Morgunblaðið - 07.06.2001, Page 62
DAGBÓK
62 FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Ocean Majesty kemur
og fer í dag. Mánafoss
kemur í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Brúarfoss og Sjóli komu
í gær. Markus kemur í
dag.
Fréttir
Kattholt. Flóamarkaður
í Kattholti, Stangarhyl
2, opinn þriðjud. og
fimmtud. kl. 14–17.
Félag frímerkjasafn-
ara. Opið hús laug-
ardaga kl. 13.30–17.
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 9-12
baðþjónusta, kl. 9-12 op-
in handavinnustofa, kl.
9.45-10 helgistund, kl.
10.15 leikfimi,
kl. 11 boccia, kl.9-12
bókband og öskjugerð,
kl.13-16.30 opin smíða-
stofan, kl. 10-16 púttvöll-
urinn opinn
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30 böð-
un, kl. 9–16 almenn
handavinna og fótaað-
gerð, kl.9.30 morg-
unkaffi/dagblöð, kl.
11.15 matur, kl. 14–15
dans hjá Sigvalda, kl. 15
kaffi.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18–20. Kl. 9
böðun og hárgreiðslu-
stofan opin.
Félagsstarf aldraðra
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 9.fótaaðgerð, kl.
10 hársnyrting, kl. 11.20
leikfimi, kl. 11.30 matur,
kl. 13 föndur og handa-
vinna, kl. 15 kaffi.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Dagsferð á Njáluslóðir í
dag rúta frá Hraunseli
kl. 12. Þriggja daga ferð
til Hornafjarðar hefur
verið breytt, verður far-
ið 3. júlí, nálgist farseðla
sem fyrst í Hraunseli.
Orlofið að Hótel Reyk-
holti Borgarfirði 26.
águst n.k. Skráning haf-
in, allar upplýsingar í
Hraunseli sími 555-
0142.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin virka daga frá kl. 10
til 13. Matur í hádeginu.
Brids kl. 13. Ath: Farin
verður dagsferð 10. júní
austur í Mýrdal, farið
verður m.a. niður að
Görðum í Reynishverfi,
upp í Heiðardal, að
Skógum og Vík. Leið-
sögn: Ólöf Þórarins-
dóttir. Vinsamlegast
skráið ykkur sem fyrst
og sækið farmiða. Dags-
ferð 13. júní. Nesjavell-
ir-Grafningur-
Eyrarbakki. Húsið –
Sjóminjasafnið á Eyr-
arbakka skoðað. Leið-
sögn: Tómas Einarsson
og Pálína Jónsdóttir.
Nokkur sæti laus. 19.-
22. júní. Trékyllisvík 4
dagar gist að Valgeirs-
stöðum í Norðurfirði
svefnpokapláss. Ekið
norður strandir. Farið í
gönguferðir og ekið um
sveitina. Ekið heimleiðis
um Tröllatunguheiði eða
Þorskafjarðarheiði. Síð-
ustu skráningardagar.
Eigum nokkur sæti laus.
Leiðsögn Tómas Ein-
arsson. Silfurlínan er
opin á mánu- og mið-
vikudögum frá kl. 10 til
12 f.h. í síma 588-2111.
Upplýsingar á skrifstofu
FEB kl. 10 til 16 í síma
588-2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
opin vinnustofa, gler-
skurður, kl. 9–17 hár-
greiðsla og böðun, kl. 10
leikfimi, kl. 13.30 bóka-
bíll, kl.15.15 dans.
Gerðuberg, félagsstarf.
Sund og leikfimiæfingar
í Breiðholtslaug kl. 9.30,
umsjón Edda Bald-
ursdóttir, íþróttakenn-
ari. Helgistund fellur
niður vegna ferðalags
Fella- og Hóla-
kirkjusafnaðar, spila-
salur og vinnustofur
opnar frá hádegi.
Miðvikudaginn 21. júní
Jónsmessufagnaður í
Skíðaskálanum í Hvera-
dölum. Miðvikudaginn
27. júní ferðalag í Húna-
þing vestra, nánar
kynnt. Sumardagskráin
komin. Allar veitingar í
kaffihúsi Gerðubergs.
Allar upplýsingar um
starfsemina á staðnum
og í s. 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnnustofan opin
leiðbeinandi á staðnum
kl. 9–15, gler og postu-
lín.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.15 postulíns-
málun, kl. 13–16 handa-
vinnustofan opin, leið-
beinandi á staðnum.
Hraunbær 105. Kl. 9–
16.30 bútasaumur,
perlusaumur og korta-
gerð, kl. 9 fótaaðgerð, kl.
9.45 boccia, kl. 14 félags-
vist.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun, fótaaðgerðir og
hárgreiðsla, kl. 10
boccia, kl. 13 handa-
vinna, kl. 14 félagsvist.
