Morgunblaðið - 08.07.2001, Page 36
MINNINGAR
36 SUNNUDAGUR 8. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Ólafur Ö. Pétursson,
útfararstjóri,
s. 896 6544
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
S. 551 7080
Vönduð og persónuleg þjónusta.
EINBÝLI
Efstasund - með aukaíbúð
Vorum að fá í sölu gott einbýlishús á
tveimur hæðum, samtals 224 fm með
aukaíbúð í kjallara. 23 fm bílskúr fylgir.
Stór og gróin lóð. Eftirsóttur staður.
Hús í góðu ástandi en þarfnast endur-
nýjunar í takt við nýja tíma. 1618
RAÐHÚS OG PARHÚS
Þingás - endaraðhús í út-
jaðri byggðar Vorum að fá í einka-
sölu gott endaraðhús í útjaðri byggðar.
Húsið er 155 fm með innbyggðum bíl-
skúr og er á einni hæð. Þrjú svefnher-
bergi og góð stofa með mikilli lofthæð.
Húsið þarfnast einhverrar standsetning-
ar og er laust nú þegar. Lyklar á skrif-
stofu og sölum. Verð 17,8 millj. 1637
Brekkubær Gott 254 fm raðhús á
þremur hæðum í neðstu röð við Fylkis-
völlinn. 23 fm bílskúr. Möguleiki á sér-
íbúð í kjallara. V. 24,5 m. 1620
Skeiðarvogur - endaraðhús
Vorum að fá í einkasölu gott u.þ.b. 205
fm raðhús á tveimur hæðum auk kjall-
ara. Húsinu fylgir 26,4 fm bílskúr. Húsið
er mjög vel staðsett og er í góðu
ástandi. Möguleiki er að útbúa séríbúð í
kjallara. V. 19,9 m. 1183
HÆÐIR
Hagamelur - gullfalleg hæð
Erum með í einkasölu gullfallega 4ra
herb. 97 fm efri hæð í fallegu og reis-
ulegu hvítmáluðu steinhúsi á besta stað
við Hagamel. Íbúðin er í mjög góðu
ástandi og er með parketi á gólfum.
Húsið er í mjög góðu standi með ný-
lega endurnýjuðu þaki. V. 14,8 m. 1615
Bólstaðarhlíð - m. bílskúr Er-
um með í einkasölu fallega og bjarta
u.þ.b. 100 fm 4ra herbergja efri hæð
ásamt nýlegum 30 fm bílskúr. Íbúðin
skiptist m.a. í tvær stofur, tvö herbergi
o.fl. Stór og gróin lóð. Mjög góð stað-
setning. V. 14,5 m. 1632
4RA-6 HERB.
Aðalstræti - miðborgin -
lyftuhús Vorum að fá í sölu u.þ.b.
112 fm vandaða og glæsilega nýlega
íbúð í lyftuhúsi við Aðalstræti. Íbúðin er
á efstu hæð (5. hæð) með stórum
gluggum og svölum til suðurs með út-
sýni til Tjarnarinnar og ráðhússins.
Íbúðin skiptist m.a. í 2 herbergi og stór-
ar stofur með mikilli birtu og útsýni.
Verð tilboð. 1636
2JA OG 3JA HERB.
Safamýri Falleg og björt 3ja herb.
íbúð í góðri blokk með fallegu útsýni.
Góð eign sem skiptist m.a. í hol, stofu
með arni, 2 herb., eldhús og baðherb.
Snyrtileg sameign. V. 11,5 m. 1633
Bogahlíð Falleg 3ja-4ra herb. íbúð á
2. hæð í vinsælli blokk við Bogahlíð sem
skiptist í góða stofu, 2 herb., eldhús o.fl.
Í kj. fylgir gott íbúðarherb. og 2 geymsl-
ur. Vandaðar innr. m.a. parket á gólfum.
Svalir. V. 12,1 m. 1628
Hjaltabakki - laus fljótlega
Erum með í einkasölu rúmgóða u.þ.b.
85 fm íbúð á 2. hæð í góðu fjölbýli.
Gróin lóð með góðri aðstöðu f. börn.
