Morgunblaðið - 07.06.2001, Side 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2001 11
ÁRNI Johnsen alþingismaður segir
þörf á að skipa hóp sem geti verið
Hafrannsóknastofnun innan handar
og til ráðgjafar. „Ég hef talið að ætti
að skipa ráðgjafahóp vegna fisk-
veiðistjórnunar og að í honum ættu
að vera 25 til 30 reyndir skipstjórn-
armenn,“ segir Árni.
„Þeir ættu að koma saman einu
sinni til tvisvar á ári, bera saman
bækur sínar um ástand fiskistofna
með reynslu sína, þekkingu og eigin
hugmyndir að leiðarljósi. Reyndin
er nefnilega sú að þeir sem eru
veiðimennirnir hafa mestan hag af
því og hug til að vernda það um-
hverfi sem þeir sækja í. Ég hef talið
að þeir ættu bæði að koma fram með
sjálfstæðar hugmyndir í fiskveiði-
stjórnunarmálum, sem gætu verið
ráðgefandi fyrir ráðherra og einnig
að fara yfir plögg Hafrannsókna-
stofnunar. Stofnunin ætti svo líka að
skoða þeirra hugmyndir. Þannig
gætu þeir borið saman bækur sínar,
þeir sem vinna í nafni vísindanna
eftir ákveðnu líkani og hinir sem
hefðu reynsluna beint í æð og berum
höndum.“
Meiri sátt um niðurstöður
Árni telur að taka þurfi meira til-
lit til reynslu skipstjórnarmanna
þegar meta þarf niðurstöður í af-
greiðslu mála og hann telur að það
mundi þýða meiri þekkingu sem
byggja mætti á erfiðar ákvarðanir
um skerðingu og meiri sátt um þær
ákvarðanir. „Þetta er svo sem ekk-
ert nýtt,“ segir Árni, „ég hef marg-
oft lýst þessum skoðunum áður á
undanförnum áratug, bæði á Alþingi
og á fundum.“
Árni segir þessar tillögur ekki
lýsa vantrausti á starfsmenn Haf-
rannsóknastofnunar: „Þeir eru að
vinna sitt starf á ákveðnum forsend-
um. Þarna kemur fyrst og fremst
inn viðbót og ábyrgðinni er dreift,“
segir Árni og bætir við að með þessu
móti fáist sterkari grunnur til að
byggja á. Hann telur samt að ekki
yrði óskaplega mikill munur á nið-
urstöðum sem fengnar væru með
þessu móti og þeim sem fást í dag.
„Veiðimennirnir hafa engu að síður
hvunndagsreynslu frá degi til dags,
þeir læra á ákveðið munstur á
hverju veiðisvæði fyrir sig og eru
þar af leiðandi ekki með úrtaksað-
ferðina eins og líkan Hafrannsókna-
stofnunar byggist á.“
Þekkingarleysi ekki
um að kenna
Árni telur ekki hægt að fullyrða
að þekkingarleysi hafi valdið
skekkju í stofnstærðarmælingum
Hafrannsóknastofnunar. „Mig grun-
ar kannski að þar fari saman ein-
hver skekkja í líkani og hins vegar
að menn séu að draga rangar álykt-
anir eða ekki dragandi ályktanir af
ástandi og aðstæðum í hafinu.“ Árni
segir það hafa verið sína skoðun
lengi að styrkja þurfi rannsóknar-
starf verulega en að fjárskortur geti
varla verið orsakavaldur skekkju í
stofnstærðarmælingum. „Rannsaka
þarf miklu betur hafið í kringum
landið og leita eftir alþjóðlegu sam-
starfi í þeim efnum því kostnaður
við verkefni af því tagi sem ég hef í
huga gæti hlaupið á milljörðum,“
segir Árni.
Árni Johnsen alþingismaður vill að fleiri verði kallaðir að fiskveiðiráðgjöf
Hópur skipstjórn-
armanna veiti fiski-
fræðingum ráðgjöf
ÞROSKAÞJÁLFAR og fjölskyldur
þeirra fjölmenntu á fund við Ráðhús
Reykjavíkur í hádeginu í gær þar
sem þroskaþjálfar hjá Reykjavíkur-
borg sem verið hafa í verkfalli í 20
daga, þáðu súpu sem þroskaþjálfar
sem starfa hjá ríkinu, sjálfseignar-
stofnunum og sveitarfélögum elduðu.
