Morgunblaðið - 11.05.2001, Síða 24

Morgunblaðið - 11.05.2001, Síða 24
VIÐSKIPTI 24 FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ NÆSTKOMANDI þriðjudag, 15. maí, verður opnað fyrir viðskipti á nýjum markaði, Tilboðsmarkaði Verðbréfaþings, að því er fram kem- ur í frétt frá Verðbréfaþingi Íslands hf. Finnur Sveinbjörnsson, fram- kvæmdastjóri Verðbréfaþings, segir að með þessari breytingu sé Verð- bréfaþing að víkka út þjónustu sína. Þar með verður um þrenns konar skráningu að ræða, á aðallista og vaxtarlista Verðbréfaþings og á Til- boðsmarkaði Verðbréfaþings. Á meðfylgjandi mynd má sjá skipurit sem lýsir verðbréfamark- aðnum hér á landi. Eins og sjá má á myndinni skiptist verðbréfamarkað- urinn í tvennt, annars vegar í skipu- lagðan markað og hins vegar í óskipulagðan markað, sem oft hefur verið nefndur grái markaðurinn. Samkvæmt lögum er gert ráð fyrir að skipulagði markaðurinn skiptist í tvennt, annars vegar í kauphöll og hins vegar í skipulagðan tilboðs- markað. Verðbréfaþing Íslands hef- ur hingað til aðeins rekið kauphöll, en hefur einnig leyfi til að reka skipulagðan tilboðsmarkað. Með nýja Tilboðsmarkaðnum hyggst það nú nýta sér þá heimild. Finnur segir að Keflavíkurverk- takar hf. verði fyrsta félagið til að skrá sig á nýja markaðinn þegar hann verður opnaður á þriðjudaginn, en markhópurinn sé ung og smá fyr- irtæki, fyrirtæki í örum vexti eða fyrirtæki sem einhverra hluta vegna vilji ekki skrá sig í kauphöll. Hann nefnir að Verðbréfaþing líti til dæm- is á tölvufyrirtæki, fjarskiptafyrir- tæki, fjölmiðla, iðnfyrirtæki, lyfja- fyrirtæki og bifreiðaumboð sem markhópa. Kaup og sala fara fram með sama hætti og á aðal- og vaxtarlista Finnur segir viðskipti með hluta- bréf á Tilboðsmarkaðnum munu fara fram eins og önnur viðskipti í við- skiptakerfi þingsins og að almennir fjárfestar muni bera sig eins að við að kaupa og selja hlutabréf félaga á Tilboðsmarkaðnum og félaga sem skráð eru á aðal- eða vaxtarlista Verðbréfaþings. Hann segir að í meginatriðum þurfi félög á Tilboðs- markaðnum að uppfylla sömu skyld- ur um birtingu frétta og félög sem skráð eru á aðal- og vaxtarlista. „Þetta er mjög mikilvægt fyrir fjár- festa því helsti veikleiki gráa mark- aðarins er skortur á upplýsingum frá félögum,“ segir Finnur. Að hans sögn verður fréttum frá félögum á Tilboðsmarkaðnum miðlað um heimasíðu Verðbréfaþings með sama hætti og fréttum frá félögum á aðal- og vaxtarlista. Þá munu flöggunar- reglur einnig gilda á Tilboðsmark- aðnum sem þýðir að gera þarf op- inbert þegar eignarhlutur fjárfestis fer yfir eða undir tiltekin mörk. Einnig verður að upplýsa um við- skipti innherja. Birting reikninga félags verður ekki eins tíð og hjá fyrirtækjum á að- al- og vaxtarlista, því þar verður frá og með næsta hausti gerð krafa um að uppgjör verði birt ársfjórðungs- lega, en félög á Tilboðsmarkaðnum þurfa eingöngu að birta endurskoð- aðan ársreikning og óendurskoðað sex mánaða uppgjör. Finnur segir að sú ríka upplýs- ingaskylda sem hvíli á félögum á Til- boðsmarkaðnum sé mikið öryggi fyr- ir fjárfesta. Hann bendir einnig á að lífeyrissjóðir og hlutabréfasjóðir megi fjárfesta í félögum á Tilboðs- markaðnum eins og öðrum skráðum félögum. Vægari skilyrði fyrir skráningu Skilyrði fyrir skráningu á Tilboðs- markaðinn verða vægari en þau sem gilda um skráningu í kauphöll. Markaðsvirði getur verið 25 milljón- ir króna að lágmarki, en á vaxtarlist- anum er lágmarkið nú 80 milljónir króna og miðast það við lágmarks- reglur Evrópusambandsins. Gerðar verða kröfur um 25 hluthafa hið minnsta þar sem hver eigi að minnsta kosti 100.000 krónur að markaðsvirði og endurskoðaður árs- reikningur þarf að vera til fyrir síð- ustu tvö ár. Stjórn þingsins getur þó veitt undanþágu frá öllum þessum skilyrðum.                                                                         