Morgunblaðið - 11.05.2001, Page 37

Morgunblaðið - 11.05.2001, Page 37
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2001 37 KÓR Menntaskólans við Hamra- hlíð heldur þrenna tónleika á Suð- urlandi nk. laugardag og sunnu- dag. Fyrstu tónleikarnir verða á Kirkjubæjarklaustri á Síðu í Kirkjuhvoli á laugardag kl. 16 og á sunnudag syngur kórinn við messu í Prestbakkakirkju kl. 14. Þá held- ur kórinn tónleika í Skálholts- kirkju kl. 21 á sunnudagskvöld. Stjórnandi er Þorgerður Ingólfs- dóttir. Kór MH á Suðurlandi Á efnisskránni eru m.a. verk eft- ir J.S. Bach, G.F. Händel, Carl Orff, Atla Heimi Sveinsson, Þorkel Sigurbjörnsson, Hróðmar Inga Sigurbjörnsson og Pál Ísólfsson auk þjóðlaga, bæði íslenskra og er- lendra. Í sumum verkanna leika kórfélagar með á hljóðfæri, m.a. fiðlur, selló, flautu, klarinett og slaghljóðfæri. Frá haustinu 1982 hafa tveir kórar starfað sem kenna sig við Hamrahlíð, Kór Menntaskólans við Hamrahlíð og Hamrahlíðarkórinn. Allir kórfélagar eru nemendur við samnefndan skóla. Aðgangur á báða tónleikana er ókeypis. NÚ stendur yfir í Listhúsinu í Laug- ardal sýning Elínborgar Kjartans- dóttur málmlistakonu. Hún hefur unnið við málmlist og hönnun frá árinu 1989, hannað messing og kop- arskartgripi, skúlptúra, veggverk, nytjahluti s.s. hnífapör og kerta- stjaka. Elínborg starfaði á tímabili fyrir Oasis í Bretlandi og hannaði messing og koparskartgripi fyrir þá kunnu verslunarkeðju. Hún hefur tekið þátt í tveimur al- þjóðlegum sýningum í Bretlandi. Sýningin stendur til 31. maí og er opin alla daga frá kl. 9–19, sunnu- daga kl. 12–17. Málmverk í Listhúsinu NÚ STENDUR yfir í Eden í Hveragerði sýning myndlistar- klúbbsins Málunar og teiknunar í Hvassaleiti. Myndirnar eru flestar unnar með vatnslitum og akríl og eru til sölu. Klúbburinn hefur starf- að undanfarin ár í Hvassaleitis- skóla. Síðastliðinn vetur voru um 20 félagar í klúbbnum. Leiðbeinandi er Sveinbjörn Þór Einarsson. Félags- menn innan klúbbsins hafa áður tekið þátt í samsýningum sem haldnar hafa verið í Hvassaleitis- skóla. Myndlistar- klúbbur sýnir í Eden ÚTHLUTAÐ hefur verið úr Menningarsjóði fyrir árið 2001. 115 umsóknir bárust að þessu sinni með beiðni um styrki að fjárhæð 102 milljónir kr. Stjórn Menningarsjóðs samþykkti að veita 44 styrki, samtals að fjár- hæð 13,2 milljónir kr., til eftirtal- inna verkefna: 750.000 kr.: Sögu- félag Íslandssaga tuttugustu aldar eftir Helga Skúla Kjart- ansson. 500.000 kr.: Mál og mynd ehf. Æðarfugl og æðarrækt á Ís- landi. Ritstjóri Jónas Jónsson (viðbótarstyrkur); Kjartan Egg- ertsson Passíusálmasöngvar; Baldur Hafstað og Haraldur Bessason, Úr manna minnum; JPV útgáfa, Björg C. Þorláksson eftir dr. Sigríði Dúnu Krist- mundsdóttur; Bókaútgáfan Iðunn, Jón Sigurðsson – ævisaga. 1. bindi, eftir Guðjón Friðriksson; Ormstunga ehf., Leikrit Guð- mundar Steinssonar, Heildar- útgáfa. Ritstjórn Jón Viðar Jóns- son. 400.000 kr.: Fósturmold ehf., Ferð um Ísland 1809. William Jackson Hooker. Þýðandi Arn- grímur Thorlacius. 