Morgunblaðið - 16.05.2001, Síða 20
LANDIÐ
20 MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
AFHENDING viðurkenninga fyrir
úrvalsmjólk fór fram á Breiðumýri
sl. fimmtudag í fyrsta sinn í nafni
Norðurmjólkur eftir að samlögin á
Akureyri og Húsavík sameinuðust.
Helgi Jóhannesson framkvæmda-
stjóri var með framsögu á undan
verðlaunafhendingunni og ræddi
hann skipulagsbreytingar eftir sam-
eininguna og sölumál hins nýja fyr-
irtækis. Þá flutti Bárður Guðmunds-
son héraðsdýralæknir erindi um gin-
og klaufaveiki.
Mikil söluaukning á skyri
Í máli Helga kom fram að gífurleg
aukning hefur orðið í sölu á skyri eða
63% á fyrstu þremur mánuðum árs-
ins og stendur til að bæta við búnaði
til þess að geta aukið framleiðsluna
enn frekar. Þá má búast við að
áframhald verði á skyrsölu til Dan-
merkur þar sem Norðurmjólk hefur
góðan aðgang að markaði og sagði
Helgi að það verkefni væri mjög
spennandi að fást við.
Norðurmjólk framleiðir einnig
mjög mikið magn af ostum og hefur
sala á föstum ostum aukist mikið á
undanförnum árum, en fyrirtækið
leggur mikið í vöruþróun til þess að
standast kröfur markaðarins.
Sameining samlaganna hefur kall-
að á ýmsar skipulagsbreytingar
hvað varðar mannahald og verka-
skiptingu auk þess sem til stendur að
reyna að bæta mjólkursöfnun þannig
að kostnaður við flutningana minnki.
Í dag eru 6 tankbílar sem sækja
mjólk en munu verða fjórir þegar
búið verður að endurskipuleggja.
Reglur um framleiðslu á úrvalsmjólk
hafa verið hertar á undanförnum ár-
um og nú hafa þær verið samræmd-
ar á milli mjókursamlaga.
Þingeyskir bændur hafa verið að
ná betri og betri árangri og kom
fram á fundinum að ekkert fram-
leiðslusvæði á landinu framleiðir
eins frumulága mjólk og innleggj-
endur á samlagssvæði Húsavíkur.
Þá þarf mjólkin alltaf að vera í 1.
flokki við flokkun kuldakærra og
hitaþolinna gerla og aldrei mega
finnast lyfjaleifar eða önnur efni er
rýrt geta gæði vörunnar. Helgi Jó-
hannesson lauk lofsorði á bændur og
fengu allir framleiðendur úrvals-
mjólkur afhenta forláta kristalsskál
sem búið var að sandblása í nafn og
númer búrekanda ásamt merki
Norðurmjólkur.
Þingeyskir bænd-
ur verðlaunaðir
Laxamýri
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Þingeyskir bændur ásamt forsvarsmönnum Norðurmjólkur.
eigendur væru stoltir af að geta af-
hent hótelið á réttum tíma.
Kári sagði í ræðu sinni að óneit-
anlega opnaði Hótel Hellissandur,
sem yrði rekið sem hluti af Hótel
Eddu-keðjunni, og fleiri ný hótel
sem opnuð hafa verið á Snæfells-
nesi á síðustu árum, fyrir aukinn
NÝTT hótel sem ber nafnið Hótel
Hellissandur var formlega opnað
föstudaginn 11. maí við hátíðlega
athöfn. Hótelið er í eigu hluta-
félags sem samanstendur að mestu
af heimamönnum svo og gömlum
brottfluttum Söndurum. Stjórn
félagsins skipa Skúli Alexand-
ersson, fyrrverandi alþingismaður,
Ólafur Rögnvaldsson, fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystistöðvar
Hellissands, og Sigurður Páll
Harðarson framkvæmdastjóri.
