Morgunblaðið - 11.05.2001, Qupperneq 11
Iðntæknistofnun hefur undirritað
samning við Höfn í Hornafirði þar
sem kveðið er á um að Iðntækni-
stofnun sendi einn sérfræðing í
mánuði til Hafnar í Hornafirði í því
augnamiði að veita þar ráðgjöf og
miðla þekkingu.
Albert Eymundsson, bæjarstjóri
á Höfn, segir það mikilsvert fyrir
sveitarfélagið að vera komið í gott
samstarf við Iðntæknistofnun. „Það
er nauðsynlegt fyrir okkur að fjár-
festa í tækifærum framtíðarinnar og
skapa samkeppnishæft umhverfi
fyrir ungt og skapandi fólk. Það er
eina raunhæfa leiðin til að halda
fólki í byggðalaginu sem aftur er
forsenda uppbyggingar.“
Fumkvæði og áræðni
Að sögn Alberts er afar mikilvægt
að landsbyggðin sýni frumkvæði og
áræðni. „Það er því miður allt of al-
gengt að landsbyggðin hafi einblínt
á grunnatvinnuvegina og það hefur
oftar en ekki verið fjötur um fót
byggðarlögunum. Þetta viljum við
laga og leggjum áherslu á að unga
fólkið okkar hugsi eins og frum-
kvöðlar, bíði ekki eftir atvinnutæki-
færunum heldur búi þau til. Þessu
ætlum við meðal annars að ná fram
með þessu samstarfi við Iðntækni-
stofnun,“ segir Albert.
Nýheimar
Samstarf Hafnar og Iðntæknistofn-
unar er hins vegar ekki það eina
sem Höfn í Hornafirði stefnir að
því þar eru markmiðin háleit.
Haustið 2002 verður tekið í
notkun nýtt hús, Nýheimar. Þar
verða aðsetur Framhaldsskólans í
Austur-Skaftafellssýslu (FAS), Há-
skóla Íslands, Nýherjabúða, upplýs-
ingamiðstöðvar og fleiri aðila.
Áhersla verður lögð á að inn-
leiða nýja hugsun, tækni og vinnu-
brögð svo að efla megi menntun og
þróunarstarf og styrkja atvinnulíf á
svæðinu. Þannig verður byggt á
þverfaglegum vinnubrögðum, notk-
un upplýsingatækni og sveigjanlegu
rými sem auðvelt verður að laga að
breyttum kröfum tímans.
Hver heild fyrir sig mun hafa
rými til sinna einkaafnota en lögð
verður áhersla á að nýta rými sam-
eiginlega eftir því sem framast er
kostur.
Þá verður stefnt að því að þeir
aðilar, sem „búa í Nýheimum,“
styðji hver annan í starfsemi sinni
og að hæfileikar og geta hvers um
sig nýtist heildinni.
augl‡sing
1. tbl. 1. árg. 2001 Austurland á nýrri öld
Jarðgöngin milli Reyðarfjarðar og
Fáskrúðsfjarðar eru einfaldlega for-
senda þess að byggð og mannlíf á
sunnanverðum Austfjörðum þrosk-
ist og dafni á komandi árum.
Göngin, sem verða um 5,8 km
löng, stytta leiðina milli Reyðar-
fjarðar og Fáskrúðsfjarðar um 31
km, úr 52 km í 21 km.
Steinþór Pétursson, sveitarstjóri
á Fáskrúðsfirði, segir að verslun,
viðskipti og þjónusta eigi erfitt
uppdráttar á svæðinu, „en göngin
gera Breiðdalsvík, Stöðvarfjörð, Fá-
skrúðsfjörð, Reyðarfjörð og Eski-
fjörð að einu atvinnusvæði. Um leið
stækkar markaðssvæðið og upp
kemur forsenda fyrir þróun og auk-
inni sérhæfingu í verslun og þjón-
ustu auk þess sem til verður eitt at-
vinnusvæði, stærra og fjölbreyttara
en við þekkjum nú.“
Vegurinn milli Reyðarfjarðar og
Stöðvarfjarðar hefur hamlað sam-
göngum við suðurfirðina. Bæði
vegalengdin sjálf auk þess sem fólk
veigrar sér við að fara þessa leið að
óþörfu, því vegurinn er beinlínis
hættulegur. Þar eru þrengsli, blind-
hæðir og heilmikil hrunhætta í
Vattarnesskriðunum. „Um þær er
varla ekið án þess að menn verði
varir við grjóthnullunga á vegin-
um,“ segir Steinþór. „Eftir að göng-
in koma verða suðurfirðirnir „mið-
svæðis“ í fjórðungnum, samgöngur
greiðari, bæði innan fjórðungsins og
við landið allt. Og svo má ekki
gleyma því að framkvæmdir við
væntanlegt álver við Reyðarfjörð
eru óhugsandi án ganganna.“
Í núgildandi áætlun er miðað við
að framkvæmdir við göngin geti
hafist vorið 2002. Heildarverktími
er áætlaður tvö og hálft ár. Kostnað-
ur við framkvæmdina hefur verið
áætlaður 3,1 milljarður króna.