Stutt í alla þjónustu. Íbúðin getur losn-
að innan mánaðar. V. 9,3 m. 1595
Mávahlíð - á 1. hæð Í sölu fal-
lega og bjarta u.þ.b. 87 fm 3ja herb.
hæð í fjórbýli. Rúmgott eldhús. Litlar
svalir til vesturs. Stór og gróin lóð. Í kj.
fylgja 2 sérgeymslur. V. 10,8 m. 1634
Kleppsvegur Vorum að fá í einka-
sölu snyrtilega og bjarta u.þ.b. 53 fm
íbúð á 2. hæð í góðri blokk. Íbúðin
skiptist m.a. í hol, eldhús, baðherbergi,
stofu og herbergi. Nýuppgert baðher-
bergi. Dúkur á gólfum. V. 7,5 m. 1631
Austurströnd - með bílskýli
Erum með í einkasölu ákaflega fallega
og bjarta u.þ.b. 63 fm endaíbúð á 4.
hæð í lyftuhúsi. Íbúðinni fylgir stæði í bíl-
geymslu. Parket á gólfum og rúmgóðar
s-svalir með skjólvegg. V. 9,3 m. 1630
Einbýlishús í sérflokki rétt við miðbæinn -
frábært útsýni (Miklatún)
Vorum að fá í einkasölu eitt glæsilegasta einbýlishúsið í sínum flokki í
Reykjavík. Um er að ræða einbýlishús teiknað af Sigurði Guðmyndssyni,
sem er kjallari og tvær hæðir, u.þ.b. 265 fm. Auk þess fylgir nýr 60 fm
bílskúr, innangengt úr kjallara. Húsið hefur allt verið endurnýjað og nán-
ast endurbyggt frá grunni að utan sem og að innan og má nefna lagnir,
glugga og gler, innréttingar, gólfefni, tæki o.fl. Að utan hefur húsið verið
endurnýjað fullkomlega með nýrri steinun (marmarasalla). Húsið er allt
sérhannað og nýinnréttað að innan í upprunalega stílnum með nýjum
gólfefnum, innréttingum og sérpöntuðum tækjum. Arinn í stofu. Mjög
glæsileg og vel heppnuð endurnýjun, möguleiki á séríbúð í kjallara. Stór
sérafmörkuð lóð fylgir eigninni. Allar nánari upplýsingar gefa Sverrir og
Stefán á skrifstofunni (ekki í síma). Verð tilboð. 1635
Fallegt endaraðhús rétt við
Laugardalslaugina
Vorum að fá í sölu ákaflega fallegt og vandað raðhús á pöllum, u.þ.b.
190 fm ásamt 27 fm bílskúr. Húsið stendur á mjög góðum stað innan við
Sundlaugarveg. Húsið er byggt árið 1978 og er hannað af Finni Fróð-
asyni arkitekt með góðri lofthæð og fallegum innréttingum. Verð 23,0 m.
1045
Upplýsingar utan opnunartíma á
skrifstofu veitir Ingólfur 896 5222.
Skorradalur
Glæsil. nýr sumarbúst.
Nýr glæsil. ca 70 fm bústaður á fallegum
útsýnisstað í kjarrivöxnu landi Vatnsenda.
Mjög góð staðsetning. Húsið er ekki alveg
fullklárað. Baðhús (væntanlegt sauna)
tengt húsinu. Rafmagn komið og vatns-
lögn. Afhending strax. Gott skipulag, stór
stofa, borðstofa og eldhús, 3 svefnher-
bergi, baðherbergi o.fl. Verð 9,5 m.
FÉLAG FASTEIGNASALA
Suðurlandsbraut 52, við Faxafen • Fax 530 1501 • www.husakaup.is
530 1500
Til sölu þetta athyglisverða 360 fm hús á þessum eftirsótta stað.
Húsið er byggt sem félagsheimili en er nýtt sem barnaheimili og
íbúð í dag. Stór lóð fyrir neðan húsið. Tveir inngangar. Húsinu hef-
ur verið vel viðhaldið, m.a. endurnýjað gler og gluggar á allri neðri
hæðinni. Eignin og hin stóra lóð býður upp á fjölbreytta nýtingar-
möguleika hvort sem er fyrir fyrirtæki, stofnanir, gistihús eða jafnvel
sem íbúðarhús. Leitið frekari upplýsinga á skrifstofu okkar. Verð 25
millj.