Þótt hugmynd að hóteli á Hellis-
sandi eigi sér nokkurn aðdraganda
var fyrsta skóflustungan tekin í
nóvember árið 1999 og hefur bygg-
ingartíminn því verið rúmt eitt og
hálft ár. Loftorka í Borgarnesi sá
um að gera húsið fokhelt en síðan
tóku verktakar úr Grundarfirði,
sem reka Trésmíðaverkstæði
Pálmars Einarssonar, við og sáu
um allan frágang innanhúss. Hönn-
uður hótelsins og eftirlitsmaður
með öllum framkvæmdum er
Bjarni Vésteinsson, byggingar-
tæknifræðingur á Akranesi.
Samið við Flugleiðahótel
Á Hótel Hellissandi eru tuttugu
tveggja manna herbergi sem öll
eru með sérbaðherbergi og er eitt
herbergið auk þess sérstaklega
hannað fyrir fatlaða einstaklinga. Í
hótelinu er lyfta svo auðvelt er að
komast milli hæða og allt umhverfi
innandyra, utan anddyrið, er reyk-
laust. Allar innréttingar eru sér-
lega vandaðar og herbergin mjög
smekkleg og hlýleg.
Hlutafélagið sem á hótelið gerði
á byggingartímanum leigusamning
við Flugleiðahótel sem eru með
þetta nýja hótel á leigu yfir sum-
artímann næstu fjögur ár. Skúli
Alexandersson stjórnarformaður
afhenti Kára Kárasyni, yfirmanni
Flugleiðahótela, lykla að nýja hót-
elinu í opnunarhófinu og sagði að
straum ferðamanna inn á svæðið.
Taldi hann líklegt að aukið gisti-
rými myndi hvetja ferðaskipu-
leggjendur til að skipuleggja fleiri
ferðir á Snæfellsnes í framtíðinni.
Margir kvöddu sér hljóðs við
opnunina, m.a. Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra og Kristinn
Jónasson, bæjarstjóri Snæfells-
bæjar. Bæði þeir og aðrir ræðu-
menn hrósuðu þessu stórtæka
framtaki einstaklinga í fámennri
jaðarbyggð og þó sérstaklega
Skúla Alexanderssyni sem hefur
verið driffjöðurinn á bak við fram-
kvæmdina.
Hótelstjóri á Hótel Hellissandi/
Hótel Eddu er Hildur Ýr Arnar-
dóttir og báru hún og starfsfólk
hennar fram ljúffengar og glæsi-
legar veitingar fyrir opnunargesti.
Hildur Ýr hefur áður starfað sem
hótelstjóri á Hótel Eddu Nesja-
skóla og á Laugarbakka í Miðfirði.
Hún á að baki langa reynslu við
hótelstörf og hefur auk þess lagt
stund á nám í ferðamálafræðum í
Bandaríkjunum. Hildur Ýr segir að
við hótelið muni starfa sjö manns
þegar mest verður, bæði úr heima-
byggð og eins starfsfólk sem kem-
ur úr Reykjavík.
Nýtt hótel til að mæta
fjölgun ferðamanna
Hellissandur
Skúli Alexandersson afhendir
Kára Kárasyni lykla að hótelinu.
Morgunblaðið/Guðrún S. Bergmann
Hluthafahópurinn sem stendur að Hótel Hellissandi.
FYRIRTÆKIÐ Pappaás er að hefja
starfsemi á Egilsstöðum. Fyrirtækið
er sett upp utan um tilraunaverkefni
sem Sorpeyðing Miðhéraðs stendur
fyrir. Endurnýta á pappír og pappa,
með það að markmiði að minnka um-
hverfisálag og endurnýta það hrá-
efni sem nú er hent eða sent með
miklum tilkostnaði til Reykjavíkur.
Ásta Sigfúsdóttir, formaður stjórnar
Sorpeyðingar Miðhéraðs, sagði að
hugmyndin hefði kviknað þegar hún
kynnti sér vinnustað á Selfossi sem
tætir dagblaðapappír og selur við
vægu verði. Hugmyndina um Pappa-
ás mótaði Ásta svo í samvinnu við
ýmsa aðila og þegar hentugt hús-
næði losnaði á Egilsstöðum var
ákveðið að hefjast handa.
