Morgunblaðið - 11.07.2001, Qupperneq 13
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 2001 13
NÝTT Á ÍSLANDI
u n d i r f a t n a ð u r
u n d i r f a t n a ð
saum
laus
ALGJÖR ÞÆGINDI
Kynnum
í ö l l u m v e r s l u n u m
LYFJA
- fyrir útlitið
Kynningarverð
DÚNDUR
T I L B O Ð
UMBOÐSMENN UMM LAND ALLT
Teba veggofn og
helluborð saman í setti. Fjölkerfa
blástursofn, undir & yfirhiti, grill og
grillteinn. Helluborð með 4 hellum.
Verð áður kr 52.500
Eldavél með
grilli, 4 hellur, þar af 1
hraðsuðuhella. Geymsluhólf.
HxBxD:85x49,6x60 cm.
Verð áður kr. 38.900
Splunkuný gerð af
1000 snúninga Zanussi þvottavél.
Sérstakt hrað - og ullarþvottarkerfi.
Fékk hæstu einkunn fyrir þvottagæði.
Verð áður kr. 59.900
ZANUSSI
Suðurlandsbraut 16 108 Rvk. Sími 5880500
46.90
0
45.80
0
32.90
0
26.90
0
Kæliskápur í
borðhæð með rúmgóðu 18 lítra
frystihólfi. Sjálfvirk afþíðing í kæli.
Kælikerfi með þriggja ára ábyrgð
HxBxD:85x55x60 cm.
Verð áður kr. 33.900
stgr. k
r stgr. k
r
stgr. k
rstgr. k
r
BÆJARRÁÐ Kópavogs staðfesti á
dögunum tillögur bæjarskipulags
um stígatengingar milli Kópavogs
og Garðabæjar. Að sögn Birgis Sig-
urðssonar skipulagsstjóra í Kópa-
vogi er þetta samvinnuverkefni á
milli bæjarfélaganna.
„Tillagan sýnir hvernig við sjáum
fyrir okkur þessar tengingar á milli
sveitarfélaganna. Þetta verða
göngu- og hjólreiðastígar,“ segir
hann, en ákvörðun hefur ekki verið
tekin um hvenær hefjast eigi handa.
Hann segir að nú sé eingöngu um
skipulagsþáttinn að ræða og þetta sé
hugmynd, sem unnið hafi verið með
síðan síðastliðið vor. Hugmyndin
sýni línu þessa megingöngustígs og
hvernig hann sé hugsaður, en í dag
endi stígurinn við bæjarmörkin.
„Engar kostnaðartölur eru komnar
og næsta skref er að við fáum grænt
ljós frá Garðabæ, ásamt því að sveit-
arfélögin skiptist á bréfum. Við er-
um reyndar búin að senda okkar yfir
til Garðabæjar með tillögunni,“ seg-
ir Birgir, en hann reiknar með að
þetta fari inn á framkvæmdaáætlan-
ir hjá bæjarfélögunum.
Stígatengingin aðkallandi
Birgir telur að þessi stígatenging
sé orðin nokkuð aðkallandi. Nokkuð
sé um hjólandi umferð og verði hann
var við það að fólk hjóli í gegnum
Kópavogsgjána, þrátt fyrir þrengsli
þar.
Að sögn Bergljótar Einarsdóttur
skipulagsfulltrúa Garðabæjar er
eindreginn vilji fyrir stígatenging-
unum. Spurningin sé hins vegar
hvort sveitarfélögin eða Vegagerðin
kosti framkvæmdirnar.
Tenging yfir í Hafnarfjörð
„Næsta skref hjá okkur er að hitta
bæjarskipulag Hafnarfjarðar og
gera drög að tengingum áfram frá
Garðabæ og yfir í Hafnarfjörð og
síðan samhæfa þarna Kópavog,
Garðabæ og Hafnarfjörð,“ segir
Bergljót og er sammála Birgi um að
mikil þörf sé á þessum stígum. Í dag
sé ekki ein heildregin göngu- eða
hjólalína frá Reykjavík og yfir í
Hafnarfjörð. Hún segir að skoða
þurfi þetta nánar og leggja síðan fyr-
ir bæjarráð.
Göngu- og hjólreiða-
stígar milli bæjarfélaga
Kópavogur/Garðabær
KRAKKAR í leikskól-
anum Drafnarborg við
Drafnarstíg í Vesturbæ
tóku síðasta daginn í
leikskólanum fyrir sum-
arfrí með trompi á föstu-
dag. Leiktæki voru feng-
in að láni frá ÍTR og þar
á meðal voru
kassabílar,
trampólín, kast-
hringir, sippu-
bönd og fleira.
Börnin fengu
andlitsmáningu
og virtust hin
ánægðustu þrátt
fyrir rigninguna
þegar ljósmynd-
ari rakst á þau
og smellti af
þeim hópmynd.
Að sögn Sig-
urhönnu V. Sig-
urjónsdóttur,
leikskólastjóra í
Drafnarborg,
reyndust börnin ófús að
láta þvo af sér andlits-
málninguna fyrir hádeg-
ismatinn heldur skört-
uðu henni við
borðhaldið. Að loknum
hádegismat héldu börnin
aftur út í garð og tóku
eina rispu í leiktækj-
unum fyrir sumarfrí.
Morgunblaðið/Jim Smart
Á leið í sumarfrí
Vesturbær
HEILDARKOSTNAÐUR
við framkvæmd kosning-
anna um staðsetningu
Reykjavíkurflugvallar,
sem fram fór 17. mars síð-
astliðinn, var tæpar 21,5
milljónir og er gert ráð
fyrir að kostnaðurinn verði
um 22 milljónir króna þeg-
ar upp er staðið, vegna
óinnkominna reikninga.
Í bréfi skrifstofustjóra
borgarstjórnar til borgar-
ráðs kemur fram að í byrj-
un febrúar hafi áætlaður
kostnaður við kosningarn-
ar verið ríflega 15 milljónir
og var þá miðað við fjóra
kjörstaði.
Nokkru síðar ákvað
borgarráð að Kringlan
yrði einnig kjörstaður en
um „mánaðamótin febrú-
ar-mars 2001 þótti allt
benda til þess að kjörsókn
yrði töluvert meiri en
upphaflegar áætlanir
höfðu gert ráð fyrir, og í
framhaldi af því ákvað
borgarráð á fundi sínum
6. mars 2001 að annars
vegar yrði bætt við sjötta
kjörstaðnum, Hagaskóla,
og hins vegar að kjör-
deildum yrði fjölgað úr 30
í 50,“ segir í bréfi skrif-
stofustjóra.
Lokakostnaðaráætlun
sem lá fyrir í byrjun mars
var því 21.380.000 krónur
en eins og fyrr segir er
áætlað að kostnaður verði
um 22 milljónir króna
þegar upp er staðið.
Flugvallarkosning
kostaði um 22
milljónir króna
Reykjavík