Morgunblaðið - 17.06.2001, Side 21

Morgunblaðið - 17.06.2001, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2001 21 Nú býðst þér ótrúlegt tækifæri til þessarar heillandi borgar á verði sem hefur aldrei fyrr sést. Þú bókar tvö sæti til Mílanó þann 6. júlí, en greiðir bara fyrir eitt, og kemst til einnar mest spennandi borgar Evrópu á frábærum kjörum. Frá Mílanó liggja þér allar leiðir opnar um Evrópu og hjá Heimsferðum getur þú valið um gott úrval 3ja og 4 stjörnu hótela. Gildir fyrir heimflug 11. júlí. Verð kr. 15.207 Flugsæti á mann, m.v. 2 fyrir 1. 30.414.- / 2 = 15.207. Skattar kr. 2.495, ekki innifaldir. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. Forfallagjald kr. 1.800. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Aðeins 36 sæti í boði Tveir fyrir einn til Mílanó 6. júlí frá kr. 15.207 TILBOÐ ÓSKAST í Ford Windstar (7 manna) árgerð ´98 (ekinn 19 þús. mílur), vél V-6 3,8 l. og aðrar bifreiðar, er verða sýndar að Grensásvegi 9 þriðjudaginn 19. júní kl. 12-15. Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16 UMSÝSLUSTOFNUN VARNARMÁLA SALA VARNARLIÐSEIGNA valdir tólf staðir á landinu. „Síðan boðuðum við til fundar og buðum fólki að vera með. Þeir sem sýndu þessu áhuga fengu að vera með,“ segir Daníel. Alls óskuðu fjörutíu manns eftir að taka þátt, allir úr myndlistardeild skólans utan tveir sem koma úr grafískri hönnun, og voru þau af öllum árum skólans. Þessi fjörtíu manna hópur skiptist svo niður á staðina tólf sem höfðu boðið sig fram og var þeim uppá- lagt að dvelja þar í eina til tvær vikur og vinna að listsköpun sem enda myndi með sýningu á ákveðnum degi. „Fólk fór þarna með jafnvel ekkert í höndunum. Í flestum tilfellum voru verkin unnin á staðnum og gerð útfrá upplifun fólks á staðnum sem það var á,“ útskýrir Daníel. „Við settum engin skilyrði í því sambandi nema það, að fólk væri á staðnum og opnaði sýninguna á tilteknum tíma. Hins vegar hlýtur það að vera á staðn- um að endurspegla hann að nokkru leyti í listsköpuninni. Kvöðin um að það yrði formleg opnun gerði það að verkum að fólk vann mjög mikið. Sumir fóru þarna og sváfu þrjá til fjóra tíma á nóttu. Þannig að það var rosalegur kraftur í fólkinu og sýningunum. Þær eru allar gjörsamlega ólíkar.“ Algjör snilld Daníel segir að sexmenningarnir í sýningastjórninni séu ánægðir með árangurinn. „Það hlýtur að teljast góð þátttaka í bæjarfélög- um þar sem búa þrjú til fjögur hundruð manns og fjörutíu koma á opnun. Fólk sýndi þessu mikinn áhuga og þeir sem lögðu okkur lið voru algjör snilld. Þetta hefur gengið mjög vel,“ segir hann. Bæj- arfélögin lögðu til húsnæði, vinnu- aðstöðu og sýningarstað, en verk- efnið hlaut auk þess styrk úr Félagsheimilasjóði, frá Listahá- skólanum og nú síðast styrk úr Menningarborgarsjóði, sem veittur var síðastliðinn þriðjudag. Meðal verka sem hóparnir tólf unnu, var skoðanakönnun sem hópurinn á Þorlákshöfn gerði með- al bæjarbúa um hvað þeim fyndist fallegt og merkilegt í bæ sínum, og bíómynd sem tveir nemar úr graf- ískri hönnun unnu alfarið í Nes- kaupsstað, bæði tökur, klippingar og hljóð. Að tengja Ísland saman Opnanirnar á sýningunum tólf fóru fram á ákveðnu tímabili, eng- in sama dag, og ferðuðust sex- menningarnir í sýningastjórninni hringinn í kring um landið með viðkomu á hverjum stað og skrá- settu á ljósmyndir, mynd- og hljóðbönd. Afrakstur þeirrar vinnu er nú sýndur í Laugarnesi og er annar hluti framlags fram- kvæmdastjórnarinnar til Hring- ferðarinnar. Hins vegar mun sá hópur dvelja á Akureyri í júlí og sýna í Ketilhúsinu á Listasumri á Akureyri. „Sýningin inni í Laug- arnesi er afrakstur árs vinnu og skrásetning á þessu ferli,“ segir Geirþrúður Hjörvar sem er, ásamt Daníel, í sýningastjórninni. „Sýn- ingin á Akureyri er frekari útlegg- ing á þessari skrásetningu á verk- efninu og tengist því nokkuð, en þar erum við að sýna okkar eigin list.“ Að sögn þeirra Geirþrúðar og Daníels er hugmyndin andsvar við því að hætta að vinna við myndlist á sumrin, en einnig að tengja land- ið saman og gefa listamönnum tækifæri til að tengjast samfélag- inu. „Okkur hugnaðist að þetta væri eitthvað sem gæfi okkur tækifæri til að halda áfram að vinna við listsköpun á sumrin, fyr- ir utan það að komast út á land og skipta um umhverfi,“ segir Daníel. „Ísland er lítið svæði til að stunda list á, en Reykjavík er ennþá minni,“ bætir Geirþrúður við. „Það er því óþarfi að einskorða sig við hana.