Morgunblaðið - 22.09.2001, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 22.09.2001, Blaðsíða 42
MINNINGAR 42 LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ tóku þau kornunga stúlku, Fríðu, í fóstur og ættleiddu hana. Hún lést sextán ára gömul eftir erfið veikindi. Aftur varð að takast á við sorgina. Lífið féll í sinn farveg en eftir stóð minningin um elskulegt ungmenni. Uppeldisbörnin í Bæ urðu fleiri. Þar sem hjartahlýja er fyrir er húsrúm nóg. Bæjarheimilið varð mjög gest- kvæmt, bæði var öllum sem að garði bar vel tekið og ekki skorti umræðu- efni við húsbændur. Margir áttu þangað erindi, vegna starfa þeirra. Jensína var, eins og áður sagði, ljós- móðir sveitarinnar, og sveitin var fjölmenn á þeim árum og þurftu því margir til hennar að leita, hún var einnig lagin við allskyns aðlhynningu við þá, sem þess þurftu með. Vegna margvíslegra starfa Guðmundar komu margir að Bæ. Þau bjuggu alla tíð við mikla gestrisni, en ekki mikil efni. Árin liðu og þau bjuggu búi sínu í Bæ meðan kraftar leyfðu. Síðustu árin í félagsbúi með Hjalta syni sín- um og konu hans Guðbjörgu Þor- steinsdóttur. Síðar tóku ungu hjónin alveg við búinu, en áfram voru þau í Bæ, og nutu umönnunar ungu hjónanna og barna þeirra. Minningin um Bæjarhjónin er nokkuð, sem ekki gleymist. Þetta er minning um stórbrotið og þó alþýð- legt fólk. Þrátt fyrir alla nærfærni, sem Jensína átti til, og kom fram í ljómóðurstörfum hennar, var hún stórbrotin og skapstór kona, en glað- lynd og orðheppin í besta lagi. Það var mikið lán þessu byggðarlagi að hafa slíka atorkukonu fyrir ljósmóð- ur á þeim árum, þegar oft var ekki hægt að ná til læknis. Við starfslok hennar var Jensínu sýndur ýmis sómi, sem verðugt var. Hún var hetja, sem samferðamennirnir gleyma ekki. Þótt árin færðust yfir hélt Guð- mundur áfram að fylgjast með, augu og eyru hans voru sívökul, sama var hvort voru landsmálin eða það sem var að gerast í sveitinni. Hann hafði á langri ævi barist fyrir bættum hag. Þegar hann var í hreppsnefnd Ár- neshrepps hreyfði hann því, að hreppsnefndin gengist fyrir kaupum á landi á Gjögri, sem síðan yrði út- hlutað til rækturnar fyrir íbúana þar. Þar var þörfin brýn. Þar bjuggu barnmargar fjölskyldur, án þess að geta aflað sér mjólkur, vegna þess að ekki voru landnytjar. Kannske sást hann ekki alltaf fyrir í baráttu sinni, en hún var samt einlæg. Árnes- hreppi var ekkert of gott. Þegar líða tók á tuttugustu öldina voru blikur á lofti, fólki tók að fækka í sveitum landsins. Af þessu fór Ár- neshreppur ekki varhluta. Fátt varð Guðmundi meira að hugarangri en sú þróun. Ég veit að oft kom upp í huga hans þessi setning, „höfum við gengið til góðs götuna fram eftir veg?