Morgunblaðið - 16.05.2001, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 16.05.2001, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ MINNIHLUTI stjórnarandstöð- unnar í samgöngunefnd Alþingis er ekki einhuga í áliti sínu um frumvarp samgönguráðherra um sölu á hlutafé ríkissjóðs í Landssímanum og hefur þess vegna lagt fram tvö ólík álit um málið fyrir 2. umræðu. Fulltrúi Vinstri grænna, Jón Bjarnason, leggst eindregið gegn áformum um einkavæðingu Símans, en fulltrúar Samfylkingarinnar, þeir Lúðvík Bergvinsson og Kristján L. Möller, leggja fram eina breytingartillögu við frumvarpið, þess efnis að grunn- netið verði undanskilið áður en til sölu hlutafjárins kemur. Fram kom í Morgunblaðinu í gær, að meirihluti samgöngunefndar Al- þingis hafnar með öllu hugmyndum um að skilja grunnnetið frá Lands- símanum. Nefndin segir að fyrir því liggi m.a. tæknilegar ástæður en sér- fræðingar telji að aðskilnaður grunn- netsins frá annarri starfsemi myndi leiða til vandkvæða og erfiðleika í þróun þess með þeim afleiðingum að þjónusta við notendur versnaði. Þá mundi það rýra verðmæti fyrirtæk- isins verulega og hafa aukinn kostn- að í för með sér fyrir notendur. Í áliti minnihluta Samfylkingar- innar í nefndinni kemur m.a. fram það mat að með því að selja fyrirtæk- ið í einu lagi sé verið að skapa einu fyrirtæki yfirburðastöðu á markað- inum. Sú staða geri alla samkeppni mjög erfiða og sé ólíklegt að opinber- ar eftirlitsstofnanir geti tryggt að slíkt fyrirtæki misnoti ekki markaðs- ráðandi stöðu sína. „Fyrsti minnihluti óttast að sala á fyrirtækinu í einu lagi leiði af sér mikinn mun á aðstöðu landsbyggðar og höfuðborgar til að nýta möguleika upplýsingabyltingarinnar. 1. minni- hluti telur því nauðsynlegt að verð á leigulínum til fyrirtækja á lands- byggðinni og höfuðborgarsvæðinu verði jafnað en nú er verðlagningin þannig að landsbyggðarfyrirtæki borga allt að tíu sinnum hærri fjár- hæð en fyrirtæki á höfuðborgar- svæðinu,“ segir í álitinu. Landssíminn óskiptur með forskot Ennfremur kemur þar fram að nú- verandi eignarhald Landssímans á grunnfjarskiptakerfinu veiti fyrir- tækinu verulegt forskot á keppinaut- ana. Þetta forskot muni haldast verði fyrirtækið selt í einu lagi. „Verð- mætamat fyrirtækisins tekur mið af þessari yfirburða- og einokunarstöðu og þau rök eru færð fram að í henni felist stór hluti verðmætis fyrir- tækisins. Vegna hennar fáist hærra verð fyrir fyrirtækið en ef því væri skipt upp. ... Vegna eignarhalds Landssímans á grunnnetinu eru keppinautar hans á öðrum sviðum óhjákvæmilega einnig viðskiptavinir hans, þ.e. fyrirtækið hefur tekjur af starfsemi keppinautanna. Með því að selja fyrirtækið þannig að eignar- haldið á grunnneti verði í höndum sömu aðila verður Landssímanum í sjálfsvald sett hvernig kerfið verður byggt upp og þarf ekki að taka mið af öðru en hagsmunum fyrirtækisins í þeim efnum. Í reynd leiðir þetta til þess að fyrirtækið getur ráðið því hvar og hvenær keppinautarnir geta boðið viðskiptavinum sínum þjón- ustu.“ Þá er í álitinu kastljósinu beint að landsbyggðinni og áhrifum sölu Landssímans á fjarskiptaþjónustu úti á landi og sagt að komið hafi fram mjög sterkar vísbendingar um að þjónustustig grunnnetsins í óskiptu félagi muni halda áfram að verða verulega lakara úti á landi en á höf- uðborgarsvæðinu. Grunnstoð sem ekki má lúta lögmálum markaðarins Í áliti Jóns Bjarnasonar er litið yf- ir fjarskipti Íslendinga í sögulegu ljósi, en um leið lagst harkalega og mjög eindregið gegn áformum stjórnvalda. „Fjarskiptaþjónusta er ein af grunnstoðum almannaþjónustu í landinu. Þessi þjónusta má ekki lúta þeim lögmálum markaðarins að arð- semiskrafa eigenda ein sé drifkraft- ur reksturs og þjónustu. Sjálfsagt er að gæta allra almennra hagkvæmni- og rekstrarsjónarmiða og gera kröf- ur um aukna þjónustu. Landssími Ís- lands á áfram að vera sameign þjóð- arinnar og styrk hans á að nýta til hins ýtrasta til að byggja upp gott fjarskiptakerfi sem nær til allra landsmanna án mismununar í verði eða gæðum. Fari svo sem horfir