Morgunblaðið - 08.07.2001, Page 50

Morgunblaðið - 08.07.2001, Page 50
FÓLK Í FRÉTTUM 50 SUNNUDAGUR 8. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ .......á sólbruna.. ÁBURÐUR MEÐ DJÚPVIRKUM ENSÍMUM Fæst í apótekum og heilsubúðum. X Y Z E T A / S Í A á sunnudögum frá kl. 13—17 Opið Á TÓNLEIKAHÁTÍÐUM sem Hró- arskeldu getur auðveldlega myndast stuttlíft fyrirmyndarþjóðfélag. Að minnsta kosti í augum tónlistar- áhugamanna. Tækifæri til þess að ganga inn fyrir landamæri tónlistar- innar, uppgötva þar nýja hluti eða bara staðfesta eldri sannfæringu um gæði sinna uppáhalds hljómsveita. Yfirgefa sinn hefðbundna raunveru- leika í nokkra daga, fá hámarks- skammt tónlistar og skemmtunar, vera í sömu fötunum allan tímann, drekka þegar þorstinn kallar, borða þegar maginn heimtar, kasta af sér vatni þegar þörf krefur og á meðan heyrist söngur Bob Dylans úr annarri áttinni en P.J. Harvey hljómar úr hinni. Ef ég mæti ekki hjá Lykla- Pétri við Gullna hliðið eftir dauða minn, skilið þá til hans að ég hafi farið til himnaríkis og að það sé að finna í smábænum Hróarskeldu í Danmörku fjóra daga á ári. Fimmtudagur Fyrsta hljómsveitin sem ég sá var Placebo. Þeir eiga nokkur ágætis lög, en eru nokkuð fastir í sama farinu. Lagasmíðarnar af nýjustu breiðskífu þeirra Black Market Music eru t.d. öllu grynnri en þær sem var að finna á plötunni á undan. Það eina sem kom upp úr Brian Molko söngvara á milli laga voru forvarnafrasar, sem að- standendur hátíðarinnar hafa líkleg- ast forritað hann með áður en hann steig á svið af ótta við að hörmungar hátíðarinnar í fyrra myndu endur- taka sig. Þeir náðu þó ágætlega til fjöldans og látalæti hins óþægilega hávaxna bassaleikara sveitarinnar voru nægileg til þess að gera tón- leikana að augnayndi. Wyclef Jean lagði mesta áherslu á það í atriði sínu að skemmta fólki og ekki var annað að sjá en honum hafi tekist það. Hann olli mér þó miklum vonbrigðum og ég ákvað að yfirgefa hann og fjörfiska hans þegar kappinn tók upp á því að leika nokkur lög eftir Shaggy og aðra vini sína, beint af geislaspilara! Á meðan hoppaði hann og skoppaði um sviðið eins og tán- ingsstúlkur gera á stofugólfinu heima hjá sér, syngjandi í hárbursta með uppáhaldslögunum sínum. Tool voru það áhugaverðasta sem ég sá þetta kvöldið. Þeir leika afar framsækna rokktónlist, afar vélræna og töff. Mikið var lagt í umgjörðina, t.d. var myndbandsverk á skjáunum út alla tónleikana og áhorfendur gláptu á sem dáleiddir. Eina sem ég hef út á tónleikana að setja er hversu ópersónulegir og ómannlegir þeir voru. Í rauninni hefði hver sem helst getað verið þarna uppi á sviði og eng- inn hefði líklegast tekið eftir því. Föstudagur Eftir frábæra „reggae/dub“ tón- leika Winstons Rodney eða The Burning Spear, eins og hann kallar sig, fór að lifna almennilega yfir föstu- deginum. Beck, sem átti að leika um nóttina, var færður á mun ákjósanlegri stað fyrr um kvöldið. Hann hefur einstaka hæfileika til að beintengjast áhorf- endum sínum og var alveg jafn skemmtilegur milli laga, eins og á meðan hann lék þau. Loftbelgir risu upp í óendanleika skýjalausa himins- ins við undirleik Becks og þegar pilt- urinn áttaði sig á því að fegurð þeirra gæti hugsanlega rænt athyglinni frá honum sagði hann yfirvegaður í hljóð- nemann: „Við komum með þessa loft- belgi fyrir ykkur, ég vona að þið kunnið að meta þá.“ Því næst horfði hann upp til eins þeirra, veifaði vina- lega, setti svo þumalinn upp í loft og sagði; „Frábær tímasetning strákar!