LANGAGERÐI 1
SKAFTAHLÍÐ (Sigvaldablokkin).
Snyrtileg og góð 4ra herb. íb. á 3. hæð (aðeins ein íb. á hæð) í góðu fjölb.
3 svefnherb. Góð stofa. Suðursvalir. Stærð 104 fm. Góð staðsetning.
LAUS STRAX. 1345
Falleg og vel hönnuð 3ja herb. íb. á
2. hæð í nýl. húsi. (Íbúðin er nýtt í
dag sem rúmgóð 2ja herb.). Góðar
innréttingar. Flísar. Tvennar svalir
(ca 40 fm). Verð 12,8 millj. Hús og
sameign í góðu ástandi. Góð
staðsetning.
SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR
Okkur langar að
minnast ömmu okkar,
Hallgerðar Jónsdótt-
ur, og þeirra stunda
sem við áttum með henni.
Það fyrsta sem kemur upp í hug
okkar er Miðsker og kleinur. Amma
gerði heimsins best kleinur og ef við
munum rétt þá voru alltaf til kleinur
á Miðskeri hjá ömmu.
Amma var hress og kát kona sem
vildi allt fyrir okkur gera. Við mun-
um til dæmis eftir því þegar við
fengum að gista hjá ömmu og við
þurftum að pissa um miðja nótt þá
lét amma okkur alltaf pissa í kopp
því við þorðum ekki einar niður og
inn langan ganginn sem lá að bað-
herberginu.
Stundum kom það fyrir að við
meiddum okkur úti þegar við vorum
að leika okkur og allta virtist
ómögulegt þá var amma vön að búa
til ömmudrykk sem lagaði allt, en
það verður ekki látið upp hvað er í
honum en hann kippti öllu í lag. Hún
amma hafði gott lag á okkur.
Amma átt mjög fallegan garð sem
var skammt frá bæjardyrunum. Þar
eyddum við oft miklum tíma með
henni og hjálpuðum henni að rækta
garðinn. Garðurinn hennar ömmu á
Miðskeri var hreinasta paradís og
hún leyfði öllum þeim sem vildu að
njóta þeirra paradísar sem hann og
hún höfðu upp á að bjóða.
Elsku amma okkar, við biðjum
góðan Guð að taka vel á móti þér og
það er með miklum söknuði að við
kveðjum ömmu okkar, hafðu þökk
fyrir allt.
Jenný, Lára og Íris
Magnúsdætur.
HALLGERÐUR
JÓNSDÓTTIR
✝ Hallgerður Jóns-dóttir frá Mið-
skeri lést á Hjúkrun-
arheimili Skjólgarðs
17. júní 2001. Hall-
gerður fæddist 27.
maí 1920 á Hoffelli í
Nesjum. Útför Hall-
gerðar fór fram frá
Bjarnaneskirkju
föstudaginn 22. júní
kl. 14.
Og er það ekki
mesta gæfa manns
að milda skopi slys
og þrautir unnar,
að finna kímni í kröf-
um skaparans
og kankvís bros í
augum tilverunnar.
(T.G.)
Ofanskráðar ljóðlín-
ur eru tileinkaðar
minning góðrar vin-
konu, Hallgerðar Jóns-
dóttur, fyrrum hús-
freyju á Miðskeri í
Hornafirði, en hún
andaðist á Hjúkrunar-
heimili Skjólgarðs á Höfn þ. 17. júní
sl.
Hallgerður var fædd á höfuðból-
inu Hoffelli í Hornafirði 27. dag
maímánaðar árið 1920, elst af 12
börnum hjónanna Halldóru Guð-
mundsdóttur og Jóns J. Malmquist,
sem þá áttu heimili í Hoffelli, en
bjuggu síðar í Akurnesi þar sem þau
reistu nýbýli.
Halla, en svo var hún tíðast
nefnd, sleit barnsskónum í Hoffelli á
fjölmennu og rótgrónu bændaheim-
ili eins og þau gerðust best á þeirri
tíð. Þar voru 3–4 kynslóðir undir
sama þaki, lífið sjálft í hnotskurn,
fæðing og dauði, sigrar og ósigrar,
sorg og gleði. Öldruð hjú áttu þar
skjól á ævikvöldi og ungviðið hafði
margt að sækja til þessa gamla
fólks, nam af því sagnir og sérstakt
málfar sem nú heyrist ekki lengur.
