Morgunblaðið - 16.05.2001, Side 50
DAGBÓK
50 MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Murmansk kemur í dag,
Arnomendi P-63 fer í
dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Okotino kemur í dag,
Lagarfoss fer í dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur, Sól-
vallagötu 48. Skrifstofan
er opin alla miðvikud.
frá kl. 14–17. S.
551 4349. Fataúthlutun
og fatamóttaka er opin
annan og fjórða hvern
miðvikud. í mánuði, frá
kl. 14– 17 s. 552 5277.
Styrkur, samtök
krabbameinssjúklinga
og aðstandenda þeirra.
Svarað er í síma
Krabbameinsráðgjaf-
arinnar, 800 4040 frá kl.
15–17.
Mannamót
Árskógar 4. Föstudag-
inn 18. og laugardaginn
19. maí, verður hin ár-
lega handverkssýning
í félagsmiðstöðinni
Undirbúningur fyrir
sýninguna verður alla
þessa viku og mun því
hin venjulega dagskrá í
handavinnustofunum
vera í lágmarki af þess-
um sökum. Margt muna
verður á sýningunni,
skemmtiatriði verða
báða dagana og mun
Gerðubergskórinn koma
og syngja fyrir gesti á
föstudag kl. 14.30 og á
laugardaginn mun Hall-
dóra Björnsdóttir leik-
kona flytja vorljóð, kl.
14.30. Kaffi og meðlæti
verður selt á meðan sýn-
ingin er. Sýningin verð-
ur opin milli kl. 13 og 17
báða dagana.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9–
12 vefnaður, kl. 9–16
handavinna, kl. 10
banki, kl. 13 spiladagur
og vefnaður.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðjud. og fimmtud. kl.
13–16.30, spil og föndur.
Sundtímar á Reykja-
lundi kl. 16 á miðvikud.
Uppl. hjá Svanhildi í s.
586-8014 kl. 13–16.
Tímapöntun í fót-, hand-
og andlitssnyrtingu,
hárgreiðslu og fótanudd,
s. 566 8060 kl. 8–16.
Félagsstarfið Sléttuvegi
11-13. Handavinnusýn-
ingin verður föstudag-
inn 18. maí kl. 13.30-18.
Allir velkomnir.
Félagsstarf aldraðra,
Dalbraut 18–20. Kl. 9
handavinnustofan opin,
kl. 13 opin handa-
vinnustofan.
Félag eldri borgara
Kópavogi. Viðtalstími í
Gjábakka í dag kl. 15–
16. Skrifstofan í Gull-
smára 9 opin í dag kl
16.30–18.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 10
verslunin opin til kl. 13,
kl. 13 föndur og handa-
vinna, kl. 13.30 enska,
byrjendur.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Í dag mið-
vikudag 16. maí spilað í
Holtsbúð kl. 13.30.
ATH. breyttan dag.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Línudans kl. 11 og píla
kl. 13:30. Á morgun
fimmtudag eru púttæf-
ingar í Bæjarútgerð kl.
10–11:30.Vegna verk-
falls Hlífar getur þurft
að fresta fyrirhugaðri
sýningu á handverki
eldri borgara er á að
vera 17, 18. og 19. maí,
fylgist með fréttum.
Dagsferð á Njáluslóðir
fimmtudagin 7. júní n.k.
Skráning hafin, allar
upplýsingar í Hraunseli
sími 555-0142.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum
frá kl. 10–17, kl. 10.30
boccia, kl. 13 félagsvist,
kl. 17 bobb. Söngfugl-
arnir taka lagið kl. 15.15
Guðrún Guðmundsdóttir
mætir með gítarinn.
Félag eldri borgara
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin virka daga frá kl.
10–13. Matur í hádeg-
inu. Miðvikudagur:
Göngu-Hrólfar fara í
létta göngu frá Ásgarði
Glæsibæ kl. 10. Söng-
félag FEB kóræfing kl.
