Morgunblaðið - 11.05.2001, Qupperneq 59

Morgunblaðið - 11.05.2001, Qupperneq 59
UMRÆÐAN ÉG er ein hinna heppnu – ég fékk að læra á hljóðfæri á næmustu barnsárunum. Það var ekki alltaf gaman og iðulega dratt- aðist ég í spilatíma sveitt í lófum af kvíða af því að ég hafði gleymt að æfa mig heima. Samt hélt ég út í ellefu ár, lík- lega vegna þess að tón- listarnámið var miklu oftar skemmtilegt. Eða kannski hef ég ung gert mér grein fyrir mótandi áhrifum tónlistarinnar og hvaða þátt hún átti í að gera mig að mér. Ég er þakklát sjálfri mér fyrir að gefast ekki upp, foreldrum mínum fyrir að fjárfesta í tónlistaruppeldi og samfélaginu fyrir að hafa það í boði á viðráðanlegu verði. Ég er sannfærð um að tónlistarnám skilar einstak- lingum og samfélagi margfalt því sem í það er lagt. Dútl og dægrastytting? Tónlistarnám snýst ekki bara um að læra á hljóðfæri. Tónlistin krefst sjálfsaga af iðkendum sínum og þeir læra að endurtaka hlutina aftur og aftur þar til öryggi fæst. Tónlistin samræmir hug og hreyfingar, kennir okkur að hlusta og heyra og verða læs á önnur tákn en stafrófið. Sá sem er læs á nótur hefur eignast innsýn í margbreytileika menningarinnar. Tónlist er túlkun og tónlist er sköpun. Skapandi þátturinn æfir rök- hugsun jafnt sem hugarflug. Túlkun- in hvetur til sjálfskoðunar, eykur innsæi og skilning á orðlausum tján- ingarformum. Meirihluti mannlegra samskipta fer fram án orða – en hvar lærum við að túlka og skilja þann tjáningarmáta? Til dæmis í tónlistar- skólum.Tónlistariðkun er ekki bara dútl og dægrastytting heldur eflir hún hinar ýmsu tegundir greindar. Sá hluti mannkynssögunnar sem kenndur er í tónlistarskólum er líka nytsöm lexía. Tónlistarsagan snýst aðeins að hluta til um kónga og stríð, en aðallega um sköpunarmátt mannshugans og hvaða áhrif hvert örstutt tónbil hefur haft á framþróun mannkyns. Síðast en ekki síst kenna tónlistar- skólakennarar nemendum sínum kúnstina að koma fram. Að miðla því sem þeir hafa til málanna að leggja og láta rödd sína heyrast, sem er mik- ilvæg menntun í lýðræðissamfélagi. Einhverra hluta vegna hefur þó rödd tónlistarskólakennara sjálfra ekki heyrst nægilega vel í kjarabar- áttunni, en þeir þiggja lægst laun allra kennara. Tónlistarskólakennari með háskólapróf, kennsluréttindi og áratuga fagnám hefur 102.210 kr. í byrjandalaun. Tónlist í dreifðum byggðum Mikilvægi tónlistarinnar rann fyrst að fullu upp fyrir mér þegar ég flutti út á land. Mig hafði aldrei grun- að að flutningur í eina af afskekkt- ustu sveitum landsins yrði til þess að ég færi að læra söng hjá sprenglærð- um doktor í músíkfræðum. En í litlum samfélögum tekur maður sér það fyrir hendur sem í boði er og blessunarlega býðst börnum jafnt sem fullorðnum um land allt nám við tón- listarskóla þar sem starfa fjölmenntaðir og færir tónlistarmenn. Starf þessara öflug- ustu menningarstofn- ana landsins hefur ekki bara skilað okkur tón- listarmönnum sem skapa sér atvinnu og þjóðarbúinu tekjur heldur líka grasrót sem nýtir nám sitt á marg- víslegan hátt. Án gras- rótar verða ekki til at- vinnumenn og öfugt því að amatörar og elíta haldast alltaf í hendur. Menn- ingin er ekki eyland heldur hluti af samfélagi og atvinnulífi. Við megum vera stolt af