Morgunblaðið - 17.06.2001, Síða 34

Morgunblaðið - 17.06.2001, Síða 34
34 SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ I Það er 6. desember, þjóðhátíðar- dagur Finna, og Finnlandsvinafélag- ið Suomi efnir til fagnaðar, þar sem sýnd er kvikmynd af heimsókn for- seta Finnlands til Íslands árið 1957. Eins og í öðrum heimsóknum þjóð- höfðingja var dagskráin nokkuð stíf, en þó átti hann þess kost að eiga frí í hálfan dag í heimsókn sinni í Mý- vatnssveit 18. ágúst 1957. Valdi Kekkonen forseti að hitta „en typisk islandsk bonde“ og var bón hans vel tekið. Fór fylgdarliðið með hann til Sigfúsar Hallgrímssonar bónda og organista í Vogum og var þar vel fagnað. Mælti Sigfús bæði á skand- inavísku og ensku, spurði hvort for- seti vildi heldur heyra í kvartett, okt- ett eða 16 manna blönduðum kór, en Kekkonen afþakkaði þetta allt með þeim orðum, að þessi fjölhæfi maður væri hinn ágætasti í viðkynningu, en þetta væri bara enginn venjulegur bóndi. Var þá haldið til Jóabræðra á Geiteyjarströnd, en þeir voru þá þegar þjóðsagnapersónur í lifanda lífi. Þeir hétu Sigurður, Jón og Jó- hannes, ýmist nefndir Jókar eða Jóabræður. Þeim er nú tilkynnt, hver sé kominn í heimsókn og þeir beðnir um að heilsa upp á stórmenn- ið. Svo ganga þeir nú út úr húsi sínu í réttri aldursröð, Siggi fyrstur, Jón svo, en Jói síðastur. Gengur Siggi fyrir Kekkonen, skekur hönd hans að mývetnskum sið og segir: „Svo þú ert frá Finnlandi, kallinn.“ Him- neskt sælubros færðist yfir andlit hins finnska forseta. Hann hafði fundið það, sem hann leitaði að. Kvikmyndaatriði þetta var svo frá- bært, að ég man ekki eftir öðru, sem tekur því fram. Vonandi er þessi filma til ennþá, en kvikmyndin mun hafa verið tekin á 16 mm filmu. (Urho Kekkonen 1900–1986, forseti Finnlands 1956–1982.) II En hverjir voru Jókar og hver voru kynni mín af þeim? Þeir bræður urðu fljótt vinir mínir á Mývatnsárunum 1936–1941. Ég út- vegaði þeim á hverju vori „Mývatns- spæni“ og vargskýlur úr Sportvöruhúsi Reykjavíkur. Fór ég ávallt á bát með þessar vörur, því þá gat ég haft spón minn úti í landhelgi þeirra báðar leiðir. Fór ekki hjá því, að ég setti í eina og eina bröndu á þennan hátt. Fyrstu sumur mín í sveitinni bjuggu þeir í gamla bænum, en árið 1937 ráðast þeir í að byggja myndarlegt steinhús. Ráðskona þeirra hét Sigríður Daníelsdóttir (1890– 1979), sköruleg ekkja, barnmörg. Ég kom einu sinni í gamla bæinn og þóttu mér göngin ansi löng og tor- ratað um þau. III Eitt sinn fórum við Þórhallur Hallgrímsson, húsbóndi minn í Vog- um, til spónveiða suður í Flóa. Veðr- ið versnaði skyndilega og ég ekki nógu vel búinn að mati Þórhallar, svo hann biður Jóka að taka mig með sér til lands en þeir voru um það bil að hætta veiðum. Fór ég yfir í bát þeirra og var þegar haldið til lands. Jókar buðu mér í mat og er sú máltíð mér mjög eftirminnileg. Greinilegt var, að í eftirrétt átti að vera skyr með bláberjum, því tvær skálar voru þegar komnar á borðið með þessum glæsilegu veitingum. Aðalrétturinn, sem reyndist vera hangi- ketskássa, var ekki kominn á borðið, svo bræður, sem voru svangir af vatninu, tóku upp sjálfskeiðunga sína og fengu sér eitt og eitt bláber með því að stinga hnífsoddinum í þau. Nú var komið að hangiketskássunni og tókum við allir vel til matar okkar, en síðan var komið að skyrinu góða með bláberjunum. Þá mátti glöggt sjá, hver var í forystu á þessu heimili, því Siggi, sem var elstur þeirra bræðra, teygði sig upp í bita og tók þaðan hornspón einn, hinn