og fyrirtækið verður selt er sú hætta yf- irvofandi að þessi almannaþjónusta verði ofurseld einkareknu einokun- arfyrirtæki, jafnvel í meirihlutaeign útlendinga,“ segir í áliti hans. Þá er rifjað upp að árið 1906 komst á ritsímasamband við umheiminn frá Seyðisfirði. Allar götur síðan hafi aukin og bætt fjarskiptaþjónusta verið hluti af sjálfstæðisbaráttu Ís- lendinga og tengt þá saman sem eina þjóð. Þá er þess getið að Landssím- inn sé hluti af innbúi allrar þjóðar- innar, eins konar „fjölskyldusilfur“ allra heimila landsins. Sjálfsagt sé að gæta eðlilegra rekstrar- og hag- kvæmnisjónarmiða, en fyrirtækið eigi áfram að vera í eigu þjóðarinnar. Verðmætið ekki aðeins fólgið í tækjum og tólum „Undirritaður minnist þess í barn- æsku að þegar verið var að leggja símann um sveitirnar var sú kvöð á bændum og landeigendum að hver varð að sjá um dreifingu símastaur- anna þar sem línan fór í gegnum þeirra land. Var það gert á hestum þar sem dráttarvélum varð ekki við komið, staurarnir dregnir eða bornir á höndum þar sem verst var yfirferð- ar. Íbúar úti um allt land tóku virkan þátt í uppbyggingu þessarar al- mannaþjónustu og töldu ekki eftir sér,“ segir ennfremur í ítarlegu áliti Jóns Bjarnasonar og fullyrt að Landssíminn hafi verið eitt af sam- einingartáknum þjóðarinnar sem hver og einn landsmaður hefur verið tengdur við og fundið að hann gat gert félagslegar kröfur til. Með sölu Landssímans verði þessi hluti þjóð- arsálarinnar seldur. „Verðmæti Landssímans er því ekki aðeins fólgið í tækjum og tólum, línum, húsum og þekkingu starfs- fólks heldur er verðmæti hans ekki hvað síst sú staðreynd að hann hefur í nærri heila öld verið hluti af ís- lenskri þjóðarsál. Það er verið að selja áratuga samning við íslensk heimili. Verði þessi sala almanna- þjónustu landsmanna að veruleika mun það rista djúp sár í íslenska þjóðarsál. Og enn dýpri verða sárin og örin stærri ef það verður skilyrt að stór hluti Landssímans, jafnvel meirihluti eins og frumvarpið gerir ráð fyrir, fari í hendur erlendra að- ila,“ segir í álitinu. Tvö álit minnihluta samgöngunefndar um frumvarp um sölu Landssímans Landssíminn hluti ís- lenskrar þjóðarsálar MÁLÞÓF var orðið sem þingmenn stjórnarflokkanna notuðu til að lýsa annarri umræðu um frumvarp sjáv- arútvegsráðherra um kjaramál fiski- manna og fleira á Alþingi í gær. Frestun Sjómannafélags Íslands á verkfalli sló þingmenn út af laginu laust fyrir hádegið og var um- ræðunni frestað um sinn í kjölfar fréttanna, en þegar ljóst var að ekki var einhugur um þá frestun meðal sjómanna í öðrum félögum var hald- ið áfram með umræðuna. Stóð lengst vaktina skipstjórinn fyrrverandi af Vestfjörðum, Guðjón A. Kristjáns- son, Frjálslynda flokknum, eða í þrjá tíma og fann frumvarpinu allt til for- áttu, jafnvel þótt umdeildri 3. gr. þess hefði verið breytt mjög í með- förum sjávarútvegsnefndar um nótt- ina, svo sem skýrt var frá í Morgun- blaðinu í gær. Umræðunni lauk á sjöunda tíman- um í gærkvöldi og höfðu þá fjölmarg- ir þingmenn flokka stjórnarandstöð- unnar rætt málið í þaula og gert að umtalsefni undirbúning frumvarps- ins, sem þeir sögðu óvandaðan, og bentu á að málefnaleg og gagnrýnin umræða stjórnarandstöðunnar í fyrstu umræðu hefði leitt í ljós marg- víslega vankanta á frumvarpinu og komið í veg fyrir að frumvarp hefði verið keyrt í gegn um þingið sem fal- ið hefði í sér lagasetningu andstæða stjórnarskrá og alþjóða skuldbind- ingum. Hröð afgreiðsla sjávar- útvegsnefndar gagnrýnd Beindi Ögmundur Jónasson, for- maður þingflokks Vinstri grænna, þeim eindregnu tilmælum til stjórn- armeirihlutans að frumvarpið yrði dregið til baka, þar sem sýnt hefði verið fram á ótal galla í efni þess, auk þess sem í því fælust árásir á stétt sjómanna sem ekki fengi að semja sjálf um kaup og kjör. Ágúst Einarsson, varaþingmaður Samfylkingarinnar, gagnrýndi frumvarpið einnig harkalega og sagði hringlandahátt sjávarútvegs- ráðherra ekki til þess fallinn að auka virðingu Alþingis. Sagði hann að frumvarpið sem slíkt leysti engan vanda og endurtekin