Morgunblaðið - 11.05.2001, Síða 16
AKUREYRI
16 FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Brúðarsýn-
ing í Toyota-
húsinu
Vorhátíð
Síðuskóla
VORHÁTÍÐ Síðuskóla verður
laugardaginn 12. maí og hefst
hún með andlitsmálun kl. 12.30.
Skrúðganga verður kl. 14 og eru
þátttakendur hvattir til að taka
fram furðufötin, fána og blöðrur.
Farið verður í leiki, krafta-
krakkakeppni, hjólaskoðun verð-
ur á svæðinu og hjólaþrautir,
tölvuleikjakeppni og tombóla. Þá
verða veitingar í boði.
Tónleikar í Ís-
landsbænum
HELGI og hljóðfæraleikararnir
verða með tónleika í Íslandsbæn-
um í Eyjafirði laugardagskvöldið
12. maí og hefjast þeir kl. 22. Auk
hljómsveitarinnar munu alþýðu-
tónlistarmenn sjá um upphitanir
og niðurkælingar eftir þörfum.
Glæný afurð hljómsveitarinn-
ar, smáskífan Græni fuglinn,
verður til sölu á staðnum en á
henni eru þrjú lög. Sama dag kl.
18 opnar myndlistarmaðurinn
Gamli-Elgur sýningu á forynju-
verkum sínum í Vín.
Aftansöngur
AUKINNAR bjartsýni gætir nú meðal Hrís-
eyinga á framtíð byggðalagsins og þar hefur
síðustu mánuði verið nokkur gróska á fast-
eignamarkaði að sögn Péturs Bolla Jóhann-
essonar, sveitarstjóra í Hrísey. Allar líkur eru á
að nokkrar fjölskyldur væru að flytjast þangað
búferlum og þá hafa borist fyrirspurnir um
möguleika á húsnæðiskaupum, m.a. frá íbúum
höfuðborgarsvæðisins. „Hrísey virðist vera í
tísku um þessar mundir. Við verðum vör við
áhuga fólks fyrir sunnan á að komast í rólegra
umhverfi og af einhverjum ástæðum er Hrísey
vinsæl núna.“
Pétur Bolli sagði að síðustu vikur hefðu nokk-
ur hús í eynni verið seld og hann gerði sér von-
ir um að byggðalagið væri að rétta úr kútnum
eftir hið erfiða áfall þegar Snæfell lokaði pökk-
unarstöð félagins og flutti hana yfir til Dalvíkur
um áramótin 1999/2000.
„Mér finnst vera ákveðinn vendipunktur núna
og þróunin að snúast við,“ sagði Pétur Bolli.
Þróunin að snúast við
Íbúum fækkaði umtalsvert á síðasta ári, eða
um 30, en í kjölfar lokunar Snæfells, þar sem 35
manns misstu atvinnuna fluttu margir burtu.
Íbúar voru 188 talsins 1. desember í fyrra en
sveitarstjórinn telur að botninum séð náð. „Það
bendir margt til þess að þróunin séu að snúast
við,“ sagði hann, m.a. eru nýir kennarar á leið-
inni til eyjarinnar með fjölskyldur.
Pétur Bolli sagði töluvert spurt um hús í
Hrísey um þessar mundir og væru nokkur slík
til sölu nú auk þess sem félagslegar íbúðir í
eigu hreppsins væru falar vildi einhver kaupa.
Þær væru hins vegar dýrari en hús á almenn-
um markaði í eynni.
Skipuleggja orlofshúsabyggð
Pétur Bolli benti einnig á að töluvert hefði
færst í vöxt á síðustu árum að fólk á meginland-
inu keypti hús í eynni og hefði sem sumarhús
auk þess að nýta þau að vetrinum þegar tóm
gæfist til. „Það er auðvitað ekki sú þróun sem
við viljum sjá, helst vildum við að fólkið hefði
hér fasta búsetu,“ sagði hann. Áætlað er að
hefja vinnu við gerð deiliskipulags vegna orlofs-
húsabyggðar en gert er ráð fyrir samkvæmt að-
alskipulagi að 10 til 15 lóðir komi til með að
standa einstaklingum og félagasamtökum til
boða.
Teikn á lofti um að íbúaþróun sé að snúast við í Hrísey
Morgunblaðið/Kristján
Vorhugur er kominn í unga fólkið sem hefur tekið fram bæði reiðhjól og hlaupahjól. Þá virðist aukin bjartsýni ríkja eftir nokkur áföll í atvinnulífinu.
Aukin bjartsýni og gróska
á fasteignamarkaði
Hrísey
95 OKTANA bensín fékkst á þremur
stöðum á Akureyri á 91,40 krónur
síðdegis í gær. Olís ákvað í gær-
morgun að bjóða sama verð á einni
sjálfsafgreiðsludælu félagsins við
Tryggvabraut og Orkan býður.
Verðið var því lækkað þegar bens-
ínstöðin var opnuð í gærmorgun.
Verðið hjá Orkunni hélst það sama
og sagði Páll Baldursson útibússtjóri
hjá Olís á Akureyri að það verð hefði
haldist yfir daginn. Hann sagði við-
brögðin hafa verið mjög góð og
greinilegt að fólk hefði tekið við sér
þegar lækkunin fór að spyrjast út.
