Morgunblaðið - 17.06.2001, Side 37
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2001 37
STYRKTARFÉLAG krabbameins-
sjúkra barna, SKB, hefur afhent
Landspítalanum – háskólasjúkra-
húsi, íbúð félagsins í Gautlandi til
rekstrar og umsjónar. Íbúðinni
verður úthlutað til fjölskyldna
krabbameinssjúkra og annarra
langveikra barna, sem koma af
landsbyggðinni til höfuðborgarinnar
vegna sjúkrahússdvalar barnanna.
Íbúðina hlaut SKB í arf eftir Huldu
Gunnarsdóttur sem lést síðastliðið
haust.
Félagsmenn hafa unnið að end-
urbótum á íbúðinni og keyptur hef-
ur verið ýmiss konar nauðsynlegur
húsbúnaður. Tæknifyrirtækið BT
og sængurfataverslunin Verið gáfu
á dögunum rausnarlegar gjafir sem
notaðar verða í íbúðinni. BT afhentu
SKB sjónvarp, myndbandstæki og
hljómflutningstæki og Verið gaf
sængur, kodda og sængurfatnað til
skiptanna á tvö tvíbreið rúm og
barnarúm. SKB á einnig íbúð við
Flókagötu sem undanfarin ár hefur
nýst fjölskyldum langveikra barna á
sama hátt og þessi nýja íbúð mun
gera en mikil þörf hefur verið fyrir
slíka þjónustu.
Þorsteinn Þorsteinsson frá BT og Elín Kolbeins frá sængurfataversl-
uninni Verinu afhenda Rósu Guðbjartsdóttur framkvæmdastjóra gjaf-
irnar til SKB í íbúð félagsins í Gautlandi.
Ný íbúð SKB
tekin í notkun
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá hreppsnefnd
Breiðdalshrepps sem fjallaði á fundi
sínum 11. júní sl. um ákvörðun stjórn-
ar Goða hf. um að leggja niður sauð-
fjárslátrun í sláturhúsinu á Breiðdals-
vík:
„Hreppsnefnd Breiðdalshrepps
mótmælir harðlega þeirri ákvörðun
stjórnar Goða hf. að leggja niður
sauðfjárslátrun í sláturhúsinu á
Breiðdalsvík. Starfsemi sláturhússins
á Breiðdalsvík er og hefur verið um
langt skeið veigamikill þáttur í at-
vinnulífi á Suðurfjörðum Austfjarða
en það skapar a.m.k. 10 ársstörf á
svæðinu. Þá er vitað að sláturhúsið er
hagkvæmt í rekstri miðað við önnur
sláturhús Goða hf., sbr. upplýsingar
þar um frá Goða hf., enda hefur um
árabil verið gott skipulag á starfsemi
þess. Þessi ákvörðun Goða hf. er því
gífurlegt áfall fyrir atvinnulíf á svæð-
inu auk þess sem hún veldur bændum
verulegum óþægindum og kostnaði
við sinn búrekstur.
Það er krafa hreppsnefndar að
stjórn Goða hf. endurskoði þá ákvörð-
un að leggja sláturhúsið á Breiðdals-
vík niður. Jafnframt óskar hrepps-
nefnd eftir fundi með stjórnendum
Goða hf. um málið sem allra fyrst.“
Slátrun verði ekki
hætt á Breiðdalsvík
SLYSAVARNAFÉLAGIÐ Lands-
björg og Umferðarráð hófu nýlega
sérstakt samstarf sem standa mun
fram til 10. ágúst og felst í starfi
sjö umferðaröryggisfulltrúa sem
verða víðsvegar um landið. Hlut-
verk umferðaröryggisfulltrúanna
er að fylgjast með umferðinni og
benda á það sem betur mætti fara.
Umferðaröryggisfulltrúarnir
eru þannig hugsaðir sem tengilið-
ur milli almennings og þeirra sem
bera ábyrgð á umferðamálum,
bæði á landsvísu og heima í héraði.
Þeir munu m.a. skoða umferðina
gagnrýnum augum ásamt því að
gera tillögur til úrbóta þar sem
það á við.
Boðað var til blaðamannafundar
vegna þessa og í ræðu Kristbjörns
Óla Guðmundssonar, fram-
kvæmdastjóra Slysavarnafélagsins
Landsbjargar, kom m.a. fram að
þetta væri í sjötta skiptið sem farið
væri af stað með verkefnið. Fyrsta
árið hefði einungis verið um einn
bíl að ræða en verkefnið hefði ver-
ið að færast í aukana og tekið
stökk á síðasta ári þegar Ingvar
Helgason hf., sem einnig stendur
að verkefninu, lánaði sex bíla fyrir
umferðaröryggisfulltrúana. Nú
eru bílarnir orðnir sjö en sjöundi
bíllinn verður á höfuðborgarsvæð-
inu og mun hann ýmist vera mann-
aður starfsmanni frá Slysavarna-
félaginu Landsbjörg eða
Umferðarráði en fjórir starfsmenn
fyrirtækjanna munu skipta með
sér höfuðborgarsvæðinu. Hinir
bílarnir verða á Norður-, Suður-,
Austur- og Vesturlandi, Vest-
fjörðum og Reykjanesi. Öllum bíl-
unum er ætlað að vera fyrirmynd í
umferðinni í sumar.
Öryggi yngstu vegfarendanna
til sérstakrar athugunar
Umferðaröryggisfulltrúarnir
munu í sumar hafa öryggi yngstu
vegfarendanna til sérstakrar at-
hugunar t.d. með því að huga að
öryggi í umferðinni við skóla
landsins. Þá verður sérstök
áhersla lögð á öryggisbúnað fyrir
börn í bílum og fylgst náið með
ökuhraða á vegum landsins.
Að sögn Óla H. Þórðarsonar,
framkvæmdastjóra Umferðarráðs,
hefur verkefnið gefist vel og segist
hann sannfærður um að það hafi
fækkað slysum í umferðinni.
Talsmenn Sjóvá-Almennar og
Olís, sem einnig standa að verkefn-
inu, lýstu ánægju sinni með sam-
starfið og gat Einar Guðmundsson,
forvarnarafulltrúi hjá Sjóvá-
Almennar, þess ennfremur að
Sjóvá-Almennar, Bindindis-
mannafélag ökumanna og fleiri
myndu í sumar standa fyrir Öku-
leikni 2001 víðs vegar um landið
líkt og í fyrra. Áætlað væri að
heimsækja fjölmarga staði á land-
inu og vera með dagskrá sem
byggist m.a. á fræðslu til barna og
unglinga en markmið fræðsluþátt-
arins er að koma áróðri til unga
fólksins m.a. með því að fá það til
að taka ábyrga afstöðu m.a. gegn
ölvunarakstri og hraðakstri.
Umferðar-
öryggis-
fulltrúar
víðs vegar
um landið
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Hluti af umferðaröryggisfulltrúunum, frá vinstri: Kristján Friðgeirs-
son, Einar Þór Strand, Júlíus Ólafsson, Ragnar Magnússon, Sigurður
Hjálmarsson, Reynir Arnórsson, Jón Gröndal og Sigurður Helgason.