Morgunblaðið - 16.05.2001, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 16.05.2001, Qupperneq 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK. SÚ hækkun sem varð á smásölu- verði ýmissa grænmetistegunda seinnipart marsmánaðar stafaði að langmestu leyti af hækkun inn- flutningsverðs og álagningu tolla, samkvæmt rannsókn Samkeppnis- stofnunar. Fram kemur meðal annars að dagleg álagning á grænmeti í smá- sölu sveiflaðist frá því að vera nei- kvæð um 65% á rauðri papriku til þess að vera 167% á tómötum. Dæmi eru um að tollurinn hafi hækkað smásöluverð um allt að 180 kr. Landbúnaðarráðherra óskaði eft- ir því 30. mars sl. að Samkeppnis- stofnun kannaði verðmyndun á inn- fluttri papriku, tómötum, agúrkum, jöklasalati og öðru salati, en tollar lögðust á margar grænmetisteg- undir um miðjan mánuðinn. Var leitað eftir upplýsingum um verð- myndun frá þremur innflytjendum á þessu sviði, þ.e. Ávaxtahúsinu, Banönum/Ágæti og Mötu, og frá smásöluverslunum innan eftirtal- inna verslanakeðja: Bónus, Hag- kaup, Nýkaup, 10–11, Nóatún, 11– 11, Kaupfélag Árnesinga, Krónan, Nettó og Fjarðarkaup. Leitað var eftir upplýsingum um verðmyndun í hverri sendingu til heildsala á viðkomandi tegundum og daglegri verðmyndun hjá smá- söluverslunum. 100% munur á rauðri papriku Af öðrum helstu niðurstöðum rannsóknarinnar má nefna að inn- kaupsverð tók miklum breytingum í mánuðinum. Sem dæmi var með- alinnkaupsverð á rauðri papriku í seinni helmingi marsmánaðar hjá tilteknum innflytjanda rúmlega 100% hærra en meðalverðið fyrri hluta mánaðarins. Jöklasalat hjá sama aðila var hins vegar 40% ódýrara í innkaupum í seinni hlut- anum en þeim fyrri. Samkeppnisstofnun segir það misjafnt eftir fyrirtækjum hvernig erlendar verðsveiflur endurspeglist í söluverðinu. Sumir innflytjendur virðist leitast við að jafna út sveifl- ur í innkaupsverði þannig að álagn- ing sé mikil eða jafnvel neikvæð þegar innkaupsverð er óhagstætt en minni þegar erlenda verðið er hagstæðara. Aðrir innflytjendur haldi álagningu fastri sem hlutfalli af kostnaðarverði. Skýrsluhöfundar benda þá á að innkaupsverð smá- sala geti verið mjög sveiflukennt og sé álagningin þá stundum látin þróast í öfugu hlutfalli við inn- kaupsverðið. Grænmetisverð í mars Hækkun inn- flutnings- verðs og toll- ar réðu mestu  Álagning í smásölu/6 „VEGNA aðhalds og skynsamlegrar stjórnunar ríkisfjármála er nú að myndast svigrúm til myndarlegra skattalækkana, bæði á fyrirtæki og einstaklinga,“ sagði Davíð Oddsson forsætisráðherra á aðalfundi Sam- taka atvinnulífsins í gær. Hann sagði einnig að forystu- menn stjórnarflokkanna hafi að undanförnu farið yfir mögulega skattkerfisbreytingu frá og með næstu áramótum. Einkum sé þá litið til skattprósentu fyrirtækja, stimp- ilgjalda, eignarskatta einstaklinga og fyrirtækja og viðmiðunarmarka svokallaðs hátekjuskatts. Þetta væru allt þörf atriði og jákvæðar breytingar, til þess fallnar að ýta undir athafnagleði fólks og fyrir- tækja. Við það sé miðað að svo hafi dregið úr þenslu þegar líða taki á þetta ár að slíkar skattkerfisbreyt- ingar geti komið til. Lokaákvarðanir hafi ekki verið teknar, enda að mörgu að hyggja, en ljóst sé að góð- ur vilji standi til þess hjá báðum stjórnarflokkunum að vinna að breytingum á skattheimtu, sem séu til þess fallnar að auka hér umsvif og tryggja að forsendur fyrirtækja- reksturs séu upp á það allra besta hér á landi. Dæmin sanni að heildar- tekjur ríkissjóðs þurfi ekki að lækka þótt skattareglurnar séu gerðar sanngjarnari. Umræða um