Morgunblaðið - 17.06.2001, Page 51

Morgunblaðið - 17.06.2001, Page 51
KIRKJUSTARF MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2001 51 Hefur þú séð heimasíðu Jóns Sigurðssonar og Hrafnseyrar? www.hrafnseyri.is Hrafnseyrarnefnd Vestfirska forlagið Á kvenréttindaginn 19. júní kl. 20.30 standa Kvennakirkjan, Kvenrétt- indafélag Íslands og Kvenfélaga- samband Íslands fyrir kvennamessu við þvottalaugarnar í Laugardal, eins og nokkur undanfarin ár. Messan hefst á því að Ásdís Þórð- ardóttir leikur lagið Áfram stelpur! á trompet. Sólveig Steinsson, for- maður Þroskaþjálfafélags Íslands, flytur ávarp. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir prédikar og kór Kvennakirkjunnar leiðir almennan söng við undirleik Aðalheiðar Þorsteinsdóttur. Að messu lokinni er hægt að kaupa kaffi í Café Flóru í Grasagarðinum í Laugardal. Safnaðarstarf Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 9- 10 ára drengi á mánudögum kl. 17- 18. Æskulýðsstarf fyrir 8.-10. bekk á mánudögum kl. 20-22. Grafarvogskirkja. Bænahópur kl. 20. Tekið er við bænarefnum í kirkj- unni alla daga frá kl. 9-17 í síma 587 9070. Hafnarfjarðarkirkja. Æskulýðs- starf, yngri deild, kl. 20.30-22 í Há- sölum. Krossinn. Almenn samkoma að Hlíðasmára 5 kl. 16.30. Allir velkomnir. Hvammstangakirkja. KFUM og K starf kirkjunnar mánudag kl.17.30 á prestssetrinu. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía. Brauðsbrotning kl. 11. Ræðumaður A. Theodór Birgisson. Almenn sam- koma kl. 20. Lofgjörðarhópurinn syngur. Ræðumaður Robert Sol- omon sem er staddur hér á landi á vegum ABC-hjálparstarfs. Allir hjartanlega velkomnir. Frelsið, kristileg miðstöð. Almenn fjölskyldusamkoma sunnudaga kl. 17. Fermingar Ferming í Hvalsneskirkju sunnu- daginn 17.júní kl 10.30. Prestar: Sig- ríður Kristín Helgadóttir og Einar Eyjólfsson. Fermd verður: Magnea Arnardóttir, Suðurhvammi 23, Hafnarfirði. Kvennamessa við þvotta- laugarnar í Laugardal BRÉF TIL BLAÐSINS ÞEIM fer nú fjölgandi sem hafa lýst yfir áhyggjum sínum hér í blaði, um að Ísland muni nú brátt kyngja því sem eftir er af þjóðræknisstolti sínu og láta reka sig möglunarlítið inn í sauðarétt Evrópusam- bandsþjóðanna. Spurt er, hvað sé hægt að gera nú, til að sporna við slíku sjálfstæðis- afsali. Ég held að fordæmin fyrir slíkri baráttu sé að finna í baráttu her- námsandstæðinga áður fyrr; og í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga frá Dönum þar áður; en þó með breytt- um áherslum. Ólíkt sjálfstæðisbaráttunni frá Dönum á fyrri hluta 20. aldarinnar, snýst Evrópusambandsaðildin nú ekki um að hljóta hagsæld; því hún er nú þegar í höfn í aðalatriðum. Heldur er um að ræða hvort við á Ís- landi viljum halda áfram að virkja sérstaklega þau þjóðernislegu sér- kenni sem eru með okkur flestum, sem leiðandi kraft við leit okkar að stöðu í heiminum. Baráttuskáld fyrri tíma Þessu svöruðu feður okkar ját- andi, á árunum 1850-1950; og fundu þessari sérstöðu þjóðarinnar einkum stað í sýn ljóðskálda sinna á sérkenni