Morgunblaðið - 11.05.2001, Side 62
UMRÆÐAN
62 FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
EKKI átti ég von á
því að greinarstúfur
sem ég skrifaði í Morg-
unblaðið fyrir páska
um einsemd karla og
sjálfsvíg myndi vekja
jafn sterk viðbrögð og
raun hefur orðið.
Spurningarnar sem
mér bárust voru marg-
ar og persónulegar og
mun ég ekki gera grein
fyrir þeim hér, enda
trúnaðarmál. En þær
spurningar sem
brunnu á mörgum
voru: Hvernig brýst
maður út úr skelinni og
hvar getur maður feng-
ið hjálp?
Að brjótast út úr skelinni
Það er engin ein allsherjar lausn á
þessu og í raun er best að ræða slíkt
persónulega við hvern og einn. Ein
möguleg leið fyrir suma er að taka
þátt í hópum þar sem markmiðið er
að ræða opið um tilfinningar sínar, að
þora að opna sig tilfinningalega
gagnvart öðrum körlum. Athuganir
sem ég hef gert á innra starfi slíkra
hópa í Svíþjóð benda til þess að best-
ur árangur náist ef hópurinn er
stofnaður kringum eitthvað sérstakt
vandamál t.d. áfengisnotkun (AA-
hópur), ástvinamissi eða skilnað
(sorgarhópar), krabbamein (sjúk-
lingahópar) o.s.frv. Vandamálið
verður þá eins konar löggild afsökun
fyrir að mæta á staðinn. Tjáning og
vinnsla með tilfinningar kemur síðan
í kjölfarið ef vel tekst til. Þó hafa hóp-
ar karla verið settir á
laggirnar sérstaklega
til að treysta tilfinn-
ingaleg vináttubönd.
Oft hafa menn fyrir-
fram ákveðið fundar-
efni fyrir hvern fund til
að opna umræðuna.
Síðan reynir á að ein-
hver eða einhverjir í
hópnum þori að leiða
spjallið inn á persónu-
legra plan.
Hvað um yngri
karlmenn?
Ýmislegt bendir til
þess að fleiri yngri karl-
menn séu tilfinninga-
lega opnir en þeir sem eldri eru.
Rannsóknir sýna m.a. að það er beint
samband milli tilfinningalegrar ein-
angrunar (að geta ekki treyst nein-
um fyrir tilfinningalegri vanlíðan) og
aldurs. Ástæðan er líklega sú að því
eldri sem maðurinn er því líklegra er
að hann hafi misst maka sinn af ein-
hverjum ástæðum. Það eru þó ekki
til neinar faraldsfræðilegar rann-
sóknir sem sýna að karlmenn um tví-
tugt eigi fleiri trúnaðarvini en karl-
menn um fimmtugt.
Ýmsir fræðimenn telja samt að
viðhorfsbreytinga gæti a.m.k. í viss-
um þjóðfélagshópum, sem auðveldi
yngri karlmönnum að vera tilfinn-
ingalega opnir. Hins vegar þarf það
ekki að þýða að strákur á tvítugsaldri
í dag verði ekki orðinn nákvæmlega
sama skeldýrið og pabbi hans eftir
þrjátíu ár.
Um þetta vitum við einfaldlega
ekki nógu mikið. Tískusveiflur í við-
horfum þurfa ekki að leiða til viðvar-
andi breytinga í hegðun nema menn
sjái til þess að rækta þau tilfinninga-
sambönd sem eru til staðar og skapi
sér aðstöðu til þess. Annars er hætt
við að skelin harðni með árunum.
