Morgunblaðið - 16.05.2001, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 16.05.2001, Blaðsíða 34
UMRÆÐAN 34 MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ L íklega má fullyrða að af þeim römmum sem hvað tíðast eru til umræðu manna á meðal hafi refsi- ramminn átt vinninginn í apríl. Ástæða þessarar miklu umræðu er sú að þá fóru fram málfund- aræfingar á Alþingi um refsi- ramma fíkniefnamála og síðasta dag mánaðarins var samþykkt frumvarp til laga sem fól í sér víkkun hans úr tíu árum í tólf. Fyrir áhugamenn um refsi- ramma og pólitískt þjark var þessi umræða kærkomin, en þeir sem hafa fengið nóg af þeirri „lausn“ sem yfirleitt er boðið upp á í fíkniefnamálum, nefnilega þeirri að taka enn fastar á dópsölunum, hafa lík- lega haft minni ánægju af öllu saman. Í at- hugasemdum með frum- varpinu kem- ur fram að refsingar við fíkniefnabrot- um hafa þyngst á undanförnum árum og var svo komið fyrir samþykkt frumvarpsins að refsiramminn var næstum að fullu nýttur, því í fyrra var mað- ur dæmdur í níu ára fangelsi. Í framsögu sinni fyrir frumvarp- inu sagði dómsmálaráðherra að þar sem dómstólar hefðu sífellt verið að fella þyngri dóma og væru við það að sprengja refsi- rammann yrði að víkka ramm- ann svo fella megi þyngri dóma. Ástæða er að gera at- hugasemd við þá hugsun að refsimörk hljóti að færast til vegna þess eins að dómar hafi nálgast þessi mörk. Rökin fyrir þessu eru af svipuðum toga og þau rök sem hundar hafa heyrst færa fram fyrir því að elta skottið á sér hring eftir hring. Hvar á að nema staðar í refs- ingum? Í fjórtán árum? Tuttugu árum? Eða á ævilangt fangelsi ef til vill að bíða þeirra sem hafa undir höndum fíkniefni á meðan þeir sem fremja morð fá almennt fjórtán til sextán ára fangelsi? Bent hefur verið á að ein af hættunum sem fylgir því að þyngja refsingar í fíkniefna- brotum sé að brotamennirnir verði hættulegri umhverfinu. Þeir verða ekki síst hættulegri lögreglumönnum og hugs- anlegum vitnum, því ef menn eiga að velja á milli þess að fara örugglega í tólf ára fangelsi eða að fara í sextán ára fangelsi ef upp um þá kemst, þá er hætt við að þeir menn sem láta sam- viskuna almennt ekki segja sér fyrir verkum velji síðari kost- inn. Fréttir benda til að fíkni- efnaheimurinn hér á landi fari harðnandi og verði hættulegri. Þyngri refsingar munu ekki snúa þeirri þróun við. Ekki hefur heldur verið sýnt fram á að þyngri refsingar muni leiða til þess að glæpum fækki, en í athugasemdum með frum- varpinu kemur fram að á sama tíma og refsingar hafa þyngst hér á landi hafa brotin orðið al- varlegri. Þetta eru að vísu tvær hliðar sama penings, en benda þó ekki til að væntanlegum fíkniefnasölum snúist hugur við það eitt að kveðinn hafi verið upp þungur dómur vegna sam- bærilegs eða minna brots. Af þessu má frekar draga þá álykt- un að það sé annað en hugs- anleg fangelsisvist sem ræður mestu þegar menn taka um það ákvörðun hvort þeir skuli flytja inn fíkniefni eða ekki. Menn láta það ekki ráða ákvörðun hvort árin sem bíða ef illa fer eru fimm, sjö eða níu. Og menn munu tæplega láta það hafa áhrif á sig hvort árin bak við lás og slá kunna að verða tíu eða tólf. Rétt er að hafa í huga að refsingar í fíkniefnamálum eru ekki vægar hér á landi sé miðað við stöðuna á Norðurlöndum. Dönsk, sænsk og finnsk lög hafa öll sama refsiramma og var í ís- lenskum lögum fyrir útvíkkun hans, en Noregur sker sig úr og heimilar allt að