17. Línudanskennsla
Sigvalda fellur niður.
Söngfélag FEB ásamt
þrem öðrum kórum
syngja í Breiðholts-
kirkju nk. laugardag 19.
maí kl. 15. Þriðjudaginn
29. maí verður farin
stutt vorferð í Hafn-
arfjörð og Heiðmörk.
Lagt verður af stað kl.
13. og leið lögð um
Hafnarfjörð og þar litast
um undir leiðsögn Rún-
ars Brynjólfssonar. Síð-
an ekið um Heiðmörkina
og staldrað þar við og
Vatnsveita Reykjavíkur
skoðuð. Að lokum eru
kaffiveitingar í boði
Orkuveitu Reykjavíkur.
Brottför frá Glæsibæ kl.
13. Leiðsögn Páll Gísla-
son og Pálína Jóns-
dóttir. Skráning hafin.
6.-8. júní ferð til Vest-
mannaeyja. Skoð-
unarferðir um eyjuna.
Gisting á Hótel Þórs-
hamri. Nokkur sæti
laus. ath. lækkað verð.
Ath. þeir sem pantað
hafa pláss í Vest-
fjarðaferð 2.-7. júlí vin-
samlegast staðfestið
sem fyrst, vegna fjölda
þátttakenda. Silfurlínan
opin á mánudögum og
miðvikudögum frá kl.
10–12. Ath. skrifstofa
FEB er opin frá kl. 10–
16. Uppl. í s. 588 2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9 opin
vinnustofa, postu-
línsmálun, kl. 13.30 sam-
verustund.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, kl. 10.30 gamlir
leikir og dansar, frá há-
degi spilasalur opinn,
Tónhornið fellur niður.
Veitingar í kaffihúsi
Gerðubergs. Allar upp-
lýsingar um starfsemina
á staðnum og í s.
575 7720.
Hraunbær 105. Kl. 9–
16.30 bútasaumur, kl. 9–
12 útskurður, kl. 11
banki, kl. 13 brids.
Hvassaleiti 58–60. Kl. 9
keramik, tau- og silki-
málun og jóga, kl. 11
sund í Grensáslaug, kl.
15 teiknun og málun.
Korpúlfarnir, eldri
borgarar í Grafarvogi,
hittast á morgun
fimmtudag kl. 10 á
Korpúlfsstöðum. Kaffi-
stofan opin. Allir vel-
komnir. Nánari upplýs-
ingar veitir Þráinn
Hafsteinsson í síma
5454-500.
Norðurbrún 1. Fótaað-
gerðastofan opin frá kl.
9–14, kl. 9–12.30 út-
skurður, kl. 9–16.45
handavinnustofurnar
opnar, kl. 10 sögustund,
kl. 13–13.30 bankinn, kl.
14 félagsvist, kaffi og
verðlaun.
Vesturgata 7. Kl. 8.30
sund, kl. 9.15 myndlist-
arkennsla og postulíns-
málun, kl. 13–16 mynd-
listarkennsla,
glerskurður og postu-
línsmálun, kl. 13–14
spurt og spjallað. Föstu-
daginn 18. maí er dans-
að undir stjórn Sigvalda
í kaffitímanum, gott með
kaffinu. Laugardaginn
19. maí eru tónleikar í
Breiðholtskirkju kl. 15.
Söngfuglar: Kór félags-
starfs aldraðra, söng-
félag F.E.B., Gerðu-
bergskórinn og kór eldri
borgara í Garðabæ
syngja. Allir velkomnir.
Mánudaginn 21. maí
verður farið á hand-
verkssýningar að
Hvassaleiti og Norð-
urbrún. Lagt af stað kl.
13. Flóamarkaður verð-
ur á Vesturgötu 7 mið-
vikudaginn 23. og föstu-
daginn 25. maí kl.