300.000 kr.: Minningarsjóður Jóhanns Guðmundssonar, Réttarstaða fatl- aðra á Íslandi eftir Brynhildi G. Flóvens; Sögusteinn, Kaupmenn og verslun á Íslandi 1. bindi. Lýð- ur Björnsson, Þorsteinn Jónsson, Gylfi F. Gröndal; Bókmennta- fræðistofnun Háskóla Íslands, Gísli Brynjúlfsson, ljóð. Sveinn Yngvi Egilsson annast útgáfuna; Fósturmold ehf., Völuspá, Sona- torrek og 12 lausavísur Egils með skýringum eftir Þráin Löve; Fjöl- menning ehf., Hér er íslenska, um íslensku, frá íslensku, til not- hæfrar íslensku eftir Ingibjörgu Hafstað og Birnu Arnbjörns- dóttur; Ólafur Elímundarson, Kirkjur undir Jökli; Mál og menning, til þriggja verka: Sögur úr Njálu fyrir börn og unglinga eftir Brynhildi Þórarinsdóttur og Sigþrúði Gunnarsdóttur, Reisu- bók Guðríðar Símonardóttur eftir Steinunni Jóhannesdóttur og Sjálfsævisögur kvenna eftir Ragnhildi Richter; Hið íslenska bókmenntafélag, Annálar 1400– 1800. Lykilbók II eftir Einar Arn- alds, (viðbótarstyrkur); Sögu- félag, Sýslu- og sóknalýsingar Dalasýslu 1839–1843. Ritstj. Ein- ar Gunnar Pétursson og Svavar Sigmundsson; Jón Ma. Ásgeirs- son, Tómasarguðspjall. Fimmta guðspjallið; Orðanefnd RVFÍ, Raftækniorðasafn 9. Ritstjóri Bergur Jónsson; Skjaldborg ehf. bókaútgáfa, Alfræðibókin um golf eftir Ingimar Jónsson; Sögufélag, Saga og minni eftir Einar Lax- ness; Almenna bókafélagið – Edda miðlun og útgáfa, Sálfræði einkalífsins eftir Guðfinnu Eydal og Álfheiði Steinþórsdóttur; Kristín R. Thorlacius, Hvað er maðurinn eftir Rögnvald Finn- bogason; Starfshópur fyrrverandi kennara við Æfingaskólann, Þró- unarstarf í Æfingaskóla Kenn- araháskóla Íslands. Guðmundur Kristmundsson, Ólafur Jóhanns- son og Ragnhildur Helgadóttir. 250.000 kr.: Bjarni Harðarson Þjóðsögur og örnefni í Árnes- þingi; Pétur Pétursson, Trúar- legar hreyfingar á Íslandi fyrstu áratugi 20. aldar; Körfuknatt- leikssamband Íslands, Leikni framar líkamsburðum. Saga körfuknattleiks á Íslandi í hálfa öld. 200.000 kr.: Mál og mynd ehf., Holdsveiki á Íslandi eftir Erlu D. Halldórsdóttur; Erlendur Jónsson, Bókin og bakröddin; Franz Gíslason Danskt-íslenskt, íslenskt-danskt sjómennsku- og tækniorðasafn; Andri Steinþór Björnsson, Undirstöður eðlis- fræði. Merkustu kenningar eðl- isfræði í sögulegu ljósi; Forlagið, Rokk á síðustu öld eftir Gunnar Lárus Hjálmarsson; Mál og menn- ing, tvö verkefni: Veðurbókin eft- ir Trausta Jónsson og Þingvalla- vatn. Ritstjórar Pétur M. Jónasson og Páll Hersteinsson; Voces Thules, Þorlákstíðir í þýð- ingu Þórarins Eldjárns; Hið ís- lenska þjóðvinafélag, Andvari. Ritstjóri Gunnar Stefánsson; Jón Viðar Jónsson, Safn til sögu ís- lenskrar leiklistar og leik- bókmennta 2. og 3. bindi, (við- bótarstyrkur); Héraðsskjalasafn og Byggðasafn Skagfirðinga, Sturlungaöld í Skagafirði eftir Árna Daníel Júlíusson; Hugvís- indastofnun, Virðing í þjóðveld- inu eftir Helga Þorláksson; El- ísabet Indra Ragnarsdóttir, Íslenski tónlistararfurinn. 150.000 kr.: Kristján Baldursson, Hið fagra land vonanna; Jón R. Hjálmarsson Íslendingasögur við þjóðveginn. 44 styrkir úr Menningarsjóði ÆFINGAR eru hafnar á Vatni lífsins sem verður fyrsta frumsýn- ingin á Stóra sviði Þjóðleikhússins í haust. Höfundur er Benóný Æg- isson en fyrir verkið hlaut hann 2. verðlaun í leikritasamkeppni Þjóð- leikhússins sumarið 1999, ásamt Þórarni Eyfjörð. Vatn lífsins segir frá ungum hugsjónamanni sem berst fyrir framförum í íhaldssömu samfélagi um aldamótin 1900. Leikrit um hugsjónir, framfaravilja og sam- stöðu, andspænis íhaldssemi, svik- um og svo því óviðráðanlega og brothætta í manninum. Í umsögn dómnefndar sam- keppninnar sem skipuð var eftir- töldum starfsmönnum Þjóðleik- hússins, þeim