Morgunblaðið - 17.06.2001, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2001 57
Viðvaningurinn
(Company Man)
G a m a n m y n d
Leikstjórn og handrit: Douglas
McGrath og Peter Askin. Aðal-
hlutverk Douglas McGrath, Woody
Allen, Sigourney Weaver. (95 mín.)
Bandaríkin 2000. Myndform. Bönn-
uð innan 12 ára.
ÞAÐ fyrsta sem maður veltir fyrir
sér er hvers vegna mynd sem skartar
nafntoguðum stjörnum á borð við
Woody Allen, Sig-
ourney Weaver,
Denis Leary, John
Turturro og Ryan
Phillippe getur hafa
farið fram hjá ann-
ars fremur athugul-
um bíófylgjanda
sem undirrituðum.
En skýringin var
fljót að koma í ljós
og reyndist sú sem mann svo sem
grunaði – vegna þess að myndin er
svo léleg að þeir hafa viljað þegja
hana í hel!
Sá sem er annars allt í öllu í þessum
aulalega farsa heitir Douglas
McGrath. Nafnið hringir engum bjöll-
um en þegar ferill hans er skoðaður
þá leikstýrði hann og skrifaði hand-
ritið að ágætlega heppnaðri kvik-
myndun á skáldverki Jane Austen
Emmu árið 1996, þeirri sem gerði
Gwyneth Paltrow að stjörnu. Hann
hefur einnig skrifað handrit og leikið í
nokkrum Woody Allen myndum síð-
asta veifið, t.a.m. hinni stórsmellnu
Bullets Over Broadway. Þá má líka í
raun álykta svo að hann sé í læri hjá
Allen karlinum og vilji vera alveg eins
og hann. En hann á langt í land –
verulega langt. Þetta er í raun eins og
þriðja flokks Bananas. Og laglegt
leikaralið með Allen í fararbroddi
fylkingar bjargar litlu sem engu.
En það er eins með þessa og marg-
ar aðrar ónýtar gamanmyndir. Eitt
fyndið atriði gerir hana næstum þess
virði að sjá hana; tilraun McGraths,
sem leikur óþolandi málfræðing, til að
kenna pirruðum CIA-töffaranum
(Leary), rétt málfar. Drepfyndið at-
riði.
MYNDBÖND
Annars
flokks Allen
Skarphéðinn Guðmundsson
Hrein
sum
viðar-, rimla-,
strimla-, plíseruð-
og sólargluggatjöld.
Hlíðarhjalla 26, s. 897 3634.