Sólveig Steinsson, formaður Þroska-
þjálfafélags Íslands, sagðist mjög
ánægð með fundinn. „Ég vill koma á
framfæri bestu þökkum til félaga
minna fyrir þetta frábæra súpueld-
hús. Ákveðið var að elda fyrir þroska-
þjálfana sem eru í verkfalli svo þeir
og fólkið þeirra fengi gott að borða,
að minnsta kosti annað slagið. Súpan
er frekar þunn en góð, enda eru
þroskaþjálfar vanir að þurfa að gera
gott úr litlu.“
Ýmsum ráðamönnum var einnig
boðið að þiggja súpu en Sólveig sagði
það vonbrigði hversu fáir þeirra létu
sjá sig.
Samningafundur með
Reykjavíkurborg í dag
Þroskaþjálfar sem starfa hjá
Reykjavíkurborg hafa verið í verk-
falli síðan 18. maí og sagðist Sólveig
ekki vera bjartsýn á að verkfallið
leysist á næstunni en samningafund-
ur er boðaður í dag. Þroskaþjálfar
sem starfa hjá öðrum sveitarfélögum
en Reykjavíkurborg gengu frá samn-
ingi við launanefnd sveitarfélaga síð-
astliðinn föstudag. Verið er að kynna
þann samning fyrir félagsmönnum og
mun niðurstaða atkvæðagreiðslu um
hann liggja fyrir á laugardag, að sögn
Sólveigar. Þá er unnið að atkvæða-
greiðslu vegna verkfallsboðunar
þroskaþjálfa sem starfa hjá ríkinu, en
félagsdómur dæmdi verkfall þeirra í
síðustu viku ólögmætt.
Vilja svipaðan samning við
Reykjavíkurborg og hin
sveitarfélögin
Birgir Björn Sigurjónsson, for-
maður samninganefndar Reykjavík-
urborgar, var einn þeirra sem mætti
á fundinn en hann segir að nefndin sé
tilbúin til að gangast undir hliðstæð-
an samning og þroskaþjálfar hafa
gert við hin sveitarfélögin. „Áður en
til verkfallsins kom vorum í samn-
inganefndinni búin að gera ítrekaðar
tilraunir til að ná niðurstöðu svo ekki
þyrfti að koma til verkfallsins. Við-
ræður fóru hins vegar hægt af stað
eftir að verkfallið hófst því við töldum
okkur vera búin að bjóða allt sem við
gætum og rúmlega það. Við höfðum
haft á orði við viðsemjendur okkar að
samningurinn við hin sveitafélögin
yrði fyrirmynd en það hlaut ekki góð-
ar undirtektir.“ Hann segir að sá
samningur feli í sér meðalhækkun
launa upp á 36-37% í upphafi en að
hækkun á samningstímabilinu sem er
til 2004, sé talsvert yfir 50%. „Mér
finnst eðlilegt að við bjóðum sömu
kjör og sá samningur hljóðar upp á og
tel hann vera góðan kost fyrir alla.
Við höfum allan tíman viðurkennt að
þroskaþjálfar hafa dregist óeðlilega
mikið úr miðað við sambærilegar
stéttir og því ákváðum við í upphafi
samningalotunnar að gera sérstak-
lega vel við þann hóp. Það tel ég okk-
ur hafa gert bæði með tilboðum okkar
áður en til verkfallsins kom og það tel
ég okkur einnig vera að gera með því
að staðfesta að við séum tilbúin til að
gangast undir sama samning og hin
sveitarfélögin.“
Hann segist nokkuð bjartsýnn á að
samningar náist á næstunni. „Við
munum halda áfram að reyna að leita
að lausn sem gefur niðurstöðu. Ég
vona að hún fáist sem fyrst.“
Ólíkir hópar
Sólveig segir að þroskaþjálfar hjá
Reykjavíkurborg leggi áherslu á
nokkuð annars konar samning vegna
mismunandi samsetningar innan
hópanna tveggja, hjá Reykjavíkur-
borg sé t.d. stór hópur í lægstu launa-
flokkunum en fáir í hinum sveitar-
félögunum. Hún segir að
samninganefnd Reykjavíkurborgar
hafi ekki verið tilbúin til að ræða kröf-
ur þeirra fyrr en samningurinn við
launanefnd sveitarfélaganna var und-
irritaður og og á meðan beðið var eft-
ir því hafi ekki verið reynt að koma til
móts við þær kröfur. Hún segist ekki
tilbúin til að skrifa undir svipaðan
samning fyrr en ljóst er hvort hann
verður felldur eða samþykktur hjá
félagsfólki. „ Ég vil vita hvaða afdrif
hann fær hjá þroskaþjálfum sem
starfa hjá hinum sveitarfélögunum
áður en farið er að nota hann annars
staðar.“
Þroskaþjálfar í verkfalli buðu upp á súpu við Ráðhúsið
Morgunblaðið/Billi
Þroskaþjálfar gefa formanni samninganefndar Reykjavíkurborgar, Birgi Birni Sigurjónssyni, súpu.