“ Ég held, að hann hafi talið svo vera, en skynjaði samt, „að enginn stöðvar tímans þunga nið“. Það gladdi hann ósegjanlega, að Pálína sonardóttir hans og maður hennar, Gunnar Guðjónsson, skyldu taka þá ákvörðun að taka við búi með Hjalta og Guðbjörgu, í því eygði hann von. Guðmundur var víðlesinn maður og mikils fróðleiks hafði hann aflað sér af mönnum heima og heiman. Þessa naut hann fram undir andlát sitt. Lengst af held ég að Guðmundur hafi verið heilsugóður, en samt þeg- ar árin færðust yfir fór að bera á lík- amlegum kvillum, sem vænta mátti af manni með langa starfsævi að baki. Síðustu árin var hann þó oft sjúkur og ellimóður var hann orðinn. Oftast var hann þó heima, heima í Bæ, annars staðar vildi hann ekki vera. Heimilisfólkið gerði honum það kleift meðan þess var nokkur kostur. Oft dvaldi hann þó á sjúkrahúsinu á Hólmavík, og þar lést hann, en hug- urinn stefndi ávallt heim að Bæ. Hann var þakklátur starfsfólki sjúkrahússins fyrir aðhlynninguna. Andlegu atgervi hélt hann nánast til hinstu stundar. Minni hans var ótrúlegt forðabúr fróðleiks. Í það verður ekki sótt meira. Á síðustu vikum ævi sinnar skrifaði hann bréf, sem ekki báru það með sér að vera frá helsjúkum manni níutíu og sex ára gömlum. Þess er ógetið, sem síst skyldi, Guðmundur var trúaður maður, og þarf engum að koma það á óvart, það lá í skapgerð hans. Hann leitaði til Guðs síns, þegar í nauðir rak. Hann flíkaði því ekki mikið, en taldi að mönnum væri hollt að staldra við og hugleiða þá hluti. Það eru að koma lok í þessi fátæk- legu orð, sjálfur á ég Guðmundi frænda mínum mikið að þakka, og ef það sem hér hefur verið sett á blað gæti verið þakklæti fyrir liðna tíð þá hefi ég ekki til einskis eytt þeirri stund, sem til þess hefur verið varið. Mér finnst við hæfi að ljúka þess- um orðum með tveimur erindum úr ljóði Steingríms Thorsteinssonar. Setjumst undir vænan við, von skal hugann gleðja, heyrum sætan svanaklið, sumarið er að kveðja. Það er komið haust, landið gefur það til kynna með litum sínum. Sum- arið hefur verið bændum gjöfult, ekkert hefði glatt Guðmund meira. Haustið er líka uppskerutími bændanna, féð að koma af fjalli, tími sem var Guðmundi áhugaverður. Hann gladdist yfir velgengni manna, en ef uppskeran hafði brugðist var strax að huga að hvað væri til úrbóta. Sumarið hefur kvatt og Guðmundur í Bæ er allur. Síðasta erindið í þessu fallega ljóði gæti hafa verið síðasta ósk Guð- mundar. Fagra haust þá fold ég kveð, faðmi vef mig þínum, bleikra laufa láttu beð að legstað verða mínum. Útför Guðmundar er gerð frá Ár- neskirkju í dag, kirkjunni, sem hon- um var svo umhugað um að risi af grunni. Við hjónin og fjölskylda okkar sendum börnum hans og öllum ást- vinum innilegar samúðarkveðjur. Við þökkum honum órofa tryggð og vináttu gegnum árin. Blessuð sé minning Guðmundar Péturs Valgeirssonar í Bæ. Gunnsteinn Gíslason, Norðurfirði. GUÐMUNDUR P. VALGEIRSSON ATVINNU- AUGLÝSINGAR I I Ekki missa af tækifærinu! Ótakmarkaðir tekjumöguleikar án fjárhagslegr- ar áhættu, markviss starfsþjálfun og aðstoð frá reyndum aðilum. www.frjals.is Markaðsstjóri Þekkt markaðs- og auglýsingafyrirtæki óskar eftir að ráða markaðsstjóra. Menntun og starfsreynsla skilyrði. Umsóknir berist til auglýsingadeildar Mbl., merktar: „Framtíðarstarf“. Hefur þú áhuga? Alþjóðlegur viðskiptamaður óskar eftir sam- starfsfélögum um allan heim. Hefur þú áhuga á að vinna