Norðurbrún 1. Kl. 9
handavinnustofurnar
opnar, útskurður, kl. 10
leirmunanámskeið.
Vesturgata 7. Kl. 9 dag-
blöð og kaffi, fótaað-
gerðir og hárgreiðsla, kl.
9.15–12 aðstoð við böð-
un, kl. 9.15–15.30 al-
menn handavinna, kl. 10
boccia, kl.11.45 matur,
kl. 13–14 leikfimi, kl.
14.30 kaffi.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan,
og hárgreiðsla, kl. 9.30
morgunstund og almenn
handmennt, kl. 10 boccia
og fótaaðgerðir, kl. 11.45
matur, kl. 13 frjálst spil,
kl.14 létt leikfimi,
kl.14.30 kaffi.
Ga-fundir spilafíkla eru
kl. 18.15 á mánudögum í
Seltjarnarneskirkju
(kjallara), kl. 20.30 á
fimmtud. í fræðsludeild
SÁÁ Síðumúla 3–5 og í
Kirkju Óháða safnaðar-
ins við Háteigsveg á
laugard. kl. 10.30.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Nánari
uppl. á skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Ellimálaráð Reykjavík-
urprófastdæma, Breið-
holtskirkju við Þang-
bakka. Skálholtsskóli,
Ellimálanefnd Þjóð-
kirkjunnar og Elli-
málaráð Reykjavík-
urprófastsdæma efna til
sumardvalar fyrir eldri
borgara í Skálholti. Boð-
ið er til fimm daga dval-
ar í senn og raðast þeir
þannig: 25 til 29. júní, 2.
til 6. júlí og 9. til 13. júlí.
Allar nánari upplýsingar
eru veittar á skrifstofu
Ellimálaráðs Reykjavík-
urprófastsdæma f.h.
virka daga í síma 557-
1666.
Púttklúbbur Ness, pútt-
að verður á Rafstöv-
arvelli fimmtudaginn 7.
júní kl. 13.
Haukar, Öldungaráð.
Sumarferðin er 13. júní.
Skráning í símum 555-
0176 eða 555-0852.
Brúðubílinn
Brúðubílinn, verður í
dag fimmtudag kl. 10 við
Austurbæjarskóla og kl.
14 við Barðavog og á
morgun föstudag kl. 10
við Hamravík.
Minningarkort
Styrktarfélags krabba-
meinssjúkra barna.
Minningarkort eru af-
greidd í síma 588-7555
og 588-7559 á skrifstofu-
tíma. Gíró- og kred-
itkortaþjónusta.
Samtök lungnasjúk-
linga. Minningarkort
eru afgreidd á skrifstofu
félagsins í Suðurgötu 10
(bakhúsi) 2. hæð, s. 552-
2154. Skrifstofan er opin
miðvikud. og föstud. kl.
16–18 en utan skrifstofu-
tíma er símsvari. Einnig
er hægt að hringja í
síma 861-6880 og 586-
1088. Gíró- og kred-
itkortaþjónusta.
MS-félag Íslands. Minn-
ingarkort MS-félagsins
eru afgreidd á Sléttu-
vegi 5, Rvk, og í síma
568-8620 og myndrita s.
568-8688.
FAAS, Félag aðstand-
enda alzheim-
ersjúklinga. Minning-
arkort eru afgreidd alla
daga í s. 533-1088 eða í
bréfs. 533-1086.
Heilavernd. Minning-
arkort fást á eftirtöldum
stöðum: í síma 588- 9220
(gíró) Holtsapóteki,
Vesturbæjarapóteki,
Hafnarfjarðarapóteki,
Keflavíkurapóteki og
hjá Gunnhildi Elíasdótt-
ur, Ísafirði.
Parkinsonsamtökin.
Minningarkort Park-
insonsamtakanna á Ís-
landi eru afgreidd í síma
552-4440 frá kl. 13-17.
Eftir kl. 17 í s. 698-4426
Jón, 552-2862 Óskar eða
563-5304 Nína.
Í dag er fimmtudagur 7. júní, 158.
dagur ársins 2001. Orð dagsins:
Enginn hefur nokkurn tíma
séð Guð. Sonurinn eini, Guð,
sem er í faðmi föðurins, hann
hefur birt hann.
(Jóh. 1, 18.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 sársaukafull, 8 fáskipt-
inn, 9 báran, 10 reið, 11
erlend mynt, 13 borga, 15
korntegundar, 18 sjávar-
dýrs, 21 spil, 22 börðu, 23
dylja, 24 rétta.
LÓÐRÉTT:
2 kýs, 3 nemur, 4 afrétt-
ur, 5 hugleysingja, 6
baldin, 7 elska, 12 ótta, 14
fæði, 15 dansleikur, 16
nátta, 17 tími, 18 detta,
19 fælin, 20 geð.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 hægur, 4 gáfan, 7 pólum, 8 áræði, 9 aum, 11
naut, 13 saga, 14 illum, 15 gagn, 17 átak, 20 hné, 22 mol-
ar, 23 tálma, 24 mauks, 25 róaði.
