Morgunblaðið - 17.06.2001, Síða 42

Morgunblaðið - 17.06.2001, Síða 42
MINNINGAR 42 SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Ragnar HólmJónsson var fæddur í Vestmanna- eyjum 27. desember 1914. Hann lést á Víf- ilsstaðaspítala laug- ardaginn 9. júní síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Jón Árna- son, bóndi á Hólmi í Austur-Landeyjar- hreppi, Rangárvalla- sýslu, f. 7. mars 1885 á Skíðbakka A-Land- eyjum, d. 14. október 1964, og Ragnhildur Runólfsdóttir, f. 26. október 1889 á Fossi, Hvamms- hreppi, V-Skaftafellssýslu, d. 5. desember 1986. Systkini Ragnars: Guðmundur, f. 26.2.1916, d. 19.7. 1964, Ingólfur, f. 25.6.1916, Ólafur, f. 29.5.1922, Árni, f. 12.5.1926, og Ásta, f. 16.8.1927. 22. nóvember 1947 kvæntist Ragnar Sigríði Melkjörínu Jóns- dóttur, f. 10. júní 1923, frá Geirs- hlíð í Flókadal Borgarfjarðar- sýslu, d. 16. janúar 1992. Foreldrar Sigríðar voru Jón Pétursson bóndi, Geirshlíð, Borgarfirði, f. 13. júní 1887, d. 26. október 1964 og Vilborg Jóhannesdóttir frá Skán- ey, Reykholtsdal í Borgarfirði, f. 19. ágúst 1885, d. 24. ágúst 1984. Börn Ragnars og Sigríðar eru: Vilborg, f. 13. október 1948, maki Friðrik Schram, og eiga þau þrjú börn. Sigríður, Ragnar, maki Kristbjörg Gísladóttir, þeirra börn Harpa, Vilborg og Friðrik Páll, Ólaf- ur, maki Hrefna María Ragnardóttir. Ragnhildur, f. 4. október 1950, maki Olaf Engsbraten og eiga þau tvær dætur, Elísabetu og Hönnu Maríu. Jón, f. 12. október 1952, maki Arndís Jósefsdóttir og eiga þau tvær dætur, Kristínu og Ólafíu. Jón á eina fósturdóttur Ágústu Birgisdóttur, maki Guðni Þórarinsson, þeirra börn Hlynur Snær og Karen Ösp. Ragnar byggði húsið á Lang- holtsvegi 2 og bjó þar lengst af ævi sinnar og allt þar til að hann fór á Vífilsstaðaspítala 6. apríl síðastlið- inn. Lengstan starfsferil var hann terrasólagningarmaður og var í félagi við Ársæl Magnússon í Steiniðjunni við þau störf. Seinna á starfsævinni og fram yfir sjötugt starfaði hann við lagerstörf hjá Jötni. Útför Ragnars Hólm fer fram frá Áskirkju á morgun, mánudag- inn 18. júní, og hefst athöfnin klukkan 13.30. Ragnar H. Jónsson, tengdafaðir minn, er látinn. Það kom okkur öllum, aðstandendum hans, á óvart þegar heilsu hans tók skyndilega að hraka sl.vetur. Þrátt fyrir háan aldur hafði hann verið hraustur og ern. Allt frá því hann missti konu sína, Sigríði Jónsdóttur, tengdamóður mína, en hún lést fyrir rúmum 9 árum, hafði hann búið einn og hugsað um sig sjálfur. Hann kunni að bjarga sér og góð regla var á öllum hlutum. Alla virka daga var hann á fótum eldsnemma og fór í sína klukkustundar löngu göngu- ferð um Langholtið og Laugardalinn. Daglega eldaði hann sér hádegisverð, sauð fiskstykkið og kartöflurnar tvær. Hann þvoði sjálfur fötin sín og sá um alla hluti. Ekki nóg með það, oft var hann í því hlutverki að aðstoða aldraða vini sína sem ekki áttu bíl og þörfnuðust þess að vera skutlað eitt- hvað, t.d. til og frá kirkju, en Áskirkju sótti hann mikið síðari árin – hún varð nánast hans annað heimili og þar átti hann sanna og góða vini. Eftir að Ragnar hætti að vinna, aldurs vegna, gat hann farið að sinna áhugamálum sínum meira en áður var kostur. Hann varð virkur þátttak- andi í Rangæingafélaginu og í félags- starfi eldri borgara. Það starf sem hann þó unni mest held ég að hafi ver- ið safnaðarstarfið í Áskirkju. Hann sótti trúfastlega allar guðsþjónustur og aðrar samverustundir á virkum dögum – svokallað „opið hús“ þar sem ýmislegt var gert til ánægju og uppbyggingar og síðan biblíulestra, eitt kvöld í viku. Trúin átti greinilega æ meira rúm í lífi hans eftir því sem árin færðust yfir. Á heimili Ragnars og Sigríðar var gott mannlíf og mikil reglusemi. Bæði voru þau hjónin af kjarngóðu bænda- fólki komin þar sem göfug gildi voru í hávegum höfð – iðjusemi og áreiðan- leiki, úthald og hjálpsemi. Með þann arf í farteskinu stofnuðu þau heimili í Reykjavík og bjuggu hér allan sinn aldur og hér eignuðust þau börnin sín þrjú, Vilborgu, Ragnhildi og Jón. Sem ungur maður varð Rangar þegar eftirsóttur í vinnu vegna þess hve ið- inn, handlaginn, traustur og reglu- samur hann var. Á þeim árum kynnt- ist hann byggingarvinnu og í tengslum