íslensku þjóðtungunnar, íslensku fornbókmenntanna, og tengingu þessa við landslag Íslands. Seinna kom til barátta hernáms- andstæðinga; á árunum 1950-1990. Þar var svipuð áhersla á sýn ljóð- skáldanna; nema nú var einnig kom- in fram áhersla á stéttabaráttu, bar- áttu gegn hernaði; og jafnvel gegn útlendingum. Voru öndvegisskáld hreyfingarinnar því valin með tilliti til þessa. (Reyndar má greina upp- hafningu stéttvísra vinstriskálda allt aftur til 1880.) Ný sjálfstæðisskáld Í baráttunni gegn fullri inngöngu Íslands í Evrópusambandið sem er nú framundan, verður því aftur þörf fyrir hentug skáld til að skírskota til. Það verða að vera ljóðskáld, vegna þess að megin listræna taug þjóð- arinnar hefur legið í gegnum ljóða- formið fremur en skáldsöguna eða önnur listform. Þau skáld munu einnig fremur þurfa að líkjast þjóðskáldum sjálf- stæðisbaráttutímans en verkalýðs- skáldum hernámsandstæðingatím- ans: Vegna þess að skáldin þurfa að vera af því tagi að þau tengi nútíma þjóðarinnar við fortíð sína almennt, en gleymi sér ekki í stéttakrytum. Á 19. öld þóttu þannig frambæri- legustu þjóðskáldin vera: Bjarni Thorarensen, Jónas Hallgrímsson, Matthías Jochumsson og Hannes Hafstein. Á 20. öld komu fram Einar Benediktsson og Tómas Guðmunds- son. Meginþráðurinn hélt síðan áfram gegnum Hannes Pétursson og Matthías Johannessen. Voru þetta í senn borgaralegu skáldin og þjóð- skáld síns tíma. Verkalýðsskáldin mynduðu undir- rödd þjóðarkórsins; nöfn svosem: Þorsteinn Erlingsson, Steinn Stein- arr, Jóhannes frá Kötlum, Halldór Laxness og Kristján frá Djúpalæk. Endurheimt bókaþjóðarinnar Nú á 21. öldinni þarf aftur að taka upp þennan þráð. Þó er úr vöndu að ráða, af því bæði er að þjóðin er að gerast svo afhuga skáldskap, og að skáldin eru að gerast svo afhuga ljóðum; sem og skírskotunum til for- tíðar þjóðarinnar í ljóðum. Er nú orðin leitun að þeim skáldum sem enn eru upptekin við að bjóða upp á heillega fortíðarsýn í ljóðum sínum. Má þar þó einna helst nefna skáldafélagið Hellasarhópinn; sem hefur haft það að stefnu sinni að sinna bókmenntum fyrri tíma í ljóð- um sínum. Sem einn af fjórmenningunum í þeim hópi, legg ég til að brautryðj- endurnir í komandi baráttu leggi nú á sig að lesa mínar fimm ljóðabækur; sem upphaf að leit sinni að þjóð- skáldaefnum fyrir málefnið. Síðan ættu þeir að fylgja fordæmi sjálfsstæðissinna og hernámsand- stæðinga fyrri tíma, með því að freista þess að halda verkum þjóð- skálda sinna að landsmönnum með skipulegum hætti. Ekki til að hvetja þjóðina til æsisamkoma líkt og var algengast fyrrum, heldur til að fá hana til að setjast rólega niður við sí- gildan lestur bókmennta sinna; til að hún megi þannig endurheimta til- finninguna fyrir því sem þegar hefur áunnist í þjóðræknismálum hennar. Fyrr verður þjóðinni ekki forðað, frá Evrópusamrunanum mikla. TRYGGVI V. LÍNDAL, Skeggjagötu 3, 105 Reykjavík. Evrópusamrunann eða skáldin Frá Tryggva V. Líndal: Tryggvi V. Líndal

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.