„Erum vön að
gera gott úr litlu“
HJÓLREIÐAKAPPINN Sig-
ursteinn Baldursson er lagður af
stað frá Deadhorse í Alaska í
tveggja ára langa ferð sína þar sem
hann ætlar að hjóla frá nyrstu
strönd Alaska og niður alla Norður-
og Suður-Ameríku og enda í syðst í
Argentínu. Hann mun fara um öll
veðrabelti jarðarinnar, klífa fjöll
þar sem frostið getur orðið 50 gráð-
ur og hjóla í þrúgandi frumskóg-
arhita í Mið-Ameríku. Hann hefur
piparúða við höndina verði birnir
eða fjallaljón á vegi hans.
Lagður af stað í leiðangurinn
LÍFEYRISSJÓÐUR sjómanna
mun áfrýja sýknudómi Héraðsdóms
Reykjavíkur yfir ríkinu til Hæsta-
réttar. Þetta var ákveðið á stjórn-
arfundi sjóðsins í gær.
„Við erum mjög ósáttir við niður-
stöðuna og teljum þetta hið mesta
óréttlæti,“ sagði Árni Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Lífeyrisssjóðs
sjómanna, í samtali við Morgunblað-
ið eftir fundinn. Sjóðurinn stefndi
ríkinu og krafði það um greiðslu á
rúmlega 1,3 milljörðum króna. Sjóð-
urinn taldi að ríkið hefði skert eignir
hans með lagasetningu árið 1981.
Í dómnum kemur fram að oft sé
búið að breyta lögum um sjóðinn.
Með lögunum sem sett voru árið
1981 hafi aðeins verið um tilfærslu á
milli sjóðsfélaga að ræða en ekki
eignaupptöku. Árni bendir hins veg-
ar á að breytingar, hvort sem þær
hafi verið gerðar til að auka eða
minnka réttindi sjóðsins, hafi í flest-
um tilvikum verið gerðar að tilstuðl-
an stjórnar lífeyrissjóðsins og í öllum
tilvikum með samþykki sjóðsstjórn-
ar. „Þetta er í eina skiptið sem lögum
sjóðsins hefur verið breytt án þess
að sjóðsstjórn og þar með fulltrúar
eigenda sjóðsins komi nærri þeirri
breytingu,“ sagði Árni.
„Þarna er tekin algerlega einhliða
ákvörðun af Alþingi. Kjaradeila sjó-
manna, sem var í gangi á þessum
tíma, var leyst og reikningurinn síð-
an sendur sjóðsfélögum sjálfum. Ef
það er eitthvað óréttlæti til þá er það
þetta.“
Hann bætir við að það hljóti að
teljast skrítið að eigi lífeyrissjóður-
inn að standa undir sér sjálfur geti
Alþingi sett íþyngjandi lög en það sé
síðan þeirra sjóðsfélaga sem ekki
njóta góðs af lagabreytingunum að
borga brúsann.
„Sjómönnum er sagt að þeir fái
betri lífeyrisréttindi og þeir hætta í
verkfalli í ljósi þess. Síðan fá þeir
bara reikninginn sjálfir skömmu síð-
ar.“
Lífeyrissjóður
sjómanna áfrýj-
ar sýknudómi
FYLGI stjórnarflokkanna hefur
aukist að undanförnu, samkvæmt
skoðanakönnun Gallups sem Ríkis-
útvarpið birti í gær. Hefur fylgi
Framsóknarflokks og Sjálfstæðis-
flokks ekki verið meira frá því í nóv-
ember í fyrra og fylgi við ríkisstjórn-
ina hefur einnig aukist.
Samkvæmt könnuninni er fylgi
Sjálfstæðisflokks 43% og Framsókn-
arflokks 15%. Samfylkingin er með
19% fylgi, Vinstrihreyfingin – grænt
framboð með 21% fylgi og Frjáls-
lyndi flokkurinn 2%.
Ríkisstjórnin nýtur fylgis 60%
kjósenda samkvæmt könnuninni,
sem tekin var vikurnar fyrir og eftir
setningu laga á verkfall sjómanna.
Fylgi við
stjórnarflokk-
ana eykst
♦ ♦ ♦