Morgunblaðið - 11.05.2001, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 11.05.2001, Blaðsíða 64
HESTAR 64 FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Mikið veltur á að vel takist til Sett verða upp leiktæki fyrir börn og ýmislegt fleira gert til að mótið standi undir nafni sem fjölskyldu- skemmtun fyrir alla. Bjarni sagði að þessi fyrsta helgi í júlí væri venjulega önnur stærsta ferðahelgi sumarsins og væri markmiðið að fá sem flesta til að leggja leið sína á Kaldármela. Mik- ið veltur á að vel takist til því allar framkvæmdir á Kaldármelum eru í lágmarki og verður ekki hafin upp- bygging þar nema aðsókn verði góð að þessu móti. Hann sagði að mótið yrði prófsteinn á það hvort borgi sig að halda áfram mótahaldi af þessu tagi á þessum stað. Það eru hestamannafélögin Snæ- fellingur, Glaður og Kinnskær sem sjá um framkvæmd Fjórðungsmóts- ins á Vesturlandi að þessu sinni, en keppendur koma frá öllum hesta- mannafélögunum á Vesturlandi og Vestfjörðum. Skráningu fyrir mótið lýkur 11. júní nk. UNDIRBÚNINGUR er í fullum gangi og búið er að ganga frá dagskrá í stórum dráttum, en mótið mun standa yfir frá 5.–8. júlí. Skemmti- kraftar hafa verið ráðnir og fólk nokk- uð bjartsýnt á að vel muni takast til með fjórðungsmótið, að sögn Bjarna. Engar kappreiðar en stóðhestagæðingakeppni Keppt verður í hefðbundnum greinum með einhverjum undantekn- ingum þó því engar kappreiðar verða á mótinu. Aftur á móti verður boðið upp á sérstaka gæðingakeppni fyrir stóðhesta eins og gert var á síðasta fjórðungsmóti á Kaldármelum árið 1997. Bjarni sagði að keppni þessi hefði þótt takast það vel að ástæða væri til að halda hana aftur. Keppt verður í A- og B-flokki. Auk þess verður hefðbundin gæð- ingakeppni í A- og B-flokki í öllum flokkum. Bjarni sagði að þar kepptu þeir félagar í hestamannafélögunum á Vesturlandi og Vestfjörðum sem unnið hefðu sér rétt til þátttöku og auðvitað gætu slæðst einhverjir stóð- hestar með þar einnig. Þá verður kyn- bótasýning með hefðbundnu sniði og ræktunarbússýningar. Ýmislegt verður gert til skemmt- unar fyrir utan keppnina sjálfa. Hljómsveitin Papar leikur fyrir dansi í Lautinni svokölluðu, sem er inni á mótssvæðinu, bæði föstudags- og laugardagskvöld. Þá munu þeir félag- ar Örn Árnason og Karl Ágúst Úlfs- son mæta og skemmta mótsgestum. Á laugardagskvöldið verður farin fjörureið með Hauk Sveinbjörnsson, bónda á Snorrastöðum, í broddi fylk- ingar. Þá um kvöldið verða úrslit í tölti og fleiri uppákomur tengdar hestum. Fjölskylduskemmt- un á fjórðungsmóti Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir Mótssvæðið á Kaldármelum er fallegt frá náttúrunnar hendi. Hér tekur Gísli Höskuldsson á gæðingi sínum, Hauki frá Hrafnagili, við viðurkenn- ingu frá FT sem Olil Amble afhenti honum á fjórðungsmótinu árið 1997. Blásið er til fjölskyldu- skemmtunar, bæði fyrir hestafólk og aðra, á fjórðungsmótinu sem haldið verður á Kald- ármelum í sumar. Ásdís Haraldsdóttir hringdi í Bjarna Jónasson fram- kvæmdastjóra og spurði hann hvernig undirbún- ingur gengi. opinber fyrr en eftir að stjórn Landsmóts 2000 og hluthafar hafa fjallað um uppgjörið. Fannar sagði að miklar annir væru hjá endur- skoðandanum og því ekki ljóst hve- nær af þessum fundum getur orðið, en langt er síðan stjórn Landsmóts 2000 hefur komið saman. UPPGJÖR vegna Landsmóts hestamanna sem haldið var á síð- asta ári í Reykjavík er nú komið til endurskoðanda að sögn Fannars Jónassonar framkvæmdastjóra þess. Hann sagði að fjárhagsleg út- koma landsmótsins verði ekki gerð Uppgjör LM 2000 hjá endurskoðanda LANDGRÆÐSLA ríkisins og Rann- sóknastofnun landbúnaðarins, ætla að halda námskeið í samvinnu við Garðyrkjuskóla ríkisins miðvikudag- inn 23. maí ef næg þátttaka fæst. Námskeiðið ber yfirskriftina Hestur- inn í góðum haga og er ætlað hesta- eigendum, búfjáreftirlitsmönnum og öðrum starfsmönnum sveitarfélaga sem sinna landnýtingarmálum. Ingimar Sveinsson mun fjalla um