“ Eftir það hurfu loftbelgirnir einhvern veginn út úr sjóndeildarhringnum. Nick Cave var í algjörum ham. Ég hafði búist við rólegum og einlægum tónleikum, í svipuðum anda og nýja platan er. En Cave mætti skeggjaður til leiks, skók hausnum og sveiflaði hárinu í takt við vel valda slagarasúpu þar sem adrenalínið var látið flæða. Einu lögin sem hann tók t.d. af nýju plötunni voru þau sem rokka, ballöð- urnar voru skildar eftir heima. Besta lag tónleikanna var stórkostleg út- gáfa af The Mercy Seat. Eftir jafn ótrúlega framkomu og Cave sýndi var lítið annað hægt að gera en að setjast niður í hæfilegri fjarlægð frá appelsínugula tjaldinu, þar sem Neil Young lék af sinni stöku snilld. Laugardagur Kaliforníusveitin Grandaddy átti mjög góða tónleika á laugardeginum. Tónlist þeirra er mjög sveimandi, þó ekki eins draumkennd og tónlist Sig- ur Rósar er. Þetta er ein af þessum sveitum sem á líklega eftir að festa sig í sessi í tímans rás sem ein af áhrifameiri sveitum jaðartónlistar- innar. Það var með mikilli eftirvæntingu sem ég beið eftir tónleikum „spænska frakkans“ Manu Chao, fyrrum for- sprakka sveitarinnar Mano Negra. Sólóplöturnar hans báðar eru bráð- skemmtilegt eyrnakonfekt frá upp- hafi til enda. Manu leggur sig fram við að blanda saman hinum ýmsu tón- listarstefnum heimshornanna, en styðst þó yfirleitt við reggae undir- tóna. Hann var hreint út sagt ótrúleg- ur á sviði. Hann gaf sig allan, stoppaði aldrei á milli laganna, sem voru öll í mun líflegri búningi en þau eru á plöt- unum. Ég hefði ekki trúað því að það væri hægt, en hann fór létt með það. Næst var stefnan sett á að votta rokkgoðinu Bob Dylan virðingu sína. Kallinn varð sextugur í maí síðast- liðnum en hefur engu gleymt. Þó var tilfinningin sem fyllti mig á meðan ég tölti á tónleika hans líkari þeirri sem maður fær á leiðinni á Þjóðminjasafn- ið á tónleika. Maður fór kannski meira til þess að sjá en hlusta. En kvöldið var alls ekki búið því eftir voru tónleikar rokkprinsessunnar P.J. Harvey. P.J. mætti til leiks með gítarinn að vopni, á brjóstahaldaranum og í pilsi. Hún er algjör hetja, helsti baráttu- maður kvenna gegn hinni vaxandi útlitsfirringu, sem einkennir skemmtanaiðnaðinn í dag. P.J. er stórglæsileg kona, bæði að innan og utan. Tónlist hennar er stórkostleg og tónleikarnir voru afbragð. Eftir að P.J. hafði gengið af sviðinu í allra síð- asta sinn grét himinninn af sorg í eina skiptið, alla helgina. Rigningin hafði þó lítil áhrif á stuð- boltann Robbie Williams sem hélt hita á liðinu þrátt fyrir bleytuna. Sunnudagur Það sem kom mér mest á óvart á sunnudeginum var Orgelkvartettinn Apparat. Eina íslenska sveitin sem lék á hátíðinni í ár. Þeir slógu hrein- lega í gegn, lögin mjög grípandi og hrynheit. Eftir vel heppnaða tónleika voru þeir félagar klappaðir upp. Þá mættu þeir á svið og dönsuðu und- arlegan dans við mikla ánægju við- staddra. Það er því með mikilli eft- irvæntingu sem ég bíð eftir fyrstu breiðskífu sveitarinnar. Sunnudagurinn var þó gjörsam- lega í eigu The Cure. Þeir mættu aftur á hátíðina í minn- ingu þeirra 9 sem létust í fyrra, en þeir hættu við að koma fram þá vegna hins hörmulega slyss. Það var auðséð að þeir nutu sín vel, léku flest sín uppáhaldslög og voru þéttir. Robert Smith, fuglahræðu- engillinn, söng og lék á gítarinn af mikilli einlægni og heillaði með sér alla þá sem höfðu safnast saman á tónleikana. Þetta voru líklegast fjöl- mennustu tónleikarnir um helgina. Það var einnig gaman að sjá hversu mikil áhrif þeir hafa haft á aðdáendur sína, en við fylgdumst með líkt og við værum á trúarsamkomu. Mjög við- eigandi endir á afar vel heppnaðri há- tíð. Daginn eftir var pakkað saman, himnaríki yfirgefið og hversdagsleik- inn tekinn við á ný. Hróarskelduhátíðin 2001 í máli og myndum Fjórir dagar í himna- ríki Það er leiðinlegt að missa af Hróars- kelduhátíðinni. Það gerði Birgir Örn Stein- arsson ekki þetta árið og ætlar að deila gleði sinni með hinum ólán- sömu, enda óvenju gjaf- mildur piltur. AP Robert Smith, söngvari The Cure, vottaði hinum 9 látnu virðingu sína með stórkostlegri frammistöðu. Ljósmynd/Lena Viderö Orgelkvartettinn Apparat: Músíkvatur og Úlfur á bláa sviði hátíðarinnar. Andi Hróarskelduhátíðarinnar. „Frábær tímasetning strákar!“ Lúðrasveit þrammar framhjá stóra sviðinu í hamslausri gleði. biggi@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.