ágætasta grip. Borðaði hann síðan skyrið með spæninum, en við hinir urðum að láta okkur nægja skeiðar. Að máltíð lokinni sleikti Siggi spóninn vand- lega, pússaði hann síðan á olnboga jakka síns og setti síðan upp á bitann aftur. Ég hefi snætt í Versölum í boði utanríkisráðherra Frakka og hjá fleiri stórmennum, en engin mál- tíð kemst í hálfkvisti við þá, er ég neytti hjá Jókum sumarið 1940. IV Sigurleifur var maður nefndur Vagnsson (1897–1950), aðstoðar- maður í atvinnudeild Háskóla Ís- lands. Hann hitti ég á Geiteyjar- strönd um 1939 og stóð hann þar á hlaðinu hjá Jókum við vinnuborð eitt mikið, sem stóð á búkkum. Þar slægði hann og aldursgreindi silung og þótti mér fróðlegt að fylgjast með honum við þetta verk. Dóttir hans Erna (f. 1922) var um tíma með hon- um í för. Þótt Jókar væru líklegast hreinir sveinar, þá fór ekki svo, að brúnin lyftist á þeim, er þeir litu þetta ljósa man augum. Erna giftist síðar Árna Ársælssyni lækni (1922– 1993), sem lengi var yfirlæknir á sjúkrahúsinu á Húsavík, en sjálf varð hún kunn leikkona. Best man ég eftir henni í hinu frábæra leikriti „Djúpt liggja rætur“, sem sýnt var í Iðnó 1952. Hún býr nú í Reykjavík. V Helgi Þorsteinsson frá Skörðum í Reykjahverfi keypti Geiteyjar- strönd árið 1784 og bjuggu afkom- endur hans í beinan karllegg á jörð- inni allt fram á 7. tug síðustu aldar, þegar Jókar hættu búskap á hálf- lendunni, háaldraðir og barnlausir. Faðir þeirra hét Jóhannes Sigurðs- son (1855–1934) fæddur á Geiteyjar- strönd, en móðir þeirra Guðrún Jó- hannesdóttir (1852–1931) fædd á Krákárbakka. Þau hófu búskap á Geiteyjarströnd árið 1880. Synir þeirra: 1) Sigurður Jóhannesson, fæddur 2. mars 1881, dáinn 23. mars1966. Búfræðingur frá Hólum 1907 í tíð Sigurðar skolastjóra Sig- urðssonar frá Draflastöðum. 2) Jón Jóhannesson var fæddur 12. febrúar 1884, dáinn 10. janúar 1966. 3) Jóhannes Jóhannesson var fæddur 21. febrúar 1888, dáinn 25. janúar 1969. Eftir lát Guðrúnar, móður þeirra, árið 1931 var um skeið ráðskona hjá þeim feðgum Sigrún Sigurjónsdóttir (1885–1983), systir Fjalla-Bensa. Þannig er jörðinni lýst í „Byggðir og bú“ 1963: „Jörðin er fremur landlítil. Landið mest grýtt land og hraun. Graslendisræma er meðfram vatninu, en allmikill skógur í austasta hluta landsins. Þar eru Dimmuborgir, allhrikalegar hraun- myndanir, sem ferðamenn skoða. Jörðin á Háey í Mývatni og tvo góða varphólma, Krókhólma og Land- hólma. Jörðin var um langan aldur mesta veiðijörð við Mývatn, meðan engar hömlur voru á riðsilungsveiði, og hitasilungur veiddist oft á sumrin á dráttum við landið. Enn er þar góð aðstaða til veiðiskapar.“ Margir hafa Háey í Mývatni. Bláfjall í baksýn. Myndin fengin að láni úr ritinu Landið þitt, Ísland. Jóabræður að greiða bröndur úr ádráttarneti við Strandarvog. Sig- urður er til vinstri, en bróðir hans (Jón?) til hægri. Jóabræður á efri árum (í ritinu Byggðir og bú árið 1963), frá vinstri: Jóhannes, Jón og Sigurður. Íbúðarhús Jóabræðra á Geiteyjarströnd, er þeir byggðu árið 1937 (Byggðir og bú). Mynd sem Gísli Sigurðsson, þáverandi ritstjóri Vikunnar, tók 13. sept- ember 1962. Myndin er af þeim Jóabræðrum, Jóhannesi, Jóni og Sigurði Jóhannessonum. Sigurður Jóhannesson nýút- skrifaður frá Bændaskólanum á Hólum árið 1907. Minningar úr Mývatnssveit III Himneskt sælubros færðist yfir andlit hins finnska forseta, segir Leifur Sveinsson. Hann hafði fundið það, sem hann leitaði að. Leifur Sveinsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.