Tilboðsmarkaður Verðbréfaþings tekur til starfa á þriðjudag Upplýsinga- skyldan eyk- ur öryggiðSAMKVÆMT árshlutauppgjöriSH námu heildartekjur samstæð-unnar fyrsta ársfjórðung árið 2001um 13 milljörðum króna en þær voru 10,2 milljarðar sama tímabil árið á undan og er aukningin 27%. Tekjur samstæðunnar eru nær all- ar í erlendri mynt og því er ekki um þetta mikla raunhækkun að ræða í íslenskum krónum en geng- isvísitala íslensku krónunnar hefur hækkað um 12% milli tímabila. Hagnaður fyrir fjármagnsliði nam 431 milljón króna en var 315 milljónir árið á undan og hagnaður fyrir skatta nam 274 milljónum króna samanborið við 220 milljónir árið á undan. Hagnaður tímabils- ins að teknu tilliti til hlutdeildar minnihluta nemur nú 167 milljón- um króna á móti 141 milljón sama tímabil árið 2000. Meðal fjármuna- tekna er færður söluhagnaður af sölu hlutabréfa í Pescanova SA að fjárhæð 40 milljónir króna. Þessi rekstrarniðurstaða er heldur betri en áætlanir félagsins gerðu ráð fyrir á fyrsta ársfjórðungi. Veltufé frá rekstri reyndist 232 milljónir króna sem er svipað og á sama tímabili árið áður. Efnahags- reikningur stækkar frá áramótum um 10% vegna áhrifa 24% veltu- aukningar milli tveggja síðustu ársfjórðunga á viðskiptakröfur, auk þess sem gengi erlendra gjaldmiðla hefur hækkað frá ára- mótum. Eigið fé hefur aukist úr 3,4 í 3,7 milljarða en hlutfall þess er nær óbreytt. Sviptingar framundan Í tilkynningu frá SH segir að annar ársfjórðungur verði að mörgu leyti ársfjórðungur svipt- inga. Gengistap hjá móðurfélagi hefur aukist um rúmar 40 milljónir króna frá árshlutauppgjöri en á móti vinnur aukinn hagnaður er- lendra dótturfélaga í krónum tal- inn, sérstaklega til lengri tíma lit- ið. Þá hækkar eign félagsins í erlendum dótturfélögum einnig til- svarandi, þótt sú hækkun sé færð beint til aukningar eigin fjár. „Verkfall sjómanna er nú farið að setja mark sitt á rekstur nokk- urra dótturfélaga og ljóst að drag- ist það enn á langinn fer ekki hjá því að hagnaður minnki frá því sem ella hefði orðið. Afkomuáætl- un 2. ársfjórðungs gerði ráð fyrir að stærstur hluti hagnaðar mynd- aðist við sölu fasteignar Coldwater í Bandaríkjunum. Töluvert hefur verið spurst fyrir um fasteignina að undanförnu en enn sem komið er hafa ekki borist viðunandi til- boð. Ljóst er að lakara efnahags- ástand kann að hafa áhrif á eft- irspurn og verð atvinnuhúsnæðis. Enn fremur skal þess getið að félagið er nú að ljúka samningum við samstarfsaðila sína í Rússlandi og Scandsea AB í Svíþjóð um að Scandsea yfirtaki afskrifaðan eign- arhlut SH í rússneska fyrirtækinu Navenor gegn greiðslu með hluta- bréfum í Scandsea. Viðskipti þessi eru hluti af fjárhagslegri endur- skipulagningu Scandsea og Nave- nor. Því er ekki á þessari stundu ljóst hver áhrifin verða á rekstar- reikning SH en líklegt að þau leiki á bilinu 50–100 milljónir króna til tekna,“ segir í tilkynningunni. Í byrjun árs gerðu áætlanir félagsins ráð fyrir að hagnaður af aðalstarfsemi verði yfir 300 millj. króna og tvöfaldist þannig milli ára. Enn fremur var gert ráð fyrir að söluhagnaður vegna fasteigna dótturfélags í Bandaríkjunum næmi 200 milljónum króna. Að svo stöddu telja stjórnendur félagsins ekki efni til að endurskoða þessa spá, þótt óvissa sé nokkur um ýmsar forsendur hennar. Hagnaður SH 167 milljónir króna TAP af rekstri Útgerðarfélags Ak- ureyringa hf. fyrstu þrjá