Morgunblaðið - 22.09.2001, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Málþing Betri borgar
Dagur
virðingar
BETRI borg heldurmálþing sem nefn-ist „Dagur virð-
ingar“ í Ráðhúsi Reykja-
víkur þriðjudaginn 25.
september nk. Hefst
þingið kl. 13, það er opið
öllum og enginn aðgangs-
eyrir. Guðrún Arna Gylfa-
dóttir, verkefnisstjóri hjá
Íþrótta- og tómstundaráði
Reykjavíkur, hefur með
fleirum annast undirbún-
ing málþingsins. Hún var
spurð um markmið þess.
„Tilgangurinn er að
koma af stað umræðu um
nauðsyn þess að bera
virðingu fyrir öllu fólki og
sýna umburðarlyndi og
skilning í umgengni hvert
við annað. Við teljum
þetta brýnt verkefni og
vonumst til að framtakið verði til
aukinnar vitundarvakningar í
samfélaginu.“
– Hvað er Betri borg?
„Það er samstarfshópur sem
hóf störf í kjölfar funda sem Fé-
lagsþjónustan í Reykjavík boðaði
til vegna áhyggna af ástandi í
miðborg Reykjavíkur. Hópurinn
samanstendur af fulltrúm frá
Rauða kross húsinu, Lögregl-
unni í Reykjavík, miðborgar-
starfi KFUM og K, Félags-
þjónustunni í Reykjavík,
Foreldrahúsinu, URKÍ, Íþrótta-
og tómstundaráði, Samhjálp og
Hinu húsinu. Markmið hópsins
er m.a. að vekja fólk til umhugs-
unar um að miðborg Reykjavík-
ur er sameign okkar allra. Við
viljum vinna að hugarfarsbreyt-
ingu meðal Reykvíkinga sem
bætir menningu og yfirbragð
borgarinnar. Við lítum á okkur
sem grasrótarhóp.“
– Hvað mun fara fram á mál-
þingi ykkar?
„Við ætlum að velta fyrir okk-
ur spurningum eins og hvað er
virðing? Er borin virðing fyrir
okkur? Berum við virðingu fyrir
öðrum? Á hverju byggjum við
mannskilning okkar? Hvað mæt-
ir útlendingum, búsettum á Ís-
landi? Hvernig er veruleiki fatl-
aðra? Á ekki að sýna unglingum
virðingu? Njóta allir sömu virð-
ingar eða er það eitthvað per-
sónulegt?“
– Verður fjallað um þetta í er-
indum eða í málstofum?
„Fjallað verður um efnið í
stuttum erindum. Við höfum
fengið til liðs við okkur hóp fólks
til að halda þessi erindi – alls tíu
manns. Eva María Jónsdóttir er
fundarstjóri en frummælendur
eru Flosi Ólafsson, Guðmundur
Andri Thorsson og Jóna Hrönn
Bolladóttir. Síðan munu sjö ein-
staklingar segja stuttar reynslu-
sögur. Á milli erinda eru tónlist-
aratriði frá Tónaflokknum sem
er ungt fólk sem spil-
aði á götum Reykja-
víkur í sumar. Við höf-
um og fengið til liðs
við okkur kvikmynda-
gerðarkonu, Helenu
Stefánsdóttur, sem
mun frumsýna stutt-
myndina Brot. Hún vildi gera
töfrandi mynd sem myndi snerta
áhorfendur og það tekst henni
svo sannarlega. Brot er raunsæ
mynd með ævintýraívafi og sýnir
blákaldan veruleika reykvískra
ungmenna. Hún sýnir einnig ein-
manaleikann sem býr með svo
mörgum í samfélaginu í dag þeg-
ar við gleymum okkur og í hugs-
unarleysi hættum að virða hvert
annað og sýna hvert öðru
umburðarlyndi og skilning.“
– Hefur ástandið í miðborginni
lagast frá því að þessi hópur tók
til starfa?
„Við höfum séð breytingar
bæði til hins betra og til hins
verra.“
– Hvað hefur lagast?
„Færri ungmenni eru á ferli á
nóttunni um helgar en drykkju
og skrílslátum hefur ekki linnt. Í
miðborginni birtist mannlífið í
„öllum regnbogans litum“, og því
ættu borgarbúar að láta sig
varða þróun hennar og ímynd.“
– Eruð þið með tillögur til úr-
bóta?
„Nei, en við störfum saman til
þess að veita gagnkvæmar upp-
lýsingar og til að verða hæfari til
að meta ástand og aðstæður í
miðborg Reykjavíkur. Framund-
an hjá okkur er að vinna tillögur
að hvað megi gera en þær eru á
frumstigi. Þetta málþing er liður
í því starfi að fjalla um þetta
málefni.“
– Hvað með löggæslu – ætlið
þið að koma með tillögur um að
auka hana?
„Það hefur ekki verið rætt í
hópnum en við viljum frekar
finna leiðir til að nýta þann liðs-
afla sem til er á sem bestan
hátt.“
– Getur hinn almenni borgari
gert meira til að laga ástandið?
„Við viljum sjá fleira fullorðið
og ódrukkið fólk í miðbænum.
Einnig að foreldrar virði útivist-
arreglur ungmenna.“
– Eru nægileg úrræði fyrir
ungt fólk sem lendir í blindgötu?
„Nei, úrræðin eru
ekki nógu góð og því
þurfum við að efla for-
varnir til að fækka
þeim sem lenda í
vanda.“
– Hvar á að vinna
það forvarnarstarf?
„Við lítum svo á að með sam-
starfi náum við bestum árangri,
þar sem félög og stofnanir vinna
saman að sama markmiði. Með
samráði eins og við höfum í
Betri borg sjáum við betur hvar
pottur er brotinn og getum því
bætt hvert öðru upp það sem á
vantar í þekkingu og reynslu.
Það er líka auðveldara að þróa
forvarnarstarfið í slíkri sam-
vinnu og höfum við verið ófeimin
við það. Það er mikilvægt að
geta unnið fordómalaust saman.“
Guðrún Arna Gylfadóttir
Guðrún Arna Gylfadóttir
fæddist 22. febrúar 1970 í
Reykjavík. Hún lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum við
Sund árið 1990 og stundaði nám
við Kennaraháskóla Íslands 1991
til 1994. Hún hefur starfað hjá
Íþrótta- og tómstundaráði um
árabil og er nú verkefnisstjóri
þar.
Það er mik-
ilvægt að
geta unnið
fordómalaust
saman
Það verður bara að salta þetta líka, það er hvergi hægt að stinga í samband.