Jafnvel erlendir menningarstraum-
ar áttu leið inn í bæinn með vísinda-
mönnum utan úr heimi. Halla var
trúlega sterkt mótuð af uppeldi og
aðstæðum á bernskuheimilinu, lífs-
glöð, frjálsleg í fasi og orðsnjöll.
Sögukona góð og kryddaði mál sitt
með fágætum og stundum torráðn-
um málblómum úr orðabelg gamla
fólksins í Hoffelli á þann hátt sem
henni einni var lagið. Ung hleypti
hún heimdraganum, fór til Reykja-
víkur og réð sig í vist hjá góðu fólki.
Ævintýraþráin kitlaði hana eins og
annað ungt fólk, hún átti ættingja í
Noregi og ráðgerði að fara þangað
til dvalar. „Það dugði ekkert minna
en heil heimsstyrjöld til að koma í
veg fyrir það,“ sagði hún síðar. En
lífið hélt áfram þótt ekkert yrði af
Noregsferðinni, það tók bara aðra
stefnu. Halla flutti til unnusta síns
Benedikts Eiríkssonar bónda á Mið-
skeri og gerðist húsfreyja á bænum
þaðan sem jöklasýn er fegurst í
Hornafirði. Við tóku annasöm ár við
búskap og barnauppeldi, langur
vinnudagur og fáar frístundir eins
og fólk af þeirri kynslóð þekkir
mætavel, en þeim mun betur notið
þeirra sem gáfust. Þau hjón bjuggu
farsælu búi á Miðskeri, bæði kunnu
þau vel til verka og hlífðu sér
hvergi. Þau eignuðust 4 börn, dæt-
urnar Kolbrúnu og Steinunni og
synina Jón og Guðjón. Halla tók
virkan þátt í félagslífi sveitarinnar
með ungmennafélaginu Mána og
kvenfélaginu Vöku. Fengi hún hlut-
verk við hæfi brilleraði hún á leik-
sviði. Ekki var þá siður að telja
grannt þær vinnustundir sem fóru í
margvíslegan undirbúning mann-
funda og skemmtana í sveitinni og
síst var það stíllinn hennar Höllu.
Harðdugleg, rösk og ráðagóð var
hún en umfram allt skemmtileg, það
voru forréttindi að vera með henni í
nefnd eða vinnuhóp. Hallgerður og
Benedikt brugðu búi eftir rösklega
40 ára búskap á Miðskeri og fluttu
þaðan. Ekki mun það hafa verið
sársaukalaust að slíta ræturnar, en
þau bjuggu sér nýtt heimili, fyrst í
Hæðargarði í Nesjum og síðan á
Höfn og Halla gat enn um sinn notið
þess að hlúa að blómum og gróðri í
litla gróðurhúsinu sínu og enn var
gestum tekið með glaðværð og
hlýju. Stór hópur barnabarna var
nú vaxinn úr grasi og síðar bættust
við barnabarnabörn. Með öllum
þessum afkomendum var fylgst og
velferð þeirra borin fyrir brjósti.
Síðustu árin hafa þau hjónin dvalið á
Skjólgarði, heimili aldraðra á Höfn,
og notið þar góðrar aðhlynningar.
Hallgerður var hávaxin og föngu-
leg kona sem bar sig vel, og þótt
aldri og sjúkdómum tækist að
beygja líkama hennar og leika hann
grátt síðustu árin sem hún lifði, var
andinn óbugaður. Aldrei var kvart-
að, heldur slegið á léttan streng og
kvatt með brosi. Þannig hélt hún
reisn sinni til hinstu stundar. Við
Sigurður þökkum henni áratuga
vináttu og tryggð og biðjum henni
blessunar á nýjum leiðum. Eigin-
manni og ástvinum sendum við sam-
úðarkveðjur.
Aðalheiður Geirsdóttir.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu
vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett.
Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er
móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru
nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í
úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í
bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess
(minning@mbl.is)