mánuði ársins nam 117 milljónum króna, sem að stærstum hluta má rekja til óhagstæðrar gengisþróunar, að því er fram kemur í tilkynningu frá félaginu. Þannig nam gengistap félagsins samtals 198 milljónum króna fyrstu þrjá mánuði ársins en ef gengistapið er undanskilið er þessi niðurstaða í samræmi við áætl- anir félagsins. Fyrstu þrjá mánuð- ina skilaði rekstur ÚA veltufé frá rekstri upp á 255 milljónir króna. Til samanburðar nam veltufé frá rekstri fyrstu sex mánuðina í fyrra 353 milljónum króna og 565 millj- ónum fyrir allt árið. Rekstrartekjur samstæðunnar á fyrsta ársfjórðungi námu samtals 1.249 milljónum króna og hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði 330 milljónum króna, eða 26% af tekjum. Afskriftir námu samtals 196 milljónum króna og fjármagnsliðir voru neikvæðir um 251 milljón króna. Miðað við gengi gjaldmiðla í lok dags 8. maí síðastliðinn nemur geng- istap af skuldum félagsins nær 800 milljónum króna frá áramótum. Þá segir í tilkynningu félagsins að verk- fall sjómanna komi mjög illa við starfsemi þess og ætla megi að tap félagsins vegna þess sé ekki undir 200 milljónum króna. Guðbrandur Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri ÚA, segir að í upphafi árs hefðu verið væntingar um að þetta ár yrði eitt hið besta í 56 ára sögu félagsins. „Utanaðkomandi þættir, þ.e. mjög óhagstæð gengis- þróun og verkfall sjómanna, hafa hins vegar sett stórt strik í reikning- inn og kollvarpað áætlunum okkar eins og líklega allra annarra sjávar- útvegsfyrirtækja hér á landi. Það er því ljóst að allt stefnir í að sex mán- aða uppgjör félagsins sýni verulegt tap af starfseminni.“ Hann segir að þrátt fyrir þessa ágjöf sé bjart fram undan. Á liðnum árum hafi verið hagrætt verulega í rekstri félagsins um leið og það hafi náð að vaxa umtalsvert. Þannig hafi velta félagsins aukist um rúm 20% á ári síðastliðin fjögur ár og vergur hagnaður og veltufé frá rekstri hafi- jafnframt aukist verulega á þessu tímabili. Veiking krónunnar muni ennfremur koma félaginu til góða til framtíðar þar sem nær allar tekjur félagsins séu í erlendri mynt. Tap á rekstri ÚA 117 milljónir króna HAGNAÐUR Haraldar Böðvars- sonar hf. á Akranesi nam 20 millj- ónum króna fyrstu þrjá mánuði ársins. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði var 373 milljónir eða um 27% af tekjum félagsins. Allt árið í fyrra var hagnaður HB 598 milljónir fyrir afskriftir og fjármagnsliði. Ekki liggur fyrir uppgjör fyrir sama tímabil í fyrra. Skuldir og tekjur hækka vegna lækkunar gengis Rekstrartekjur félagsins þrjá fyrstu mánuði ársins voru 1.354 milljónir króna. Rekstrargjöld voru 981 milljón og hagnaður eftir afskriftir 253 milljónir króna. Fjár- magnsliðir voru neikvæðir um 228 milljónir og hagnaður af reglulegri starfsemi 25 milljónir króna. Geng- istap vegna lána var 155 milljónir á tímabilinu. Lækkun á gengi krón- unnar frá áramótum hefur haft áhrif til hækkunar á skuldum félagsins. Á móti kemur að tekjur fyrirtækisins hækka að sama skapi vegna áhrifa gengislækkunar. Sala á nótaskipi lækkar skuldir Skuldir félagsins hafa samt sem áður lækkað en langtímaskuldir voru um áramót 5,5 milljarðar en eru nú rúmur 5,1 milljarður. Þessi lækkun er aðallega til komin vegna sölu á nótaskipinu Óla í Sandgerði AK 14. Veltufé frá rekstri var 262 millj- ónir króna fyrstu þrjá mánuði árs- ins en var allt árið í fyrra 275 milljónir króna. Eiginfjárhlutfall jókst um rúmt 1,1% frá 31. des- ember í fyrra og var 31. mars tæp 27,4%. Haraldur Böðvarsson hf. birtir þriggja mánaða uppgjör Hagnað- ur 20 milljónir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.