Morgunblaðið - 17.06.2001, Qupperneq 1
Sjálfsvíg einn
alvarlegasti
heilbrigðisvandinn
í heiminum
10 Land lagt undir fótí nafni listarinnar
20
24
Raunsönn
mynd af
sjálfstæðis-
hetjunni
MORGUNBLAÐIÐ 17. JÚNÍ 2001
135. TBL. 89. ÁRG. SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Gleðilega þjóðhátíð!
MIKLAR óeirðir vörpuðu áfram
skugga á leiðtogafund Evrópusam-
bandsins í Gautaborg í gær. Göran
Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar,
sagði að slík ólæti ættu sér engin for-
dæmi í landinu.
Töluverð spenna var í loftinu í
Gautaborg í gærdag en búist var við
að um 25 þúsund manns af ýmsum
þjóðernum tækju þátt í mótmæla-
göngu gegn alþjóðastofnunum og
hnattvæðingu síðdegis. Gönguleið-
inni var breytt vegna ástandsins og
stefnt frá miðbænum.
Sænsk stjórnvöld gripu til þess
ráðs í gær að taka á ný upp landa-
mæragæslu, til að reyna að koma í
veg fyrir straum erlendra óeirða-
seggja til Gautaborgar, og fóru þann-
ig tímabundið á svig við Scheng-
en-samstarfið. Um hádegisbil í gær
höfðu að minnsta kosti 77 manns ver-
ið lagðir inn á sjúkrahús eftir óeirð-
irnar, flestir þeirra lögreglumenn.
Nær sex hundruð óeirðaseggir hafa
verið teknir höndum.
Ungur mótmælandi var enn í lífs-
hættu í gær eftir að hann hlaut skot-
sár á maga og brjóstkassa í átökum
við lögreglu á föstudag. Að sögn yf-
irvalda í Gautaborg greip lögreglu-
maður til skammbyssu sinnar í sjálfs-
vörn þar sem hvorki gúmmíkúlur né
táragas voru tiltæk.
Dómsmálaráðherra Svíþjóðar,
Thomas Bodström, vísaði gagnrýni á
framgöngu lögreglunnar á bug.
„Vandamálið felst ekki í því til hvaða
vopna lögreglan grípur heldur að
hingað eru komin 400 til 500 manns
eingöngu í þeim tilgangi að efna til
óeirða.“
Sænsk dagblöð hafa tekið upp
hanskann fyrir lögregluna og gagn-
rýnt óeirðaseggina harðlega.
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, fordæmdi óeirðirnar í gær og
sagði „anarkistasirkusinn“ bera fulla
ábyrgð á ofbeldinu.
Í drögum að lokayfirlýsingu leið-
togafundarins, sem lögð voru fram í
gærmorgun, eru sett fram ákveðnari
tímamarkmið en áður varðandi inn-
göngu nýrra ríkja í sambandið.
Í drögunum segir að aðildarvið-
ræðum skuli vera lokið „fyrir árslok
2002“ og að stefnt sé að því að fyrstu
löndin sem fái inngöngu muni taka
þátt í kosningum til Evrópuþingsins
árið 2004 „sem meðlimir“, en það
orðalag hefur ekki fyrr verið notað.
Fram kemur þó að umræddar dag-
setningar séu aðeins markmið, ekki
endanleg tímamörk.
Fréttaskýrendur segja yfirlýsing-
unni ætlað að draga úr óvissu sem
skapaðist um stækkunaráform sam-
bandsins eftir að Írar felldu Nice-
sáttmálann í þjóðaratkvæðagreiðslu
fyrr í þessum mánuði.
GEORGE W. Bush Bandaríkjafor-
seti og Vladímír Pútín, forseti
Rússlands, hittust í fyrsta sinn í
Slóveníu í gær.
Fundurinn fór fram í Brdo-kast-
ala, skammt fyrir utan höfuðborg-
ina Ljubljana, en hann var á árum
áður sumardvalarstaður Titos,
fyrrverandi leiðtoga Júgóslavíu.
Fundurinn átti að standa í tvær
klukkustundir, en honum var ekki
lokið þegar Morgunblaðið fór í
prentun.
Búist var við að öryggis- og
varnarmál yrðu í brennidepli,
einkum áform Bandaríkjastjórnar
um að koma upp eldflaugavarna-
kerfi, sem Rússar hafa mótmælt
harðlega. Sáttatónn virtist þó í
Pútín er hann sagði fréttamönnum
skömmu áður en fundurinn hófst
að ummæli Bush á undanförnum
dögum um öryggismál í Evrópu
væru „góður grundvöllur“ fyrir
viðræður þeirra.
Bush kom til Slóveníu frá Pól-
landi í gærmorgun, en hann hefur
í vikunni verið á ferð um sex Evr-
ópulönd.
Yfir 20 mótmælendur
teknir höndum
Lögreglan í Slóveníu tók yfir
tuttugu manns höndum í kjölfar
mótmælaaðgerða í Ljubljana í gær
og sneri auk þess rútu ítalskra
mótmælenda frá landamærunum.
Nokkrir tugir meðlima Green-
peace-umhverfisverndarsamtak-
anna efndu til mótmæla fyrir utan
bandaríska sendiráðið í Ljubljana í
gær og 22 þeirra voru teknir hönd-
um eftir að fimm mótmælendur
stukku yfir girðingu sem umlykur
sendiráðið. Tveir mannanna
hlekkjuðu sig við tröppurnar að
dyrum sendiráðsins og annar
reyndi að klifra upp fánastöng og
fjarlægja bandaríska fánann.
Pútín í heimsókn
til Júgóslavíu
Áformað var að Vladímír Pútín
héldi í heimsókn til Júgóslavíu síð-
degis á laugardag, eftir fundinn
með Bush. Heimsóknin var ákveð-
in með skömmum fyrirvara en
Pútín er fyrsti leiðtogi Rússlands
til að sækja landið heim eftir sund-
urliðun hins kommúníska ríkja-
sambands Júgóslavíu árið 1992.
Áformað var að Pútín ætti fund
með Vojislav Kostunica, forseta
Júgóslavíu, á laugardagskvöld og
aftur á sunnudagsmorgun. Einnig
var búist við að Pútín hitti Zoran
Djindjic, forsætisráðherra Serbíu,
að máli.
Fyrsti fundur
Bush og Pútíns
Ljubljana. APF, AP.
Eldflaugavarnir/6
Miklar óeirðir varpa skugga á leiðtogafund ESB í Gautaborg
Stefnt að
fjölgun ríkja
árið 2004
AP
Hettuklæddir mótmælendur á götum Gautaborgar í gær. Á borðanum
stendur „Niður með kapítalismann“.
Gautaborg. AFP, AP.