beit hrossa og skipulag beitar með til- liti til fóðurþarfar reiðhesta, stóð- hrossa og ungviðis, Bjarni P. Marons- son frá Landgræðslu ríkisins um landnýtingu og beitarskipulag og Borgþór Magnússon frá Rannsókna- stofnun landbúnaðarins um mat á ástandi beitilands og niðurstöður beitarrannsókna. Nokkur námskeið af þessu tagi hafa áður verið haldin og hefur þátt- taka hestamanna verið heldur dræm að sögn Borgþórs Magnússonar hjá RALA. Hann sagði að námskeiðs- haldarar vildu gjarna sjá fleiri þátt- takendur. Komið væri inn á þá þætti sem skiptu máli í sambandi við fóðr- un, beitarskipulag og mat á beitilandi. Lögð væri áhersla á að kenna fólki að þekkja mismunandi einkenni á beiti- landi sem gott er að tileinka sér til að geta metið hvar ástandið er í góðu lagi og hvar ekki. Þetta mat byggist á bæklingi sem RALA og Landgræðsla ríkisins gáfu út árið 1997 og heitir Hrossahagar. Aðferð til að meta ástand lands. Bæklingurinn er til hjá þessum stofnunum en auk þess er hægt að nálgast efni hans á www.- rala.is. Þessum bæklingi var á sínum tíma dreift á öll lögbýli í landinu. Borgþór telur að þrátt fyrir að þátttaka á þessum námskeiðum hafi ef til vill ekki verið eins mikil og von- ast hafi verið til hafi þetta starf á und- anförnum árum skilað árangri. Fólk sé almennt meðvitaðra nú um ástand haga. Hann segir aðferðafræðina sem notuð hefur verið ganga vel. Með því að gefa efnið út sé til samræmt mat og vel hafi reynst að hafa slíkt tæki þeg- ar meta á beitiland. Hann benti auk þess á að þetta samræmda mat væri notað af þátttakendum í gæðastýr- ingu í landnýtingu á hrossaræktarbú- um. Námskeiðið mun standa frá kl. 10 til 16 miðvikudaginn 23. maí nk. í húsakynnum Rannsóknastofnunar landbúnaðarins (RALA) á Keldna- holti. Hluti námskeiðsins felst í skoð- unarferð þar sem áhersla er lögð á mat á ástandi og meðferð beitilands. Hlífðarföt og stígvél eru því nauðsyn- leg. Skráning á námskeiðið fer fram á skrifstofu Garðyrkjuskólans í síma 480 4300. Þar og á netfanginu mhh@reykir.is fást nánari upplýsing- ar. Væntanlegir þátttakendur eru beðnir að skrá sig í síðasta lagi fyrir hádegi föstudaginn 18. maí. Þátttöku- gjald er 4.000 kr. Í því er ekki innifal- inn matur sem fæst í mötuneyti RALA. Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir Mikilvægt er að folaldshryssur hafi nóg að bíta og brenna. Hesturinn í góðum haga EFNT hefur verið til samkeppni á vegum hestavörusýningarinnar Is- landica sem halda á í Laugardaln- um í haust og Handverks og hönn- unar um nytjahluti, listmuni eða minjagripi tengda íslenska hestin- um. Samkeppnin er öllum opin, en munirnir þurfa að vera unnir úr hestaafurðum, notaðir við hesta- mennsku eða vera minjagripir og/ eða listmunir sem tengjast íslenska hestinum. Þeir þurfa að vera nýir, þ.e. að hafa ekki áður verið til sölu eða sýnis og að vera handunnir, a.m.k. að hluta, Verðlaun að upphæð 200.000 krónur verða veitt fyrir fallegasta hlutinn og einnig fyrir besta nytja- hlutinn. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Handverks og hönnunar og á www.handverkoghonnun.is og www.islandica.com. Hestasýning í Skauta- höllinni í Laugardal Umsóknarfrestur um þátttöku í Islandica-hestavörusýningunni rennur út í júní. Að sögn Fannars Jónassonar framkvæmdastjóra er erfitt að segja til um hvernig þátt- takan verður á þessu stigi. Dagskrá sýningarinnar er í mótun og verða komin drög að henni um næstu mánaðamót. Stefnt er að því að brydda upp á ýmsum nýjungum og verður Skautahöllin í Laugardalnum notuð fyrir mikla hestasýningu þar sem hesturinn verður í lykilhlutverki en í bland við leikin atriði. Þá er gert ráð fyrir að fram komi úrval bestu hrossa sumarsins. Samkeppni um hönnun á munum tengdum hestinum Bómullar-satín og silki-damask rúmföt Skólavörðustíg 21, sími 551 4050 Hrein sum viðar-, rimla-, strimla-, plíseruð- og sólargluggatjöld. Hlíðarhjalla 26, s. 897 3634.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.