Morgunblaðið - 16.05.2001, Page 18
AKUREYRI
18 MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Lögmannshlíðarsókn
Aðalfundur
Aðalfundur Lögmannshlíðarsóknar verður haldinn í safn-
aðarsal Glerárkirkju á uppstigningardag, fimmtudaginn
24. maí, kl. 16 að aflokinni guðsþjónustu sem hefst kl. 14.
Í safnaðarsal verður boðið upp á kaffiveitingar.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál
Sóknarnefnd
FRÆHÖLL Skógræktar ríkisins í
Vaglaskógi hefur sannað gildi sitt en
þar voru síðasta sumar framleidd
um 4 kíló af fræi.
Þegar framleiðslan er komin í full-
an gang verður hægt að framleiða
þar um 20 kíló af fræi en þau duga til
að framleiða um 800 þúsund plöntur.
Það er nálægt því að vera um helm-
ingur af landsþörf fyrir rússalerki.
Þröstur Eysteinsson, fagmála-
stjóri Skógræktar ríkisins, sagði að
tilgangur Fræhallarinnar væri sá að
safna saman á einn stað úrvalstrjám
og stunda þar kynbætur þannig að
út kæmu vel aðlöguð tré til skóg-
ræktar. Nú fara margvíslegar rann-
sóknir og kynbætur fram í Fræhöll-
inni, m.a. rannsóknir á lerki og birki.
Lerkið hentar einkar vel
til skógræktar á Íslandi
Þröstur sagði að þörf fyrir lerki
væri ekki í samræmi við aukna skóg-
rækt á Íslandi en það kæmi til af því
að fólk á Suður- og Vesturlandi væri
nánast hætt að planta því út vegna
sjúkdóma sem upp hafa komið á síð-
ustu misserum. Þar er m.a. um að
ræða lerkibarrfelli sem er sveppa-
sjúkdómur og herjar á lerki í rign-
ingarsumrum og eins hefði nokkuð
borið á asparryði að undanförnu. Sá
sjúkdómur hefði áhrif á aspir eins og
nafnið gefur til kynna en hann hefur
lerkið hins vegar sem millihýsil.
Nú er unnið að tilraunum í Fræ-
höllinni sem miða að því að finna
lerkiafbrigði sem ekki eru eins við-
kvæm fyrir þessum sjúkdómum og
það lerki sem fyrir er í landinu. Hér
á landi hefur einkum verið notast við
rússalerki en svonefnt evrópulerki,
sem ekki er eins viðkvæmt, er aftur
á móti ekki eins aðlagað íslenskum
aðstæðum og hið rússneska, m.a. vex
það of lengi fram eftir á haustin. Hið
sama á við um japanslerki. Þröstur
sagði að tilraunir með kynblendinga
þessara lerkitegunda miðuðu að því
að auka sjúkdómsþol og aðlaga hið
harðgera rússalerki að íslenska um-
hverfinu. Þröstur sagði lerki henta
einkar vel til skógræktar á Íslandi
en það vex betur á þurru og rýru
landi en aðrar tegundir. „Við viljum
alls ekki gefast upp á lerkinu á Suð-
urlandi strax því þar er nægt land-
rými, þurrt og rýrt beitiland sem
hentar vel til skógræktar,“ sagði
Þröstur.
Hann sagðist einnig hafa náð fræi
af fjallalerki sem er norðuramerísk
tegund og vex í Klettafjöllum, en
vonir eru bundnar við að það falli vel
að íslenskum aðstæðum. Fyrstu
plönturnar, um 400 talsins, voru
gróðursettar síðasta sumar austur á
Héraði. Bjóst Þröstur við að fá mikið
af fræi nú næsta haust og því ætti að
vera hægt að planta umtalsverðu
magni af þessari tegund á næstu ár-
um. „Menn hafa mikinn áhuga fyrir
þessari tegund hér, þetta þykir ein
fallegasta lerkitegundin, trén eru
beinvaxin og há, allt að 30–40 metr-
ar, þau þola frost jafnvel um mitt
sumar og þá verða þau ekki fyrir
kali. Það stendur til að prófa að gróð-
ursetja þetta fjallalerki í talsverðri
hæð yfir sjó og verður gaman að sjá
hvað kemur út úr því,“ sagði Þröst-
ur.
Nauðsynlegt að ávallt
sé til fræ í landinu
„Fræhöllin er mikilvæg fyrir okk-
ar rannsóknir en tilkoma hennar
gerir okkur kleift að gera tilraunir
með alvöru frægarð inni í gróður-
húsi,“ sagði Þröstur. Hann nefndi
m.a. að hvergi annars staðar í heim-
inum væri lerkifræ framleitt í gróð-
urhúsi en Finnar framleiða birkifræ
í gróðurhúsum. Markmiðið er að
ávallt verði til fræ að vel aðlöguðu
lerki og hið sama er uppi á teningn-
um varðandi birkið. Brugðið hefur til
beggja vona með söfnun á birkifræi
en frætekja heppnast ekki nema á
nokkurra ára fresti . Þannig vantaði
tilfinnanlega birkifræ á árunum
1995–’96 og sagði Þröstur að menn
vildu ekki upplifa slíkt ástand aftur.
