Morgunblaðið - 11.05.2001, Page 27

Morgunblaðið - 11.05.2001, Page 27
FORYSTUMENN beggja pólitísku fylkinganna, sem keppast um að fá umboð ítalskra kjósenda í þing- kosningum nú um helgina til að mynda næstu ríkisstjórn Ítalíu, hafa heitið því að binda enda á þann óstöðugleika sem einkennt hafa stjórnmál landsins frá því ítalska lýðveldið var stofnað eftir síðari heimsstyrjöld. Á þessari ríflega hálfu öld hafa 58 ríkisstjórnir verið myndaðar. Francesco Rutelli, forsætisráð- herraefni „ólífutrés“-bandalags miðju- og vinstriflokka, hefur verið í sókn á endaspretti kosningabar- áttunnar með harðri gagnrýni á kosningastefnuskrá keppinautsins, kosningabandalagi miðju- og hægriflokka sem Silvio Berlusconi fer fyrir. Hafa þeir báðir sagzt eiga sigurinn vísan þegar Ítalir ganga að kjörborðinu á sunnudaginn. Berlusconi sýndi sigurvissu sína í verki í gær með því að hafna enn á ný að eiga kappræður við Rutelli, jafnvel þótt ekki væri nema óbeint, með þeim rökum að Rutelli væri einfaldlega ekki nógu mikill þunga- vigtarmaður til þess að það tæki því að eiga við hann kappræður. Deilt um kosningastefnuskrá hægriflokkanna Rutelli hét því að koma á betri aga í „ólífutrés“-bandalagi miðju- og vinstriflokkanna, en innbyrðis ágreiningur hefur valdið því að þótt þeir hafi haft þingmeirihluta allt undanfarið kjörtímabil hafa þessi fjögur ár setið þrír forsætisráð- herrar yfir fjórum ríkisstjórnum. Berlusconi er í mun að slá á fyr- irvara sem kjósendur hafa gegn því að hann fari fyrir ríkisstjórn með tilliti til þess hve mikilla persónu- legra viðskiptalegra hagsmuna hann hefur að gæta sem einn rík- asti maður landsins. Hefur hann meðal annars heitið sérstakri lög- gjöf til lausnar hagsmunaárekstr- um af þessu tagi, en meðal helztu kosningaloforðanna eru annars miklar skattalækkanir og hert lög- gæzla. Á miðvikudag tilkynnti Berlusc- oni hverjir myndu skipa nokkur helztu ráðherraembættin í ríkis- stjórninni sem hann hyggst fá um- boð kjósenda til að mynda. Athygli vakti að þar á meðal er Luca di Montezemolo, forstjóri Ferrari- sportbílaverksmiðjunnar. Rutelli gagnrýndi harðlega kosn- ingastefnuskrá „Húss frelsisins“, eins og miðju-hægri-bandalag Berl- usconis nefnir sig. „Með stefnuskrá Berlusconis myndum við úthýsa okkur úr Evrópusamstarfinu á hálf- tíma,“ sagði Rutelli. Það sem Ítalía þarfnaðist mest í efnahagsmálum væri að halda stefnu núverandi stjórnar áfram, ekki þá „ævintýra- mennsku“ sem boðuð væri í stefnu- skrá hægrimanna. Og talsmenn fjármálaráðuneytis- ins sögðu að fullyrðingar sem fram kæmu í kosningastefnuskrá hægri- flokkanna um efnahagsþróun Ítalíu á kjörtímabilinu sem er að ljúka væru vísvitandi rangar, í pólitísku áróðursskyni fyrir Berlusconi. Umberto Bossi, hinn umdeildi leiðtogi Norðurbandalagsins sem gegnir lykilhlutverki í „Húsi frels- isins“, sór í fyrradag að endurtaka ekki sama leik og árið 1994, þegar hann hætti stuðningi við þáverandi ríkisstjórn Berlusconis, aðeins sjö mánuðum eftir að hún tók við stjórnartaumunum. Rithöfundurinn Umberto Eco hvatti Ítali til að hafna Berlusconi. Sagði hann Berlusconi vera með svo öflug tök á fjölmiðlum að menn þyrftu að vera „dýrlingar“ til að standast þá freistingu að misnota þau ekki. Lofa að binda enda á óstöð- ugleikann AP Silvio Berlusconi í viðtali á ríkissjónvarpsstöðinni RAI. Framherjar fylkinganna á Ítalíu segjast sigurvissir á endasprettinum Róm. Reuters, AFP, AP. ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2001 27 MIKILL meirihluti danska þings- ins lýsti á miðvikudag yfir stuðn- ingi við stefnu Pouls Nyrup Rasm- ussens forsætisráðherra í Færeyjamálinu, en hann vill ekki ganga til viðræðna við Færeyinga fyrr en ljóst er hvort þær eigi að snúast um sjálfstæði eða eingöngu breytingar á sjálfsstjórn þeirra. Færeyski þingmaðurinn Óli Breckmann lýsti vonbrigðum sín- um með þessa afstöðu, sagði annað ekki þurfa að útiloka hitt. Rasmussen kynnti stefnu stjórn- arinnar í þinginu og sagðist þar reiðubúinn að virða óskir Færey- inga, þegar þær yrðu lagðar fram. „Það verður að vera ljóst hvort við erum að semja um stofnun fær- eysks ríkis eða umbætur á samb- andinu við Danmörku,“ sagði hann. Hann hafði áður hlotið stuðning meirihlutans við því að semja héðan í frá aðeins til eins árs í senn um fjárframlög til Fær- eyinga í stað þriggja áður. Allir flokkar nema Kristilegi þjóðar- flokkurinn og Einingarlistinn styðja stefnu Rasmussens í mál- efnum Færeyja svo engra breyt- inga er að vænta þótt ný ríkis- stjórn myndi taka við að loknum kosningum sem haldnar verða í síðasta lagi í mars á næsta ári. Enginn tók hins vegar undir kröfu Franks Dahlgaards, sem er utan flokka, en hann krafðist þess að Færeyingar yrðu reknir úr danska ríkinu þegar í stað. Vonbrigði Færeyinga Óli Breckmann úr færeyska Þjóðarflokknum kvaðst hafa orðið fyrir vonbrigðum með að forsætis- ráðherrann hefði kosið að sýna Færeyingum hörku, réttara hefði verið að hann færi að koma fram við þá eins og heiðursmaður. Sagði Breckmann að síðasta tillaga lög- manns Færeyinga, Anfinns Kalls- bergs, um að hefja viðræður um yfirtöku Færeyinga á einstökum málaflokkum gæti bæði leitt til umbóta á sambandi landanna og fulls sjálfstæðis. Annað þyrfti ekki að útiloka hitt og að viðræðurnar ættu að hefjast þegar í stað. Meirihluti þingmanna staðfesti ennfremur samninginn sem þáver- andi forsætisráðherra Danmerkur, Poul Schlüter, gerði árið 1992 og tryggði Færeyingum rétt til þeirr- ar olíu sem kann að finnast í land- grunni eyjanna. Aðeins Danski þjóðarflokkurinn telur að semja eigi um þetta atriði að nýju. Vilja harða stefnu gegn Færeyjum Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. FUNDIST hafa í Bretlandi leifar risaeðlu sem sögð er frændi eða frænka grameðlunnar, tyr- annosaurus rex, risavaxinnar rá- neðlu sem uppi var á krítartíma. Var ekki vitað um þennan ætt- legg áður en eðlan hefur fengið fræðiheitið eotyrannus lengi og heitir að hálfu í höfuðið á Gavin Leng sem fann fyrstu beinin á Wight-eyju. Eotyrannus var 4,5 metra löng kjötæta sem uppi var fyrir 120 til 125 milljónum ára. Hún hefur því líklega verið einn af forfeðrum grameðlunnar sem var á ferðinni fyrir 60 til 70 milljónum ára. Martin Munt, forstöðumaður Jarðfræðisafnsins á Wight, segir að eotyrannus sé einn af týndu hlekkjunum í þróunarsögu gram- eðlunnar en fyrstu beinin fundust uppi á hömrum skammt frá bæn- um Brighstone. Alla tíð síðan hef- ur verið unnið að uppgrefti á staðnum. Vísindamenn segja að þótt ekki hafi fundist nema 40% allrar beinagrindarinnar sé auð- velt að sjá að um ókunna tegund er að ræða. Þá gefi fundurinn upplýsingar um fjölbreytileika risaeðlutegundanna í Evrópu en grameðlurnar, sem síðar reikuðu um Norður-Ameríku og Asíu, voru 11,5 metra langar. Eotyr- annus var smærri eins og fyrr segir en byggingarlagið samt líkt. Forfaðir gram- eðlunnar fundinn London. AP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.