við hana fór hann síðar að leggja terrazzo á gólf og stiga. Vegna vandvirkni varð hann mjög eftirsótt- ur við þessa iðn og starfaði við hana víða um land áratugum saman í sam- starfi við Ársæl Magnússon hjá fyr- irtækinu Steiniðjunni hér í Reykja- vík. Ungur var ég þegar ég kynntist Ragnari fyrst, en það var þegar ég fór að venja komur mínar á Langholts- veg 2 til að heimsækja Vilborgu, til- vonandi eiginkonu mína. Ég tel það mikla gæfu að hafa kynnst þeim hjón- um, Ragnari og Siggu. Alltaf voru þau boðin og búin að aðstoða okkur Villu við hvað sem var. Ekki síst nut- um við þekkingar Ragnars og dugn- aðar þegar við byggðum húsið okkar við Fljótasel hér í Reykjavík. Þær voru ófáar stundirnar sem hann vann með okkur í húsinu. Hjálp hans við vinnuna var ómetanleg. En ekki er síðri sú verkþekking og sá félagslegi þroski sem maður öðlaðist við það að vinna og vera með Ragnari og kynn- ast honum nánar. Fyrir það er ég mjög þakklátur. Eins og fyrr sagði varð trúin á Drottin þeim Ragnari og Siggu æ hugleiknari eftir því sem árin færðust yfir og kirkjuganga varð að reglu. Ás- kirkja var þeirra sóknarkirkja og þar nutu þau góðrar andlegrar fræðslu og leiðsagnar hjá séra Árna Berg Sig- urbjörnssyni. Fyrst þegar ég kynnt- ist Ragnari bar ekki mikið á trúar- þörf hans, en hún blundaði með honum. Mikið vinnuálag og tíð ferða- lög út um land, þess vegna, kröfðust tíma hans og krafta. Því gafst lítið tóm til að sinna andlegum málefnum. En þetta breyttist eins og fyrr sagði með árunum. Trúin varð honum, og þeim hjónum báðum, mikill styrkur og blessun. Þá fór Ragnar að gefa sér tíma til að lesa uppbyggilegar kristi- legar bækur. Ég veit að bók Sigur- björns biskups, „Coram Deo“ varð honum hugleikin og las hann mikið í henni, einnig voru bænir Sigurbjörns, aftast í sálmabók þjóðkirkjunnar, honum kærar. Las hann þær og hug- leiddi og notaði sem leiðsögn í eigin bænalífi allt til hinstu stundar. Fyrir nokkrum vikum var Ragnar lagður inn á Vífilsstaðaspítala til rannsóknar, en mæði og öndunarerf- iðleikar voru farin að há honum mikið síðustu mánuði. Til stóð að hann færi heim aftur að nokkurra daga rann- sókn lokinni, en svo varð ekki. Hon- um hrakaði hratt og þar dó hann laugardaginn 9. júní sl. Ég er Guði þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast og verða tengda- sonur Ragnars. Í minningu minni er hann traustur vinur, sem með fram- komu sinni og verkum kenndi mér margt gott, sem hefur nýst mér vel á lífsleiðinni. Blessuð sé minning hans. Friðrik Schram. Elsku afi. Nú ertu farinn eftir þína stuttu baráttu. Þú náðir að kom- ast fyrir afmæli ömmu og ég veit að þegar þið hittust þá hafa verið góðir endurfundir og haldin góð veisla. Það er skrítið að hugsa til þess að fara aldrei aftur á Langholtsveginn á jóladag í hádeginu og fá hangikjöt, kartöflur, heitt rauðkál og uppstú. Og ekki má gleyma ísnum sem var alltaf í eftirrétt. Þú varst mikill náttúruunnandi og hafðir mjög gaman af því að fara í göngutúra. Enda gerðir þú mikið af því. Mér finnst svo gaman að vita til þess að þú hafir náð að koma og sjá nýja húsið. Ég veit að amma hefur tekið vel á móti þér og ég veit að þú skilar kveðju til hennar frá okkur öllum. Kveðja, Kristín Jónsdóttir. RAGNAR HÓLM JÓNSSON                                   ! "# $%&' &( !        "      #$  #% &     "     ! ' (  )     * + * ,   - ' .  - ,      )*')  +,,(                                                !"##!$%& '#  '!!  ( )#!( !*+(( , #-  '!*+(( , ., .& ( ,-/!!   *-! '#*+(( , 0 ),' '#*+(( ,  '! '#!    $1, '#*+(( , ( ,-/ , .,!  #- 2+,, !*+(( , -3,) , .,!  4** 5 .#* !*+(( ,   ! .,*+(( , . , , 2& . , !!  $, $, $1, &                                               ! " #  $ %&   $   '( !  )   $  !  $   &  " ##$ ) %&   " #  $ " ##$ " ##$ ) * %+ !  &  $  "#% *   &  $  %  -#(# )  *  $ .  )% /  /  /0                                      !"#$     ""%#& '( & ) *+**# !# "+ #,"$                                        !  " #  $     %   !" # $ % &'  $ % ()*(%& +%  #%, ()*(%& +%  # -'% &'   % +# ! % !" % MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Birting afmælis- og minningargreina

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.