með erlendu fyrir- tæki, sem hefur $1,400 billjón í tekjur á ári? Ef svo er hafðu þá samband við mig í síma 567 4214 eða 695 4216. Sjálfboðavinna í Afríku Viltu taka þátt í sjálfboðavinnu í Angola og Guineu Bissau? Fræðsla fyrir götubörn - Herferðir gegn eyðni - Félags- ráðgjöf 14 mán. áætlun með 6 mán. alþjóðlegri þjálfun hjá Den rejsenda Højskole på Sydsjæalland (3 laus pláss í byrjun október). Hefst 15. okt. 2001 eða 1. febrúar 2002. Hringið í síma 0045 56 72 6100. lotte@humana.org www.lindersvold.dk R A Ð A U G L Ý S I N G A R BÍLAR Bílar — Útsala Erum að selja notaða bíla: Toyota Corolla, Toyota Yaris, Nissan Almera, Nissan Micra, Suzuki Sidekick, Grand Vitara, Peugeut 106 o.fl. Gerið góð kaup. Bílarnir eru til sýnis á SH bílaleigunni, Nýbýlavegi 32, Kópavogi. BÁTAR SKIP Til sölu skemmtibáturinn Jói félagi (7010) Báturinn er af gerðinni Fjord. Lengd 8,95 m. Í bátnum eru tvær vélar af gerðinni Volvo Penta, 67,7 kw. hvor vél. Upplýsingar eru veittar í Byggðastofnun í síma 455 5400. TILKYNNINGAR „Hvað er svo glatt..." Nú er tækifærið, komdu með! Vantar söngfólk í allar raddir. Spennandi verk- efni framundan, m.a. Englandsferð í vor. Nánari upplýsingar gefur Pétur í s. 898 1792 eða pgu@strik.is . Árnesingakórinn í Reykjavík. SMÁAUGLÝSINGAR EINKAMÁL TVÍBURARBRÆÐUR Franskir tvíburabræður, 30 ára, óska eftir að kynnast tvíbura- systrum 18-28 ára. Sendið bréf með mynd til: J.C. et J.S. Tram- ier, La Grange Rouge, 30150 Roquemaure, Frakklandi. FÉLAGSLÍF Sunnudagur 23. sept. kl.10.30 Reykjavegurinn 9. ferð. Dyr — Heiðarbær. Um 6 klst. ganga um fjölbreytt gönguland norðan Hengils. Brottför frá BSÍ og miðar í farmiðasölu. Stansað við Select. Verð 1.500 kr. fyrir félaga og 1.700 kr fyrir aðra. Mánudagur 24. sept. kl. 20 Fundur jeppadeildar Útivistar Vetrarstarfið hafið með fundi í húsnæði Ingvars Helgasonar á Sævarhöfða 2 fyrir tilstilli Fjalla- sports sem kynnir breytingar á bílum. Kaffi og meðlæti. Útivistarferðir kynntar. Allt áhugafólk velkomið. Skoðið heimasíðuna: utivist.is . Sunnudagur 23. sept. Hellis- heiði — Hellisskarð — Drauga- tjörn Um 2—4 klst. ganga. Brottför frá BSÍ kl. 10.30 með viðkomu í Mörkinni 6. Verð kr. 1.300 en 1.000 fyrir félaga FÍ. 28.—30. sept. Fræðslu- og fjölskylduferð í Þórsmörk. Dagskrá fyrir alla fjölskylduna, stóra sem smáa, grillveisla, kvöldvaka og sérfræðingar á ýmsum sviðum á staðnum. Verð 6.900 með grillmáltíð. Nánari uppl. á skrifstofu FÍ, www.fi.is og á textavarpi RUV bls. 619. mbl.is ATVINNA Gullsmárabrids Eldri borgarar spiluðu tvímenn- ing á tíu borðum í Gullsmára 13 mánudaginn 17. september sl. Miðl- ungur var 216. Efst vóru: NS Dóra Friðleifsdóttir – Guðjón Ottósson 243 Helga Ámundad. – Hermann Friðrikss.233 Ásta Erlings – Sigurjón H. Sigurjónss. 229 AV Viðar Jónss. – Sigurþór Halldórss. 247 Heiður Gestsd. – Auðunn Bergsveinss. 247 Helga Helgad. – Þórhildur Magnúsd. 233 Eldri borgarar spiluðu tvímenn- ing að Gullsmára 13 fimmtudaginn 20. september sl. Miðlungur var 168. Efst vóru: NS Helga Ámundad. – Hermann Friðrikss. 