Lóðrétt: 1 hæpin, 2 guldu, 5 rúma, 4 Glám, 5 fræða, 6
neita, 10 ullin, 12 tin, 13 smá, 15 gómum, 16 gildu, 18
tylla, 19 klaki, 20 hrós, 21 étur.
Víkverji skrifar...
Í DAG fara fram kosningar í Bret-landi og bendir flest til þess að
Verkamannaflokkurinn vinni þar
góðan sigur. Þótt kosningarnar hafi
ekki verið tiltakanlega spennandi
hefur samt verið gaman að fylgjast
með kosningabaráttunni. Tilraunir
Íhaldsflokksins til að láta kosning-
arnar fjalla um Evrópumál og um
afdrif breska pundsins hafa ekki
orðið til að styrkja stöðu flokksins.
Almenningur virðist hafa meiri
áhuga á velferðarmálum ýmiss kon-
ar. Það virðist einnig skína í gegn að
almenningur hefur ekki mikinn
áhuga á að breyta til meðan staðan í
efnahagsmálunum er jafngóð og hún
hefur verið í stjórnartíð Verka-
mannaflokksins.
Sky-sjónvarpsstöðin hefur fylgst
ítarlega með kosningabaráttunni.
Stjórnmálaskýrandi stöðvarinnar,
Adam Boulton, ræddi t.d. við Tony
Blair, forsætisráðherra og formann
Verkamannaflokksins, og William
Hague, formann Íhaldsflokksins, í
síðustu viku. Boulton krafði báða
frambjóðendur um ítarleg svör við
því hvernig þeir ætluðu að láta lof-
orð í skattamálum ríma við loforð
um umbætur í mennta- og velferð-
armálum. Boulton hefur mikla þekk-
ingu á því sem hann er að spyrja um
og lætur stjórnmálamennina ekki
komast upp með loðin og óljós svör.
Hann grípur ítrekað fram í fyrir
þeim þegar þeir eru að reyna að
koma sér undan því að svara óþægi-
legum spurningum án þess þó að
virka dónalegur. Þegar þeir eru að
segja eitthvað sem skiptir máli leyfir
hann þeim að njóta sín.
Það er ljóst að íslenskir sjón-
varpsmenn geta mikið lært af koll-
egum sínum á erlendum sjónvarps-
stöðvum. Hér á landi er of algengt
að stjórnmálamenn komist upp með
að svara í löngu máli og oft er svarið
í engu samræmi við spurninguna.
Það vill og brenna við að fréttamenn
hafi ekki nægilega þekkingu á um-
fjöllunarefninu sem leiðir til þess að
þeir ná ekki að fylgja spurningum
nægilega vel eftir. Frá þessu eru
reyndar heiðarlegar undantekning-
ar.
x x x
FYRIR nokkrum misserum vorufjölmiðlar uppfullir af fréttum
af gengi hlutabréfa og alls kyns
„sérfræðingar“ gáfu hlustendum ráð
um hverju væri best að fjárfesta í.
Þessir „spekingar“ eru meira og
minna horfnir af sjónvarpsskjánum.
Í ljós hefur komið að spádómar
þessara manna voru meira og minna
út í loftið. Víkverji horfði stundum á
þessar umræður og hafði oft á til-
finningunni að spádómar og ráð
þessara manna væru ekki alltaf
byggð á hlutlausu mati. Þetta fólk
var sjálft að kaupa og selja hlutabréf
fyrir hönd fyrirtækja sinna og hafði
að sjálfsögðu hag af því að þessi við-
skipti reyndust arðbær. Upplýsing-
um sem haldið var að kaupendum
gátu þar ráðið miklu.
Reyndar er ósanngjarnt að gagn-
rýna „sérfræðingana“ harðlega fyrir
spádómana. Ábyrgð fjölmiðla er
ekki síður mikil fyrir að hafa gagn-
rýnislaust tekið þátt í þessum leik.
Oftar en ekki fengu þessir sérfræð-
ingar að slá fram spádómum án þess
að þeir væru krafðir um mikinn rök-
stuðning. Fjölmiðlar hafa heldur
ekki verið að krefja þá um skýringar
eftir að hlutabréfin tóku að lækka í
verði.
Víkverji vill taka fram að hann er
ekki einn þeirra sem er pirraður eft-
ir að hafa tapað á hlutabréfabraski.
SIGURÐUR Ólafsson hafði
samband við Velvakanda
vegna vísu, sem lesandi ósk-
aði eftir að fá upplýsingar
um. Vísan er svona:
Þó að opni augu dags/ ein-
hver rofa glæta/ verður
samt til sólarlags/ sunnan
gola og væta.