kosti og galla ESB-aðildar Finnur Geirsson, formaður Sam- taka atvinnulífsins, sagði á á fundi samtakanna í gær að þau telji það mikilvægt forgangsatriði nú um stundir að ráðist verði í umfangs- miklar skattabreytingar, sem hafi það að markmiði að bæta sam- keppnishæfni íslensks atvinnulífs og efla þar með trú manna á framtíðar- möguleikum þess. Til að leggja áherslu á þetta hafi samtökin látið vinna ítarlega úttekt og tillögur í skattamálum. Þar er lögð áhersla á að lækka tekjuskattshlutfall niður í 15%. Jafnframt er þung áhersla lögð á afnám eignarskatta og stimpil- gjalda. Þá kom fram í máli Finns að sam- tökin legðu áherslu á að efla þyrfti samskiptin við einstök núverandi og verðandi aðildarríki ESB, í því skyni að stuðla að áframhaldandi virkni samningsins. Samtök at- vinnulífsins telji mikilvægt að stuðla að upplýstri umræðu um kosti og galla ESB-aðildar og að stjórnvöld og hagsmunasamtök hefjist handa við skilgreiningu samningsmark- miða Íslands vegna hugsanlegrar aðildarumsóknar að ESB. Davíð Oddsson forsætisráðherra á fundi Samtaka atvinnulífsins Boðar lækkun skatta bæði á fyrirtæki og einstaklinga  Svigrúm að myndast/30  Eignarskattar/22 FRUMVARP um kjaramál fiski- manna og fleira sem ætlað er að binda enda á sex vikna verkfall sjómanna verður að öllum líkindum að lögum á Alþingi fyrir hádegi í dag. Sjávarút- vegsnefnd fundaði um málið í gær- kvöldi og fram á nótt og svo aftur í bít- ið, en samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins mun meirihluti nefndarinnar leggja til breytingar á 1. gr. frum- varpsins þar sem kveðið er á um þau félög sjómanna sem frumvarpið nær til fyrir 3. umræðu um málið sem hefst upp úr kl. 10. Þetta er nauðsynlegt eftir að Sjó- mannasamband Íslands ákvað á fundi samninganefndar sambandsins í gær- morgun að aflýsa verkfalli. Sjó- mannafélag Eyjafjarðar ákvað hins vegar að standa ekki að þessari ákvörðun. Ekki lá fyrir þegar fundi var slitið hvort og þá með hvaða hætti frumvarpið hefði áhrif á þá sjómenn sem aflýstu verkfalli í gær. „Ég met stöðu okkar sterkari vegna þess að við viljum frekar aflýsa en að fá á okkur lög sem banna okkur að semja. Við ætlum okkur að semja og þetta lýsir bara samningsvilja Sjó- mannasambandsins,“ sagði Sævar Gunnarsson, formaður Sjómanna- sambands Íslands. Jónas Garðarson, formaður Sjó- mannafélags Reykjavíkur, segir að með afstöðu sinni hafi Sjómannafélag Eyjafjarðar eyðilagt þá fyrirætlan Sjómannasambandsins að ná samn- ingum í kjölfar þeirrar ákvörðunar að aflýsa verkfallinu. Konráð Alfreðs- son, formaður Sjómannafélags Eyja- fjarðar, segir hins vegar að þeir telji sig betur komna með gerðardóminn. Þá ákvað samninganefnd Far- manna- og fiskimannasambandsins einróma eftir hádegi í gær að aflýsa ekki yfirstandandi verkfalli fyrr en samningar við útvegsmenn hefðu náðst. Er jafnframt skorað á ríkis- stjórnina að draga lagafrumvarpið um kjaramál fiskimanna o.fl til baka og veita samningsaðilum svigrúm til að ljúka deilunni með samningi. Sjómenn söfnuðust saman til fund- ar við Alþingishúsið í gær og mót- mæltu afskiptum stjórnvalda af kjarabaráttu sjómanna og lagasetn- ingu á verkfall. Atkvæði verða greidd um frumvarp um verkfall sjómanna í dag Breytingar áformað- ar fyrir lokaumræðu  Við mótmælum/4  Frumvarpið/10 Sjómenn efndu til mótmæla fyrir utan Alþingishúsið í gær Morgunblaðið/Jim Smart Sjómenn fjölmenntu í Alþingishúsið í gær og fylgdust með umræðum af þingpöllum um lög á verkfall sjómanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.