13-16.30.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan,
kl. 9.30 bankaþjónusta,
kl. 10 morgunstund,
bókband og bútasaum-
ur, kl. 13 handmennt og
kóræfing, kl. 13.30 bók-
band, kl. 14.10 versl-
unarferð.
Bústaðakirkja starf
aldraðra, miðvikudaga
kl. 13–16.30 spilað,
föndrað og bænastund.
Boðið upp á kaffi.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Nánari
uppl. á skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Kvenfélag Bústaða-
sóknar fer dagsferð á
Njáluslóðir og víðar
laugardaginn 26. maí.
Kvöldverður á veitinga-
húsinu Við Fjöruborðið
á Stokkseyri. Signý og
Erla verða í Bústaða-
kirkju frá 19-20 fimmtu-
daginn 17. maí og taka á
móti innborgunum á
ferðina.
Haukar, Öldungaráð.
Sumarferðin er 13. júní.
Skráning í símum 555-
0176 eða 555-0852.
Í dag er miðvikudagur 16. maí 136.
dagur ársins 2001. Orð dagsins:
Er Ísbóset sonur Sáls frétti, að
Abner væri dauður í Hebron,
féllust honum hendur, og allur
Ísrael varð óttasleginn.
(II Sam. 4, 1.-2.)
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 kría, 4 þyrping, 7 lofað,
8 óhæfa, 9 kraftur, 11
skelin, 13 fiskurinn, 14
dögg, 15 vegg, 17 ilma, 20
hlass, 22 heldur, 23 hefja,
24 ávöxtur, 25 fugl.
LÓÐRÉTT:
1 þjónustustúlka, 2 hæsi,
3 sníkjudýr, 4 fatnað, 5
frumeindar, 6 duglegur,
10 flandur, 12 miskunn,
13 væla, 15 glampi, 16
kind, 18 orða, 19 dýrin,
20 sóminn, 21 slæmt
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 góðgætinu, 8 skælt, 9 nætur. 10 agn, 11 arinn,
13 alinn, 15 mögla, 18 efsta, 21 fen, 22 trant, 23 geðug, 24
Dalabyggð.
Lóðrétt: 2 ólæti, 3 gátan, 4 tunna, 5 nýtni, 6 espa, 7
grun, 12 nál, 14 lyf, 15 meta, 16 glaða, 17 aftra, 18 Eng-
ey, 19 siðug, 20 auga.
Víkverji skrifar...
YFIRBRAGÐIÐ í sveitum lands-ins, á einstökum sveitabæjum,
er mjög misjafnt eins og landsmenn
vita. Víkverji var nýverið á ferð á
hringveginum og þótt hann færi
nokkuð hratt yfir varð honum enn
ljósara en oft áður hversu ólík um-
gengnin og snyrtimennskan er á ein-
stökum bæjum.
Sumir virðast leggja metnað sinn í
að hafa híbýli sín og útihús vel máluð
og hirt. Þeir hinir sömu bændur
ganga einnig þannig frá vélum og
tækjum að loknu verki að öllu er
stillt upp á smekklegan hátt en ekki
skilið við vélar hér og þar um tún og
engi, rétt eins og menn hafi stigið af
þeim á ferð og hlaupið heim í kaffi.
Það sama á oft við um heyrúllurnar,
stundum er þeim hent einhvern veg-
inn saman en oftar má sjá hreinar
línur í uppstillingu þeirra. Þessu tek-
ur ferðalangur eftir þegar hann
þeysir hjá garði bænda og er ólíkt
ánægjulegra að virða fyrir sér bú
þar sem snyrtimennskan svífur yfir.
x x x
ÚR því að minnst er á ferð umhringveginn verður Víkverji að
gera að umtalsefni nýja vegarkafl-
ann á Möðrudalsöræfum. Eða öllu
heldur kaflann sem liggur ekki um
Fjöllin heldur nokkru austar, oft
kölluð Háreksstaðaleið. Er þá ekið
fyrst eins og leiðin liggi til Vopna-
fjarðar en síðan á nýjum og mjög
góðum vegi til austurs og síðan í suð-
urátt þar til komið er á fyrri veg
skammt vestan Gilsár áður en leiðin
liggur ofan í Jökuldal.