Göngin munu liggja milli Hrúteyrar
í Reyðarfirði og bæjarins Dala í Fá-
skrúðsfirði.
Jarðgöngin forsenda framfara
– stytta leiðina milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar um 31 km
Svona kemur gangamunninn til með að líta út, Reyðarfjarðarmegin.
Á ráðstefnu um stefnumótun í
menningarmálum á landsbyggð-
inni sem haldinn verður á Seyðis-
firði 14. og 15. maí næstkomandi
verður undirritaður tímamóta-
samningur um Menningarráð
Austurlands. Aldrei áður hefur
viðlíka samningur verið gerður hér
á landi, að sögn Smára Geirssonar
formanns Sambands sveitarfélaga í
Austurlandskjördæmi. Samningur-
inn felur í sér fjárframlag frá hinu
opinber næstu þrjú árin.
Ennfremur verður á ráðstefn-
unni undirrituð viljayfirlýsing þar
sem gert er ráð fyrir að komið
verði á fót 4 menningarmiðstöðv-
um í kjördæminu, á Höfn, á Aust-
ur-Héraði, í Seyðisfirði og Fjarða-
byggð.
Menningarlandið
Austurland
Sérfræð-
ingur í
Höfn! Á sama tíma og fiskeldismenn umland allt einbeita sér að laxeldi íauknum
mæli horfa
Norðfirð-
ingar hýru
auga til
hlýrans,
„enda er hlýrinn gæfur fiskur og
stressast mun síður en laxinn. Að
þeim sökum hentar hann afar vel
til eldis,“ segir Sindri Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Hlýra ehf. „En
það eru ekki eingöngu hin góða
skapgerð sem gerir hlýrann kjörin
til eldis, heldur hitt að hann þrífst
vel við náttúrulegar aðstæður eins
þær sem við búum við. Honum líð-
ur til að mynda illa ef hitastig sjáv-
ar fer mikið yfir 10 gráður en dafn-
ar vel við tveggja til fjögurra gráðu
hita,“ segir Sindri og bætir við að
ýmislegt bendi til þess að hlýrinn
sé ódýrari á fóðrum en laxinn.
Hvað markað fyrir hlýra segir
Sindri að ekki sé runnið blint í sjó-
inn. „Við erum þegar með ákveðn-
ar hugmyndir sem ég tel ekki rétt
að tíunda að svo stöddu.“
Fyrst um sinn mun fyrirtækið
einbeita sér að seiðaeldi. „Við mun-
um strax í haust veiða villtan hlýra í
klak og rækta upp seiði. Seiðaeldið
fer fram í landi en við fylgjumst
spenntir með þróuninni erlendis
þar sem farið er að gera tilraunir
með sérstakar eldiskvíar fyrir botn-
læga fiska eins og hlýra, sem eðli
sínu samkvæmt þurfa annars konar
kvíar en laxinn.“
Hlýraeldi er nýjung hér á landi
en Norðmenn hafa verið að gera til-
raunir, bæði með að rækta steinbít
og hlýra auk þess sem Kanadamenn
eru í startholunum með að hefja
eldi á hlýra. Hafrannsóknastofnun
hefur einnig verið með vísi að
hlýraeldi í tilraunaskyni og í fram-
haldi af
ágætu
gengi þar
var ákveðið
að hefja
eldið í Nes-
kaupstað. Hluthafar í Hlýra ehf. eru
Síldarvinnslan, Nýsköpunarsjóður
atvinnulífsins, Eignarhaldsfélag
Austurlands, Hönnun hf. og Fram-
takssjóður Austurlands.
Áhyggjufullir ferðamenn hafa haft
samband við verslunareigendur á
Austurlandi undanfarna
daga til að tryggja að
nægur ís verði til í
söluturnum í allt
sumar.
Þessar áhyggjur
eru eðlilegar í ljósi
þess að hitabylgja
sumarsins er þegar
komin og sýnilegt
að hún verður þar í
allt sumar. Hitinn í
gær fór víða í
fjórðungnum yfir 20
stig.
Gömul berdreymin
kona, ættuð af Jökuldal, hefur látið
hafa það eftir sér að komandi
sumar verði það veðursælasta í
langan tíma. Þessi kona er þekkt
fyrir spádóma sína sem eiga það
sameiginlegt að rætast alltaf.
Nægur ís
í allt sumar!
Hlýraeldi í
Neskaupstað
Samningurinn undirritaður. Gísli Sverrir Árnason og Albert Eymundsson frá Höfn
og Hallgrímur Jónasson og Karl Friðriksson frá Iðntæknistofnun.
www.athygli.is