Morgunblaðið - 22.09.2001, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 22.09.2001, Blaðsíða 43
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2001 43 JÓHANN Örn Sigurjónsson og Björn Víkingur Þórðarson taka nú þátt í Norðurlandamóti öldunga sem haldið er í Fredrikstad í Noregi. Báðir hafa þeir staðið sig með prýði og þegar sex umferðum af níu er lok- ið eru þeir Jóhann Örn og Norðmað- urinn Svein Johannessen (2. 227) efstir á mótinu. Þeir eru báðir með 5 vinninga eftir 6 umferðir. Jóhann Örn tapaði fyrstu skákinni á mótinu, en hefur síðan unnið fimm skákir í röð. Björn Víkingur Þórðarson er í 8. -10. sæti með 4 vinninga, eða einum vinningi á eftir efstu mönnum. Sjöunda umferð fór fram á föstu- dag. Þá mættust efstu menn, Jóhann og Svein Johannessen, en Björn tefldi við Norðmanninn Edmund Forselv (1. 811). Alls taka 44 skákmenn þátt í Norðurlandamótinu. Fjórir af fimm stigahæstu skákmönnunum eru norskir, en Jóhann Örn er þriðji í stigaröðinni. Björn er sá 14. í röð- inni. Sigurvegarinn fær þátttökurétt á Heimsmeistaramóti öldunga sem fram fer í Arco á Ítalíu, 16. -28. októ- ber. Það er greinilegt að íslenska skák- vorið er ekki takmarkað við skák- menn á unglingsaldri. Ánægjulegt er að sjá tvo skákmenn á góðum aldri leggja í víking til að taka þátt í erlendum skákmótum og ekki skemmir það fyrir þegar árangurinn er svona góður. Vonandi eigum við eftir að sjá enn frekari fjölgun í hópi eldri skákmanna sem leita út fyrir landsteinana til að taka þátt í skák- mótum. Þess má geta, að elsti kepp- andinn á Norðurlandamótinu er á ní- ræðisaldri og hefur staðið sig vel. Skákfélag Hafnarfjarðar hættir starfsemi Eitt öflugasta skákfélag landsins, Skákfélag Hafnarfjarðar, hefur hætt starfsemi. Það er sjónarsviptir að þessu félagi sem hefur verið mjög áberandi í skáklífinu hér á landi um langt skeið. Forsvarsmenn SH hafa unnið mikið og gott starf og auðvitað allt í sjálfboðavinnu. Undir stjórn manna á borð við Ágúst Sindra Karlsson og Sigurbjörn Björnsson hefur félagið náð góðum árangri. M. a. hefur það, með einni undantekn- ingu, teflt í fyrstu deild Íslandsmóts skákfélaga og í hittiðfyrra sigr- aði SH í Hrað- skákkeppni tafl- félaga. Félagið sá sér ekki fært að senda lið til þátttöku í Ís- landsmóti skák- félaga, sem hald- ið verður í Vestmannaeyj- um í október, og það var kornið sem fyllti mælinn, en auk þess voru önn- ur vandamál sem hrjáðu félagsstarf- ið. Það er rétt að þakka stjórnar- mönnum félagsins á undanförnum árum fyrir þá gríðarlegu vinnu sem þeir hafa lagt á sig og jafnframt óska þeim til hamingju með þann góða ár- angur sem SH náði undir þeirra stjórn. Þrátt fyrir að Skákfélag Hafnar- fjarðar hætti starfsemi verður áfram boðið upp á skákæfingar barna og unglinga, en það er mikilvægasti og tímafrekasti þátturinn í starfi flestra skákfélaga. Það hefur orðið að sam- komulagi, að Taflfélagið Hellir taki að sér þessar æfingar. Þá hefur frá- farandi stjórn SH samið við skák- deild Hauka um að fella æfingarnar inn í starfsemi íþróttafélagsins. Með þessum leik, eru húsnæðisvandamál skákmanna í Hafnarfirði úr sögunni þar sem skákdeildin mun hafa að- stöðu á Ásvöllum þar sem aðstæður eru til fyrirmyndar. Þá verður einnig til staðar félagsleg umgjörð, svo