Þessi leið er einhvern veginn mun
svipminni heldur en fyrri leið, að
minnsta kosti þegar ekið er frá Mý-
vatni og austur um. Útsýni er trú-
lega annað og meira þegar ekið er í
hina áttina og fleiri og stærri fjöll
blasa við. Ekki er farið um Möðru-
dalsfjallgarðana sem eru tilkomu-
miklir og ekki um Geitasand og því
finnst ferðalang vanta þessa gömlu
kunningja sem geta verið svo ólíkir
eftir því hvernig veðurfar skipast.
Leiðinni var breytt til að stytta
vegalengd milli Vopnafjarðar og Eg-
ilsstaða og að einhverju leyti vegna
þess að hún er talin snjóléttari. Ekki
hefur þó reynt á það þar sem snjóa-
lög voru nánast ekkert til trafala á
liðnum vetri.
Víkverji saknar þess að fara ekki
um Möðrudal, bæinn sem er einna
lengst frá sjó allra bæja og geta áð
þar í Fjallakaffi, skoðað kirkjuna eða
bara viðrað sig á hlaðinu áður en
haldið er lengra. Þetta er að vísu
hægt að sumarlagi og auðvitað hægt
að taka krókinn og líta við hvort sem
er. Það eru ekki nema 8 km frá vega-
mótum nýja vegarins að Möðrudal.
En menn myndu trúlega ekki leggja
hann á sig bara svona að gamni.
x x x
SVO áfram sé talað um sveitina þámerkti Víkverji bæði breytingar
og stöðugleika í sveitinni sem hann
var í fyrir margt löngu á þessari yf-
irreið.
Það sem breytist eru ný og stærri
hús, ný lönd eru brotin til ræktunar
og meira ber á auglýstri ferðaþjón-
ustu. Það sem breytist ekki eru
gömlu vélarnar sem lagt hefur verið
og fá enn að hvíla á sama stað í tún-
fætinum og kannski gömlu bílarnir.
Sá Víkverji til dæmis Willys-jeppann
sem hann var sóttur á af bónda á ná-
grannabæ fyrir nokkrum áratugum
þegar hann hélt til sveitadvalar úr
höfuðborginni. Hann hefur greini-
lega fengið að hvíla undir bæjarvegg
síðustu árin.
ÞAÐ er nú þannig að karl-
inn í brúnni þarf að huga að
hásetunum. Hásetarnir eru
nefnilega þjóðin, sem hefur
kosið karlinn í brúnni til að
stjórna þjóðarskútunni.
Þess er vænst að allir þjóð-
félagsþegnar sitji nokkurn
veginn við sama borð. Því
er nú ekki aldeilis svo farið.
Einokunar- og fákeppnis-
öflum hefur verið gefinn
laus taumur, þannig að
verðlag hefur farið úr
böndunum.
Kjörum aldraðra og ör-
yrkja hefur hrakað frá 1987
og þeir sem hafa setið við
stjórnvölinn frá þeim tíma
til dagsins í dag, karlarnir í
brúnni, bera alfarið ábyrgð
á þeirri fátækt sem ríkir
hjá þessum hópum á Ís-
landi í dag. Þessir hópar
hafa þurft að leita til Hjálp-
arstofnunar kirkjunnar,
Rauða krossins og annarra,
sem hafa tekið að sér að sjá
um málefni þessara hópa.
Þetta er blákaldur sann-
leikur, sem karlinn í brúnni
á hverjum tíma fyrir sig,
verður að horfast í augu
við. Nema að karlinn í
brúnni sé með lepp fyrir
báðum augum og tappa í
eyrunum til þess að vita
sem minnst um það ástand
sem ríkir meðal þessara
hópa, sem virðast vera af-
gangshópar í þessu þjóð-
félagi. Baráttu þessara
hópa fyrir bættum kjörum
er ekki lokið, hún heldur
áfram.