“ Þau benda á að Ísland bjóði upp á marga fleiri möguleika en að vinna að listsköpun í Reykjavík. „Hver staður hefur sín sérkenni,“ segir Daníel. „Hér er leitast við að tengja Ísland saman. Þetta er ein stór sýning og Ísland er sýning- arsalurinn.“ ingamaria@mbl.is Lóa Hlín, Pétur Már og Daníel að setja upp verk Lóu og bjástra við uppsetningu sýningarinnar á Seyðisfirði. Hvalurinn sem Úlfur Chaka smíðaði inn í herbergi í Hvalamiðstöðinni á Húsavík. ÚLFUR Chaka er í hópi fimm nem- enda sem fóru til Húsavíkur á veg- um Hringferðarinnar. „Það mynd- aðist ákveðin fjölskyldustemmning þarna við að búa svona saman,“ segir Úlfur, en þau bjuggu í íbúð á vegum heilbrigðisstofnunarinnar á Húsavík. „Okkur var útvegað rosa- lega gott húsnæði til að vinna í og sýna í. Það kom okkur eiginlega á óvart hve mikið er að gerast á menningarvettvangnum á Húsa- vík.“ Hópurinn tók lítið sem ekkert með sér af tækjum til listsköpunar- innar, einungis myndbands- upptökuvélar og hjóðupptökutæki. Hugmyndin var að vinna út frá staðnum og vinna með það efni, sem hann býður upp á. „Allir voru með sitt hvert verkið. Það var mismun- andi hvort fólk var búið að ákveða hvað það ætlaði að gera eða ekki. Margir ákváðu það bara á staðnum. Ég var til dæmis búinn að ákveða að ég ætlaði að gera hval, en ekkert nánar um það. Það skýrðist þegar ég sá hvaða efni var til staðar.“ Að sögn Úlfs var hans hópur ánægður með framtakið hjá skipu- leggjendum Hringvegarins. „Mað- ur hefur séð hvað þetta er búin að vera krefjandi vinna fyrir þau,“ segir hann. „Okkur fannst spenn- andi að vinna úti á landi í þennan tíma og fara í annað umhverfi. Við höfðum bara mjög gaman af þessu.“ Smíðaði hval á Húsavík HAFSTEINN Jóhannesson er sveit- arstjóri Mýrdalshrepps, en Vík í Mýrdal er einn af þeim tólf stöðum sem heimsóttir voru í Hringferð- inni. „Þetta mál snerist ekki um fjárútlát fyrir hreppinn, heldur frekar um velvilja,“ segir Haf- steinn. „Minn áhugi í þessu er fyrst og fremst að lífga upp á lífið og til- veruna með svona menningarlegum uppákomum. Ég held að þetta hafi bara mælst vel fyrir hérna. Stúlk- urnar fjórar sem hér dvöldu voru sýnilegar á staðnum þann tíma sem þær voru og ég held að þeim hafi þótt ágætt að vera hér og að þeim hafi verið vel tekið.“ Að sögn Haf- steins hefur sýningin vakið nokkra athygli og á hann von á því að hún geti orðið hluti af afþreyingu í Vík í Mýrdal meðal ferðamanna. Sýn- ingin er í gamla pósthúsinu, en hluti af henni er í stýrishúsi af bát sem er staðsettur er vestast í þorpinu. „Mér þótti gaman að hafa þær hérna og ég vona að það sé gagn- kvæmt. Ég held að Mýrdalurinn og Vík gæti átt eftir að skila sér á ein- hvern hátt í verkum þeirra í fram- tíðinni,“ segir Hafsteinn. Jákvætt fyrir staðinn og listamennina Hafsteinn Jóhannesson, sveitarstjórinn í Mýrdalshreppi. LÓA Hlín Hjálmtýsdóttir er einn þriggja nemenda sem dvöldu á Seyðisfirði í maí. Ásamt henni voru þau Sólveig Einarsdóttir og Þórarinn Hugleikur Dagsson. „Þetta var allt mjög skemmtilegt. Við vorum í góðu yfirlæti hjá manni sem heitir Garðar Rúnar,“ segir Lóa. „Allir voru boðnir og búnir að hjálpa manni, ef mann vantaði eitthvað var því reddað um leið.“ Að sögn Lóu er þó nokkuð að gerast í myndlist á Seyðisfirði og kom það þeim skemmtilega á óvart. „Maður hugsar sjaldan út í það hvað er að gerast í myndlist úti á landi, en við komumst að því að það er til dæmis gallerí þarna á Seyðisfirði og allir voru voða áhugasamir um allt sem var að gerast hjá okkur,“ segir hún. „Margir spurðu okkur hvort við værum eitthvað að mála, en ekkert okkar kann neitt að mála, svo við urðum að segja þeim að kíkja bara á sýninguna.“ Ágætis mæting var á opnunina á sýningunni og segist Lóa vera ánægð með afraksturinn. „Það var gaman að fá að vinna að myndlist og setja upp sýningu. Læra að biðja fólk um að hjálpa sér,“ segir hún. „Svo var bara gaman að vinna að einhverju utan skólans. Venjulega er maður bara í verkefnum, en þetta snerist um að bjarga sér, upphugsa eitthvað og láta það passa inn í rýmið. Ég held að við höfum lært helling á þessu.“ Lærðu að bjarga sér sjálf

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.