sem aðgangur að starfsmönnum Hauka. Í framhaldi af þessum breytingum hafa margir af sterkustu skákmönn- um SH ákveðið að ganga til liðs við Taflfélagið Helli. Haustmót Taflfélags Reykjavíkur 2001 Haustmót TR hefst sunnudaginn 23. september kl. 14. Tefldar verða 11 umferðir og verður keppendum skipt í flokka með hliðsjón af Elo- skákstigum. Í efstu flokkunum tefla allir keppendur við alla, en í opnum flokki verða tefldar 11 umferðir eftir Monrad-kerfi. Fjöldi riðla ræðst af þátttöku. Umhugsunartími verður 1½ klst. á 30 leiki og síðan 45 mín- útur til að ljúka skákinni. Umferðir verða á miðvikudögum og föstudög- um kl. 19:30 og á sunnudögum kl. 14. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki. Pen- ingaverðlaun verða í A-flokki sem hér segir: 1. verðlaun kr. 60. 000, 2. kr. 30. 000, 3. kr. 20. 000. Þátttökugjöld verða sem hér seg- ir: Félagsmenn 16 ára og eldri kr. 3. 000 (utan TR kr. 4. 000), félagsmenn 15 ára og yngri kr. 2. 000 (utan TR kr. 3. 000). Skráning í Haustmótið er hafin og er hægt að skrá sig í tölvupósti á tr@mi. is. Skák úr landsliðsflokki Hannes Hlífar Stefánsson tefldi af miklu öryggi þegar hann tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í skák. Hér leggur hann fyrrverandi Íslands- meistara og einn af okkar allra efni- legustu skákmönnum að velli. Ekki er að efa að Jón Viktor hefur farið vandlega yfir þessa skák og dregið sinn lærdóm af henni. Hvítt: Hannes H. Stefánss. Svart: Jón V. Gunnarss. Slavnesk vörn 1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. Rc3 dxc4 5. a4 Ra6!? Þessi leikur er ekki eins algengur og 5... Bf5, með framhaldinu 6. e3 e6 7. Bxc4 Bb4 8. 0–0 Rbd7 9. De2 Bg4 10. h3 Bxf3 11. Dxf3 0–0 o.s.frv. 6. e4 Bg4 7. Bxc4 Bxf3 8. gxf3 e6 9. Be3 Be7 10. 0–0 Rb4 11. Kh1 0–0 12. Hg1 – 12... g6?! Vafasöm nýjung hjá Jóni Viktori. Í framhaldi skákarinnar reynist það honum erfitt, hve fljótur hvítur er að leika f3-f4-f5 og hóta þannig að opna stöðuna með drápum á g6. Eðlilegast virðist að leika 12... Kh8, t. d. 13. f4 c5 14. dxc5 Dc7 15. e5 Rd7 16. Re4 Rxc5 17. Rd6 Had8 18. Bd4 f6 19. Dh5 Dc6+ 20. Hg2 Bxd6 21. exd6 Rcd3 22. Dg4 g6 23. Dh4 e5 24. Bxd3 Rxd3 25. fxe5 fxe5 26. Bc3 Hxd6 27. Kg1 He6 með flókinni stöðu, sem svartur vann um síðir (Hannes Hlífar-Helgi Áss Grétars- son, Skákþingi Íslands 1998). 13. f4 c5 14. f5 cxd4 15. Bxd4 – 15... Dc7 Til greina kemur að leika drottn- ingunni til c8, en spurningin er, hvort það á gerast strax, eða eftir 15. – exf5. Það virðist ekki eðlilegt að drepa fyrst á f5, vegna þess að það eykur mátt biskupsins á c4 og gerir hótanir um dráp á g6 hættulegri. Eftir 15... Dc8, t. d. 16. fxg6 hxg6 (16. – Dxc4? 17. gxh7+ Kxh7 (17. – Kh8 18. Dg4) 18. Bxf6 Dc5 19. Dg4 Bxf6 20. Dh3+ og mátar) 17. De2 Rc2 18. Bxe6 Dxe6 19. Dxc2 Hfd8 20. Had1 Bb4 21. f3 Hxd4 22. Hxd4 Bc5 23. Dd3 Bxd4 24. Dxd4 a6 25. Hd1 með betra tafli fyrir hvít. Hvítur getur einnig leikið 16. e5 (í stað 16. fxg6) 16. – Dxc4 17. exf6 Bd8 (17... Hfd8 18. fxg6 fxg6 19. Dh5 Dc6+ 20. f3 De8 21. De5 Hxd4 22. Dxd4 Rc2 23. De5 Df7 24. fxe7 Dxf3+ 25. Hg2 Rxa1 26. Dxe6+ Df7 27. De1 He8 28. Dxa1) 18. Dh5 Dxd4 19. fxg6 fxg6 20. Hxg6+ Kh8 21. Hg7 Dd3 22. Hd1 Df5 23. Dh6 Bxf6 24. Hdd7 Df3+ 25. Hg2 Df5 26. Hgg7, með þrátefli. Loks má geta þess, að staðan er ekki ljós, eftir 15... Rc6 (í stað 15. – Dc7 eða 15. – Dc8), t. d. 16. Bxf6 Bxf6 17. fxe6 fxe6 18. Bxe6+ Kh8 19. Hg2 Bd4 o.s.frv. 16. b3 exf5 17. exf5 Dc6+ Eftir 17... Kg7 18. Rd5 Rbxd5 19. Bxd5 Had8 20. Df3 b6 21. Hge1 Hfe8 22. Hac1 Dd7 23. Hcd1 Dxd5!? 