Morgunblaðið - 11.05.2001, Síða 23

Morgunblaðið - 11.05.2001, Síða 23
VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2001 23 „DANSKA þjóðhagsstofnunin (Det økonomiske Råd) var stofnuð árið 1962 og hefur allar götur síðan gegnt mikilvægu hlutverki í dönsku efna- hagslífi og tekið virkan þátt í um- ræðu um hagstjórn, bæði með útgáfu skýrslna og eins með greinum og við- tölum í dönskum blöðum,“ sagði Niels Kæregård, yfirvísmaður dönsku þjóðhagsstofnunarinnar, í erindi sínu á morgunverðarfundi Dansk-íslenska verslunarráðsins. Auk starfa sinna fyrir stofnunina er Niels prófessor við Landbúnaðarhá- skólann í Danmörku. Stjórn ráðsins skipa þrír menn og eru þeir vanalega starfandi prófessorar við danska há- skóla og segir Niels að ráðið end- urspegli yfirleitt skoðanir þorra starfandi hagfræðinga í Danmörku. Óháðir þinginu og ríkisstjórnum „Hálfsársskýrslur ráðsins vega þungt í skoðanamyndun og ákvarð- anatöku um efnahagsmálin í Dan- mörku. “ Danska þjóðhagsstofnunin fær fé sitt af fjárlögum en er óháð þinginu og ríkisstjórn og Niels segir það raunar vera frekar reglu en undan- tekningu að stofnunin gagnrýni efnahagsstefnu stjórnvalda. „Auð- vitað eru alls konar samtök sem taka þátt í umræðunni um efnahagsmál en við erum í reynd eini aðilinn sem er alls óháður ákveðnum hagsmun- um og þess vegna er okkar hlutverk mikilvægt.“ Aðspurður um það hvort ríkisstjórnir geti ekki sett pressu á stofnunina með hótunum um minni fjárframlög segir Niels það mjög ólíklegt. „Í fyrsta lagi eru útgjöld stofnunarinnar bara örlítill liður á fjárlögum og í annan stað myndu slíkir tilburðir af hálfu ríkisstjórnar komast í sviðsljósið og verða gagn- rýndir. Ég held að flestir sjái nauð- syn þess að stofnunin sé algerlega óháð og vinni faglega að sínum mál- um.“ Keynes og nýklassíkin Niels segir að allar götur frá árinu 1962 megi segja að blanda af keyn- ískri og nýklassískri hagfræði hafi einkennt ráðleggingar ráðsins, stundum hafi Keynes haft undir- höndina en á öðrum tímum nýklass- íska hagfræðin. „Vandamálin sem við hefur verið að glíma í dönsku efnahagslífi hafa líka verið breytileg frá einum tíma til annars. Stundum hefur verðbólgan og hallinn í ríkis- rekstri verið mest áberandi en um árabil var það atvinnuleysið. At- vinnuleysi jókst hröðum skrefum í Danmörku upp úr olíukreppunni í upphafi áttunda áratugarins og fór mest í um 12% árið 1993. Síðan þá hefur atvinnuleysið hins vegar minnkað nokkuð hratt og það er nú komið niður fyrir 6%. Verðbólgan var mjög há á áttunda áratugnum og fór mest í hátt í 15%. Frá árinu 1992 hefur hún hins vegar verið lítil eða minni en 2,5%. Halli var á ríkisbú- skapnum frá 1962 til 1989 ef árið 1963 er undanskilið. Á miðjum ní- unda áratugnum voru erlendar skuldir orðnar 40% af þjóðarfram- leiðslunni en þær hafa minnkað hratt síðan og eru komnar í um 23% af þjóðarframleiðslu.“ Niels tekur undir það að hagstjórn hafi verið góð á tíunda áratugnum og mikill árangur hafi náðst, bæði hvað snertir verðbólgu, atvinnuleysi og erlendar skuldir. Samfellt hagvaxt- arskeið hafi einkennt tíunda áratug- inn. „Ég held hins vegar að menn verði að hafa varann á, það er hættu- legt að ganga að því gefnu, eins og svo margir virðast gera, að fyrst mál hafi verið í góðum farvegi svona lengi þá hljóti þau að verða það áfram.“ Niels Kæregård, yfirvísmaður dönsku þjóðhagsstofnunarinnar Morgunblaðið/Þorkell Niels Kæregård: „Hálfsársskýrslur ráðsins vega þungt í skoðanamyndun og ákvarðanatöku um efnahagsmálin í Danmörku.“ Gagnrýni frekar regla en undantekning NOKKRAR kvartanir hafaborist vegna slælegrar enskuí grein sem birtist á bonds.is en það er nýr upplýsingavefur á ensku um íslenska skulda- bréfamarkaðinn. Markmiðið með vefnum er að veita er- lendum fjárfestum aðgang að upplýsingum um íslenskan skuldabréfamarkað og efna- hagsmál. Að honum standa Lánasýsla ríkisins, Kaupþing, Sparisjóðabankinn, Verð- bréfaþing Íslands, Búnaðar- bankinn, Íbúðalánasjóður, Ís- landsbanki-FBA og Lands- bankinn. Aðeins ein grein verið gagnrýnd Brynjar Kristjánsson hjá Lánasýslu ríkisins segist ein- ungis hafa fengið ábendingar vegna málfars á einni grein en aðspurður segir Brynjar að hver og einn verði að bera ábyrgð á þeim greinum sem hann sendi inn. Þær séu um leið ímynd hans og jafnvel fyrirtækisins sem hann starfi fyrir. „Ég minni líka á að sum fyrirtæki hafa sent inn mikið efni en önnur ekki neitt. Um leið og menn setja inn efni er alltaf hægt að gagnrýna en hinir sem ekkert senda inn hljóta enga gagnrýni. Ég er hins vegar sammála þeirri gagnrýni sem hefur komið fram vegna þessarar einu greinar.“ Málfar á bonds.is gagnrýnt
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.