Morgunblaðið - 11.05.2001, Blaðsíða 73
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2001 73
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
NAUT
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert gefinn fyrir íþróttir
og gefur þig allan í leikinn.
Það er lykillinn að vinsæld-
um þínum.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Hlutirnir virðast á fullri ferð í
kring um þig og þú átt fullt í
fangi með að fylgjast með.
Stígðu þá af hlaupabrettinu
og áttaðu þig á tilverunni.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Finnist þér þig skorta vitn-
eskju er engin ástæða til að
láta hugfallast. Leitaðu til
bóka og margmiðlunar, þar
finnast svör við flestu nútil-
dags.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þótt það sé freistandi að
leggja ýmislegt á sig til þess
að komast hjá rifrildi, eru þó
takmörk fyrir því sem öðru.
Málið er að þekkja takmörk-
in.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú þarft að gefa tilfinningun-
um smáfrí og velta hlutunum
fyrir þér af kaldri skynsemi.
Nú er tími til að sleppa ýmsu
sem þú hefur ríghaldið í.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Dragðu nú ekki lengur að
byrja á heilsubótinni, sem þú
hefur svo lengi horft til. Þú
hefur nægt þrek til að sinna
henni meðfram öllu hinu.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú mátt vera stoltur af verk-
um þínum, en betri er innri
ánægja en bægslagangur út á
við. Gefðu þér góðan tíma til
þess að sinna þínum nánustu.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þeir erfiðleikar sem þú átt í
eru að miklu leyti þér sjálfum
að kenna. Þeir eru því þitt
mál og þú vinnur þig út úr
þeim þegjandi og hljóðalaust.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú ættir að hafa augun hjá
þér og gæta að hverju því,
sem gæti orðið til vandræða
síðar meir. Með lítilli fyrir-
höfn gerir þú þér lífið mun
léttara.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Græddur er geymdur eyrir
og horfinn eyddur. Veltu
vandlega fyrir þér þeim fjár-
festingarkostum, sem freista
þín og gerðu ekkert að óat-
huguðu máli.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þótt þú hafir náð ákveðnum
áfanga í starfi er hreint ekk-
ert tækifæri til þess að slappa
af, heldur áttu að nota með-
byrinn til frekari afreka.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú þarft að venja þig af því að
fleyta aðeins ofan af hlutun-
um. Það endar bara með
ósköpum og enginn vill þá
vinna með þér eða kaupa
starf þitt.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú skalt setja þér ákveðin
takmörk og stefna svo að
þeim af ábyrgð og festu.
Láttu ekki freistast af tilboð-
um um skjótfenginn stundar-
gróða.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
ÚR NÚMARÍMUM
Akker vindast upp úr sjá,
ægir tautar viður;
seglin bindast húnum hjá,
hleypt er skautum niður.
Skeið á boða bökin þá
bólgin upp sig vegur;
spýtir froðu og öldum á
anda þungan dregur.
Rengur braka og reynist gnoð,
reflar flaka og digna;
stengum þjakar þunga voð,
þær svo taka að svigna.
STAÐAN kom upp á af-
mælismóti Kortsnojs sem
haldið var fyrir skömmu.
Hollendingurinn Jeroen
Piket (2628) hafði hvítt
gegn Yannick Pelletier
(2531). 17.Rxe6! fxe6
18.Dxe6 Re7 19.Rc5! axb5
20.Rxb7 Db6
21.Rd6 Kd8
22.Be3 Da6
23.Had1 Hg8
24.Hfe1 g5
25.Df7 Hg6
26.Re4 og
svartur gafst
upp enda
ræður hann
ekki við
margvíslegar
hótanir hvíts.
Skákin tefld-
ist í heild
sinni: 1.d4 d5
2.c4 c6 3.Rc3
Rf6 4.e3 e6
5.Rf3 Rbd7
6.Bd3 dxc4
7.Bxc4 b5 8.Bd3 Bb7 9.e4 b4
10.Ra4 c5 11.e5 Rd5 12.O-O
cxd4 13.Rxd4 Rxe5 14.Bb5
Rd7 15.Dh5 g6 16.De2 a6
o.s.frv. Lokastaðan í B-riðli
varð þessi: 1. Vladimir
Kramnik 3 ½ vinning af 5
mögulegum 2. Boris
Spassky 3 v. 3. Peter Svidl-
er 2 ½ v. 4. Viktor Kortsnoj
2 v. 5.-6. Werner Hug og
Florian Jenni 1 ½ v. At-
kvöld Skákfélags Akureyr-
ar fer fram í kvöld, 11. maí.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
HÉR er þriðja spilið frá
keppni sænsku og pólsku
landsliðshópanna. Nú fær
lesandinn undarlega
spurningu í byrjun. Suður
spilar sex spaða (eftir
mjög dulúðlegar sagnir,
sem óþarfi er að birta) og
það er augljóst eftir
skamma skoðun að slemm-
an er vonlaus. Og hún fór
líka niður. En spurningin
er þessi: Hvaða tvo slagi
fékk vörnin?
