Morgunblaðið - 17.06.2001, Blaðsíða 31
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2001 31
STJÓRN Umhverfisverndarsamtaka Íslands
hefur sent frá sér ályktun um Kárahnjúka-
virkjun þar sem eindregið er lagst gegn því að
ráðist verði í framkvæmdir á svæðinu án ít-
arlegri rannsókna á umhverfisáhrifum, mats á
fórnarkostnaði og án efnahagslegs mats á
heildaráhrifum og hagkvæmni virkjunar og ál-
bræðslu.
Tölulegar upplýsingar um
efnahagslegt gildi liggja ekki fyrir
Umhverfisverndarsamtökin gera athuga-
semd við matsskýrslu Landsvirkjunar til
Skipulagsstofnunar ríkisins, og segir meðal
annars í ályktun þeirra að í skýrslunni skorti
mikilvægar upplýsingar til að unnt sé að „rétt-
læta þau gríðarlegu náttúruspjöll sem munu
verða af virkjunarframkvæmdum og viður-
kennd eru í matsskýrslu Landsvirkjunar“.
Þar segir ennfremur að ekki liggi fyrir tölu-
legar upplýsingar til að meta efnahagslegt
gildi sölu á raforku frá slíkri virkjun til ál-
bræðslu og til að bera saman við aðra kosti til
atvinnuuppbyggingar á Austfjörðum. Þannig
sé ekki hægt að „sannreyna þá fullyrðingu
Landsvirkjunar, að hin miklu umhverfisspjöll
séu réttlætanleg vegna þess hags, sem þjóð-
arbúið muni hafa af virkjuninni og meðfylgj-
andi álbræðslu“, segir í ályktuninni.
Stjórn samtakanna segir að engin tilraun
hafi verið gerð til að meta fórnarkostnað „eða
með öðrum orðum efnahagslegt verðmæti
þess lands sem er spillt eða fórnað“, segir í
ályktuninni. Til þess hafi þó verið þróuð að-
ferðarfræði sem fulltrúi Umhverfisverndar-
stofnunar Bandaríkjanna hafi kynnt á ráð-
stefnu Umhverfisverndarsamtaka Íslands
vorið 1999.
Einnig hafi Umhverfisverndarsamtökin lát-
ið gera frumskýrslu um verðmætamat á
ósnortnu landi, sem kynnt var á Náttúru-
verndarþingi árið 2000, en „án þess að slíkt
verðmætamat fari fram, er útilokað að meta
hagkvæmni Kárahnjúkavirkjunar,“ segir í
ályktuninni.
Í stjórn Umhverfisverndarsamtaka Íslands
sitja Steingrímur Hermannsson, Gunnar G.
Schram, Ólöf Valdimarsdóttir, Júlíus Sólnes
og Guðfinna Bjarnadóttir. Heiðursforseti sam-
takanna er Vigdís Finnbogadóttir.
Ályktun Umhverfisverndarsamtaka Íslands um fyrirhugaða Kárahnjúkavirkjun
Lagst gegn fram-
kvæmdum án mats
á fórnarkostnaði
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun aðalfundar Um-
sjónarfélags einhverfra:
„Aðalfundur Umsjónarfélags ein-
hverfra, haldinn 29. maí 2001, harm-
ar það ófremdarástand sem er að
skapast í málefnum einhverfra og
annarra sem njóta þeirrar mikil-
vægu þjónustu, sem þroskaþjálfar
veita með störfum sínum.
Vellíðan og jafnvel öryggi mikils
fjölda einstaklinga með einhverfu og
fjölskyldna þeirra eru háð því að
þroskaþjálfar geti unnið störf sín á
sambýlum, í dagvistun, skammtíma-
vistun og öðrum stöðum sem helg-
aðir eru þeirri umönnun, sem er lífs-
nauðsyn einhverfum einstaklingum í
þjóðfélaginu.
Öll röskun á þessum störfum
stefnir öryggi og heilsu þessara ein-
staklinga og fjölskyldna þeirra í
hættu.
Það er óumdeilt, að þroskaþjálfar
sinna sínum mikilsverðu störfum í
þágu einhverfra í íslensku samfélagi
af einstakri umhyggju, fagmennsku
og ósérhlífni. Þessi störf hafa
löngum verið ótrúlega vanmetin til
launa, og því er mikil þörf á að leið-
rétta þau með myndarlegum hætti.
Sú óvissa sem fylgir þeim deilum
sem þroskaþjálfar eiga nú í við
vinnuveitendur um sín launamál er
afar skaðleg fyrir allt þeirra starf
með einstaklingum með einhverfu,
og afleiðingar hennar kunna að bitna
verst á þeim sem síst mega við rösk-
un á sínu umhverfi og daglegu lífi.
Umsjónarfélag einhverfra hvetur
deiluaðila því til að komast sem fyrst
að samkomulagi um launamál
þroskaþjálfa. Félagið treystir því að
slíkt samkomulag feli í sér umtals-
verðar launabætur fyrir þroska-
þjálfa, sem megi verða til að efla og
styrkja til framtíðar þennan mikil-
væga starfshóp sviði umönnunar ein-
hverfra einstaklinga á Íslandi.“
Harma
ófremdar-
ástand í mál-
efnum ein-
hverfra
RANGHERMT var í frétt í blaðinu í
gær að Kári Jónasson væri fyrrver-
andi fréttastjóri. Kári er fréttastjóri
Ríkisútvarpsins, hljóðvarps. Velvirð-
ingar er beðist á þessum mistökum.
LEIÐRÉTT
♦ ♦ ♦
Ert þú
í vanda?
Ókeypis símaþjónusta
800 6464
Vinalínan opin á hverju kvöldi
frá kl. 20 - 23.
100% TRÚNAÐUR
Eingöngu sjálfboðaliðar sem
svara í símann. Símaþjónusta
fyrir fullorðið fólk (18 og eldra).