tuttugu og eins árs fangelsi við sérlega grófum brotum. Þessi víði refsirammi hefur ekki útrýmt fíkniefnabrot- um í Noregi, og raunar er það svo að þó dauðarefsingar liggi við fíkniefnabrotum í sumum löndum kemur það ekki í veg fyrir að brotin séu framin. Refsingarnar eru ekki heldur vægar ef menn líta bara á tím- ann og velta því fyrir sér hvern- ig það muni vera að dvelja um árabil á bak við lás og slá. Þó fæstir hafi af þessu reynslu geta þeir þó reynt að gera sér það í hugalund. Einn maður, Oscar Wilde, sem þekkti prísundina af eigin reynslu orti um hana ágætt ljóð, sem Magnús Ás- geirsson sneri á íslensku undir heitinu Kvæðið um fangann. Í einu erindinu segir svo: Ég dæmi ei lög vor rétt né röng og rýni ei þeirra skrár. Í prísund vitum vér það eitt, að veggurinn er hár, að þar er ár hver dægurdvöl, og dægrin löng það ár. Fyrir utan áður nefnd hunda- skottsrök notuðu bæði dóms- málaráðherra og formaður alls- herjarnefndar það sem röksemd í umræðunum um frumvarpið – og það var hin aðalröksemdin – að með því væri löggjafinn að senda „skýr skilaboð“ til þeirra sem hefðu í hyggju að brjóta af sér. Þó eru þetta sömu menn og hafa hingað til ekki skilið sam- bærileg boð. Reyndar er líklegt að þau skilaboð sem helst ná eyrum slíkra manna séu þau sem felast í miklum mun á kaup- og söluverði fíkniefna. Þessi munur getur skilað þeim sem brjóta lögin verulegum gróða og viðbúið er að gróðinn aukist við þyngri refsingar. Á meðan gróðavonin er fyrir hendi munu lögbrjótarnir einnig verða það og útvíkkun refsirammans margumrædda mun engu breyta þar um. Skilaboðin sem dómsmálaráð- herra og formaður allsherjar- nefndar segjast vera að senda hugsanlegum brotamönnum munu því varla verða móttekin. Kjósendur hafa hins vegar að öllum líkindum móttekið þau skilaboð sem þeim voru ætluð og það telur sjálfsagt einhver nægan ávinning. ...og dægrin löng það ár Ástæða er að gera athugasemd við þá hugsun að refsimörk hljóti að færast til vegna þess eins að dómar hafi nálgast þessi mörk. VIÐHORF Eftir Harald Johannessen haraldurj- @mbl.is ÞAÐ er oft býsna erf- itt að eiga orðastað við þá sem allt vilja gefa „frjálst“ í áfengismál- um, engar hömlur hafa og gott ef ekki engin lög heldur. Svo undarlegt sem það nú er þá má alls ekki nefna neinar hættur, neina vá sam- fara áfengisneyzlunni við þetta fólk „frelsis- ins“, þótt dæmin, döpur og raunsönn, blasi hvarvetna við sjónum. Svo samgróið virðist strútseðlið þessu fólki, að öll umræða verður erfið fyrir þá sem alls- gáðum augum horfa á þann skelfilega vígvöll, þann geigvænlega val sem líta má sem afleiðingu áfengisneyzl- unnar. Hversu oft höfum við bindind- ismenn ekki mátt heyra köpuryrði um ofstæki okkar og afturhaldssemi, þegar við höfum freistað þess að kynna blákaldar og óvéfengjanlegar sannanir fyrir þeirri vá sem áfeng- isneyzlunni er samfara. Mér flugu þessi köpuryrði í hug þegar ég var að lesa í BFÖ-blaðinu nokkra punkta úr ágætri greinargerð Árna Einarssonar, framkvæmd- stjóra Fræðslumiðstöðvar í fíkni- efnavörnum, um ástæður ölvunar- aksturs og leiðir til þess að draga þar úr sem mest og mögulegast. Árni ber, eins og hans er vandi, staðreyndir einar á borð og skal hér aðeins stuttlega tæpt á nokkrum þeirra. Ölvun skerðir hæfni til akst- urs, segir Árni og í því sambandi bendir hann á, að alkóhólmagn það sem leyft er í blóði hérlendis sé slíkt samkvæmt rannsóknum, að ökumað- ur með svo mikið áfengismagn