24. Bxf6+ Bxf6 25. Hxd5 Hxe1+ 26. Kg2 Hxd5 27. Dxd5 He5 28. Db7 He7 29. Df3 stendur hvítur einnig betur. 18. f3 Rh5 Hvítur hótaði að drepa á g6. Eftir 18... Had8? 19. fxg6 Bc5 20. gxf7+ Kh8 21. Hg8+ Hxg8 22. fxg8D+ Hxg8 23. Bxc5 vinnur hvítur auð- veldlega. 19. fxg6 hxg6 20. De2 Kh7 Eða 20... Rf4 21. De3 Rc2 22. Dxf4 Rxd4 23. Rd5 Bc5 24. b4 Re6 25. Rf6+ Kg7 26. Bxe6 fxe6 27. b5 Db6 28. Rh5+ Kh7 29. Dh4 Bxg1 30. Rf4+ Kg8 31. Hxg1 Dxg1+ 32. Kxg1 Hf7 33. Rxg6 og hvítur á unnið tafl. 21. Dxe7 Dxf3+ 22. Hg2 Rc6 23. De3 Rxd4 24. Dxd4 Rf4 25. Bd5! – Hvítur tryggir yfirburði sína og lokin eru skammt undan. 25. – Rxd5 26. Rxd5 Had8 27. Rf6+ Kh6 Eftir 27... Kh8 28. Rd7+ f6 29. Dd1 Dxd1+ (29... De4 30. Rxf8 Hxd1+ 31. Hxd1) 30. Hxd1 Hfe8 31. Hgg1 Kg7 32. Rc5 á hvítur manni meira og unnið tafl. 28. Dh4+ Kg7 29. Rh5+ Kh7 30. Rf4+ Kg7 31. Dg3 Hd1+ 32. Hxd1 Dxd1+ 33. Hg1 Dd7 og svartur gafst upp. Lokin hefðu getað orðið: 34. Rh5+ Kh8 (34... Kh6 35. Dg5+ Kh7 36. Rf6+) 35. Dc3+ f6 36. Rxf6 Hc8 37. Df3 Dc6 (37... De6 38. Dxb7 Dh3 39. Rg4) 38. Dxc6 Hxc6 o.s.frv. Jóhann Örn efstur á NM öldunga Daði Örn Jónsson Bragi Kristjánsson SKÁK N o r e g u r NM ÖLDUNGA 15.–23. 9. 2001 Jóhann Örn Sigurjónsson „FERÐAFÉLAG Íslands stendur fyrir göngu sunnudaginn 23. septem- ber um Hellisheiði, Hellisskarð og Draugatjörn. Þetta er hluti af þjóð- leiðinni yfir Hellisheiði. Lagt er af stað við slysavarnaskýlið á Hellis- heiði og gengin varðaða leiðin að Hellisskarði og Draugatjörn. Um 2 til 4 klst. ganga. Brottför frá BSÍ kl 10.30 með viðkomu í Mörkinni 6. Verð kr. 1.300 en 1.000 fyrir félaga FÍ,“ segir í fréttatilkynningu frá Ferðafélagi Íslands. Gengið um Hellisheiði MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Lyfja- stofnun: „Að gefnu tilefni vill Lyfjastofnun benda á það að sumar af þeim full- yrðingum sem komu fram í fréttinni „Engar klíniskar tilraunir með lyf hérlendis“ (Morgunblaðið, 12.09. 2001) eru ekki alveg réttar. Í fréttinni segir: „Klínísku rann- sóknirnar eru svokallaðar þriðja fasa rannsóknir þegar farið er að gera til- raunir með fólk og það er nokkuð sem við (Íslensk erfðagreining) kom- um hvergi nálægt á neinu stigi máls- ins.“ Þegar lyf er þróað fer það í gegn- um mismunandi stig (= fasa). Á 1, 2 og 3 stigi eru gerðar mismunandi klíniskar tilraunir, en þær eiga það allar sameiginlegt að þær eru gerðar á mönnum. Það er síðan eftir að lyf er markaðssett sem fjórða stig byrjar og taka menn einnig þátt á því stigi. Þær 15 umsóknir um leyfi fyrir klín- ískri lyfjarannsókn sem borist hafa Lyfjastofnun það sem af er árinu falla inn á öll fjögur stigin. Encode – Íslenskar lyfjarannsóknir ehf., sem er dótturfyrirtæki Íslenskrar erfða- greiningar, hefur umsjón með fram- kvæmd nokkurra slíkra rannsókna. „Páll … segir að Encode hafi tekið að sér hluta af lyfjarannsóknum fyrir stóru lyfjafyrirtækin en sá vandi sem ritstjórarnir (ritstjórar margra virt- ustu læknatímarita heimsins) benda á sé ekki fyrir hendi (hér