því mikla afreki sem uppbygging tónlistarlífs í landinu er og hve vel menntaður almenningur er í tónlist. Látum þetta ekki leggjast af vegna lélegra kjara tónlistarskóla- kennara. Carmen að afloknum vinnudegi Ég býst við að fjöldi Íslendinga í söngnámi miðað við höfðatölu sé heimsmet. Líklega stundar allt þetta fólk, sem ekki ætlar að verða atvinnu- söngvarar, nám sitt vegna þess að það hefur ekki fundið annað tóm- stundagaman jafn þroskandi. Í söng- námi fær maður svo margs konar menntun í einum pakka. Söngurinn er líkamsrækt. Hann eykur tilfinningu fyrir réttri líkams- stöðu og bætir öndun. Í söngnum verður maður að leggja hug sinn, hjarta, lungu og líkamann allan und- ir. Söngurinn vinnur gegn feimni og eykur sjálfsöryggi. Söngnám er eilíft ferðalag upp í móti, en á leiðinni eru margir toppar. Líðanin er ólýsanleg þegar langþráðum toppi er náð þótt enn sé langt á hæsta tindinn. Það eykur mannskilning og dýpk- ar tilfinningar að syngja. Getur það verið annað en mannbætandi að syngja allar þessar aríur sem fjalla um heitustu tilfinningar mannins? Að setja sig í spor hetja óperubók- menntanna og fá að vera Carmen eða Aida að afloknum vinnudegi? Söng- nám er líka bókmenntanám og fram- burðarkennsla í helstu þjóðtungum álfunnar. Í samsöngstímum æfumst við í því sem Íslendingar eiga svo erf- itt með – að hrósa og gagnrýna og taka hrósi og gagnrýni. Söngnámið er ekki síst skóli í mannlegum sam- skiptum. Söngkennarinn minn hefur mast- erspróf og tveggja ára post master auk áratuga tónlistarnáms og sí- menntunar á sviði söngs. Hann er með 139.781 kr. í mánaðarlaun. Það eru hæstu laun sem hann getur feng- ið í sínum aldursflokki. Með því að helga sig kennslu allt lífið getur hann komist í 155.724 króna mánaðarlaun. Án tónlistar væri fólk fáránlegt á dansgólfinu Við tökum ekki alltaf eftir henni, hún er bara þarna eins og æðaslátt- urinn. En kæmumst við af án tónlist- ar? Hvernig færum við til dæmis að því að sleppa fram af okkur beislinu – sem er afar heilsusamleg iðja? Það er gott að til er tónlist, sagði sænski spaugarinn Hasse Alfredsson, ann- ars liti fólk svo fáránlega út á dans- gólfinu! Hvernig færum við að því að dansa, stunda leikfimi, slappa af, ein- beita okkur eða lyfta hug í hæðir án tónlistar? Tónlistarkennarar fá með launaseðlum sínum þau skilaboð frá þjóðinni að starf þeirra sé lítils virði. Finnst okkur það í raun og veru? Launaseðlar tón- listarskólakennara Björg Árnadóttir Kjör Tónlistarkennarar fá með launaseðlum sínum þau skilaboð frá þjóð- inni, segir Björg Árna- dóttir, að starf þeirra sé lítils virði. Höfundur er símenntunarstjóri Fjölbrautaskólans við Ármúla. Fyrsti 594 6000 Nýtt símanúmer: S k ú t u v o g u r 1 2 a BOMAG BG 190 T er 17,7 tonna hefill með afturdrifi. Þetta er stærsti hefillinn í Bomag línunni! Aðrar stærðir: BG 160 - 14 tonn BG 110 - 11 tonn BG 90 - 7,5 tonn Allar gerðir eru fáanlegar með fjórhjóladrifi.Merkúr óskar Jóhannesi Guðmundssyni á Selfossi (Jóa hefli) til hamingju með fyrsta Bomag hefilinn og megi honum „heflast“ vel í framtíðinni! Til sýnis föstudag og laugardag. veghefillinn á Íslandi MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2001 59
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.