í blóði sé engan veginn fær um að stjórna ökutæki með öruggum hætti. Næst bendir Árni á slysahættuna og vísar í tölur undanfarinna ára sem sýna að 7–25 % dauðaslysa í umferðinni hafi verið vegna ölvun- araksturs, hrikalegur tollur það. Síðastliðin tuttugu ár hafa árlega um 2.300 ökumenn ver- ið staðnir að ölvunar- akstri, svo algengið er mikið, því miður. Þá segir Árni að sam- kvæmt rannsóknum sé það alveg ótvírætt að aukið aðgengi að áfengi auki hættu á ölvunar- akstri með hinum alvar- legustu afleiðingum að sjálfsögðu, m.a. aukn- um fjölda látinna í umferðinni. Mætti þetta sannarlega verða til umhugsunar fólki sem vill „bæta“ ástandið með enn auknu aðgengi að áfengi. Árni segir upplýsingar benda ein- dregið til þess að aukin heildarneyzla leiði af sér aukinn ölvunarakstur og þarf engum óbrjáluðum á óvart að koma. Allt þetta styður Árni sterkum rökum að vanda, rökum byggðum á staðreyndum vandaðra rannsókna og upplýsinga og var svo einhver að tala um hleypidóma og ofstæki þeirra sem vara við á forsendum raka og ótvíræðra staðreynda? En Árni Einarsson lætur ekki nægja að benda á hætturnar, hann bendir á færar leiðir til að draga úr ölvunarakstri. Hér skal aðeins bent á þær í knappri samantekt minni. Lækkun marka um leyfilegt alkóhól- magn í blóði niður í 0 prómill gefur skýr skilaboð um, að enginn aki undir áhrifum áfengis, hversu lítil sem þau eru. Árni bendir einnig á fælingar- áhrif virkrar löggæzlu og vill því aukna löggæzlu og eftirlit sem áhrifa- mikla leið til varnar. Fræðsla og áróður skila sannanlega árangri og að þeim þætti þarf grannt að gæta, segir þar. Árni bendir á hve ungum öku- mönnum er hættara við að deyja í umferðinni en öðrum, en ekki liggi fyrir upplýsingar um, hvort ungum aldri eða reynsluleysi er að kenna, en veltir í framhaldi af því upp spurning- unni um hækkun ökuleyfisaldurs. Að lokum bendir Árni á að herða þurfi reglur og veita sérstaka meðferð þeim sem teknir eru ölvaðir við akst- ur. Þegar litið er til þessarar greinar- gerðar ætti löggjafa sem og öðrum er með málefni þessi fara að vera ljúft að taka tillit til þess sem sett er fram í algjöru öfgaleysi staðreyndanna einna. Vonandi verður þessi greinargerð birt í heild sinni, svo að fólki gefizt kostur á að bera saman upphrópanir aðgengissjúkra og staðreyndir þeirra sem vilja hafa það eitt er sannara reynist. Á skal að ósi stemma, það sama á við um elfi áfengisins, þar sem ölvunarakstur fylgir m.a. í straumn- um stríða. Akstur og ölvun, ósætt- anlegar andstæður Helgi Seljan Áfengismál Svo undarlegt sem það nú er, segir Helgi Seljan, þá má alls ekki nefna neinar hættur, neina vá samfara áfeng- isneyzlunni við þetta fólk „frelsisins“. Höfundur er formaður bindindissamtakanna IOGT. ÞAÐ kætti hjarta mitt þegar ég las Reykjavíkurbréfið í sunnudagsmogganum. Höfundurinn byrjar merkan pistil sinn á umfjöllun um bæn Jaebesar, en sú bæn hefur farið sigurför um heiminn undanfarna mánuði og verið mörg- um innblástur. Bænin er stutt en hnitmiðuð og dylst innan um langar og leiðinlegar ættartöl- ur í fyrri Króníkubók. Þessi bæn, sem ekki lætur mikið yfir sér, var heyrð af Guði eins og fram kemur í hinum knappa texta og því drögum við þá ályktun að hér sé bæn á ferðinni sem er samkvæmt vilja þess Guðs sem er eilífur og óum- breytanlegur. Bæn þessi er því í fullu gildi í dag og á erindi við manninn eins og sú staðreynd að hún er kom- inn inn á miðopnu Morgunblaðsins