Fjögurra manna borð fyrir einn
Einu sinni um jólaleytið fyrir
nokkrum árum gekk ég framhjá
gömlum rótgrónum matsölustað í
Reykjavík. Ég nam staðar í nýfölln-
um snjónum og horfði inn um óhrein-
an gluggann. Ég renndi augunum yf-
ir salinn sem var hálffullur af
gömlum og miðaldra karlmönnum,
sem sátu einir við fjögurra manna
borð og sötruðu kaffi eða mauluðu
jólaköku. Þeir sátu þarna allir saman
í hóp en samt svo einir. Við fjögurra
manna borð fyrir einn. Þessi mynd
festist svo sterkt í huga mér að hún
kemur upp aftur og aftur þegar ég
hugsa um einsemd karla. Meðan
konur eru markvisst að brjóta af sér
þá efnahagshlekki, sem hafa gert
þær háðar eiginmönnum sínum, sitja
alltof margir karlar eftir í tilfinninga-
fjötrum. Háðir þeirri konu sem þeir
búa með, jafnvel þó allar forsendur
fyrir sambandinu séu löngu brostn-
ar. Dæmdir til þess, ef hún hverfur,
að hlaupa inn í nýtt samband eins
fljótt og auðið er eða sitja einir í hópi
við fjögurra manna borð, fyrir einn.
Líflínan og Ný dögun
Nokkrir höfðu samband við mig
sem áttu um sárt að binda eftir að ná-
kominn hafði svipt sig lífi. Þó ég
reyni að svara öllum persónulega eft-
ir bestu getu, vil ég samt benda á
þann möguleika að taka þátt í starfi
Nýrrar dögunar (sorgarsamtak-
anna). Þar er fólk með svipaða
reynslu og þar hafa margir fundið
styrk. Allir sem eiga við þunglyndi að
stríða ættu að leita aðstoðar hjá geð-
lækni og ekki að hika við að nota þau
lyf sem standa til boða. En ekki er
síður mikilvægt að koma sér upp ein-
hverjum trúnaðaraðila sem hægt er
að treysta fyrir erfiðum tilfinningum.
Það geta verið vinir, fólk í samtökum
með svipaða reynslu eða sérfræðing-
ar sem bundnir eru þagnarskyldu.
Ýmsir geðlæknar og sálfræðingar
hafa sérhæft sig í slíkum stuðningi
og eins búa margir prestar yfir mik-
illi reynslu og þekkingu á svona mál-
um. Fyrir nokkru voru stofnuð sam-
tökin Sókn gegn sjálfsvígum. Þau
samtök reka símaþjónustu allan sól-
arhringinn „Líflínuna“, í síma 577
5777, fyrir fólk í sjálfsvígshugleiðing-
um. Eitt samtal getur skilið milli lífs
og dauða.
Einsemd karla
og sjálfsvíg
Ásgeir R.
Helgason
Höfundur er sálfræðingur og doktor
í læknavísindum.
Þunglyndi
Allir sem eiga við
þunglyndi að stríða,
segir Ásgeir R. Helga-
son í síðari grein sinni,
ættu að leita aðstoðar
hjá geðlækni.
NÝLEGA var aug-
lýst eftir tveimur yf-
irlæknum í krabba-
meinslækningum á
lyflækningasvið II
hins nýja háskóla-
sjúkrahúss og á annar
að hafa sérþekkingu í
geislameðferð krabba-
meina og hinn í lyf-
lækningum krabba-
meina (Morgunblaðið
29. apríl). Slíkar aug-
lýsingar vekja al-
mennt litla athygli
nema meðal þeirra
lækna sem eru í at-
vinnuleit eða á frama-
braut innan kerfisins.
Hér liggur þó meira að baki og
endurspeglast það af orðalagi áð-
urnefndrar auglýsingar og nýleg-
um blaðaummælum framkvæmda-
stjóra lækninga hins nýja
háskólasjúkrahúss Landspítala við
Hringbraut, Fossvogi og víðar (DV
4. maí).
Forsaga málsins
Á undanförnum árum hefur ver-
ið stefnt að hagræðingu innan heil-
brigðisþjónustunnar m.a. með
sameiningu sjúkrahúsa í Reykja-
vík. Fyrst var Landakotsspítali
sameinaður Borgarspítala sem þá
hét Sjúkrahús Reykjavíkur. Á
árinu 2000 var Sjúkrahús Reykja-
víkur síðan sameinað Landspítal-
anum og hið nýja sjúkrahús fékk
nafnið Landspítalinn háskóla-
sjúkrahús (LSH) sem á að end-
urspegla tengsl sjúkrahússins við
Háskóla Íslands. Þessu sameining-
arferli var stjórnað frá ráðuneyti
heilbrigðismála og var fyrrum
ráðuneytisstjóra úr fjármálaráðu-
neytinu, Magnúsi Péturssyni, falið
að veita þessu ferli forstöðu og
endurspeglar það fjárhagslega hlið
málsins.