Pappírskurl notað undir stór-
gripi og til gróðurverndar
Pappaás mun taka við öllum dag-
blaðapappír og pappa sem til fellur.
Hefur Sorpeyðing Miðhéraðs í því
skyni látið setja upp gáma á nokkr-
um stöðum á Egilsstöðum og Fella-
bæ, til að auðvelda fólki að koma
pappír og pappa frá sér. Fyrirtækið
hefur jafnframt keypt öflugan papp-
írstætara. Fljótlega verður einnig
tekið við svokölluðum glanspappír
en verið er að þróa betur aðferðir til
að vinna með hann.
Glanspappírinn verður því eitt-
hvað áfram sendur Reykjavíkur til
endurvinnslu. Þá eru tómar mjólk-
urfernur sendar til Svíþjóðar til end-
urvinnslu, þar sem ekki er í landinu
búnaður til að vinna þær. Búnar eru
til nýjar mjólkurumbúðir úr þeim.
Nýta á pappírskurl úr bylgju-
pappa sem undirlag undir skepnur
en dagblaðapappírskurl verður not-
að í plötur sem Héraðsskógar og
Landgræðslan munu nota til gróð-
urverndar og landgræðslu. Þá er
dagblaðapappírskurl mjög gott stoð-
efni í jarðgerð. Glanspappír úr tíma-
ritum o.þ.h. verður væntanlega
pressaður í plötur til að nota undir
gangstéttarhellur og sem undirlag í
göngustíga.
Sóknarfæri í framleiðslunni
Fyrst um sinn verður pappírskurl-
ið gefið þeim sem áhuga hafa á að
nýta sér það. Í framhaldinu verður
svo metið hvort markaður er fyrir
framleiðslu fyrirtækisins en talið er
að eftirspurn muni verða næg þegar
menn hafa kynnst henni.
Ásta segir mörg sóknarfæri í
vinnslu Pappaáss og nefnir í því
sambandi m.a. endurvinnslu á papp-
ír til nýtingar í undirlag undir gælu-
dýr og í sáningarbakka fyrir jurtir.
Þá stendur til að í Pappaási verði
tekið við notuðum fatnaði fyrir
Rauða krossinn og jafnvel brúkleg-
um nytjahlutum sem á að henda.
Við Pappaás munu vinna þrír
starfsmenn að jafnaði. Sótt var um
styrk til Atvinnuleysistrygginga-
sjóðs um starfskraft og hefur sjóð-
urinn samþykkt umsóknina. Fyrir-
tækið er við Tjarnarás á Egils-
stöðum.
Pappaás endurnýtir
pappa og pappír
Egilsstaðir
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Ásta Sigfúsdóttir, formaður stjórnar Sorpeyðingar Miðhéraðs, hefur
komið á fót pappírsendurvinnslunni Pappási á Egilsstöðum.
KLAUFSKURÐARMEISTARINN
Gunnar Berg Haraldsson hefur að
undanförnu ferðast um Suður-
Þingeyjarsýslu og lagað klaufir á
kúm á þeim bæjum þar sem þess
er óskað.
Þetta er í fyrsta sinn sem þjón-
usta sem þessi er formlega aug-
lýst í héraðinu og hafa margir
bændur nýtt sér þetta tækifæri.
Oft eru kýr með ofvaxnar klaufir
eftir að hafa staðið á bás allan
veturinn og almennt er talið að
kýr með vel snyrtar klaufir mjólki
betur.
Klaufnaheilsa er betri í fjósum
þar sem kýr fá að hreyfa sig en
alltaf eru einhverjir gripir sem
þarf að líta á. Gunnar Berg fór á
sérstakt námskeið í klaufskurði
og að hans sögn er mjög mikil
þörf á að sinna þessum þætti í bú-
skapnum. Hann ferðast á milli
með sérstakan klaufskurðarbás
sem kýrnar eru síðan settar á
meðan klaufsnyrtingin fer fram
og geta þær ekki hreyft sig mikið
í honum.
Átak í klaufna-
hirðingu
Laxamýri
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Gunnar Berg Haraldsson klaufskurðarmeistari að störfum.