„Við munum í nánustu framtíð ávallt
eiga birkifræ. Þetta verður því nauð-
synlegra sem fleiri skógræktarverk-
efni fara í gang. Það er mikil upp-
sveifla í skógræktinni og bændur eru
hvattir til að rækta skóg. Þess vegna
verða alltaf að vera til fræ í landinu.“
Fræhöllin er um 1.000 fermetrar
að stærð og var tekin í notkun fyrir
einu og hálfu ári, haustið 1999. Strax
á fyrsta ári varð framleiðslan um 4
kíló sem fyrr segir en stefnt er að
framleiðslu 20 kílóa á ári. Þegar því
marki er náð hefur um helmingur af
allri lerkifræþörf hér á landi náðst.
Ef sinna ætti allri þörf fyrir fræ hér
á landi þyrfti að reisa annað hús af
svipaðri stærð. Sigurður Skúlason,
skógarvörður í Vaglaskógi, sagði að
gert væri ráð fyrir slíku gróðurhúsi
við hlið þess sem fyrir er en fjár-
magn væri ekki fyrir hendi nú til að
byggja það. Hann sagði að væri litið
til arðsemi af skógrækt til lengri
tíma, 60–80, ára myndi borga sig að
byggja annað 1.000 fermetra gróður-
hús í Vaglaskógi til fræframleiðsl-
unnar.
Margvíslegar rannsóknir og kynbætur gerðar í Fræhöllinni í Vaglaskógi
Stefnt að fram-
leiðslu 20 kílóa
af fræi árlega
Þröstur Eysteinsson, fagmálastjóri Skógræktar ríkisins, borar gat í stofninn á lerkinu, sem hann svo sprautar í sérstökum hormónum. Margvíslegar
rannsóknir fara fram í Fræhöllinni og er m.a. verið að kynbæta lerki og birki.
Vaglaskógur
Í TENGSLUM við aðalfund Akur-
eyrardeildar Rauða kross Íslands
sem haldinn er í kvöld, miðvikudag-
inn 16. maí, verður boðið upp á
myndasýningu.
Þar mun Þórir Guðmundsson,
fyrrverandi fréttamaður og núver-
andi upplýsingafulltrúi RKÍ, sýna
myndir úr starfi sínu sem upplýs-
ingafulltrúi Alþjóðasambands
Rauðakrossfélaga. Um er að ræða
myndir frá ýmsum stöðum sem Þór-
ir hefur starfað á eða heimsótt.
Sýningin verður strax að fundi
loknum og tekur um 45 mínútur.
Fundurinn hefst kl. 20 og eru allir
velkomnir.
Mynda-
sýning
Rauða
krossins
VETUR konungur minnti enn og
aftur á sig á Norðurlandi í gær,
en snjór var yfir öllu og kuldalegt
um að litast þegar Eyfirðingar
risu úr rekkju og gáðu til veðurs.
Heldur meiri snjókoma var við
utanverðan fjörðinn en var á Ak-
ureyri og Eyjafjarðarsveit. Snjó
festi ekki á vegi og umferðin
gekk klakklaust fyrir sig. Flestir
bændur í firðinum höfðu komið
búpeningi sínum í hús áður fór að
kólna, en þó mátt sjá einstaka ær
með lömb, nautgripi og hross í
högum. Varla hefur þeim þó orð-
ið meint af þessu vorhreti, sem þó
mun trúlega standa í skamma
stund því spáð er batnandi veðri
þegar nær dregur helginni.
Vetur kon-
ungur
minnti á sig
Morgunblaðið/Kristján
Leiðindaveður var í Arnarnes-
hreppi í gærmorgun og nokkur of-
ankoma. Nautgripirnir á Ytri-
Reistará sneru því afturendanum
upp í vindinn og létu sér fátt um
finnast enda ýmsu vanir.
Flestir bændur í Eyjafirði
höfðu tekið búfénað sinn í hús
eftir að fór að kólna í vikunni
en þó sáust nokkrar ær með
lömb í haga í Kræklingahlíð
norðan Akureyrar í gærmorg-
un og voru lömbin hin spræk-
ustu þótt kalt væri í veðri og
jörð nánast hvít.
ÞÓRA Þóroddsdóttir flytur fyrir-
lestur á morgun, fimmtudaginn 17.
maí, kl. 16.15 í Háskólanum á Ak-
ureyri, Þingvallastræti 23, stofu 16.
Fyrirlesturinn nefnir hún „Að
hreyfa sig og hjúfra“. Þóra er ís-
lenskur sjúkraþjálfari sem hefur
búið í Færeyjum í um 20 ár og unn-
ið með börnum í færeyska skóla-
kerfinu.
Í fyrirlestrinum kynnir Þóra bók
sína, Að hreyfa sig og hjúfra, sem
kemur út hjá Ásútgáfunni á Ak-
ureyri 18. maí nk. Bókin fjallar um
skyn- og hreyfiþroska. Hún
skyggnist inn í veröld þeirra barna
sem eiga örðugt með einbeitingu,
eru klunnaleg og lin í skrokknum
og una sér illa í leik og starfi. Þetta
eru í flestum tilvikum vel gefin og
venjuleg börn sem engu að síður
eiga erfitt uppdráttar, ekki síst í
skólakerfinu.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.
Fyrirlestur við Háskólann á Akureyri
Að hreyfa sig
og hjúfra
♦ ♦ ♦
TÓNLEIKUM Kristínar Harðar-
dóttur og Helenu G. Bjarnadóttur
sem vera áttu á sal Tónlistarskólans
á Akureyri í kvöld, miðvikudags-
kvöldið 16. maí, hefur verið frestað
um óákveðinn tíma vegna veikinda.
Tónleikum
frestað
♦ ♦ ♦
Morgunblaðið/Kristján