ber með sér. Bænin er svona: Og Jaebes ákallaði Guð Ísraels og mælti: Blessa þú mig og auk landi við mig, og verði hönd þín með mér, og bæg þú ógæfunni frá mér, svo að engin harm- kvæli komi yfir mig. Og Guð veitti honum það, sem hann bað um. Það er ekki endilega hið andlega samhengi sem er forsenda þessarar skírskotunar í Reykjavíkurbréfinu, en bréfið fjallar á afar skemmtilegan máta um hinar flóknu kenningar og tilgátur hagfræðinnar og stefnur og strauma í þeim efnum. Höfundur Reykjavíkurbréfsins telur bæn Jaeb- esar vera fagnaðarefni út frá sjónar- miðum hagfræðinnar. Væntanlega er hann að vísa til þess að þeir sem til- einki sér inntak bænar- innar verði virkari í neysluþjóðfélagi hins vestræna heims. Þetta viðhorf er gott og gilt í sjálfu sér, en ég tel það vera afar mikla einföld- un á merkingu og inni- haldi þessarar bænar. Jaebes biður um bless- un, í frumtextanum er orðið tvítekið. Merking hebreska orðsins ber með sér að hinn bless- aði krýpur fyrir Guði og vísar til auðmýktar. Jaebes biður einnig um aukið land og það er sjálfsögð bæn að menn biðji djarfir um aukin áhrif og stærri landhelgi í efnalegu tilliti sér og sín- um til handa. Hann biður einnig um að hönd Drottins sé með og hann hef- ur væntanlega skilning á því hvað þarf til. Í lok bænarinnar biður Jaeb- es þess að ógæfunni verði bægt frá honum þannig að engin harmkvæli komi yfir hann. Bæn Jaebesar er fyrst og fremst bæn um blessun, bæn um innihalds- og hamingjuríkt líf sem byggir á því að vera í vilja Guðs. Efnaleg gæði geta verið fylgifiskar blessunar Guðs, en eru það ekki endilega, eins og dæmin um þá sem verða af aurum ap- ar sýna okkur. Það er staðreynd að hjarta mannsins er þar sem fjársjóð- ur hans er. Ef auður mannsins er ein- göngu efnalegur er hann fátækur. Mig langar til að benda á það sem læknirinn Lúkas skráir í dæmisög- unni um ríka bóndann: Og ég segi við sálu mína: Sála mín, nú átt þú mikinn auð til margra ára, hvíl þig nú, et og drekk og ver glöð. En Guð sagði við hann: Heimskingi, á þessari nóttu verður sál þín af þér heimtuð, og hver fær þá það, sem þú hefur aflað? Svo fer þeim er safnar sér fé, en er ekki ríkur hjá Guði. Það er hættulegt að safna sér jarðneskum auði með þeirri áherslu að menn eigi meiri auð á jörðu en á himni, að safna sér fé, en vera ekki ríkur hjá Guði. Slíkt bindur hjarta mannsins og setur hann í hættu gagnvart sáluhjálp sinni. Menn verða að eiga himneskan auð – þá eru þeir sannarlega ríkir. Bæn Jaebesar hefur verið mér og okkur í Krossinum mikil hvatning og innblástur undanfarnar vikur þegar við höfum reynt að kryfja til mergjar þann boðskap sem er að finna okkur til handa í þessari bæn. Niðurstaða okkar er ekki hagfræðilegs eðlis, heldur teljum við að bænin sé beiðni um blessun Guðs inn á öll svið hins mannlega lífs, einnig hið efnalega, en höfuðáherslan er á auðmýkt fyrir þeim Guði sem einn getur blessað með þeim hætti að erfiði mannsins bætir þar engu við. Ég vil þakka höfundi Reykjavíkur- bréfsins fyrir snjöll skrif og ég tek mér það bessaleyfi að nota millifyr- irsögn úr pistli hans sem fyrirsögn á þetta greinarkorn. Einföld bæn – breytt framtíð? Gunnar Þorsteinsson Bæn Bæn Jaebesar er fyrst og fremst bæn um blessun, segir Gunnar Þorsteinsson, bæn um innihalds- og hamingjuríkt líf sem byggir á því að vera í vilja Guðs. Höfundur er forstöðumaður Krossins í Kópavogi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.