Sigurður sagði að þessi
vísa hefði verið lausn á
krossgátu í einhverju blaði
fyrir löngu.
Orðsending
til hundaeiganda
ÉG varð fyrir miður
skemmtilegri reynslu
mánudaginn 4. júní sl. er ég
gekk í sakleysi mínu með
hundinn minn á hinni svo-
kölluðu hundaeyju, líkt og í
bleikri bíómynd. Hundurinn
minn var óbundinn, enda
ekki ætlast til þess að þess
þurfi, þar sem eigandi ætti
að hafa stjórn á sínum
hundi. Við brugðum okkur í
boltaleik, en í hita leiksins
kemur þar að okkur stór,
urrandi og geltandi svartur
labrador, sem virtist alls
ekki vera í sínu besta skapi.
Ég varð hálfskelkuð og leit
upp í góðri von um að sjá
eigandann einhvers staðar
nærri tilbúinn að kalla á
hundinn sinn. Mér til mikilla
vonbrigða varð raunin ekki
sú. Eigandinn virtist þá í
sínum eigin heimi í bílnum
sínum, ekkert að fylgjast
með hundinum. Eigandinn
ók svo í burtu og kom svo
bara stuttu seinna og sótti
hundinn.
Með fullri virðingu fyrir
eiganda hundsins, þá er það
algjörlega óviðeigandi að
hafa hunda sína eftirlits-
lausa á stað sem þessum,
þar sem margir og mismun-
andi hundar mætast með
mismunandi afleiðingum.
Atvik sem þessi finnst mér
vera dæmi um mikinn dóna-
skap og sjálfselsku.
Hundaeigandi.
Ferð til
Kýpur
VIÐ vinkonurnar fórum til
Kýpur með Ferðaskrifstof-
unni Sól hf. Þetta var
dásamleg ferð, eyjan falleg
og fólkið sérlega alúðlegt.
Við vorum á Hótel Balmira,
sem er alveg við ströndina
og maður sofnaði við gjálfrið
í öldunum. Við viljum þakka
fararstjórunum Ingvari og
Bobbu fyrir frábæra farar-
stjórn og skemmtanastjór-
anum Eddu fyrir leikfimina,
sem við fórum í á hverjum
morgni ásamt fleiru sem
hún var með.
Guðbjörg og Svava.
Blótsyrði í
þjóðfélaginu
JÓHANNES hafði sam-
band við Velvakanda, því
honum finnst vera of mikið
um blótsyrði í þjóðfélaginu.
Sérstaklega finnst honum
þetta áberandi í þættinum
Ísland í bítið, dagblöðum og
í umræðunum á Alþingi.
Honum finnst þetta alls ekki
vera við hæfi og vill gera at-
hugasemd við þetta.
Tapað/fundið
Kross hvarf úr líkams-
ræktarstöð
KROSS alsettur semelíu-
steinum hvarf úr Líkams-
ræktarstöðinni Hreysti
fyrir hvítasunnuhelgina.
Krossinn er eigandanum af-
ar dýrmætur. Skilvís finn-
andi er vinsamlegast beðinn
að skila honum í umslagi í
afgreiðslu stöðvarinnar, án
allra eftirmála.
Trek-hjól hvarf úr
Fossvoginum
SVART Trek-hjól hvarf úr
Fossvoginum fyrir stuttu.
Vinsamlegast hafið sam-
band í síma 588-8942.
Gleraugu í óskilum
GLERAUGU fundust á
Skúlagötu, laugardaginn 2.
júní sl. Upplýsingar í síma
552-1509.
Moongoose-hjól
í óskilum
MOONGOOSE-hjól í óskil-
um. Upplýsingar í síma 557-
3549.
Foreldrar athugið
SVÖRT hliðartaska tapað-
ist í Laugardalshöllinni 1.
júní sl. Í töskunni var
myndavél, anorakkur,
snyrtidót, skilríki og fleira.
Þetta er mikill missir fyrir
unga stúlku og hún yrði afar
þakklát ef finnandi hefði
samband í síma 565-8186
eða 866-8577.
Gullarmband tapaðist
GULLARMBAND tapaðist
á leiðinni Háaleitisbraut,
Miðbær við Háaleitisbraut
og niður á Laugaveg 28. maí
sl. Upplýsingar í síma 553-
0326.
Hliðartaska tapaðist
RÚSTRAUÐ, loðin hliðar-
taska tapaðist í Úthlíð um
hvítasunnuhelgina. Skilvís
finnandi er vinsamlegast
beðinn að hafa samband í
síma 869-7396.
Dýrahald
Högna vantar heimili
VEGNA flutninga vantar
tveggja ára geldan högna
heimili strax. Upplýsingar
fást í síma 895-7559.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Þó að opni
augu dags
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16