verkföll í sjáv- arútvegi væru óþolandi fyrir alla í þessu landi. Það væri hins vegar mat samningsaðila, sjómanna og útvegs- manna, að löggjafarvaldið ætti ekki að blanda sér í deiluna með þessum hætti. Sjávarútvegsnefnd Alþingis fjallaði um málið eftir að fyrstu um- ræðu lauk um málið á ellefta tím- anum á mánudagskvöld og áliti meirihluta hennar var dreift í tómum þingsalnum á fundi kl. 2 aðfaranótt þriðjudagsins. Þar með gat önnur umræða hafist í gærmorgun og var þó mælt fyrir áliti meirihluta og minnihluta sjávarútvegsnefndar. Svanfríður Jónasdóttir, þingmað- ur Samfylkingarinnar og fulltrúi í sjávarútvegsnefnd, mælti fyrir áliti minnihlutans, og hún sagði að hrað- inn hefði verið slíkur á málinu að ekki hafi fengist sú skoðun sem þyrfti, m.a. í ljósi þess að verið væri að breyta starfsumhverfi í sjávarút- vegi. Einar Guðfinnsson, formaður sjávarútvegsnefndar, mótmælti full- yrðingum um að vinnubrögðin hefðu verið flaustursleg og tekið hefði ver- ið á ýmsum athugasemdum sem komu fram við þingumræðuna. Félagsmálaráðherra telur lögin standast alþjóðasamninga Á fund nefndarinnar aðfaranótt þriðjudagsins komu fulltrúar sjó- manna og útvegsmanna og lög- fræðingur félagsmálaráðuneytisins. Fram kom hjá Páli Péturssyni félagsmálaráðherra í gærmorgun, að það væri niðurstaða þeirra sem fjallað hefðu um frumvarpið eins og því yrði breytt, að orðalag þar stand- ist þá alþjóðasamninga sem Ísland er aðili að. Meirihluti sjávarútvegsnefndar leggur til að gerðardómur, sem fjalla á um kjaramál sjómanna, náist ekki samningar fyrir 1. júní, skuli í störf- um sínum hafa til hliðsjónar kjara- samninga sem gerðir hafi verið á undanförnum mánuðum að því leyti sem við eigi og almenna þróun kjara- mála. Þá leggur meirihlutinn til að við ákvarðanir um gildistíma geti gerðardómurinn haft til hliðsjónar gildistíma annarra skyldra kjara- samninga. Í upphaflega frumvarpinu var kveðið á um að gerðardómurinn ætti að taka mið af samningum Vél- stjórafélags Íslands. Í nefndaráliti minnihlutans er vak- in athygli á því að fram kom í við- ræðum nefndarinnar við Friðrik Jón Arngrímsson, framkvæmdastjóra Landssambands íslenskra útvegs- manna, að útvegsmenn gætu sam- þykkt frestun á verkfalli sjómanna til að ljúka mætti samningum með eðlilegum hætti. Í ljósi þess megi ætla að ekki sé fullreynt hvort unnt væri að ná samningum milli deilu- aðila ef þeir fengju tóm til þess. Einn stjórnarliði andvígur frumvarpinu Guðmundur Hallvarðsson þing- maður Sjálfstæðisflokksins greiddi atkvæði gegn efnisgreinum frum- varpsins í atkvæðagreiðslu undir kvöldmat í gær. Frumvarpinu var vísað til 3. umræðu og umfjöllunar í sjávarútvegsnefnd milli umræðna en gera þarf breytingar á frumvarpinu vegna þess að Sjómannasamband Ís- lands aflýsti verkfalli. Fyrsta grein frumvarpsins, um að banna verkfall sjómanna, var sam- þykkt með 33 atkvæðum þingmanna stjórnarflokkanna gegn 22 atkvæð- um þingmanna stjórnarandstöðunn- ar auk Guðmundar Hallvarðssonar. Aðrar efnisgreinar, um gerðardóm sem ákveði kjaramál sjómanna nái þeir ekki samningum fyrir 1. júni og hvernig gerðardómurinn eigi að starfa, voru einnig samþykktar með 33 atkvæðum stjórnarliða gegn at- kvæðum þeirra Guðjóns A. Krist- jánssonar og Sverris Hermannsson- ar þingmanna Frjálslynda flokksins. Guðmundur Hallvarðsson greiddi einnig atkvæði gegn tveimur efnis- greinum en þingmenn VG og Sam- fylkingar sátu hjá. Guðmundur Hallvarðsson greiddi einnig atkvæði gegn frumvarpi sem samþykkt var á Alþingi í mars um að fresta verkfalli sjómanna til 1. apríl meðan loðnuvertíðin stæði yfir. Þriðja umræða um málið fer fram í dag, en ekki er gert ráð fyrir mikilli umræðu þá og ætti því að vera hægt að afgreiða það og senda ríkisstjórn sem lög frá Alþingi síðar í dag. Önnur umræða um frumvarp á verkfall sjómanna stóð lengi dags í gær Morgunblaðið/Jim Smart Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra kom út úr þinghúsinu í gær og ræddi við forsvarsmenn sjómanna. Frumvarpið að lögum síðar í dag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.