda á vegum Sjón-
stöðvar Íslands auk þess sem hún
þjálfar leitarhunda fyrir Björg-
unarsveit Íslands. Auður er nú að
hefja þjálfun á hundi til aðstoðar
fötluðum einstaklingi. Grámanns
Askja er 11 mánaða þýskur fjár-
hundur og mun Auður þjálfa
hana til þess að aðstoða fatlaðan
dreng. Hlutverk Grámanns Öskju
verður m.a. að styðja drenginn á
göngu, bera tösku fyrir hann,
hjálpa honum að standa upp og
sækja það sem drengurinn missir.
Samningur Auðar og Purina-
umboðsins felur í sér aukið sam-
starf á milli þessara aðila, meðal
annars mun Purina-umboðið
styrkja þjálfunina með Purina
Pro Plan þurrfóðri.
Grámanns Askja er fóðruð á
ProPlan bandaríska þurrfóðrinu
frá Purina, því fóðrið er auðugt
af próteinum og fitusýrum og
hentar því sérstaklega vel hund-
um sem eru á töluverðri hreyf-
ingu og þurfa að viðhalda sterk-
um vöðvum og heilbrigðum
líkama, segir í fréttatilkynningu.
María Jóna Samúelsdóttir, viðskiptastjóri Purina, og Auður Björns-
dóttir hundaþjálfari handsala samninginn.
Styrkja þjálfun
á aðstoðarhundi
Nafnabrengl
Í GREIN um samkvæmisdansa í
gær var rangt farið með úrslit í
flokki fullorðinna, suður-amerískir
dansar. Rétt úrslit eru: 1. sæti Björn
Sveinsson og Bergþóra M. Berg-
þórsdóttir og í 2. sæti urðu Eggert
Claessen og Sigrún Kjartansdóttir.
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
LEIÐRÉTT
♦ ♦ ♦
AÐALFUNDUR Thorvaldsens-
félagsins var haldinn 2. maí sl. Á síð-
asta starfsári voru veittar til góð-
gerðarmála rúmlega fimm milljónir.
Skiptist það á nokkra aðila en þrjár
milljónir fóru til barnadeildarinnar
á Landspítalanum Fossvogi, ein
milljón til barna- og unglingageð-
deildarinnar og 500 þúsund í Starfs-
menntasjóð ungra kvenna. Aðrir
styrkir voru til Krabbamenisfélags-
ins, fjölskyldna veikra barna, ung-
lingastarfs o.fl. Sjálfboðastörf
félagskvenna til fjáröflunar eru sala
á jólamerkjum, jólakortum, gjafa-
kortum, minningarkortum og rekst-
ur verslunarinnar Thorvaldsensbaz-
ars. Einnig hefur félagið útgáfu- og
dreifingarrétt á bókinni Karíusi og
Baktusi. Velunnarar félagsins eru
fjölmargir og þeim þakkað innilega
fyrir stuðning og velvild. Stjórn
félagsins skipa: Guðlaug Jónína Að-
alsteinsdóttir formaður, Bryndís
Jónsdóttir varaformaður, Ása Jóns-
dóttir ritari, Hrefna Magnúsdóttir
gjaldkeri, Ingunn Guðrún Árnadótt-
ir, Sylvía Briem og Vilfríður Stein-
grímsdóttir meðstjórnendur.
Hinn 1. júní nk. verður Thorvald-
sensbazarinn 100 ára og hefur hann
frá stofnun verið í Austurstrætinu.
Á afmælisdaginn verður opið hús
með kaffi og pönnukökum og ým-
islegt gert í tilefni afmælisins í júní-
mánuði.
Gaf 5 milljónir
til góðgerð-
armála
FORELDRAFÉLAGIÐ „Þrumur
og eldingar“ í Mosfellsbæ stendur
fyrir fjölskyldudegi sem gengur
undir nafninu „Fló og fjör“, laug-
ardaginn 12. maí. Hátíðin verður í
risatjaldi við íþróttahúsið á Varmá í
Mosfellsbæ og er til styrktar ungum
knattspyrnumönnum í Aftureld-
ingu.