Norður
♠ D42
♥ 83
♦ Á976532
♣ Á
Vestur Austur
♠ K9 ♠ 108
♥ ÁDG975 ♥ 10642
♦ DG4 ♦ 108
♣ 75 ♣ KD863
Suður
♠ ÁG7653
♥ K
♦ K
♣ G10942
Fyrsta ágiskun og sú
eðlilegasta er þessi: Spaða-
kóng og hjartaás. En ekki
aldeilis. Vörnin fékk
hvorki slag á tromp né
hjarta!!!
Spilið gekk þannig fyrir
sig: Vestur kom út með
lauf, en makker hans hafði
meldað litinn á fyrri stig-
um og sýnt stuðning við
hjarta um leið. Sagnhafi sá
sér þá leik á borði. Hann
fór heim á tígulkóng,
trompaði lauf, henti
hjartakóng niður í tígulás
og trompaði tígulinn frían.
Nú var staðan þessi:
Norður
♠ D4
♥ 83
♦ 9765
♣ --
Vestur Austur
♠ K9 ♠ 108
♥ ÁDG975 ♥ 1064
♦ -- ♦ --
♣ -- ♣ KD8
Suður
♠ ÁG765
♥ --
♦ --
♣G109
Í suðursætinu var Mart-
en Gustawsson, en Pól-
verjinn í vestur var Zdzis-
ilaw Laszczak. Gustawsson
spilaði smáum spaða að
drottningunni í blindum.
Ef vestur tekur með kóng
á hann ekkert nema hjarta
til að spila, sem suður
trompar heima, spilar
blindum inn á spaðadrottn-
ingu þar sem fríslagirnir á
tígul bíða. En Laszczak
fann réttu vörnina – hann
dúkkaði! Blindur átti slag-
inn á drottninguna og nú
ákvað Gustawsson að tak-
marka tapið – hann spilaði
spaða á ásinn og gaf austri
tvo slagi á KD í laufi. Og
það voru sem sagt slagir
varnarinnar.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
Árnað heilla
85 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 11. maí,
verður 85 ára Kristín Ingi-
mundardóttir til heimilis að
Reynistað í Garði. Kristín
er að heiman.
75 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 11. maí,
er 75 ára Bjarni Jón Gott-
skálksson, fyrrv. bifreiða-
stjóri Stjórnarráðsins,
Gaukshólum 2, Reykjavík.
Bjarni verður að heiman á
afmælisdaginn.
50 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 11. maí,
verður fimmtugur Jóhann
V. Sveinbjörnsson, banka-
starfsmaður, Grashaga 16,
Selfossi. Eiginkona hans er
Ólöf Bergsdóttir. Þau verða
að heiman á afmælisdaginn.
50 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 11. maí,
verður fimmtugur Þor-
steinn Jóhannesson, yfir-
læknir Fjórðungssjúkra-
hússins á Ísafirði. Í tilefni
þess taka hann og kona
hans, Friðný Jóhannesdótt-
ir, á móti gestum í sal frí-
múrara á afmælisdaginn frá
kl. 18-21.
10, 12 og 14 tommu
Verð frá kr. 1.500
Wokpanna, gæði í gegn
Klapparstíg 44 - sími 562 3614
Laugavegi 54 — sími 552 5201
Hörskyrtur frá 2.990
Hörskokkar frá 2.990
Hörbuxur frá 3.990
Stærðir 36-46
FRÉTTIR
GK Reykjavík og Örn Arnarson sundmaður hafa gert með sér samning
um að Örn sé klæddur í fatnað frá GK Reykjavík næsta árið. Hug-
myndin er að Örn þurfi ekki að hafa áhyggjur af útliti sínu, aðeins ár-
angri.
Morgunblaðið/Golli
Gera með sér samning
ÞÓRÐUR Ægir Óskarsson sendi-
herra hefur afhent Thomas Klestil,
forseta Austurríkis, trúnaðarbréf
sitt sem sendiherra Íslands í Aust-
urríki.
Húsnæði sendiráðsins er á sama
stað og fastanefnd Íslands gagnvart
ÖSE: Naglergasse 2/8, 1010 Vín/
Vienna Austurríki/Austria.
Sími sendiráðsins: + 43 1 533-
2771, Telefax: + 43 1 533-2774. Net-
fang: icedel.vienna@utn.stjr.is. Ís-
lenskir starfsmenn sendiráðsins eru
Emil Breki Hreggviðsson sendi-
ráðsritari og Sigrún Andrésdóttir
ritari.
Afgreiðslutími sendiráðsins er
mánud.–föstud. kl. 8.30–16.30.
Sendiráð opnað í Austurríki