á landi)“. Lyfjastofnun veit að Encode tekur að sér að hafa umsjón með framkvæmd klíniskra tilrauna fyrir „stór lyfjafyr- irtæki“. Í flestum tilfellum er rann- sóknaráætlunin samin af „stóra lyfja- fyrirtækinu“. Það sem ritstjórarnir segja um rannsóknir „stóru lyfjafyr- irtækjanna“ getur því átt við hér á landi. Lyfjastofnun vill koma þessum leiðréttingum á framfæri og láta fólk vita af því að klínískar tilraunir með lyf eru framkvæmdar hér á landi. Siðanefndir, Persónuvernd, Lyfja- stofnun og fleiri fylgjast með skipu- lagi og framkvæmd þessara rann- sókna. Oft má deila um vísindalegt gildi rannsóknanna og um einstaka liði rannsóknaráætlunarinnar, en ís- lensk fyrirtæki, eins og t.d. Encode, hafa yfirleitt staðið sig vel þegar kemur að umsókn og framkvæmd rannsókna. Fyrir hönd Lyfjastofnunar, Pétur S. Gunnarsson lyfjafræðingur.“ Klínískar lyfjarannsóknir á Íslandi DIDIER Cherpitel, framkvæmda- stjóri Alþjóðasambands Rauða kross félaga, hefur framsögu á opnum fundi Rauða kross Íslands í Ársal á Hótel Sögu í dag kl. 14. Á fundinum ræðir Cherpitel um ástandið sem hefur skapast í kjölfar hryðjuverkanna í Bandaríkjunum nýlega og undirbúning Rauða kross- hreyfingarinnar vegna þess, einkum í Afganistan og aðliggjandi löndum. Cherpitel er hér á landi í tengslum við reglubundinn fund forystumanna 25 Rauða kross-félaga, þeirra sem mestan þátt taka í alþjóðlegu hjálp- arstarfi. Fundurinn fer fram í Reykjavík að þessu sinni. Á honum verður rætt meðal annars um óvissuástandið sem nú ríkir, stefnu Rauða kross-hreyf- ingarinnar til 2010 og sívaxandi erf- iðleika við að fjármagna alþjóðlega neyðar- og þróunaraðstoð. Á fundinum heldur Cherpitel stutt framsöguerindi og hann svarar síðan spurningum fundarmanna. Opinn fundur um viðbúnað Rauða krossins „VETRARSTARF jeppadeildar Úti- vistar hefst með deildar- og kynn- ingarfundi mánudagskvöldið 24. september kl. 20 í aðalsal Ingvars Helgasonar hf. á Sævarhöfða 2 og er fundurinn haldinn í boði Fjalla- sports og Ingvars Helgasonar hf. Í salnum verða sýndir breyttir bílar og starfsmenn Fjallasports munu fjalla um breytingar sem þar eru gerðar á bílum og kynna vöruúrval sitt. Kynning verður á næstu jeppa- ferðum og imprað á einu og öðru sem til stendur eftir áramótin. Næsta ferð, norður fyrir Hofsjökul, 27.-30. september verður kynnt á fundinum, en þar eru skráðir 10 bílar og ennþá eru örfá pláss laus. Myndir úr fyrri ferðum jeppadeild- ar verða rúllandi fyrir fundinn og í hléi. Kaffi og meðlæti verður í boði gestgjafa en aðgangur er ókeypis.“ Vetrarstarf jeppadeildar Útivistar að hefjast „NÍUNDI og næstsíðasti áfangi göngu um Reykjaveginn verður genginn sunnudaginn 23. sept. og er brottför frá BSÍ kl.10.30, en á leiðinni er stansað við Select. Ekið verður um Nesjavallaveginn að Dyrum norðan Hengils en þaðan er gengið vestan Nesjavalla og Þingvalla að Heiðar- bær. Reiknað er með um 6 klst. göngu um fjölbreytt og skemmtilegt göngu- land. Verð 1.500 kr. fyrir félaga og 1.700 kr. fyrir aðra. Næsta helgarferð Útivistar er haustlitaferð í Bása en þá gefst gott tækifæri til að kynnast haustlitadýrð- inni á Goðalandi og Þórsmörk,“ segir í fréttatilkynningu frá Útivist. Gönguferð með Útivist ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.