Gunnar G. Bjartmarsson.
Varðandi
1. maí 2001
VARÐANDI ummæli Hall-
gríms Helgasonar um 1.
maí sl. í Velvakanda 15. maí
sl. vil ég taka undir ummæli
Hallgríms. Verkalýðs-
hreyfingarnar hafa staðnað
í hátíðarhöldum á 1. maí.
Meira þarf að gera fyrir
unga fjölskyldufólkið. Iðn-
nemasamband Íslands stóð
fyrir hátíðarhöldum þenn-
an sama dag í Fjölskyldu-
og húsdýragarðinum þar
sem létt skemmtidagskrá
fyrir börn og fullorðna var
haldin. Í garðinn mættu um
1.500 manns þrátt fyrir að
fjölmiðlar, að undanskild-
um tveim útvarpsrásum,
sýndu þessu engan áhuga.
Einungis 500–600 manns
þrömmuðu niður á Ingólfs-
torg og þykir mér það
nokkuð sýnt að Iðnnema-
samband Íslands muni
halda þessa hátíð að ári. Því
vil ég persónulega bjóða
þér Hallgrímur, þinni fjöl-
skyldu og öðrum lands-
mönnum í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinn 1. maí
2002.
Kær kveðja,
Jónína Brynjólfsdóttir
Formaður Iðnnemasam-
bands Íslands.
Afnám skatta á lítil
og miðlungs fyrirtæki
NÚ gefur Össur Skarphéð-
insson í skyn að það komi
til greina að lækka skatta
lítilla og meðalstórra fyrir-
tækja. Nú spyr ég, eru ekki
heimilin fyrirtæki? Jó-
hanna Sigurðardóttir,
flokkssystir Össurar, er
ekki svo lítið búin að hafa
orð á skuldum heimilanna í
landinu.
Þó að ekki væri gert ann-
að en að fella niður hluta af
þeim skatti, sem ríkið tekur
til sín af bensínverði, þá
kæmi það sér vel fyrir
heimilin í landinu, því að
bílaeign og -notkun, eink-
um á höfuðborgarsvæðinu,
er ekki lúxus heldur nauð-
syn í mörgum tilvikum. Sá
skattur sem lagður er á elli-
og örorkubætur ætti hrein-
lega ekki að vera til. Þing-
menn og ráðherrar hafa
500–700 þúsund krónur á
mánuði, sem er meira en
öryrkjar og ellilífeyrisþeg-
ar hafa í tekjur yfir árið. Ég
held að það sé kominn tími
til að stokka upp í þessu
þjóðfélagi, því það er
örugglega vitlaust gefið í
þessu spili.
Öryrki.
Tapað/fundið
Svört taska
tapaðist
SVÖRT taska tapaðist í
miðbæ Reykjavíkur aðfara-
nótt sunnudagsins 13. maí
sl. Hún gæti hafa tapast
neðst á Hverfisgötu eða í
Lækjargötunni. Í töskunni
var Nokia GSM-sími og
stór lyklakippa. Skilvís
finnandi er vinsamlegast
beðinn að hafa samband í
síma 552-4543 eftir kl. 19.
Farsími í
óskilum
FARSÍMI fannst á Úlfars-
felli sunnudaginn 13. maí sl.
Upplýsingar í síma 568-
5990.
Dýrahald
Mjása er týnd
HÚN hvarf frá heimili sínu
á Vesturvallagötu fyrir
mánuði. Hún er grábrönd-
ótt og mjálmar mikið.
Hennar er sárt saknað.
Ef einhver getur gefið
upplýsingar um ferðir
hennar er sá hinn sami vin-
samlegast beðinn um að
hafa samband í síma 551-
8494 eða 860-5566.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Um karlana
í brúnni