Stefáni Baldurssyni, Tinnu Gunnlaugsdóttur og Mel- korku Teklu Ólafsdóttur, segir m.a.: „Hér er á ferðinni allsérstætt verk, bæði hvað varðar efnivið og efnistök, sem býr yfir ljóðrænu seiðmagni. Höfundur segir átaka- mikla og viðburðaríka sögu, þar sem margir örlagaþræðir fléttast saman. Hér er fjallað um ákveðið skeið í íslenskri sögu en engu að síður er verkið skáldskapur um persónuleg og samfélagsleg átök sem hefur sig yfir tíma og rúm. Vatn lífsins er spennandi sviðs- verk, sem fjallar um íslenskan veruleika og sögu á skáldlegan hátt og býður upp á áhugaverða mögu- leika í uppsetningu.“ Leikendur í Vatni lífsins eru Stefán Karl Stefánsson, Nanna Kristín Magnúsdóttir, Atli Rafn Sigurðarson, Anna Kristín Arn- grímsdóttir, Jón Páll Eyjólfsson, Þórunn Lárusdóttir, Jóhann Sig- urðarson, Marta Nordal, Tinna Gunnlaugsdóttir, Valdimar Örn Flygenring, Hjalti Rögnvaldsson, Randver Þorláksson, Kjartan Guð- jónsson, Edda Arnljótsdóttir, Gunnar Eyjólfsson, Þröstur Leó Gunnarsson, Valur Freyr Einars- son, Guðmundur Ingi Þorvaldsson. Leikstjóri er Þórhallur Sigurðs- son, höfundar leikmyndar Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir, höfundur búninga Filippía I. Elísdóttir, lýs- ingu annast Páll Ragnarsson. Morgunblaðið/Þorkell Leikstjóri ásamt höfundi og leikurum á fyrsta samlestri á Vatni lífsins. Þjóðleikhúsið farið að huga að næsta leikári Æfa Vatn lífsins ÚTSKRIFTARTÓNLEIKAR Við- ars Guðmundssonar píanóleikara og Halldóru Bjarkar Friðjónsdóttur sópransöngkonu frá Tónlistarskóla Borgarfjarðar verða í Borgarnes- kirkju á sunnudag kl. 17. Viðar hóf nám í píanóleik við Tón- listarskóla Borgarfjarðar árið 1991 og hefur verið nemandi Jaceks Tos- ik-Warszawiak frá hausti 1994. Hall- dóra stundaði söngnám við Söng- skólann í Reykjavík, en hefur verið nemandi Dagrúnar Hjartardóttur við Tónlistarskóla Borgarfjarðar frá árinu 1996. Meðleikari Halldóru er Zsuzsanna Budai. Halda tónleika í Borgarneskirkju Halldóra Björk Friðjónsdóttir og Viðar Guðmundsson. FRANSKI rit- höfundurinn, há- skólakennarinn og fræðimaður- inn Guy Scarp- etta heldur fyrir- lestur í Odda á mánudag kl. 17 og hjá Alliance Française nk. þriðjudagskvöld kl. 20, auk þess sem hann mun taka þátt í hringborðsumræðum í Reykavíkurakademíunni. Í Odda mun hann fjalla um François Rabe- lais og verk hans, Gargantúi og Pantagrúll sem kom út í íslenskri þýðingu Erlings E. Halldórssonar fyrir nokkrum árum, en á þriðju- dagskvöld fjallar hann um strauma og stefnur í skáldsagnalist samtím- ans, einkum út frá skáldsögum Mil- ans Kundera, en nokkrar þeirra hafa komið út á íslensku. Fyrirlestrarnir verða báðir fluttir á frönsku en verða túlkaðir á íslensku jafnóðum. Guy Scarpetta er einn þekktasti rithöfundur og bókmenntagagnrýn- andi Frakka og hefur um árabil verið áberandi í opinberri umræðu um bókmenntir og listir þar í landi. Hann hefur skrifað fjórar skáldsög- ur sem gefnar eru út af einu stærsta forlagi Frakklands, Grasset, og hlaut hann bókmenntaverðlaun frönsku akademíunnar fyrir eina þeirra, Ljóðrænu svítuna, árið 1992. Scarpetta kemur hingað til lands í boði sendiráðs Frakka á Íslandi í samstarfi við frönskudeild Háskóla Íslands, Reykjavíkurakademíuna og Alliance Française. Guy Scarpetta með fyrirlestra Guy Scarpetta

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.