Framkvæmdastjórn LSH
Frá upphafi var ljóst að end-
urskilgreina yrði hlutverk háskóla-
sjúkahússins með tilliti til ýmiss
konar þjónustu og kom það m.a
fram í skipan framkvæmdastjórn-
ar sjúkrahússins, en hana skipa
auk forstjóra fimm framkvæmda-
stjórar sem eru yfirmenn fjár-
reiðu/upplýsinga, tækni/eigna,
hjúkrunar, lækninga og kennslu/
fræða. Það sem hér vekur athygli
er að starfssviði fyrrum lækninga-
forstjóra er nú skipt milli tveggja
aðila þar sem annar stjórnar lækn-
isfræðilegri þjónustu og hinn
kennslu og fræðum. Tilgangur
þessarar breytingar er að undir-
strika tvíþætt hlutverk sjúkra-
hússins með tilliti til
þjónustu og vísinda.
Hagræðing
Öllum má vera ljóst
að sameining þessara
tveggja sjúkrahúsa
myndi ekki leiða til
sparnaðar nema hag-
rætt yrði í mannafla
og tækjabúnaði
þeirra. Starfsemi af
svipuðum toga er rek-
in á báðum sjúkrahús-
unum og var vandi
hinnar nýju fram-
kvæmdastjórnar m.a.
að ákveða hvaða starf-
semi yrði flutt á milli
stofnana og sameinuð á einum
stað. Hefur þegar verið rætt í fjöl-
miðlum um vandamál tengd sam-
einingu þvagfæraskurðlækninga á
Landspítala við Hringbraut. Nú
hefur verið ákveðið að sameina
krabbameinslækningar á sama
stað.
Vandamál sem skapast við slíka
sameiningu eru að hluta tengd
hagræðingu í mannafla og stjórn-
un þessara deilda, sem óhjákvæmi-
lega falla aðallega á herðar fram-
kvæmdastjóra hjúkrunar og
lækninga. Þessum aðilum er því sá
vandi á höndum að standa að þess-
ari sameiningu á þann veg að
ímynd hins nýja háskólasjúkrahúss
skaðist ekki og torveldi ekki sam-
einingu annarra sjúkradeilda sem
óhjákvæmilega er í farvatninu.
Ætla mætti að framkvæmdastjórn
myndi því draga lærdóm af þeim
stjórnunarlegu vandamálum sem
komu fram við sameiningu deilda
þvagfæraskurðlækninga, en svo
virðist í fljótu bragði ekki vera.
Krabbameinslækningar
Uppbygging þessarar meðferðar
hefur verið ör hér á landi síðustu
20 árin. Frá upphafi hefur með-
ferðinni verið ætlaður staður á
Landspítala við Hringbraut. Þar
hafa starfað þeir sérfræðingar sem
hafa haft veg og vanda af þessari
uppbyggingu og þar er að finna
allan þann tækjabúnað sem nauð-
synlegur er til geislameðferðar
krabbameinssjúkra. Krabbameins-
deild Sjúkrahúss Reykjavíkur er
lítil meðferðareining sem var
stofnuð eftir sameiningu Landa-
kots og Borgarspítala, þrátt fyrir
yfirlýsta stefnu stjórnvalda að
sameina ætti alla meðferð þessara
sjúklinga á Landspítalanum. Því
virðist einkennilegt að sameining
Sjúkrahúss Reykjavíkur og Land-
spítala skuli leiða til þess að for-
stöðulækni og yfirlæknum við
HÁSKÓLASJÚKRA-
HÚSIÐ OG KRABBA-
MEINSLÆKNINGAR
Kristján
Sigurðsson
SKOÐUN
Veistu að nú
fást
líka Diesel b
arna-
föt í Krílinu?
Já og þ
au eru í
stærðum
2-14
Bankastræti 3,
sími 551 3635
Póstkröfusendum
Lífrænar jurtasnyrtivörur
24 stunda dag- og næturkrem
BIODROGA