196 Sigríður Ingólfsd. – Sigurður Björnss. 170 Helga Helgadóttir – Þórhildur Magnúsd.175 AV Björn Bjarnason – Valdimar Lárusson 186 Eggert Kristinss. – Jón Páll Ingibergss. 184 Þorgerður Sigurgeirsd. – Stefán Friðbj. 183 Bridsdeild FEBK í Gullsmára spilar brids alla mánudaga og fimmtudaga. Skráning kl. 12.45. Eldri borgarar spila brids í Gull- smára 12 alla mánudag og fimmtu- daga. Mæting kl. 12.45. Bikarkeppni BSÍ Undanúrslit og úrslit verða spiluð í Hreyfilssalnum 29.-30. sept. Í undanúrslitum á laugardag eig- ast við: Orkuveita Reykjavíkur-Þrír Frakkar Síldarævintýrið-Skeljungur Sveinn og Hans Viggó unnu á startmóti BA Fyrsta móti Bridsfélags Akur- eyrar er lokið á vetrarvertíðinni þótt enn syngi lóur og sumar sé í lofti. Hans Viggó og Sveinn Stef- ánsson urðu hlutskarpastir í Start- móti Sjóvár-Almennra en keppnin var jöfn og spennandi fram á síð- asta spil. Lokastaða efstu para: Sveinn-Hans Viggó 474 Reynir Helgas.Örlygur Örlygss. 464 Stefán Ragnarsson/Anton Haraldsson -Pétur Guðjónsson 461 Soffía Guðmundsd.-Ólína Sigurjónsd. 451 Ragnhildur Gunnarsd.Gissur Jónass. 451 Næsta mót er Butler tvímenn- ingur Sparisjóðs Norðlendinga og er spilað í Hamri á þriðjudagskvöld- um kl. 19.30. Einnig eru eins kvölds tvímenningar á sunnudagskvöldum og eru nýir félagar boðnir velkomn- ir. Formaður Bridsfélags Akureyr- ar er Ragnheiður Haraldsdóttir og er símanúmer hennar 4622-473 ef óskað er frekari upplýsinga. BRIDS U m s j ó n A r n ó r G . R a g n a r s s o n Bridsfélag Kópavogs Eftir gott sumarfrí hófst vetrar- dagskrá Bridsfélags Kópavogs að nýju og var byrjað á þriggja kvölda hausttvímenningi með þátttöku átján para. Margir af okkar gömlu spilurum mættu að sjálfsögðu en það var sérstaklega gaman að það skyldu svo margir nýir spilarar koma til okkar og spila, enda tökum við ávallt vel á móti öllum spilurum sem vilja njóta kvöldsins í góðum félagsskap. En snúum okkur að spilamennsk- unni: Spiluð voru þrjú spil milli para alls 27 spil og var meðalskor 216 N/S: Gísli Tryggvason – Heimir Tryggvason 267 Erla Sigurjónsd – Guðni Ingvarsson 264 Hjálmar S. Pálsson – Anna G. Níelsen 249 Ragnar Björnss. – Sigurður Sigurjónss. 249 A/V: Steingrímur Péturss. – Baldvin Valdim. 272 Gísli Steingrímss. – Sveinn Þorvaldsson 258 Hróðmar Sigurbj. – Bernódus Kristinss. 253 Annað kvöldið af þremur verður spilað fimmtudaginn 27 sept. og hefst spilamennska stundvíslega kl. 19.30. Spilað er í Þinghóli í Hamra- borginni. Bridsfélag Hafnarfjarðar Úrslit úr einskvölds tvímenningi 10. september 2001. Atli Hjartarsson – Sverrir Jónsson 92 Guðni Ingvarsson – Hafþór Kristjánson 86 Sveinn Vilhjálmsson – Haukur Árnason 84 Dröfn Guðmundsd. – Hrund Einarsdóttir 84 Andrés Þórarinsson – Halldór Þórólfss. 84 Úrslit úr einskvölds tvímenningi 17. september 2001. Erla Sigurjónsd. – Sigfús Þórðarsson 132 Sigurjón Harðarsson – Haukur Árnason 120 Andrés Þórarinsson – Halldór Þórólfss. 120 Mánudaginn 24. september hefst hausttvímenningur með fjögurra kvölda Barómeter.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.