Á Esso-stöðinni við Tryggvabraut
var verð einnig lækkað á 95 oktana
bensíni og það boðið á sama verði og
hjá Orkunni og sjálfsafgreiðsludælu
Olís. Þorsteinn Eiríksson á Esso-
stöðinni við Tryggvabraut sagði að
viðbrögðin hefðu ekki látið á sér
standa, en þar á bæ hefðu menn séð
marga nýja viðskiptavini. Hann
sagði fólk sem fyllti tanka sína geta
sparað 500 krónur með því að dæla
sjálft og það væri upphæð sem fólk
vildi gjarnan spara sér.
Viðbrögðin létu
ekki á sér standa
Síðasta
sýningarhelgi
SÍÐASTA sýningarhelgi á sýn-
ingu Sigurðar Árna Sigurðsson-
ar sem staðið hefur frá opnun
Ketilhússins á sumardaginn
fyrsta er nú um helgina. Sýning-
in er opin frá kl. 16 – 18 virka
daga, en frá kl. 14-18 um helgar.
STUTT
Lokahóf
yngri
flokka KA
LOKAHÓF yngri flokka KA í
handbolta verður haldið í KA-
heimilinu laugardaginn 12. maí
kl. 13.
Á hófinu verða veitt verðlaun
fyrir árangur vetrarins, farið í
leiki og grillað ofan í mannskap-
inn. Hjá KA er unnið öflugt ung-
lingastarf og á dögunum fékk
félagið unglingabikar HSÍ fyrir
frábært starf í yngri flokkum.
Allir áhugasamir eru velkomnir
á lokahófið.
GUÐRÚN Kristín Björgvinsdóttir
garðyrkjunemi á Akureyri var að
setja fyrstu sumarblómin í ker í
blíðunni í fyrradag. Jóhann Thor-
arensen verkstjóri í umhverf-
isdeild Akureyrarbæjar sagði að
byrjað væri óvenjusnemma þetta
árið að setja niður sumarblómin.
Einhver bið verður hins vegar á
að blómin verði sett niður í beð
út í bæ þar sem alltaf má búast
við vorhreti.
Morgunblaðið/Kristján
Guðrún Kristín Björgvinsdóttir garðyrkjunemi hjá umhverfisdeild Ak-
ureyrarbæjar setur sumarblóm í potta í blíðunni.
Sumarblómin eru
snemma á ferðinni í ár
VEGNA fjölda áskorana verður ráð-
stefnan Tilfinningagreind – undir-
staða árangurs á vegum Þekkingar-
smiðju IMG haldin á Akureyri
miðvikudaginn 16. maí frá kl. 9–12. Á
ráðstefnunni verður fjallað um hlut-
verk tilfinninga í árangri.
Ráðstefnan verður haldin á Foss-
hóteli KEA. Rannsóknir sýna að það
er tilfinningagreind sem aðgreinir
framúrskarandi einstaklinga frá hin-
um. Tilfinningagreind fjallar um getu
til að skilja sjálfan sig, stjórna eigin
tilfinningum og færni í að skilja og
vinna með öðru fólki. Tilfinningaleg
meðvitund, sjálfstraust, samkennd og
heiðarleiki eru meðal þeirra atriða
sem einkenna þá sem ná langt, segir í
fréttatilkynningu.
Fyrirlesari er Eyþór Eðvarðsson,
MA í vinnusálfræði, stjórnendaþjálf-
ari og ráðgjafi hjá Þekkingarsmiðju
IMG. Þátttökugjald er kr. 14.900.
Innifalið er morgunkaffi. Hægt er að
fá nýjustu bók Daníels Golemans
Working with Emotional Intelligence
á staðnum og kostar hún kr. 3.000.
Skráning fer fram á www.simey.is.
Ráðstefna um tilfinningagreind
BRÚÐARSÝNING verður hald-
in á morgun, laugardaginn 12.
maí í Toyota-húsinu á Akureyri.
Þar mun verða sýnt það nýjasta í
brúðarvöndum, -skreytingum og
-kjólum, hárgreiðslu og förðun
jafnframt því sem nýjustu brúð-
arbílarnir verða sýndir frá
Toyota. Sýningin stendur yfir
frá kl.12–18. Kl. 15 og 16.30
munu sýningarbrúðhjón ganga
um sali og sýna sig og fylgihluti.
Býflugan og blómið verður með
brúðhjónapott í sumar þar sem
viku ferð til Portúgal fyrir tvo
með Úrval-Útsýn verður í boði.
AFTANSÖNGUR verður í Ak-
ureyrarkirkju kl. 18 í dag, föstu-
dag. Kammerkór Akureyrar-
kirkju, undir stjórn Björns
Steinars Sólbergssonar, flytur
tónlist eftir Friedrich Kiel, Jón
Áskel Hlöðversson og Andrew
Carter. Aftansöngur eða Vesper
er ein hinna klassísku tíðagjörða
og er sunginn um miðjan aftan
eða klukkan sex. Vesper hefur
verið sunginn á Kirkjulistaviku í
Akureyrarkirkju frá því að hún
var fyrst haldin árið 1989.