Þetta er í fjórða skiptið sem fjöl-
skyldudagurinn er haldinn. Dagur-
inn hefst á flóamarkaði og meðan á
honum stendur eru ýmsar upp-
ákomur, t.d. hjólkoppasýning Valda
koppasala. Lúðrasveit Mosfells-
sveitar leikur, hárgreiðslumeistarar
frá hárgreiðslustofunni „Pilus“
bjóða upp á klippingu á vægu verði,
uppboð er haldið á listaverkum og
listmunum af ýmsu tagi og verður
sérstakur gestur hátíðarinnar
göngugarpurinn landsfrægi, Reynir
Pétur, með sýningu og sölu á kert-
um sem eru framleidd af vistmönn-
um á Sólheimum í Grímsnesi. Á
markaðnum verða á boðstólum veit-
ingar af ýmsu tagi.
Um kvöldið verður svo hinn ár-
legi risatjaldsdansleikur Gildrunnar
og rokkarans Eiríks „rauða“
Haukssonar frá kl. 23–3. Verður þar
rokkað fram á nótt og heiðursgestur
verður trúbadorinn, hljóðfærasmið-
urinn og sjómaðurinn Billy Start.
„Fló og fjör“
í Mosfellsbæ
ÁRVISS fuglaskoðunarferð Ferða-
félags Íslands og Hins íslenska nátt-
úrufræðifélags verður laugardaginn
12. maí. Að þessu sinni er Fugla-
verndarfélag Íslands einnig sam-
starfsaðili í ferðinni.
„Fuglaskoðunarferðirnar hafa átt
miklum vinsældum að fagna allt frá
1970 og til er skrá yfir alla fugla sem
sést hafa í þessum ferðum, samtals
79 tegundir. Þar á meðal eru allar al-
gengustu tegundirnar en líka sjald-
séðir fuglar svo sem skeggþerna,
hringdúfa og gaukur. Meðal við-
komustaða í ferðinni eru Álftanes,
Hafnaberg og Garðskagi en á öllum
þessum stöðum er fuglalíf mjög fjöl-
breytt. Gott er að hafa með sér sjón-
auka og sjálfsagt að taka með fugla-
bókina ef hún er til á heimilinu.
Þátttakendur fá lista yfir þær teg-
undir sem sést hafa og merkja við þá
fugla sem sjást í þessari ferð og
leggja þannig sitt af mörkum til bók-
haldsins. Mest spennandi er að
reyna að fjölga tegundum á listan-
um. Brottför er frá BSÍ kl. 9 á laug-
ardagsmorgun og komið við í Mörk-
inni 6.“
Frekari upplýsingar um ferðir
Ferðafélags Íslands má sjá á heima-
síðu þess, www.fi.is, og á bls. 619 í
textavarpi RÚV.
Himbrimi og
hávella,
jaðraka og
gaukur
LÖGREGLAN í Hafnarfirði lýsir
eftir vitnum að því þegar hvítri
Volkswagen Polo-bifreið var ekið á
ljósastaur við Hofsstaðabraut í
Garðabæ á sunnudagsmorgun. Bif-
reiðin var mannlaus þegar hún
fannst um klukkan átta um morg-
uninn. Skráningarnúmer bifreiðar-
innar er UT 769.
Eigandi bifreiðarinnar tilkynnti
skömmu síðar um að henni hefði
verið stolið. Lyklarnir höfðu verið í
jakkavasa mannsins en jakkanum
mun hafa verið stolið af stólbaki á
skemmtistað í miðborg Reykjavík-
ur.
Þeir sem geta veitt upplýsingar
um þetta mál eru vinsamlegast
beðnir um að hafa samband við lög-
regluna.
Stolið og ekið á
ljósastaur
♦ ♦ ♦
ALÞJÓÐADAGUR hjúkrunarfræð-
inga er 12. maí nk. Af því tilefni mun
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
standa fyrir dagskrá í Ráðhúsi
Reykjavíkur undir kjörorðinu
Hjúkrunarfræðingar ávallt til stað-
ar: sameinaðir gegn ofbeldi. Rætt
verður m.a. um ofbeldi gagnvart
konum, börnum og öldruðum og
hlutverk hjúkrunarfræðinga í bar-
áttunni gegn ofbeldi. Dagskráin
hefst kl.11:00.
Alþjóðadagur
hjúkrunar-
fræðinga
LEIKSKÓLINN Dalur v/Funalind í
Kópavogi heldur upp á þriggja ára
afmæli sitt á dag, föstudaginn 11.
maí.
Af því tilefni opna börnin mynd-
listarsýningu á verkum sínum í
versluninni Spar við Bæjarlind kl.
11.00 og syngja einnig nokkur lög
fyrir viðstadda. Opið hús verður síð-
an í leikskólanum milli kl. 16.00 og
17.00, þar sem listaverk barnanna
verða til sýnis.
Leikskóli
þriggja ára
♦ ♦ ♦